Morgunblaðið - 26.11.1994, Side 44
44 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ljóska
j 'fe"#
( Éqsendí honum sir»l
Xttnf úftr a.U£ sen>'eq\ j
C 'lrft ftoC 17
enn'þcí ai>^\ JOjkernK.
berast ?/J
Ferdinand
Smáfólk
I M SORRV..SNOOPV
CAN'T 60 OUT T0
PLAY RIGHT NOU)...
HE'S READIN6..
UUELL, HE'S 5ITTIN6 IN
THERE H0LPIN6 A 0OOK..
THERE'S NO WAT IN
THE UJORLP THAT ANNA
KARENINA ANP COUNT
VRONSKY COULQ EVER
Því miður, Snati getur Hundar kunna Nú, hann situr þarna inni og Það er ekki nokkur mögu-
ekki komið út að leika ekki að lesa... heldur á bók... leiki að Anna Karenína og
þessa stundina... hann er Vronsky greifi geti nokkru
að lesa... sinni orðið hamingjusöm...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
DÆMA á kynferðisafbrotamenn til þyngstu lögleyfðrar refsingar.
Viltu hjálpa barni?
Frá Guðlaugu Karvelsdóttur:
ÉG VIL vekja máls á glæp sem ég
tel ganga næst morði en það er
kynferðisleg svívirða gagnvart
bömum. Guðrún Jónsdóttir og fleiri
góðar konur í Stígamótum hafa
dregið þennan glæp fram í dagsljós-
ið hér á landi og neytt þjóðfélagið
til að horfast í augu við hann.
Allir vita að hvert bam sem fæð-
ist verður að fá vemd og leiðsögn
í uppvextinum til að ná andlegum
þroska svo það geti tekist á við líf-
ið.Inni á heimili barnsins þar sem
það á að vera ömggast og það elsk-
ar og treystir öllu heimilisfólkinu,
er því kannski mest hætta búin, því
jafnvel faðir, bróðir, afi eða frændi
þess gæti verið glæpamaðurinn.
Hvemig getur bam varið sig, það
hefur hvorki þroska né skilning á
að verið er að bækla sálina en græt-
ur af líkamlegum sársauka og
hræðist hótanir og pukur.
Margir þolendur kynferðislegs
ofbeldis hafa öðlast hugrekki, með
hjálp Stígamóta, til að segja frá
kvöl sinni. Nú síðast var slík frá-
sögn í helgarblaði DV 22.10. sl. þar
sem tveir bræður bams og tveir
frændur misnotuðu það frá sex ára
aldri.
Fólk verður svo skelfíngu lostið
af að heyra um svo ótrúlega glæpa-
mennsku að það getur varla hugsað
né talað um það. En við verðum
að sýna viðbrögð, láta í okkur heyra
og fordæma misnotkun á bömum.
Sérstök skólaskoðun
Höfum við hugsað út í þá ofboðs-
legu hættu sem börn em í og alveg
sérstaklega stúlkubörn, samkvæmt
könnunum? Gæti skylduskoðun
læknis eða hjúkrunarfræðings, t.d.
við skólaskoðun, hjálpað einhveiju
bami út úr vítahringnum eða athug-
ul móðir, fóstra eða kennari barns?
Ótrúlega fáir karlmenn hafa látið
í sér heyra varðandi þennan glæp
og er það furðulegt þar sem af-
brotamennimir eru karlmenn frá
kjmþroskaaldri. Hefur kirkjan tekið
á þessu máli?
í nauðgunarmálum almennt
fínnst mér flestir dómarar bregðast
skyldu sinni alveg ótrúlega. Það er
eins og þeir dæmi til þyngri refsing-
ar fyrir þjófnaði. Hvað em peningar
— dauðir hlutir — í samanburði við
mannslíf? Það hvarflar að mér hvort
karlkyns dómari sé hæfur í svona
máli. Dómarar ættu að skiptast til
helminga eftir kyni er þeir dæma
slík mál.
Krefst þyngstu lögleyfðrar
refsingar
Ég sé aðeins eina leið til að hamla
á móti þessum glæp, aðeins eina
leið. Dómarar eiga að dæma af-
brotamennina til þyngstu lögleyfðr-
ar refsingar. Og það sem er ekki
síður mikilvægt er að þolendur
verða að segja frá hver það var sem
særði líkamann og bæklaði sálina
svo skelfílega, alveg sama hversu
mörg ár hafa liðið frá verknaðinum.
Látum okkur skiljast að skömmin
er aðeins gerandans, einskis ann-
ars, ekki konu hans, barna né ætt-
menna, og aldrei þolandans.
Slík er spillingin í þjóðfélagi okk-
ar að þessu leyti að mér finnst ég
þurfa að þakka Guði fyrir að hafa
komist til fullorðinsára án þess að
hafa orðið fyrir kynferðislegri mis-
beitingu. Sem þakklæti fyrir það
læt ég mig varða þessi mál.
GUÐLAUG KARVELSDÓTTIR,
Norðurstíg 5, Njarðvík.
Er breytinga að vænta?
Frá Einari Erlingssyni:
MARGA er farið að lengja eftir að
sjá forystusveit þá, er ganga mun
fram með Jóhönnu Sigurðardóttur
til næstu kosninga. Með það í huga
fínnst manni margt sammerkt kart-
öflubændum og þeim er rækta
stjómmálaflokka. Báðir þurfa út-
sæði.
Nú bíða allir spenntir. Hvernig
er útsæðið hennar Jóhönnu? Eru
þetta gamlar kartöflumæður sem
skiluðu sínu í fyrra eða er þetta
gott og nýtt útsæði sem bfður spír-
unar og vorsins?
Það skiptir miklu máli að fólk fái
að vita þetta og eins hvort sett
verði niður í hið gamla garðstæði
Alþýðuflokksins og þá hvort einhver
verði til að reita arfann, því ekki
kemst aumingja Jóhanna yfir það
einsömul.
Við höfum einn stjórnmálaflokk
sem aldrei hefur getað ákveðið sig,
hvort hann ætti að leggja frá sér
prjónana og setja útsæðið niður að
vori eða bíða haustsins og sjá hvað
hinir fá upp. Hann dugar okkur
alveg.
EINAR ERLINGSSON,
bifreiðastjóri,
Langholtsvegi 63, Reykjavík.
Allt efni sem birtist [ Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef eifki fylgir fyrirvari hér að lútandi.