Morgunblaðið - 26.11.1994, Side 56
MICROSOFT, einar ).
WÍNDOWS. SKÚLASONHF
MORGUNBLAÐIB, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
HM áhugamanna í
snóker í S-Afríku
Jóhannes
leikur
til úrslita
JÓHANNES R. Jóhannesson
leikur í dag til úrslita á heims-
meistaramóti áhugamanna í
snóker. Hann sigraði Tælend-
ing í undanúrslitum í gær og
mætir Pakistana í dag.
Jóhannes
kvaðst nán-
ast orðlaus
þegar úrslit
voru ljós í
gær. „Ég er
varla búinn
að átta mig á
hvað gerðist,
þetta er svo
yndislegt.
Það er eins
og ég sé í draumi," sagði hann.
Jóhannes lenti 0:4 undir og
síðar 5:7, en sigraði 8:7.
■ Jóhannes/Dl
Jóhannes R.
Jóhannesson
Vinnslustöðin hf. fyrst fyrirtækja í Vestmannaeyjum á markað
Morgunblaðið/Kristinn
Aðventan
gengur í garð
FYRSTI sunnudagur í aðventu er
á morgun og að venju verður
margt um að vera í kirkjum lands-
ins. Þau Elías Andri og Diljá Anna
fagna aðventunni fyrir utan Nes-
kirkju, en þar verður nýtt altari
vígt í hátíðarmessunni, kl. 14.
■ Fyrsti sunnudagur/40
Lögboðnar brunatryggingar húsa
Athugað hvort Húsa-
tryg’gingar njóti
opinberrar verndar
EFASEMDIR eru um að starfsemi
Húsatrygginga Reykjavíkur sé í
samræmi við samkeppnislög og
barst Samkeppnisstofnun nýlega
fyrirspurn þess efnis frá Sambandi
íslenskra tryggingafélaga. Ný lög
um brunatryggingar taka gildi um
áramót og heimila þau öðrum
tryggingafélögum en VIS og Húsa-
tryggingum Reylq'avíkur að bruna-
tryggja fasteignir. Uppsagnarfrest-
ur er einn mánuður og því þarf að
segja tryggingum upp innan þriggja
virkra daga, ef ætlunin er að færa
tryggingar til annars félags.
Athugun verður flýtt
Guðmundur Sigurðsson, yfirvið-
skiptafræðingur hjá Samkeppnis-
stofnun, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að fyrirspurn Sambands ís-
lenskra tryggingafélaga snerist um
það hvort Húsatryggingar Reykja-
víkur störfuðu í skjóli opinberrar
verndar vegna tengsla við Reykja-
víkurborg og nytu þess vegna íviln-
ana.
„Málið er nýkomið til okkar og
við byijum á að leita eftir sjónar-
miðum þessara tveggja aðila. Þar
sem ný lög um brunatryggingar
taka gildi um áramót munum við
reyna að flýta málinu eins og kost-
ur er til að lyktir náist áður en lög-
in taka gildi.“
Iðgjald brunatrygginga er það
sama hjá öllum tryggingafélögun-
um. Guðmundur Sigurðsson segir
að Samkeppnisstofnun muni einnig
huga að því máli og leita skýringa.
■ Flestir enn með/18
Pundum
stolið úr bíl
LÖGREGLUNNI var tilkynnt um
innbrot í bíl sem stóð við Sundlaug-
amar í Laugardal rétt fyrir kl. 20
í gærkvöldi.
Úr bílnum var stolið tösku sem
í voru ensk pund að upphæð um
70.000 íslenskra króna og 7.000 í
íslenskum peningum. Ekki er vitað
hver var að verki.
Spilliefnabrennsla á Akranesi
10-15 athugasemdir
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
boðað til fundar á mánudag, þar
sem þeim aðilum, sem gert hafa
athugasemdir við umsókn Sements-
verksmiðjunnar á Akranesi um leyfi
til brennslu spilliefna, aðallega úr-
gangsolíu frá olíufélögunum, verður
gerð grein fyrir tillögum Hollustu-
vemdar til úrbóta.
Að sögn Ólafs Péturssonar, for-
stöðumanns mengunarvama Holl-
ustuvemdar, hafa 10-15 aðilar gert
athugasemdir. Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Haraldur Böðvars-
son hf. á Akranesi em meðal þeirra
og töldu nálægð hennar við fisk-
vinnslu Haraldar Böðvarssonar
skaða ímynd fyrirtækisins út á við.
Miðbær
opnar í dag
MIÐBÆR, ný verslunar- og
þjónustumiðstöð í umdeildu
húsi í Hafnarfirði, verður opnuð
í dag. Alls munu 28 verslanir
og þjónustufyrirtæki verða opn-
uð í dag. Myndin var tekin þeg-
ar iðnaðarmenn og verslunar-
fólk var á lokaspretti undirbún-
ingsins.
■ Hér erkominn/12
300 milljóna króna
hlutafjárútboð ákveðið
EDDA Helgason, hjá Handsali, sem undirbúið hefur skráningu hlutabréfa
Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum á Verðbréfaþingi, segir að fyrsta
hlutafjárútboð fyrirtækisins verði upp á 300 milljónir króna. Hluthafar, nýir
og gamlir, hafa þegar skráð sig fyrir 235 milljónum króna þessa nýja hluta-
§ár, að sögn Eddu. Sighvatur Bjamason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn-
ar, segist .vonast til þess að þetta sé upphafið að almennri sókn fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Halldór
Stjórn Verðbréfaþings mun fjalla
um umsókn fyrirtækisins á fundi sín-
um á mánudag, þar sem farið er
fram á að félagið verið skráð á Verð-
bréfaþingi íslands á fyrsta söludegi,
sem úthlutað er af Seðlabanka Is-
lands, og óskað er eftir að fyrsti
söludagur verði 8. desember nk.
Edda sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að í því lokaða hlutafjár-
útboði sem staðið hefði nú í nóvem-
ber væri fyrirtækið búið að tryggja
sér sem næmi 235 milljónum króna,
af þessum 300 milljónum króna.
„Það eru nýir hluthafar sem staðfest
hafa við okkur hlutafjárkaup, ásamt
eldri hluthöfum að hluta, en okkur
sýnist sem forkaupsrétturinn að
þessu nýja hlutafé verði ekki nýttur
nema að hluta,“ sagði Edda.
Veruleg lækkun
fjármagnskostnaðar
„Með þessu erum við að sjá alveg
nýjan flöt á rekstri fyrirtækisins.
Verulega mikið nýtt fjármagn kemur
inn í reksturinn, sem fyrirtækið
þurfti nauðsynlega á að halda, og
getur farið í að greiða skuldir fyrir-
tækisins niður, umtalsvert," sagði
Sighvatur Bjarnason.
Sighvatur sagði að með þessu teldu
stjómendur fyrirtækisins að lífslíkur
fyrirtækisins hefðu glæðst til muna.
„Við munum sjá verulega lækkun
fjármagnskostnaðar, sem hefur verið
aðalvandamál fyrirtækisins hingað
til. Við erum mjög stoltir af því, að
fólk skuli hafa þetta mikið traust á
okkur, að það vilji veðja á okkur þeim
fjármunum sem þegar eru komnir.
Við erum fyrsta fyrirtækið í Vest-
mannaeyjum sem fer á Verðbréfaþing
og erum stoltir af. Við vonumst til
þess að þetta sé bara upphafið að
almennri sókn fyrirtækisins,“ sagði
Sighvatur Bjarnason.
Vinnslustöðin hf. hefur fengið stað-
festingu ríkisskattstjóra á að kaup-
endur hlutabréfa í félaginu geti nýtt
sér kaupverð þeirra til frádráttar tekj-
um samkvæmt reglum skattalaga.
Féfang
líklega
samein-
að Glitni
Á STJÓRNARFUNDI í Fjár-
festingarfélagi íslands hf. í
gær var samþykkt að leggja
til við aðalfund félagsins sem
haldinn verður þann 15. des-
ember að það verði sameinað
dótturfélagi sínu, Féfangi hf.
Undanfarið hafa staðið yfir
viðræður milli Fjárfestingarfé-
lagsins og íslandsbanka um
að bankinn kaupi hið samein-
aða félag en þar er fyrst og
fremst um að ræða eignir og
rekstur Féfangs. Samkomulag
hefur nú náðst milli bankans
og félagsins sem einnig verður
lagt fyrir aðalfundinn. Fallist
fundujinn á þessar tillögur
mun Islandsbanki því eignast
hið sameinaða félag að fullu,
að sögn Guðmundar H. Garð-
arssonar, stjórnarformanns
Fj árfestingarfélagsins.
Á 35% Fjárfestingarfélags
íslandsbanki er fyrir stór
hluthafí í Fjárfestingarfélag-
inu með 35,5% en aðrir helstu
hluthafar eru Burðarás hf.
með 27,5% og Lífeyrissjóður
verslunarmanna með 10,6%.
Fjárfestingarfélagið á hins
vegar um 66,5% hlut í Fé-
fangi, Tryggingamiðstöðin
10,7%, íslandsbanki 10,7% og
Lífeyrissjóður verslunarmanna
10,7%.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er líklegt að
íslandsbanki muni sameina
Glitni og Féfang í eitt öflugt
eignarleigufyrirtæki eftir að
hlutabréfakaupin verða um
garð gengin.