Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 1
80 SÍÐUR B/C/D
293. TBL. 82. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nýjar
sveitir til
Tsjetsjníu
Moskvu, Grosní. Reuter, The Daily Te-
legraph.
BORÍS Jeltsín, Rússlandsforseti,
hefur ákveðið að senda nýjar her-
sveitir til Tsjetsjníu í dag. Hefur
rússneska fréttastofan Interfax það
eftir háttsettum heimildarmönnum
í hernum.
Ellefu dagar eru nú liðnir frá því
að rússneskir hermenn hófu aðgerð-
ir í Tsjetsjníu en enn hefur þeim
ekki tekist að ná höfuðborginni
Grosní á sitt vald. Baráttuandi rúss-
neska hersins er lítill og hafa her-
deildir jafnvel neitað að berjast við
Tsjetsjena. Er það talin vera ein
helsta ástæða þess að Jeltsín send-
ir reyndari og agaðri sveitir til
Tsjetsjníu.
-----» ♦ ♦-----
New York
Tugir
særast í
sprengingu
New York. Reuter.
ALLT að 37 særðust, þar af fjórir
alvarlega, er sprengja sprakk í neð-
anjarðarlest við Wall Street í New
York í gær. Var lestin full af fólki
í jólainnkaupum.
Rudoiph Giuliani, borgarstjóri
New York, sagði hugsanlegt að tvær
sprengjur hefðu sprungið með nokk-
urra sekúndna millibili. Hann sagði
fregnir herma að önnur sprengja
hefði fundist en að það hefði ekki
enn verið staðfest. Að sögn lögreglu
var um eldsprengju að ræða og hlutu
flestir hinna særðu brunasár.
Sjónvarpsstöðin CBS greindi frá
því í gærkvöldi að maður grunaður
um verknaðinn væri í haldi og væri
verið að gera að brunasárum hans
á Cornell-háskólaspítalanum.
Fimmár
frá falli
Ceausescus
RÚMENAR héldu í gær upp á að
fimm ár eru liðin frá því að harð-
stjóranum Nicolae Ceausescu var
steypt af stóli. Gengu þátttakend-
ur í byltingunni gegn Ceausescu
í desember 1989 um götur Búkar-
estar og biðu fyrir þeim 1.200
félögum þeirra er féllu í átökun-
um. Fór allt rólega fram enda
fátt sem gefur ástæðu til fagnað-
arláta í Rúmeníu. „Það hefur
ekkert breyst, ekkert,“ sagði hin
tvítuga Ana-Maria Vasu. „Við
höfum verið svikin. Við héldum
út á stræti borgarinnar 1989 til ,
að berjast fyrir betra lífi, betri
kjörum, ekki cinungis fyrir
frelsi.“ Lífskjör eru lakari í dag
en fyrir fimm árum, atvinnuleysi
mikið og verðbólga 75%. Þá sárn-
ar mörgum Rúmenuin að valda-
Scalfaro Ítalíuforseti andvígur kosninerum falli ríkisstiórnin
----------------:-Q------C5--------ftf_
Talsmaður Berlusconis
segir afsögn yfirvofandi
Róm. Reuter.
SILVIO Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, mun að öllum líkind-
um segja af sér embætti í dag,
að sögn talsmanns hans í gær-
kvöldi. Jas Gawronski, talsmaður
forsætisráðherrans, sagði að Ber-
lusconi myndi að öllum líkindum
hlýða stuttlega á umræður í þing-
inu um morguninn, efna síðan til
ríkisstjórnarfundar fyrir hádegi
og ganga loks á fund Oscars Luig-
is Scalfaros forseta og afhenda
honu iausnarbeiðni sína. „Það er
sennilegasta atburðarásin,“ sagði
Gawroski. Þar með kæmist Ber-
lusconi hjá því að bíða ósigur í
einhverri þeirra þriggja atkvæða-
greiðslna er nú liggja fyrir þingv
inu.
Fini styðurBerlusconi
Berlusconi hvatti til þess í gær
að boðað yrði til nýrra kosninga
ef samsteypustjórn hans félli en
einn stjórnarflokkanna, Norður-
sambandið, styður vantraust á
forsætisráðherrann. Berlusconi
hefur verið yfirheyrður vegna
gruns um spillingu í tengslum við
stórfyrirtæki hans, Fininvest, en
einnig vilja andstæðingar ráð-
herrans að fjölmiðlaveldi hans
verði leyst upp þar sem það veiti
honum óeðiileg völd og áhrif í
landinu.
Gianfranco Fini, leiðtogi
Þjóðarbandalagsins, styður sem
fyrr Berlusconi en sagði í gær að
stjórnin væri dauðadæmd. Ber-
lusconi sagðist í gærkvöldi ætla
að hlýða á umræður þingmanna
um vantraustið áður en hann
tæki ákvarðanir um næstu skref
en hann vill að forsetinn, Oscar
Luigi Scalfaro, leysi upp þingið
Reuter
SILVIO Berlusconi hlýðir hugsi á umræður í ítalska þinginu í gær. Við hlið hans situr Roberto
Maroni innanríkisráðherra, sem situr á þingi fyrir hönd Norðursambandsins.
og boði til kosninga fyrir tímann,
starfsstjórn Berlusconis verði við
völd fram að kosningunum.
Áhersla á fulltrúalýðræði
Scalfaro forseti lagði áherslu á
það í gær á blaðamannafundi að
á Ítalíu ríkti fulltrúalýðræði, þjóð-
arviljinn væri „túlkaður á þingi“.
Hann gaf í skyn að hann myndi
kanna hvort hægt væri að mynda
nýja stjórn áður en hann leysti upp
þing. Berlusconi sat við hlið forset-
ans, þungbúinn á svip, en andað
hefur köldu á milli þeirra lengi.
Berlusconi ávarpaði þingið í gær
og sakaði Umberto Bossi, leiðtoga
Norðursambandsins, um að svíkja
kjósendur sem hefðu stutt kosn-
ingabandalag Norðursambandsins,
Þjóðarbandalagsins og Forza Italia,
flokks foreætisráðherrans, í trausti
þess að þeir mynduðu stjórn. „Að-
eins stjórn sem ítalir vilja og ekki
byggist á vélabrögðum og at-
kvæðaþjófnaði getur lokið því starfi
sem við höfum hafið,“ sagði Ber-
lusconi. „Ef stjórnarmeirihlutinn
hiynur verðum við af festu og með
rósemi að snúa okkur á ný til kjós-
enda og spyija þá álits.“
Bossi, sem deilt hefur harkalega
á forsætisráðherrann og m.a. gef-
ið í skyn að hann sé „trúður", vill
að mynduð verði bráðabirgða-
stjórn sem komi í gegn umbótum
á kosningalögum og dragi úr fjöl-
miðlaáhrifum Berlusconis áður en
gengið verði á ný til kosninga.
Reuter
menn í gamla kommúnistaflokkn-
um ráða enn mestu í landinu.
Halda sumir stjórnarandstæðing-
ar því fram að það hafi verið
flokksbræður Ceausescus sem
steyptu honum af stóli til að ná
völdunum sjálfir en ekki fólkið í
landinu.
Bandarískur norrænufræðingur í Scientific American
Vill grafa Egil upp
Boston. Morgrunblaðið.
BANDARISKUR norrænufræð-
ingur, Jesse Byock, leggur til í
janúarhefti tímaritsins Scientific
American að bein Egils Skalla-
grímssonar verði grafin upp á
Mosfelli til að hægt verði að kom-
ast að því hvort hann hafi verið
haldinn beinsjúkdómi Pagets.
Þórður Harðarson, prófessor í
lækningum, hefur áður sett fram
sömu tilgátu um sjúkdóm Egils í
tímaritinu Skírni.
Eykur trúverðugleika
Egils sögu
Grein Byock í hinu virta banda-
ríska tímariti nefnist „Bein Egils“
og þar eru færð rök að því með
hjálp læknavísinda, sagnfræði,
fornleifafræði og bókmenntarýni
Telur Egil hafa
verið haldinn
beinsjúkdómi
að Egill hafi verið haldinn áður-
nefndum sjúkdómi. Segir Byock að
þegar teknar séu lýsingar á beinum
Egils og kveðskapur hans komi
fram helstu einkenni beinsjúkdóms-
ins. Þetta auki tráverðugleika Egils
sögu.
Margir vilja taka þátt
Byock sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hugmynd hans um
fornleifagröft hefði hlotið góðar
undirtektir frá því að efni greinar-
innar í Scientific American spurð-
ist út fyrir nokkrum mánuðum.
„Ég hef fengið fyrirspumir frá
fornleifafræðingum bæði í Banda-
ríkjunum og Evrópu,“ sagði By-
ock. „Það vilja margir fá að taka
þátt í þessu en það verður að fara
varlega í sakirnar." Byock kvað
ekkert hafa verið ákveðið enn um
þessi mál og lítið væri hægt að
aðhafast án hjálpar íslendinga.
Byock er prófessor í forníslensku
og norrænum miðaldafræðum við
Kalifomíuháskóla í Los Angeles
(UCLA) og hefur meðal annars
skrifað bók um ísland á miðöldum.
Hann kemur oft til íslands og er
nýkominn til Kaliforníu eftir fjög-
uira mánaða dvöl á íslandi.
■ Skáldskapur/19