Morgunblaðið - 22.12.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 39
+ Guðfinna Guð-
mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
15. mars 1917. Hún
lést á Vífilsstöðum
15. desember síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Guð-
mundur Jónsson
verksljóri í Reykja-
vík, f. 5. júní 1884,
d. 14. september
1929, og Sesselja
Stefánsdóttir, f. 29.
apríl 1890, d. 2. jan-
úar 1965. Systkini
Guðfinnu eru ívar,
f. 19. janúar 1912, Kristin Guð-
rún, f. 13. september 1913,
Hans Andrés Níelsen, f. 24.
október 1914 (látinn), Guð-
mundur Ragnar, f. 13. nóvem-
ber 1919, Jóna Guðbjörg, f. 13.
desember 1920. Magnúsína
Guðrún, f. 1. apríl 1922, Arn-
dís, f. 17. júní 1924, Jón, f. 7.
ágúst 1926 (látinn), Susie Bach-
DROTTNING Efstasundsins er
horfin á braut; hefur eflaust stigið
með sömu tigninni yfir móðuna
miklu eins og önnur skref sem hún
tók í tilveru sinni hér á jörð.
Þegar við ungu hjónin fluttum
með barnaskarann inn í Kleppsholt
árið 1965 var andrúmið í Efsta-
sundi líkt og í litlu sjávarþorpi. í
bílskúrum voru auk heldur reiðhest-
ar og kindur og hófadynur ekki
óalgengur í götunni á þessum fyrstu
árum.
Við þekktum engan á staðnum
en komumst fljótt á snoðir um að
þar bjó fjölskylda Guðfinnu og
Björns Halldórssonar, að mér
fannst í öðru hverju húsi. Þarna fór
kraftmikil, samheldin fjölskylda
sem virtist líða best þegar allir voru
saman komnir í litla, gula húsinu
númer 44. Glaðvært fólk sem naut
þess að lifa lífinu saman.
Húsmóðirin sem svo oft stóð á
tröppunum að taka á móti gestum
eða blessa fyrir heimför vakti strax
athygli sökum glaðlyndis og glæsi-
leika í fasi. Þetta reyndist vera hún
Guðfinna, eða Finna frænka, sem
í ljós kom að var skyld börnum
okkar í föðurætt.
Aldrei öll árin sem við bjuggum
í næstnæsta húsi tróðum við hvor
annarri um tær en skiptumst ætíð
á fallegum kveðjum þegar við
sáumst. Hún sigldi um götuna há,
grönn og bein í baki eins og skonn-
orta undir fullum seglum. Göngu-
lagið eitt og sér hefði vakið athygli
við hvaða konungshirð sem var.
Móðir mín sagði mér aðspurð að
sér væri í bamsminni úr Aðalstræt-
inu þar sem hún ólst upp hversu
tignarleg Salvör móðir Guðfinnu
hefði verið sem hún stóð fyrir utan
sitt litla hús með drifhvíta, stíf-
straujaða svuntuna að stjórna
barnaskara sínum. Þær hafa löng-
um sett myndarlegan svip á bæinn
Reykjavíkurkonur á sinn hljóðláta
hátt.
Þeir sem lifa lífínu af þeirri at-
hygli og áhuga sem Guðfinna gerði,
eldast lítið nema að árum. Slíkir
varðveita barnið í sálu sinni og eiga
oftast gott með að umgangst börn
á gefandi hátt.
Lítil dóttursonur minn var farinn
að venja konur sínar til Guðfinnu
næstum daglega. Stakk sér inn til
hennar í tíma og ótíma, án okkar
vitundar, bauð jafnvel með sér gest-
um. Það var alltaf gestkvæmt á
númer 44 og honum virtist finnast
sjálfsagt að kíkja inn til Finnu eins
og hinir. Hann hændist að þessari
glaðlegu, góðu konu og kallað hana
ömmu Finnu. Nú verður ekki oftar
kallað glaðri röddu: „Hæ amma
Finna“ þegar farið er fram hjá
húsinu hennar. Það verður vandi
fyrir hann að taka því að hún sé
líka horfin eins og amma Gréta.
Fyrir okkur hin í fjölskyldunni verð-
ur Efstasundið heldur ekki það
sama að Finna frænku horfinni.
mann, f. 21. febrúar
1929. Þá átti Guð-
finna tvo hálfbræð-
ur, samfeðra, þá
Jón og Sigþór sem
báðir eru látnir.
Hinn 18. janúar
1937 gekk hún að
eiga Björn Magnús
Halldórsson let-
urgrafara, f. 8. des-
ember 1907, d. 25.
ágúst 1971. For-
eldrar hans voru
Halldór Sigurðsson
úrsmiður og Guð-
rún Eymundsdóttir.
Börn Guðfinnu og Björns eru
Erla Ingileif f. 20. desember
1937, ekkja Einars Jónssonar
frá Einarsstöðum, Guðmundur,
giftur Díönu Nancy Herberts,
Ragnar Björn, giftur Guðrúnu
Jónínu Snorradóttur, og ívar
Þórólfur, giftur Gerði Sand-
holt. Útför Guðfinnu fer fram
frá Áskirkju í dag.
Fyrir hönd okkar granna í Efsta-
sundi 40 er góð samfylgd kærlega
þökkuð.
Elín G. Ólafsdóttir.
Getur þú sofið um sumamætur?
Senn kemur brosandi dagur.
Hitnar þér ekki um hjartarætur,
hve heimur vor er fagur?
(Sr. Sig. Ein. í Holti)
Ein af austurstrætisdætrum
Tómasar, Finna móðurystir mín,
hefir kvatt þessa jarðvist, og minn-
ist ég hennar með virðingu og þakk-
læti fyrir allar þær góðu og dýr-
mætu stundir er ég átti sem bam
og oft síðan í Efstasundi 44 hjá
Finnu, Bjössa og þeirra börnum.
Ekki er hægt að minnst Finnu án
þess að hafa Bjössa í sama orðinu,
svo samvalin sem þau voru. Líf og
fjör ásamt sérstökum „húmor“ ein-
kenndi heimilislífið. Bjössi vann
heima við leturgröft, meistari á sínu
sviði sem ófá listaverk er eftir hann
liggja bera vitni um. Mannmargt
var ætíð í sundinu á þessum árum.
Viðskiptavinir Bjössa, að ógleymd-
um hestamönnum sem geymdu
hesta sína fyrir framan hús meðan
drukkið var kaffi í eldhúsinu hjá
Finnu.
Rómantískt samband þeirra
hjóna var eitthvað það skemmtileg-
asta sem ég hef orði vitni að á lifs-
leiðini. Finna var drottningin hans.
Það hafði aldrei áður fæðst slík
kona, hún var hans dýrasta djásn.
Bjössi, sem gefin var sérstök frá-
sagnargáfa, fór á mikið flug og
loftið varð rafmagnað þegar hann
lýsti leggjalöngu fegurðardísinni
Guðfinnu á ferð hennar eftir Aust-
urstræti á árum áður. „Hún var
eins og arabískur veðhlaupahest-
ur.“ Augn í Bjössa skutu gneistum
í endurminningunni. Finna var úr
Fichersundi og taldist því Vest-
urbæingur. Bjössi bjó hins vegar á
Laufásvegi og yar því Austurbæ-
ingur. Hann sagði mér á efri árum
þegar talað var um að Vesturbær-
inn hefði verið ríkur af fallegum
stúlkum að þá hefði hann verið
þeim mun snauðari af gjörvilegum
karlpeningi. Þær höfðu allar með
tölu gifst austur yfír læk.
Við mamma heimsóttum Finnu á
Vífílsstaðaspítala 15. desember
síastliðinn. Hún sat frammi á gangi
ásamt Dísu systur sinni og Óla
manni hennar. Hún fagnaði okkur
og lék á als oddi. Mikið var grínast
að vanda. „Það er ekkert að mér,
ég hef það prýðilegt," sagði hún.
„Þeir senda mig trúlega heim fyrir
jól.“ Við kvöddum um fimmleytið.
Tuttugu mínútum síðar var hún
öll. Finna kvaddi með þeirri reisn
sem henni var í blóð borin.
Kæra frændfólk, Erla, Muggur,
Rabbi, ívar, ykkar makar, börn og
bamabörn. Minningamar getur
enginn frá okkur tekið. Þær eru
dýrmæt eign að oma sér við. Ég
læt þesar ljóðlínur séra Sigurðar
Einarssonar í Holti enda þetta
kveðjubrot til Finnu frænku.
Er ekki indælt að eiga þess kost
að orka þar nokkru í haginn,
og mega svo rólegur kveðja að kvöldi
með kærri þökk fyrir daginn?
Anna Agnars.
t
Eiginmaður minn,
ÍSAK ÖRN HRINGSSON,
Lyngbrekku 21,
Kópavogi,
lést í Landspítalanum aðfaranótt mið-
vikudagsins 21. desember.
Bryndfs Brynjúlfsdóttir.
t
Elsku litli drengurinn okkar,
ÓLI ÞÓR ÖNNUSON,
Borgarhrauni 6,
Hverageröi,
andaðist í Barnaspítala Hringsins
þriðjudaginn 20. desember.
Anna Birna Björnsdóttir,
Lilja Ólafsdóttir, Björn Friðriksson.
t
Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar,
KORNELÍA ÓSKARSDÓTTIR,
Hjallalandi 13,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt
desember.
20
Magnús Haukur Guðlaugsson,
Hanna Sigríður Magnúsdóttir,
María Hrönn Magnúsdóttir.
GUÐFINNA
GUÐMUNDSDÓTTIR
t
Ástkær faðir minn,
JÓN INGVAR SKAGFJÖRÐ KRISTJÁNSSON,
er látinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Kristján Jónsson.
t
Móðir okkar,
VALBORG INGIMUNDARDÓTTIR,
Ægisgötu 5,
Akureyri,
lést 20. desember.
Erla Hrönn Ásmundsdóttir,
Guðjón Björn Ásmundsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem auðsýndu samúð
og hjálpsemi við aldlát og útför
ÞORGRI'MS BJARNASONAR,
Vik við Stykkishólm.
Guð blessi ykkur öll.
Dagbjört Davíðsdóttir,
Halldóra Davíðsdóttir,
Ingibjörg Stefánsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts móður okkar,
KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Hátúni 4.
Sérstakar þakkir til Ársæls Jónssonar læknis og starfsfólks
3. hæðar á Droplaugarstöðum.
Sigríöur Jóhannesdóttir,
Bergsveinn Jóhannesson,
Þóra Jóhannesdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
er sýndu okkur samúð og vinsemd við
andlát og útför
BJÖRNSBRAGA
BJÖRNSSONAR,
Klapparstíg 13A.
Sérstakar þakkir færum við meðlimum
úr kór íslensku óperunnar, einsöngvur-
um og söngstjóra.
Fjölskylda og aðrir aðstandendur.
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð
og hluttekningu við andlát og jarðarför
systur okkar og frænku,
ÞÓREYJAR SIGURRÓSAR
ÞÓRARINSDÓTTUR,
Eiríksgötu 9.
Guð blessi ykkur öll.
Ásgeir Þórarinsson,
Kristin Þórarinsdóttir,
Jósefína Gfsladóttir.
Gréta Gísladóttir Kinsley,
Þórarinn Gíslason.
t
Við þökkum af heilum hug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, sam-
býliskonu, ömmu og langömmu,
SÓLVEIGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Brekastfg 23,
Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
Erla Óskarsdóttir, Adolf Ásgrímsson,
Sigurbjörg Óskarsdóttir, Sigurður Óskarsson,
Þórhildur Óskarsdóttir, Jónas Bergsteinsson,
Dagmar Óskarsdóttir,
Hafdís Óskarsdóttir, Sigurjón Kristinsson,
Ólafur Óskarsson, Inga Jóna Jónsdóttir,
Óskar Óskarsson, Bergþóra Jónsdóttir,
Þráinn Óskarsson, Guðný Júliana Garðarsdóttir,
Páll Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.