Morgunblaðið - 22.12.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 11
HJÁLPARSTARF IIMNANLAIMDS
Tugir milljóna króna
í aðstoð fyrir jólin
Forsvarsmenn líknarstofnana segjast ekki
greina umtalsverða fjölgun á umsóknum um
aðstoð nú miðað við jólin í fyrra. Flestir
umsækjanda séu í fj árhagserfiðleikum vegna
atvinnuleysis eða heilsubrests. Þörfin sé
yfirleitt brýn en dæmi séu um misnotkun
á náungakærleikanum.
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar og
Reykjavíkurdeild RKÍ hafa sameinað
hjálparstarf sitt fyrir þessi jól og
útdeila, eins og Mæðrastyrksnefnd
og Hjálpræðisherinn, matarpökkum
og gjafakortum sem gilda í stórmörk-
uðum, til þeirra sem líða skort um
þessar mundir. Verðmæti matar-
pakka og gjafakorta er um 2.500-
10.000 kr. að jafnaði hjá öllum þess-
um aðilum, eftir aðstæðum umsækj-
anda og fjölskyldustærð.
Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar, kveðst
telja að hjálparstarf af þessum toga
innanlanda velti í heild sinni nokkr-
um tugum milljónum króna á ári
hverju. Á seinasta ári hafi andvirði
matargjafa, gjafakorta og annars
stuðnings frá Hjálparstofnun kirkj-
unnar, numið um 3 millj. kr. og auk
þess hafi um 3 millj. kr. runnið í
beinhörðum peningum til aðstoðar
þurfandi. RKI hafi varið 4-6 millj.
til aðstoðar fyrir í jólin í fyrra og
fyrir þessi jól sé þegar búið að sam-
þykkja tveggja milijóna framlag.
Andvirði aðstoðar þeirrar sem
Mæðrastyrksnefnd veitti fyrir jólin í
fyrra nam níu millj. kr., að sögn
Unnar Jónasdóttur, formanns nefnd-
arinnar, og svipuð upphæð rennur
til bágstaddra nú. Daníel Óskarsson,
yfirforingi Hjálpræðishersins á Is-
land, segir að nú þegar hafi yfir ein
milljón króna runnið til þurfandi.
Betra eftirlits þörf
Forsvarsmenn þessara líknar-
stofnana segjast ekki greina umtals-
verða aukningu á umsóknum nú
samanborið við jólin í fyrra. Flestir
þeirra sem sækja um aðstoð séu at-
vinnulausir eða í fjárhagserfiðleikum
og mikið sé um öryrkja. Stærsti hóp-
urinn sé skipaður einstæðum mæð-
rum, er eigi allt að 4-6 börn. Einfald-
ast sé að vera með aðstoð í formi
matargjafa, þar sem hættan á mis-
notkun minnki stórlega.
„Fólk er ekki spurt í þaula um
aðstæður sínar, en óskað er eftir
upplýsingum um fjölskyldustærð,
laun og hversu háa húsaleigu fólk
greiðir," segir Jónas. „Við höfum því
miður ekki möguleika til að sann-
reyna umsóknimar sem skyldi, og
fyrir kemur að fólk gefur rangar
upplýsingar eða leitar á marga staði.
Þetta eru þó undantekningar, en
þeim fer fjölgandi að mínu viti.
Hættan er auðvitað sú sama og við
hjálparstörf ytra, þ.e. að aðstoð skapi
þurfandi í stað þess að leysa vanda.
Þetta spillir fyrir þeim meirihluta
umsækjenda sem á virkilega erfitt,“
segir hann.
Aldrei hafa fleiri
leitað til kirkjunnar
Nokkrar kirkjur ráða yfir sjálf-
stæðum líknarsjóðum sem fólk hefur
leitað til. Séra Guðmundur Þorsteins-
son í Árbæjarsókn, þar sem eru um
9.000 sóknarbörn, segir að aldrei
hafi fleiri leitað til kirkjunnar en
fyrir þessi jól. Aðrir sóknarprestar
segi sömu sögu. Ómögulegt sé hins
vegar að vita hvar þörfin sé brýnust
í jafn stórum söfnuði, og því sé að-
stoð bundin við þá sem leita eftir
henni.
Jónas segir erfitt að öðlast yfirsýn
yfir fjölda þeirra sem leita á náðir
sérsjóða kirkna og greiðslur úr sjóð-
unum, sem þó sé nauðsynlegt til að
koma í veg fyrir að fólk fari á milli
sókna og hjálparstofnana til að leita
aðstoðar, eins og dæmi séu um. Gera
þurfí kröfu um betra eftirlit til að
koma í veg fyrir að kerfið sé misnot-
að og hjálpa þá betur þeim sem þurfa
í raun á aðstoð að halda.
Daníel Óskarsson segir að yfir 200
manns hafi óskað aðstoðar fyrir þessi
jól. Á aðfangadagskvöld snæði um
100 manns hjá Hjálpræðishernum,
auk þess sem ýmsir einstæðingar,
gamalmenni og fangar, fái jólaglaðn-
ing. Einstakir þeirra sem leita á náð-
ir Hjálpræðishersins hafi fengið einn-
ig úrlausn hjá öðrum líknarfélögum,
en aðstæður kunni hins vegar að
vera svo bágar að fólk þurfi á aðstoð
frá fleiri en einum aðila halda. Flest-
ir hafi ríkar forsendur fyrir ósk um
aðstoð.
Daníel segir verðmæti þess sem
HJÁLPARSTOFNUN kirkj-
unnar, kirkjur landsins og
líknarsamtök af margvísleg-
um toga starfa ötullega að
aðstoð við bágstadda fyrir
þessi jól sem önnur, og er
þörfin ótvíræð.
þegar hafi verið úthlutað, heldur
meira en safnast hefur og voni hann
að betur muni „sjóða í pottunum" á
næstu dögum. Minna hafi safnast í
ár en í fyrra, sem bendi til að pyngja
fólks sé léttari nú.
Umsóknum fjölgað um 40%
Eftirspurn eftir aðstoð frá Félags-
málastofnun Reykjavíkur er mun
meiri en í desember en aðra mánuði
ársins, að sögn Láru Ragnarsdóttur,
félagsmálastjóra. Eingöngu þeir sem
hafi þegið fjárhagsaðstoð til lengri
tíma fái styrk fyrir jólin, eða þeir sem
hafi verið atvinnulausir í meira en
þijá mánuði án bóta og hafa ekki
aðrar tekjur en bætur frá stofnuninn.
Einstaklingar sem falla undir
þessa skilgreiningu, fái um 10.000
kr. og síðan hækki uppbótin í desem-
ber eftir stærð fjölskyldu, en hæsti
mögulegi styrkur sé 25.300 kr.
handa þeim sem hafi sjö börn á sínu
framfæri. Lára segir umsóknum um
aðstoð hafa fjölgað gríðarlega hjá
stofnuninni á tveimur árum, eða úr
2.500 beiðnum á ári 1992 til um
3.500 í ár samkvæmt áætlun, sem
er 40% aukning.
Unnur Jónasdóttir segir að geysi-
legur fjöldi fólks hafi leitað til Mæð-
rastyrksnefndar fyrir þessi jól. Ekki
njóti færri stuðnings í ár en fyrra,
þegar um 800 manns óskuðu aðstoð-
ar.
„Ástandið er mjög bágborið hjá
mörgum og hingað hafa komið ein-
stæðar konur með tvö eða þijú börn,
sem hafa 40-50 þúsund krónur í
tekjur á mánuði fyrir heilsdagsvinnu
og greiða 30-35 þúsund krónur í
húsaleigu, þannig að afgangur er
ekki mikill. Sumar þurfa dagvistun
fyrir börn sín sem kostar líka sitt,“
segir Unnur.
»30%
slattur af
askrauti
HAGKAUP
fyrir fjölskylduna
Skatthol
frá kr. 28.000.
Sófaborð
í miklu úrvali
frá kr. 23.000
Kommóður, náttborð,
smáborð, símabekkir,
bókaskápar, skrifborð'
hornskápar
á mjög hagstæðu verði.
Opið í dag kl. 14-17.
Valhúsgögn
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275, 685375.