Morgunblaðið - 22.12.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 35 „
AÐSENDAR GREINAR
I ljósi staðreynda
MIKIÐ hefur verið
rætt og ritað að undan-
fömu um starfsemi
skrifstofu menningar-
fulltrúans í Lundúnum
og hafa ýmsar hugleið-
ingar og vangaveltur
verið settar fram með
þeim hætti að almenn-
ingur telur að um stað-
reyndir sé að ræða.
Þar sem ég starfaði
tímabundið við hið un-
fangsmikla list- og
landkynningarverkefni
50 Northem Lights Ye-
ars, sé ég ástæðu til að
varpa ljósi á nokkur
atriði er varða þetta
mál:
1. Framlög ríkisins til verkefnis-
ins nema í heild 12 milljónum króna
en ekki 17 eða 18 eins og haldið
hefur verið fram. Ber þar fyrst að
nefna framlag utanríkisráðuneytis
og ríkisstjórnar vegna lýðveldisaf-
mælis að upphæð 9 milljónir, eina
milljón sem veitt var til kynningar
og útgáfustyrkja vegna íslenskra
bóka í enskum þýðingum og tvær
milljónir úr kynningar- og markaðs-
sjóði EES.
2. Skrifstofa menningarfulltrúa
aflaði samtals 6 milljóna frá at-
vinnulífi, Reykjavíkurborg, sölu á
sjónvarpsþætti frá hátíðinni o.fl.
Mættu fleiri ríkisstarfsmenn taka
sér það til fyrirmyndar að minnka
útgjöld ríkissjóðs með slíku fram-
taki.
3. Athugasemdir embættis-
manna sem hafa kynnt sér starf-
semina munu ekki snúast um hvort
verkefnið fór fram úr áætlun, enda
mun það vera innan tilskilins
ramma, heldur með hvaða hætti
bókhald hefur verið fært í einstök-
um tilfellum.
Þó bókhald og bókfærsla flokkist
tæplega undir starfssvið menning-
arfulltrúa hefur sá þáttur þessar
sjálfsögðu og reglubundnu könnun-
ar ríkisendurskoðunar verið blásinn
upp í fjölmiðlum og gerður tor-
tryggilegur. í þessu sambandi er
rétt að taka fram að annars konar
reglur gilda í Bretlandi en á íslandi
þegar bókhald er annars vegar.
T.d. eru forprentuð og númeruð
reikningseyðublöð ekki lögboðin í
Bretlandi og algengt er að símsenda
(,,faxa“) smærri reikninga, einkum
ef um fyrirfram-
greiðslur er að ræða.
Nú velta menn fyrir
sér því hvort eigi að
styðjast við breska
bókhaldshefð eða ís-
lenska í tilfelli sem
þessu.
Mér er kunnugt um
að menningarfulltrúi
brást skjótt og vel við
þegar óskað var frek-
ari gagna og munu þau
öll í hús komin. Það
ber hins vegar að
benda á að hið geysi-
viðamikla verkefni 50
Northern Lights Years
var enn í fullum gangi
þegar tekið var að
kanna þetta mál, en eðlilegast hefi
verið að skoða verkefnið í heild sinni
Umfjöllun um skrifstofu
menningarfulltrúa verð-
ur vonandi til þess, seg-
ir Svanhildur Kon-
ráðsdóttir, að athyglin
beinist að aðalatriðinu;
því gríðarlega starfi
sem þar hefur verið
unnið.
þegar það var yfirstaðið og frá-
gengið.
4. Aldrei hefur verið efast um
fullkominn heiðarleika menningar-
fulltrúans í starfi sínu, enda ekki
um að ræða neitt sem flokkast
gæti undir fjármálaóreiðu eða vafa-
söm viðskipti.
5. 50 Northem Lights Years er
stærsta samfellda verkefni sinnar
tegundar sem íslendingar hafa
staðið fyrir. Verkefnið hófst í jan-
úar á þessu ári og því lauk fyrr í
þessum mánuði. Að fenginni
reynslu mat menningarfulltrúi það
svo að nýta bæri þann áhuga sem
skapa mætti í tengslum við lýðveld-
isafmælið og þjappa saman í eins
árs dagskrá því sem undir venjuleg-
um kringumstæðum hefði talist
eðlilegt á 2-3 ára tímabili. Með
Svanfríður
Konráðsdóttir
Gáfu hálft tonn af kartöflun
JÓLAPORTIÐ í húsi Kolaportsins og Anna Gunnarsdóttir, bóndi og
kartöflusali, hafa gefið Rauða krossinum hálft tonn af íslenskum
kartöflum í jólagjöf. Þessi jólagjöf verður seld í Jólaportinu og allur
ágóði af sölunni rennur til Rauða krossins. Á myndinni afhendir
Guðmundur G. Kristinsson, markaðsstjóri Jóiaportsins, Kristjáni
Sturlusyni frá Rauða krossinum hálft tonn af kartöflun í jólagjöf
frá Jólaportinu og Onnu Gunnarsdóttur.
þessum hætti vekti átakið meira
umtal og betur yrði eftir því tekið.
Árangurinn lét ekki á sér standa
og aðsókn og undirtektir Lund-
únabúa hafa verið með miklum
ágætum. Fyrir utan umfjöllun
stærstu blaða Bretlands, hefur ný-
leg samantekt sýnt fram á að sam-
anlagt fékk ísland og það sem
tengdist 50 Northern Light Years
sem svaraði 22 klukkustundum í
ljósvakaumfjöllun á árinu. Hér er
um að raéða BBC, LBC, Sky og
aðra risafjölmiðla og sé lágmarkst-
alan 50 þúsund krónur á mínútu
notuð til viðmiðunar (yfirleitt er
hver mínúta mun dýrari í auglýs-
ingatímum), kemur í ljós að 12
milljón króna fjárfesting hefur skil-
að sér í a.m.k. 66 milljóna króna
fjölmiðlaumfjöllun á stærsta mark-
aðssvæði íslendinga, Bretlandi. Þá
er ótalinn sá markaður og þau sam-
bönd sem íslenskir listamenn, út-
flytjendur o.fl. hafa skapað sér
beint eða óbeint gegnum verkefnið.
Sé 50 Northern Light Years verk-
efnið borið saman við t.d. Gaia verk-
efnið sem kostaði 25 milljónir árið
1991, að ekki sé talað um einn til-
tekinn dag á Þingvöllum fyrr á
þessu ári sem mun hafa kostað
a.m.k. 120 milljónir króna, þá fara
menn e.t.v. að sjá í nýju ljósi upp-
hæðina 12 milljónir í 12 mánaða
verkefni í einni dýrustu stórborg
veraldar.
Nú má ímynda sér að sú mikla
umfjöllun sem skrifstofa menning-
arfulltrúa hefur fengið undanfarna
daga verði til þess að athyglin bein-
ist smám saman að sjálfu aðalatrið-
inu, þ.e. því gríðarlega starfi sem
þar hefur verið unnið á undanförn-
um misseriim. Þar skyldu menn eins
og annars staðar, fá að njóta sann-
mælis.
Höfundur er blaðamaður og
fjölmiðlafræðingur með búsetu í
Bretlandi.
Notum
íslenskar
vörur,
veitum
íslenskri
vinnu
brautargengi
(3) SAMTÖK
™ IÐNAÐARINS
Sparaðu
kr. 35.000 á ári fyrir heimilið!
Ef þú bakar eitt brauð á dag í sjáifvirku EL-GENNEL
brauðvélinni, sparar þú 35 þúsund krónur á ári í
heimilisrekstrinum og getur að aukið boðið fólkinu
þínu upp á nýbakað, ilmandi og hollt brauð
án aukaefna!
Vélin hnoðar, hevar og bakar algjörlega sjálfvirkt
og notar lítið rafmagn. Nýja gerðin af þessari
geysivinsæiu vél, bakar nú stærri brauð og hægt er
að velja um Ijósan, millidökkan eða dökkan
baksturlíslenskar leiðbeiningar og
uppskriftir fylgja.
Kr. 2(>.9«0 stgr.
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 g 622901 og 622900
BLÆSILEQUR
VELSLEBA
Vélsleöafatnaöur frá ARCTIC CAT
er hlýlegur, vandaöur,
þægilegun og glæsilegun.
Allt þaö nýjasta.
k.
GALLAR
BOMSUR
HAIMSKAR
HJÁLMAR o.m.fl.