Morgunblaðið - 22.12.1994, Side 14

Morgunblaðið - 22.12.1994, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ NEYTEIMDUR Hraðbönkum fjölgar við útibú og á fjölförnum stöðum Notkun hraðbanka hefur margfaldast í NÓVEMBER voru færslur í hrað- bönkum íslenska bankakerfisins 69.691, en í júní voru 26.164 færsl- ur og hafa því aukist um 166% á örfáum mánuðum. Bankar og sparisjóðir eru óðum að endumýja gömlu hraðbankana og setja upp nýja. Aukningin er að mestu leyti vegna vaxandi notkunar debet- korta, enda engin gjaldtaka við úttektir. Enn er ekki hægt að leggja inn peninga eða greiða reikninga í hinum nýju hraðbönk- um íslandsbanka, Búnaðarbanka og sparisjóðanna enda ber tals- mönnum bankanna saman um að gömlu hraðbankarnir hafi lítið ver- ið notaðir til slíks. íslandsbanki Sigurveig Jónsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Islandsbanka, segir að innlagnir hafí aðeins verið um 0,5% aðgerða. í nýju hraðbönkunum sé hægt að millifæra reikninga, taka út peninga, fá stöðu reiknings og yfirlit yfir 20 síðustu færslur. A næsta ári verði hægt að nota er- lend kort og greiða reikninga. Hægt sé að láta hraðbankana gera nánast hvað sem er. Alls staðar í heiminum sé reynslan sú að hrað- bankar séu mest notaðir til að taka út peninga og fá reikningsyfirlit. A næsta ári er fyrirhugað að hraðbankar íslandsbanka verði 26 alls, 14 eru þegar komnir upp, 11 þeirra komu í staðinn fyrir gamla hraðbanka, en við bættust 3 bank- ar úti á landi. Auk þess sem hrað- bankarnir verða við öll útibúin er Jólatré SÆMUNDUR Norðfjörð sem er með jólatréssölu við Landakot, Ikea og McDonald’s vildi koma verði á sínum jólatijám á framfæri. Hann var ekki með í verðkönnun Morgunblaðsins á jólatijám sem gerð var fyrir skömmu. Norðmannsþinur sem er 1.40 kostar hjá honum 3.750 krónur og ef tréð er 1.90 kostar það 4.650 krónur. áformað að setja þá upp í verslun- armiðstöðvum og á öðrum fjölförn- um stöðum. Sparisjóðirnir Ólafur Haraldsson, aðstoðar- sparisjóðsstjóri SPRON, segir að áður hafi sparisjóðirnir aðeins átt tvo hraðbanka. Nú séu hraðbank- arnir 10, en í byijun næsta árs bætast 2 við í Hafnarfirði og 3 úti Morgunblaðið/Þorkell NOTKUN hraðbanka hefur aukist með tilkomu debetkortanna. á landi. Ólafur býst við að hrað- bönkum verði fjölgað enn meir í nánustu framtíð. Einn nýju hraðbankanna er í Bónus við Holtagarða og er það fyrsti hraðbankinn sem settur er upp utan húsnæðis sparisjóðanna. Aðspurður sagði Ólafur að enn væri ekki hægt að greiða reikninga né leggja inn í nýju hraðbönkunum. Sá möguleiki verði fyrir hendi í sumum þeirra fljótlega eftir ára- mót, einnig að millifæra og nota erlend greiðslukort. Núna felist þjónustan í því að debetkorthafar geta tekið út allt að 25 þúsund kr., fengið reikningsyfirlit í stærð- inni A-4 og stöðu reiknings. Búnaðarbankinn Ingi Örn Geirsson, forstöðumað- ur tölvudeildar Búnaðarbankans, segir að uppsetning nýrra hrað- banka og endurnýjun gamalla verði lokið um miðjan janúar. Þá verða hraðbankarnir orðnir 12; við útibú- in, í Félagsstofnun stúdenta og Landspítalanum, eina hraðbankan- um þar sem innlagnir eru möguleg- ar enn sem komið er. Ingi Örn seg- ir að ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort hugbúnaður fyrir inn- lagnir verði settur upp í öðrum hraðbönkunum, slíkt sé kostnaðar- samt og innlagnir hafi lítið verið notaðar. í nýju hraðbönkunum er hægt að taka út peninga, fá yfirlit yfír 20 síðustu færslur og stöðu reiknings. Innan skamms verður hægt að millifæra. Landsbankinn Á næstu vikum tekur Landsbank- inn í notkun 19 hraðbanka til við- bótar þeim 6 sem fyrir eru. Um er að ræða eldri tæki sem áður voru í eigu annarra banka og sparisjóða. Verið er að yfirfara hraðbankana en þeir verða teknir í notkun á næstu vik- um. Að sögn Ingólfs Guðmundsson- ar, markaðsstjóra, fengust tækin á góðu verði, þau veita ijölbreyttari þjónustu en ný tæki og eru eftir breytingar á hugbúnaði jafn fljót að afgreiða viðskiptavini. Hraðbankarnir verða í flestum útibúum bankans á höfuðborgar- svæðinu, þar er hægt að leggja inn peninga og greiða reiknmga, en hraðbankar sem settir verða upp á nokkrum stöðum utan bankans bjóða ekki þá möguleika. Ingólfur segir að vegna síma- kostnaðar sé ekki íjárhagslega arð- bært miðað við núverandi gjaldskrá Pósts og síma að setja upp hrað- banka á landsbyggðinni. Skötuilmur á Þorláksmessu fiskverslunina Norðurvör á ísafirði sögðust hafa MÖRGUM finnst ekki komin Þorláksmessa fyrr en „skötu- ilmurinn" berst frá eldhúsinu. En það er ekki öllum jafn vel við lyktina og það kem- ur fyrir á bestu bæjum að skötuunnendur eru ,| sendir út á svalir með prímus! Að sögn fisksala -v' hefur verið mikið að gera í skötu- sölu og sums staðar er hún á þrotum. Það eru til mismunandi útgáfur af skötunni og best að láta fiskkaupmanninn aðstoða sig við valið. Hægt er til dæmis að kaupa kæsta, saltaða og útvatnaða skötu, kæsta og þurrkaða, kæsta og næt- ursaltaða og síðan þykir sumum ekkert jafnast á við vestfirsku tind- askötuna. Yfirleitt er tindaskata (tinda- bikkja) ódýrari en venjuleg skata og samkvæmt lauslegri könnun okkar var meðalverð á tindasköt- unni um 400 krónur kílóið en af skötunni á bilinu 600-800 krónur kílóið. Hafa selt á annað tonn af skötu Bræðurnir Sigþór og Ólafur Sig- urðssynir sem reka SKIÐATILBOÐ AFSLATTUR ALLT AÐ 50% ELDRi ARGERÐIR AF SKIÐUM OG SKÍÐAVÖRUM Á FRÁBÆRU VERÐI Ódýrir skíöapakkar, barna, unglinga og fulloröinna Skíði barna verð frá kr. 4.900 Skíði unglinga verð frá kr. 6.900 Skíði fullorðinna verð frá kr. 8.900 Skíðaskór barna verð frá kr. 3.300 Skíðaskópokar verð frá kr. 1.190 Leðurskíðahanskar verð kr. 970 Skíðagleraugu verð frá kr. 890 Skíðapokar verð frá kr. 2.300 Skíðasokkar verð frá kr. 690 Bakpokarverð frá kr. 1.290 JdAMittistöskur verð frá kr. 590 ' Skíðalúffur verð frá kr. 490 Og aö sjálf- sögöu margt fleira. Odýrir, vandaöir DYNASTAR skíöagallar: Barnastæröir 6—16 ára, litir; blár, lilla og svartur. Verö kr. 5.200. Dömustærðir, litir; grænn, burgundy og blár. Verö kr. 7.300. Herrastærðir, litir; dökkblár, svartur og burgundy. Verö 7.300. Símar: 35320, 688860 l/érslunin böööbU. Æ Æ Æ Ármúla 40. selt á annað tonn af skötu það sem af er og það eru ekki bara Vest- fírðingar sem kaupa hjá þeim því þeir senda skötuna bæði suður og norður. Á ísafirði bjóða þeir einungis upp á kæsta skötu því þeir segja Vestfirð- inga ekki vilja sjá saltaða skötu. - En hvernig á að matreiða sköt- una? Ólafur og Sigþór segja að hana eigi að sjóða þar til hún losnar frá bijóski en hún á ekki að bullsjóða í pottinum. Hnoðmörinn er ágætt að bræða í vatnsbaði segja sérfræðingar og þýð- ir ekkert að hafa eitthvert annað flot en ekta vestfirskt mörflot. Það er misjafnt hvemig fólk býr til skötustöppu, en sígilt er að tæta skötuna í sundur og hella yfir hnoð- mör. Einhveijir þeyta saman í hræri- vél bæði skötu og hnoðmör en síðan bæta sumir við kartöflum og kryddi. Þeir sem ganga um með þvotta- klemmu'á nefinu vegna lyktarinnar gætu reynt þessi gömlu húsráð, að kveikja á mörgum kertum í eldhús- inu, skera niður lauk og hafa í vatni við hliðina á pottinum eða væta klút í ediki og leggja yfir pottinn áður en fer að sjóða. Einhveijir hafa próf- að að setja horn af klúti sem búið er að væta í ediki ofan í pottinn. Óbrigðult er síðan að hangikjöts- og greniilmurinn eyðir skötulyktinni seint á Þorláksmessukvöld. Besta ráðið er kannski að fara á veitingahús og nýta sér þann mögu- leika að láta matreiðslumeistarana sjá um eldamennskuna á skötunni. Ulfar Eysteinsson hefur í mörg ár haft skötu á Þorláksmessu og þangað koma sömu viðskiptavinimir ár eftir ár. Eflaust hafa fleiri veitingastaðir tekið upp þennan sið að bjóða upp á skötu og t.d. í Perlunni áttu þeir von á hátt á annað hundrað gestum í skötuhlaðborð. Að sögn Sturlu Birg- issonar matreiðslumeistara í Perl- unni bjóða þeir t.d. upp á kæsta tindabikkju, kæsta skötu, saltaða skötu, skötustöppu, plokkfisk og steikta ferska tindabikkju. Þegar hann er í lokin beðinn um uppskrift að skötustöppu segist hann búa hana til með því að hræra sam- an bræddu mörfloti og miðlungs kæstri og soðinni skötu. Örlítið salt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.