Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Suther-
land til
WTO
PETER Sutherland, fram-
kvæmdastjóri GATT, féllst í
gær á að verða fyrsti fram-
kvæmdastjóri Heimsviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) sem tek-
ur við af GATT um áramótin.
Mun Sutherland starfa fram til
15. mars.
Málsókn
vegna sjálfs-
morðs
FORELDRAR japansks skóla-
drengs, sem taiið er að hafi
framið Sjálfsmorð vegna þess
að skólafélagar hans ofsóttu
hann, hafa farið í mál við kenn-
arana, sem létu ofsóknimar við-
gangast. Kreijast foreldramir
4,1 milljóna kr. í skaðabætur.
Jólaávarpið
vinsælt
SJÓNV ARPSÚTSENDING af
jólaávarpi Elísabetar Breta-
drottningar,_ nýtur geysilegra
vinsælda í Ástralíu, þrátt fyrir
að yfirvöld vinni að því að ijúfa
tengslin við breska heimsveldið.
Segir talsmaður sjónvarpsins
að allir vilji sjá hvaða ref hún
hafí um hálsinn og að mörgum
þyki ávarpið hin besta skemmt-
un.
Balladur
með forystu
HÆGRIMENN eru með afger-
andi forystu
í kapphlaup-
inu um
franska for-
setaembætt-
ið, sam-
kvæmt skoð-
anakönnun
sem birt var
í gær. Byði
Edouard
Balladur forsætisráðherra sig
fram, myndi hann vinna auð-
veldan sigur á öllum frambjóð-
endum.
Frosthörkur
í Moskvu
MIKLAR frosthörkur í Moskvu
að undanfömu hafa kostað 31
mann lífíð í borginni. Að sögn
rússneska heilbrigðisráðuneyt-
isins voru þeir allir drakknir.
Frostið í Moskvu hefur minnkað
lítillega, er nú -24 en var -30
stig.
Læknar halda
frá Rúanda
FRAKKAR í hjálparsamtök-
unum Læknar án landamæra
hafa hætt hjálparstarfí í Lum-
asibúðunum fyrir flóttamenn
frá Rúanda. Ástæðuna segja
þeir þá að leiðtogar fyrrum
stjórnar í Rúanda njóti góðs af
alþjóðlegum hjálpargögnum,
um leið og þeir leggi drög að
því að komast aftur til valda.
Mitterrand
hættir lyfja-
meðferð
FRANCOIS Mitterrand Frakk-
landsforseti hefur neyðst til að
hætta lyfjameðferð við krabba-
meini í blöðruhálskirtili vegna
aukaverkana. Hann gengst nú
undir geislameðferð.
Radovan Karadzic boðar Akashi og Rose á sinn fund
Framkvæmd vopna-
hlésins til umræðu
Sarajevobúar ánægðir með Carter en efast um heilindi Serba
Pale, Sar^jevo. Reuter.
RADOVAN Karadzic, leiðtogi Bos-
níu-Serba, hefur beðið um fund með
Yasushi Akashi, sérlegum sendi-
manni Sameinuðu þjóðanna, og Sir
Michael Rose, yfírmanni gæsluliðs
SÞ í Bosníu, til að ræða framkvæmd
vopnahlés í öllu landinu. Samdist
um það fyrir milligöngu Jimmy
Carters, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seta, en hann fór frá Bosníu til
Bandaríkjanna í gær. Almenningur
í Sarajevo fagnar vopnahlésfrétt-
inni en efast um efndir Serba. Tals-
maður gæsluliðsins kveðst trúa því,
að stríðsaðilum sé full alvara með
vopnahléi að þessu sinni.
Vopnahléið á að hefjast á hádegi
á morgun, föstudag, og standa í
fjóra mánuði. Þann tíma á að nota
til nýrra viðræðna um frið í Bosníu.
Hafa múslimar fallist á áætlunina
og Serbar heita að leyfa flugumferð
um Sarajevoflugvöll og hindra
hvorki ferðir gæsluliða né starfs-
fólks hjálparstofnana.
Mate Granic, utanríkisráðherra
Króatíu, gagnrýndi Carter í gær
fyrir að taka of mikið undir með
Reuter
JIMMY Carter ásamt Rado-
van Karadzic, leiðtoga Bos-
níu-Serba, í Pale í fyrradag.
Honum tókst að fá stríðsaðila
til að fallast á fjögurra mán-
aða vopnahlé.
Serbum og sagði, að hann hefði í
raun bjargað Karadzic úr þeirri al-
þjóðlegu einangrun, sem hann hefði
verið í.
Carter þakkað
„Carter á heiður skilinn, allt, sem
gert er til að bjarga lífi eins einasta
manns, er þakkarvert. Ég á hins
vegar bágt með að trúa, að Serbar
standi við vopnahléið,“ sagði Adil
Zahiragic, 43 ára gamall Sarajevo-
búi, og aðrir tóku í sama streng.
„Ég er ekki viss um, að Carter átti
sig á klækjabrögf'um Serba en þetta
stríð er skelfmg og hjálpar eng-
um,“ sagði annar.
Alexander Ivanko, talsmaður
gæsluliðs SÞ í Bosníu, sagði í gær,
að vopnahléssamkomulagið væri
mjög mikilvægt og væru meiri von-
ir bundanar við það en oft áður.
Haft er einnig eftir vestrænum
stjómarerindreka, að Bandaríkja-
stjórn sé til viðræðu um að breyta
lítillega alþjóðlegu friðaráætlun-
unni til að fá Serba að samninga-
borðinu en ekki er vitað hvort Cart-
er flutti þeim þau skilaboð.
Leiddist
biðin og
rændi því
bankann
London. Reuter.
JAMIE Insole, 18 ára gamall
breskur unglingur í Cardiff,
var að bíða eftir prófúrslitum
en leiddist biðin. Hann fór
heim til sín, klæddist her-
mannabúningi og vopnaðist
eftirlíkingu af skammbyssu
úr seinni heimsstyrjöld. Síðan
réðst hann inn I banka í
grennd við heimili sitt.
Tveir vegfarendur hand-
sömuðu Insole fyrir utan
bankann. Insole náði prófinu
með glæsibrag en fær ekki
að hefja nám í Háskólanum
í Wales eins og ætlun hans
var. Réttað var í máli hans á
mánudag, hann hlaut átta ára
fangelsi en ránið framdi hann
í júlí sl.
Insole sagðist hafa verið
að drepa tímann með banka-
ráninu. „Hann hefur afar lítið
veruleikaskyn og átti í mikl-
um tilfinningavanda vegna
framtíðaráforma", sagði veij-
andi drengsins.
Þyrluslysið í Norður-Kóreu
Flugmanninum
sleppt fljótlega
Hong Kong. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Pyongyang ætla
bráðlega að afhenda bandarískum
hernaðaryfirvöldum í Suður-Kóreu
lík bandarísks flugmanns, sem
fórst þegar þyrla hans hrapaði inn-
an landamæra Norður-Kóreu.
Skýrði fréttastofa N-Kóreu frá
þessu í gær en einnig er bú.ist við,
að flugmanninum, sem komst lífs
af, verði sleppt.
Fréttastofan sagði, að líki Davids
Hilemons yrði komið í hendur
bandarískra hernaðaryfirvalda í
Suður-Kóreu en ákvörðun tekin í
máli Bobbys Halls þegar rannsókn
á tildrögum atburðarins væri lokið.
Bandaríski þingmaðurinn Bill
Richardson, sem var staddur í Py-
ongyang þegar þyrlan hrapaði,
mun fylgja líki Hilemons suður yfir
landamærin en embættismaður í
Washington segir, að Richardson
hafi verið fullvissaður um, að Hill
yrði látinn laus fljótlega.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
segir, að þyrlan hafi villst inn fyrir
landamæri N-Kóreu og hrapað en
Norður-Kóreustjórn segir, að hún
hafí verið skotin niður þegar flug-
mennimir sinntu ekki viðvörunar-
merkjum. Hefur þessi atburður
valdið spennu í samskiptum ríkj-
anna og gæti haft áhrif á samning
þeirra um kjarnorkuáætlanir N-
Kóreustjórnar.
Fimm fórust
með flutn-
ingaþotu
TVEIR flugmenn og þrír hleðslu-
menn Boeing 737-200 vöruflugvél-
ar biðu bana er þotan brotlenti í
aðflugi að flugvellinum í Coventry
í Mið-Englandi í gær. Þotan rakst
í þak tveggja húsa og rafmagns-
stauravirki áður en hún kom niður
í skóglendi í þriggja kílómetra
fjarlægð frá flugbrautarenda.
Brotlenti hún aðeins nokkur hund-
ruð metra frá íbúðarhverfi. Sjón-
arvottar töldu að þotan hefði orð-
ið aflvana á lokastefnu aðflugsins.
Þeir sögðu að gifurlegar spreng-
ingar hefðu kveðið við í allt að
klukkustund eftir að þotan kom
niður og reykjarbólstrar staðið
upp af slysstaðnum. Þotan var í
eigu alsírska flugfélagsins Air
Algerie en hafði nýlega verið leigð
flugfélaginu Phoenix Aviation.
Fékkst það við flutninga á lifandi
kálfum frá Coventry til megin-
landsins. Var hún að koma frá
Amsterdam til að ná í nýjan farm.
Dean
Rusk
látinn
Aþcnu, Georgíu. Reuter.
DEAN Rusk, fyrrum utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lést í fyrra-
dag á heimili sínu, 85 ára. Rusk
var ráðherra í forsetatíð Johns F.
Kennedys og
Lyndons John-
son, árin 1961-
1969.
Rusk varði
hlutverk Banda-
ríkjamanna í VL
etnam-stríðinu. I
viðtali árið 1990
sagðist hann ekki
iðrast neins.
„Kennedy og Johnson geta ekki
varið gerðir sínar. Ég mun standa
við minn þátt í þeim ákvörðunum
sem þeir tóku, því að ég var sam-
mála á þeim tíma.“
!
n
.
■
i
i
i
i
i
i
<