Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 22

Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ /, 22 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 SIKORSKY HH-60M Pave Hawk frá 56. björgunarsveitinni á Keflavíkurflugvelli. Þátttaka varnarliðsins var með minnsta móti. Þó var Sikorsky-þyrlan til sýnis og sýndi hún einnig björgun- arflug. Aðrar deildir vamarliðsins flugu yfir í 1.000 feta hæð, sem eins og sjá má er miklu hærra en allar aðrar flugvélar sem þátt tóku í sýningunni. Ekki náðust nægilega góðar myndir af þeim. VÉLKNÚINN svifdreki Cosmos K2, flotið af Kjartani Sigurðssyni. orðið hafa á síðastliðnum 75 árum, tengdar flug- inu. Flugið er orðið svo snar þáttur í lífi okkar, að við gætum vart hugsað okkur samgöngur án flugvéla. Upphaf flugsins á íslandi /fcNGJn \ 75 kRj *****<*? Upphaf flugstarfseminnar í landinu, var byggð á bjartsýni og framsýni fárra atorkusamra manna, sem höfðu óbilandi trú áþessum flug-faxa fyrir okkar samgöngur. Hér verður ekki rakin saga flugsins, en þar kennir margra grasa. Ötrúlegt má virðast að smá eyþjóð skuli hafa skip- að sér í röð fremstu þjóða heims hvað snertir flugsamgöng- ur innanlands og utan, þótt oft hafí hvorki verið efni né aðstæður til væntinga eða bjartsýni af þeim toga sem síðar varð. Við Reykvíkingar erum svo lán- samir að hafa flugvöll við bæjar- dymar, sem þjónar landsmönnum öllum. Flugbrautir, þótt stuttar séu, liggja til allra átta og allra staða, ólíkt vegum, sem allir enda einhvers staðar, - nema ef vera skyldi hringvegurinn okkar. Flugsýningin 13. ágúst Fyrir þá sem ekki sáu sýning- una sjálfa, gefst hér tækifæri til að sjá myndir af nokkrum sýning- aratriðum. Plássins vegna er þó ekki hægt að birta nema lítinn hluta þeirra atriða sem þar bar fyrir augu. Vegna þess hve flugvallarsvæð- ið er stórt, þótti ekki fært að koma fyrir hátalarakerfi sem yfirgnæfði flugvélagnýinn og því var það ráð tekið að útvarpa frá sýningunni á Aðalgötunni 90.9. Fengnir voru viðmælendur frá flestum flugrekstraraðilum til að kynna atriðin sem sýnd voru. Þor- steinn Jónsson flugkappi var feng- inn til að segja frá ýmsu frá sínum langa ferli sem flugmaður, en hann hefur verið þátttakandi í flestum flugsýningum á íslandi frá upphafí. Minnispeningur Gefinn var út á vegum Flug- málafélagsins minnispeningur sem var hannaður og smíðaður hérlendis. Öðrum megin er merki félags- ins, en hinum megin er uppdráttur af fyrstu flugvélinni AVRO 504K. Peningurinn er steyptur úr kopar og er 5 cm í þvermál. Allir þátttakendur flugsýn- ingarinnar fengu afhentan slíkan pening á hátíð sem haldin var að kvöidi sýningardags. Flugdýrafagnaður er gamalt nafn á slíkri hátíð flugfólks og er allt í senn árshátíð, dansleikur og söngskemmtun. Niðurlag Flugmálafélag íslands vill þakka þeim sem þátt tóku í þess- ari viðamiklu sýningu, fyrir það að leggja sitt af mörkum til að minnast á viðeigandi hátt þessa merka afmælis. YAK 55, HA-JAI. Hin nýkeypta listflugvél Björns Thoroddsen. Hún hefur ekki verið skrásett á íslandi enn. Bjöm keypti hana í Ungveijalandi. CESSNA 402, TF-GTI, frá Leiguflugi hf. sýndi einnig lágflug. Sjá má hve einbeittur flugmaðurinn, Hörður Hafsteinsson er, enda eins gott. ÞORGEIR Pálsson flugmála- stjóri við setningu sýningarinnar í skýli númer eitt. TVEIR Fokkerar mætast. Fokker 50, TF-FIR, Ásdís, flogið af Ottó Tynes mætir TF-FIT, Freydísi flogið af Eyþóri Baldurssyni, þetta atriði krefst mikils og nákvæms undirbúnings, en er ekki hættulegt þar sem báðir flugmennimir fljúga vinstra megin við brautina og hvor í sinni hæðinni. Það sem tryggir að mæst er á réttum stað er aðflugsfjærlægðarmælir (DME) sem sýnir fjarlægð frá lendingarstað, en hann er í tuminum sjálfum. DOUGLAS DC-3 Dakota, TF-NPK, er þristur Landhelgisgæslunnar er flestum landsmönnum kærkomin sjón. Hér dreifir Tómas Dagur Helgason blómum frá blómaræktarbændum yfir áhorfendur. Að því loknu sýndi hann lágflug eins og allir hinir. DORNIER 228, TF-ELA frá íslandsflugi. Flugvélin er þarna í lág- flugi með vinstri hreyfílinn stöðvaðan. Á flugdaginn 1986 sýndi flug- maður Dornierverksmiðjanna vel hve frábæra flugeiginleika þessi flug- vél hefur. Bergur Axelsson er flugmaður hér. ROCKWELL Commander TF-ERR. Eigandi og flugmaður Elieser Jónsson. Þessi flugvél er sérútbúin til loftmyndatöku og hefur verið við myndatökur út um allan heim. Á sumrin er hún notuð til ljósmynd- unar fyrir Landmælingar íslands. Sjá má að myndavélarlúgan er opin á myndinni, enda var „Elli“ að taka mynd af sýningargestum. TF-SMA er smíðuð á ísafirði og hér flogið af Ragnari Ingólfssyni, og er af gerðinni Quikie og er töluvert mikið breytt. Hin vélin, TF-SMS, er smíðuð af Smára Karlssyni fyrrum flugstjóra og sonum hans og er af gerðinni Rans S-10 Sakota. Henni er hér flogið af Skúla Smárasyni. HVOR er í fullri stærð og hvor er módel? Ef ekki væri vitað að Flugfé- lag íslands er ekki starfandi lengur og að Páll Sveinsson Landgræðslunn- ar var upphaflega Gljáfaxi, TF-ISH, væri ekki auðvelt að gera upp á milli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.