Morgunblaðið - 22.12.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 33
LISTIR
Peningadraumar
BÆKUR
Fjármál
BANKABÓKIN - HVERJIR
EIGA PENINGANA
OKKAR?
Höfundur: Örnólfur Ámason. Útgef-
andi: Eldey hf., 1994.251 bls., mynd-
ir, nafnaskrá.
SAMKVÆMT reglum Morgun-
blaðsins á að flokka bækur við um-
sögn. Þegar litið er á Bankabókina
í þessu samhengi er erfitt um vik.
Þar eru listar með nöfnum yfirmanna
banka og fjármálafyrirækja og laun-
um þeirra. Þá eru lögin um Seðla-
banka íslands birt í bókinni ojg listar
yfir stjórnendur Seðlabanka Islands,
Landsbanka íslands, Búnaðarbanka
íslands og íslandsbanka. Að megin-
efni er bókin þó endursögn á draum-
um og slúðursögum, þar sem banka-
og ijármálamenn gegna aðalhlut-
verki.
í bókarheiti er spurt: Hveijir eiga
peningana okkar? Þessi spurning er
í raun rökleysa, því að
hún svarar sér sjálf.
Bókin snýst um það,
að illa sé farið með fé,
sem menn leggja í
banka.
Litil snilli felst í því,
að hallmæla þeim, sem
stjórna peningastofnun-
um. Þeir hafa löngum
verið skotspónn. Er
auðvelt að ala á öfund
í þeirra garð. Bæði hér
og erlendis eru tölu-
verðar umræður um
laun og önnur iq'ör
þeirra, sem stjóma stór-
fyrirtækjum og bönk-
um. Gagnrýni í því efni
missir auðveldlega marks.
annarleg.
Njörður P. Njarðvík prófessor, sem
nú dvelst í Englandi, ritaði um það
pistil hér í blaðið 15. desember, að
hann sæi mikinn mun á efnistökum
enskra blaða og íslenskra. Hann seg-
ir ensku blöðin veita býsna strangt
aðhald, sem einkum og sér í lagi
Örnólfur Árnason
sé hún
snerti alla meðferð á
almannafé og viðhorf
til þess, sem telst sæmi-
legt. Gagnrýni sé mál-
efnaleg, en ekki illyrt
eða persónulega fjand-
samleg, andstætt því,
sem stundum gerist hér
á landi.
Þessi hugleiðing
Njarðar sótti á við
vegna Bankabókarinn-
ar. Dregið skal í efa,
að nokkurt blað á ís-
landi teldi sér sæma að
bírta grein, sem byggist
á efnistökum höfundar
hennar. Sé um sagn-
fræði eða rannsóknir til
aðhalds á opinbemm vettvangi að
ræða, eru almennt gerðar ríkari kröf-
ur til þess, sem fest er á bók en birt-
ist í blaði. Af Bankabókinni verður
ráðið, að það eigi ekki að líta á hana
sem skáldverk. Hún stendur hins
vegar ekki undir því að vera heimild-
arrit.
Björn Bjarnason.
Geðþekk bók
BOKMENNTIR
Frásagnir af fólki
MANNAKYNNI
eftir Villy'álm Hjálmarsson. Æskan.
1994.232 blaðsíður.
HÉR er sagt frá fólki. Mörgu
fólki. „Þetta kver átti að fjalla um
fólk og helst margt fólk,“ segir
Vilhjálmur í stuttum formála, bætir
svo við: „og gerir það raunar." Vil-
hjálmur segir frá mönnum og kon-
um sem hann hefur hitt og haft
samskipti við. Stundum er hann
sjálfur miðdepill frásagnarinnar og
nálgast þá Mannakynni að heita
sjálfsævisaga, en oft er höfundur
hógværðin uppmáluð; reynir að
gera sjálfan sig ósýnilegan en leyfa
viðmælendum að njóta sín. Það má
raunar gagnrýna uppbyggingu bók-
arinnar og ekki er ég frá því, að
Vilhjálmur hefði átt að nota alfarið
aðra aðferðina. Og helst fyrr-
nefndu, því hann kann að bregða
upp lifandi svipmyndum af fólki
sem hann hefur sjálfur haft kynni
af. Þannig er einn besti kafli bókar-
innar um Bjarna Þórðarson fyrrver-
andi bæjarstjóra í Neskaupstað. Þó
kaflinn sé ekki langur, gerir hann
allt í senn að lýsa Bjarna, Vilhjálmi
og tíðarandanum. Hinsvegar á frá-
sögnin það til að gerast full daufleg
þegar sagt er frá fólki sem höfund-
ur hefur lítil kynni haft af. Vilhjálm-
ur segist vilja minnast fólks sem
hefur hávaðalaust en af trúfestu
og ósérhlífni skilað lífsstarfí sínu.
Minnast þess áður en snjóar yfir
minninguna. Það er vissulega nauð-
synlegt og gott starf og í raun
skylda okkar að sjá til þess, að
ekki fenni yfir fólk fortíðarinnar.
GULLSMIÐJAN
PYRIT-G 15
En það er auðvitað
ekki sama hvernig
sagt er frá og þannig
held ég, að Vilhjálmur
reyni að segja frá of
mörgum á of fáum síð-
um. Það er ekki nóg
að nefna nafnið til að
forða því frá gleymsk-
unni. Sögur verða að
fylgja, sögur sem lýsa
persónunni. Ég hefði
kosið, að sjá Vilhjálm
segja meira frá fáum
en ekki lítið frá mörg-
um. En þessir gallar
breyta því ekki, að
Mannakynni er af-
skaplega geðþekk bók.
Já, mig langar hreinlega að kalla
hana manneskjulega og þó mikið
sé sagt frá Austfirðingum, má segja
að bókin komi við á öllum lands-
hornum. Eða öllu heldur að hún
sæki fólk á öll landshornin. Hér er
sagt frá Laugvetningum á ijórða
áratuginum miðjum og Vilhjálmur
Villyálmur
Hjálmarsson
tæpir á þing-
mennskuárum sínum,
segir þar jafnt frá
samheijum og and-
stæðingum í pólitík-
inni. Lýsir það Vil-
hjálmi, að hann hugsar
ekki um stjórnmála-
skoðanir þegar fjallað
er um andstæðinga, en
horfir eftir manneskj-
unni.
Vilhjámur er ágæt-
lega ritfær og frásögn-
in rennur hnökrunar-
laus áfram. Full mikla
ást hefur hann að vísu
á upphrópunarmerkj-
um og bruðlar óspart
með þau. Fjöldi mynda er í bókinni
og er það vel. Þrátt fyrir að gagn-
rýna megi ýmislegt í Mannakynn-
um, er hún það hlý og manneskju-
leg að enginn verður verri af að
lesa hana, en margur fróðari.
Jón Stefánsson
Handsmiðaðir
DEM ANTSHRINGIR
Macintosh Performa 475
er öflug einkatölva, sem
hentar sérlega vel hvort heldur
er fyrir heimili, skóla eða fyrirtæki.
Macintosh Performa 475 er með
15" Apple-litaskjá, stóru hnappa-
borði, mús, 4 Mb vinnsluminni og
250 Mb harðdiski.
áffílÉa
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
RADGREIÐSLUR
3
ALLT AÐ 18 MÁNADA
Apple-umboðið hf.
Skipholfi 21, simi: (91) 62 48 00
Þorvarður
Hjalti Magnússon
Guðni
Ingimarsson
Arngrímur
Hermannsson
Gísli Már
Gíslason
Snorri Gunnar Ingimundur
Ingimarsson Borgarson Þór Þorsteinsson
Nýjar bækur
Jeppar á fjöllum
í ritstjórn Gísla
Más Gíslasonar
ÚT ER komin bókin Jeppar á fjöllum
- handbók hálendisfarans. Bókin
miðlar upplýsingum öllum þeim sem
vilja ferðast um óbyggðir landsins á
fjórhjóladrifnum bílum í sátt við
umhverfíð. í kynningu útgefanda
segir:
„Bókin Qallar um hálendi landsins,
skipulag þess og réttarstöðu, fjallvegi
og náttúruvemd. Ferðalögin og und-
irbúningur þeirra eru tekin nákvæm-
lega fyrir ásamt aksturstækni sumar
og vetur, rötun og björgun og sjálfs-
björgun. Bókin flytur einnig fróðleik
um veðrið, snjóinn og áhrif kuldans
á mannslíkamann. Þá er fjallað um
landmælingar, kortagerð og nýjustu
staðsetningartækni. Jeppamir, breyt-
ingar á þeim og tilheyrandi tækni
skipa veglegan sess í bókinni. Greint
er frá sögu jeppans frá upphafí og
birt ítarlegt yfírlit yfír alla jeppa á
markaðnum á íslandi um þessar
mundir. ítarleg nafna- og atriðaskrá
(16 bls.) í bókarlok gerir verkið að
gagnlegu uppsláttarriti.“
Fjölmargir sérfræðingar unnu
að gerð bókarinnar sem er prýdd
rrieira en 300 myndum — ljós-
myndum í lit og svarthvítu, teikn-
ingum, línuritum og kortum.
Ristjóri er Gísli Már Gíslason
og aðalhöfundar bókarinnar eru
Arngrímur Hermannsson, Guðni
Ingimarsson, Gunnar Borgarsson,
Ingimundur Þór Þorsteinsson,
Snorri Ingimundarsson og Þor-
varður Hjalti Magnússon — allt
þekktir jeppa- og fjallamenn.
Gunnar Borgarsson teiknaði all-
ar skýringarteikningar. Ljós-
myndirnar eru m.a. eftir Árna
Sæberg, Gunnlaug Rögnvaldsson,
Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurgeir
Sigurjónsson og Þór Ægisson.
Útgefandi er Ormstunga. Bókin
er 480 bls. útlitshönnun og hlífð-
arkápu annaðist Gott fólk. Umbrot,
filmu- og plötugerð var í höndum
Prentþjónustunnar hf. Bókin var
prentuð hjá G. Ben. Eddu - Prent-
stofu hf. Verð 6.900 krónur.
Þá kemur aðeins
ein tölva til greina:
Macintosh Performa 475
Macintosh Performa 475
kostar aðeins 125.263,- kr.
119*000,* krstgr
*4.242,-t.
á mánuði í 36 mán.
. r i
Á:W:Wy- ■; .;VUM\\
* Upphæðin er meðaltalsgreiðsla með vöxtum, lántökukostnaði og færslugjaldi.
y