Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 38

Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ + Kristlaug Gunnlaugs- dóttir var fædd í Reykjavík 4. júlí 1936. Hún lést í Landspítalanum 12. desember síð- astliðinn. Foreldr- ar hennar voru Gunnlaugur Ket- ilsson vélsljóri, fæddur I Vest- mannaeyjum 3. maí 1912, hann lést í árás kafbáts á bv. Reykjaborg vestur af Skot- landi 10. mars 1941, og kona hans Elísabet Breiðfjörð, f. á ísafirði 20. nóvember 1916, d. 22. ágúst 1981. Kristlaug var eina barn foreldra sinna. 19. desember 1954 giftist Kristlaug Valtý Jónssyni versl- unarmanni, f. í Reykjavík 19. janúar 1933, d. 24. júlí 1983. Fimm synir Kristlaugar og Val- týs eru: 1) Gunnlaugur, f. 22. mars 1955, kvæntur Elínu Þóru Eiríksdóttur, f. 26. febrúar 1956, og eiga þau þrjú börn. 2) MÍN kæra vinkona kvaddi þennan heim sl. mánudagsmorgun eftir erf- iða baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún hringdi til mín tæpri viku áður en hún lést og var ákveðin að ég kæmi til hennar á laugardeginum, en á föstudagskveldinu hringdi Gunnlaugur sonur hennar og tjáði mér að hún væri orðin mikið veik, svo ekki varð úr heimsókninn. Gunnlaugur hafði oft samband við mig til að leyfa mér að fylgjast með líðan hennar. Á mánudags- morgni komu hann og kona hans til mín á vinnustað til að tilkynna mér lát hennar. Þennan dag varð mér ekki mikið úr verki. Minningarnar hrönnuðust upp alveg frá gamlárskveldi 1953 þegar Valtýr Jónsson (Volli) bemskuvinur minn og nágranni kynnti mig hreykinn fyrir Dótlu smni. Hann hafði fundið þessa fal- legu unnustu sína í Englandi, þar sem hún hafði dvalið með móður sinni Elsu Breiðfjörð um árabil. Hún þekkti hér fáa og varð ég því fyrsta vinkona hennar hér á Fróni. Dótla var stórglæsileg kona, ljós yfíriitum há og grönn með sérstaklega falleg augu og yndislegt bros, enda vakti hún hvarvetna athygli fyrir glæsi- leika sinn. Þau hjónin eignuðust fimm efni- lega syni. Þeim hefur öllum vegnað vel í lífínu. Ég dáðist að hve Dótla gat áorkað miklu með þenna stóra bamahóp, en Volli var líka góður heimilisfaðir. Fjölskyldan var mjög samhent í blíðu og stríðu. Við áttum margar góðar stundir saman með börnum okkar. Heimili Dótlu og Volla stóð okkur alltaf opið. Þau voru sérstaklega gestrisin og gef- Jón Sigurður, f. 13. maí 1956, kvæntur Ástu Björnsdóttur, f. 11. mars 1952, og eiga þau þrjú böm. 3) Guðmundur Helgi, f. 1. mars 1960, frá- skilinn og á hann tvö börn. 4) Valtýr Elías, f. 30. maí 1963, kvæntur Björk Einis- dóttur, f. 7. febrúar 1963, og eiga þau tvö börn. 5) Róbert, f. 6. júní 1968, sambýlis- kona hans er Linda Karlsdóttir, f. 29. nóv- ember 1968. Kristlaug ólst upp í Englandi, þar sem hún hlaut sína skóla- göngu, en eftir að hún fluttist aftur til Islands starfaði hún við verslunar- og skrifstofustörf, m.a. hjá sendiráði Bandaríkj- anna í Reylgavík, Flugfélagi ís- lands og siðar Flugleiðum, heild- verslun Friðriks Bertelsen, auk þess sem hún rak eigin heild- versiun um tima. Utför Kristlaugar verður gerð frá Neskirkju í dag. andi, enda eignuðust þau marga góða vini. Hlýja og glaðværð ríkti á heimili þeirra. Volli lést 24. júlí 1983 rétt rúmlega fimmtugur. Það var Dótlu og fjölskyldu hennar mjög þungt áfall og nokkrum dögum síð- ar lést faðir Volla. Nú voru erfiðir tímar framundan fyrir Dótlu sem þá var orðin veik. Synir hennar og fjölskyldur þeirra studdu hana vel á þessum erfiða tíma eins og þau hafa alla tíð gert. Það var með ólík- indum hve sterk hún Dótla gat ver- ið, enda sagði hún oft við mig: „Ég held mér uppi á frekjunni,“ og hló við. Hún var mjög ákveðin og stóð fast á sínu, en ávallt réttlát og bóngóð var hún, alltaf tilbúin að rétta út hjálparhönd ef eitthvað bjátaði á hjá fjölskyldu hennar eða vinum. Ég kveð þig kæra vinkonu með mikinn söknuð í hjarta og bið góðan Guð að styrkja syni þína og fjöl- skyídur þeirra. Nú vitum við að þjáningum hennar er lokið og að Volli hefur tekið vel á móti henni með sínu hlýja faðmlagi og bjarta brosi. Guð veri með þér, elsku vinkona. Sofðu rótt. Ása Andersen. Kristlaug Gunnlaugsdóttir, Dótla, eins og hún var ævinlega kölluð, andaðist á miðri jólaföst- unni. Hún náði aðeins 58 ára aldri en barátta hennar við banvænan vágest, krabbameinið, var orðin löng og ströng. Hún glímdi við hann með góðra manna aðstoð um ára- bil af allri þeirri einurð og þreki sem henni var gefið en varð um síðir MINIMINGAR að láta í minni pokann. Enginn má við ofureflinu. Synir hennar fimm voru hjá henni þegar hún skildi við. Þeir sjá nú á eftir kærri móður en faðir þeirra, Valtýr Jónsson versl- unarmaður, lést árið 1983, fimm- tugur að aldri. Foreldrar Dótlu voru hjónin El- ísabet Breiðfjörð og Gunnlaugur Ketilsson vélstjóri en hann fórst þegar Reykjaborginni var sökkt af þýskum kafbáti 10. mars 1941. Árásin á Reykjaborg, sem þá var stærsti togari íslendinga, var mikið fólskuverk. Skotið var á brú og yfirbyggingu skipsins áður en því var sökkt. Tveir menn komust lífs af og töldu þeir að aðrir skipveijar, 13 talsins, hafí verið látnir af skotsárum áður en skipið sökk. Um þennan hörmungaratburð er m.a. fjallað í einni af bókum Steinars J. Lúðvíkssonar, Þrautgóðir á raunastund. Dótla var barn þegar hún missti föður sinn með þessum hætti. Hann var þá tæplega þrítugur. Þær mæðgur áttu þá mjög um sárt að binda eins og margar fjölskyldur aðrar. Dótla var eina barn móður sinnar og samband þeirra alla tíð mjög náið. Nokkru eftir þennan atburð tók móðir hennar sig upp og hélt til Englands og dvöldu þær þar í land í allmörg ár. Bjó Dótla alla tíð að þeirri dvöl og náði m.a. mjög góðum tökum á ensku sem nýttist henni vel æ síðan. Elísabet og Anna móðir mín voru systradætur og var samgangur töluverður þeirra í milli alla tíð en Elsa lést 1981 farin að heilsu. Allt frá fyrstu árum man ég vel eftir ánægjulegum samskiptum við þær Elsu og Dótlu og Valtý mann henn- ar sem allir kölluðu Volla. Þótt heimili þeirra væri stórt og í mörg hom að líta gáfu þau sér alltaf tíma til að sinna öðmm, ekki síst ef eitt- hvað bjátaði á. Kristlaug og Valtýr gengu í hjónaband 19. desebmer 1954 og hefðu átt 40 ára hjúskaparafmæli um þessar mundir. Synir þeirra eru Gunnlaugur (f. 1955) kvæntur El- ínu Þóm Eiríksdóttur; Jón (f. 1956), kvæntur Ástu Björnsdóttur; Guð- mundur (f. 1960); Valtýr (f. 1963), kvæntur Björku Eimsdóttur, og Róbert (f. 1968) kvæntur Lindu Karlsdóttur. Þeirra fjölskyldur em hinar mannvænlegustu og barna- börnin eru orðin 10 talsins. Dótla starfaði við ýmis störf utan heimilis meðan heilsan leyfði. M.a. var hún í mörg ár starfsmaður hjá Flugfélagi íslands og síðar Flugleið- um. Einnig vann hún lengi hjá Frið- rik Bertelsen en rak síðan eigin heildverslun um nokkurra ára skeið. Hún var hamhleypa til verka og með fádæmum ósérhlífin og sam- viskusöm. Það segir sína sögu að örfáum dögum fyrir andlátið lagði hún mikið kapp á að ganga frá öll- um þeim verkefnum sem hún hafði tekið að sér. Voru það m.a. jólaverk- efni fyrir Lionsklúbbinn Eir en þar var hún um árabil virk í starfi. Sömuleiðis starfaði hún lengi á vett- vangi Sjálfstæðisflokksins. Það er margs að minnast við andlát Dótlu frænku minnar. Hún sýndi mér ævinlega mikla ræktar- semi og vinsemd ekki síst á hinum pólitíska vettvangi undanfarinna áratuga eða svo þar sem hún studdi mig og okkur hjónin með ráðum og dáð. Á þessu ári tók hún tvíveg- is duglega til hendi í því skyni og dró ekki af sér þótt oft væri hún sárlega þjökuð og styttra en okkur grunaði til leiðarloka. Við Inga Jóna þökkum henni vináttu og stuðning nú þegar upp er runnin kveðju- stund. Fjölskylda mín kveður Krist- laugu í virðingu og þökk um leið og ástvinum hennar er vottuð dýpsta samúð. Hún verður í dag jarðsett á milli móður sinnar og manns síns. Við munum hugsa til þeirra allra. Geir H. Haarde. Nú þegar ég sest niður til að skrifa þessar línur í minningu okkar ástkæru Dótlu, finnst mér ég þurfa að byrja á okkar fyrstu kynnum. Það var vorið 1980 sem við Krist- ján kynntumst þeim hjónum Dótlu og Volla. Við Volli (Valtýr Jónsson) vorum þá samtíða á heilsuhælinu í Hveragerði. í leiðindum mínum gaf ég mig á tal við þennan myndarlega og ábúðarmikla mann og eins og oft er, þá kom í ljós að ég kannað- ist við margt af því fólki sem hann þekkti og við leikandi frásagnarlist og gamansemi þessa bráðgreinda manns hurfu öll leiðindi. Þegar Kristján kom í heimsókn kynnti ég þá og fór vel á með þeim. Eftir kynnin við Volla biðum við í ofvæni eftir að sjá og hitta konu hans. Af orðum hans mátti skilja að hún væri einstök þannig að við þóttumst við öllu búin en svo var ekki, því einn daginn kom hún gangandi til okkar með manni sín- um stórglæsileg og alvörugefin og sló okkur alveg út af laginu með virðuleika sínum. En svo brosti hún sínu fallega brosi og glettnin blik- aði í stórum augunum yfir vand- ræðagangi okkar. Volli hafði í engu ofmælt, konan var stórkostleg. Strax við fyrstu kynni eignaðist hún aðdáun okkar, fyrst vegna feg- urðar sinnar, greindar og skop- skyns, sem naut sín ekki síst þegar hún sagði frá sjálfri sér, en eftir nánari kynni, bættust við aðdáun á óbilandi kjarki hennar, dugnaði og ósérhlífni. Ég kom nokkrum sinnum á heim- ili þeirra hjóna er þau bjuggu á Grenimelnum en ferðunum fjölgaði þegar við fluttumst í sama hverfí, með aðeins nokkur hundruð metra á milli okkar. Stundum skellti mað- ur sér í kaffisopa og létt spjall til Volla sem ekki gat unnið utan heim- ilis vegna heilsu sinnar, eða leit inn bæði boðinn og óboðinrt þegar Dótla var komin heim, en þau ráku heild- verslun á þessum árum sem hún gaf sig í af krafti eins og allt sem hún tók sér fyrir hendur. Aldrei kom ég svo þangað að ég sæi hana ekki iðnari en nokkra býflugu, heimilið, eiginmaður og synir þurftu sitt, því þá voru tveir og stundum þrír af fímm sonum þeirra hjóna heima og svo þurfti að færa mömmu og tengdapabba mat daglega. Þvílík elja, hún var ótrúleg. Af eðlislægri gestrisni og elskulegheitum tók hún á móti okk- ar og alltaf virtist hún eiga stund aflögu í smáspjall. Á þessum tíma hafði Dótla þegar gengist undir erfiðar aðgerðir vegna sjúkdóms síns en engin sá það á henni. Móðir hennar lést 1981 eftir langvarandi veikindi, en Dótla var eina barn hennar og hafði hún sinnt móður sinni af einstakri um- hyggju. Snemmsumars 1983 fór Dótla í eina aðgerð enn sem var henni mjög erfið en engan bilbug var á þessari konu að finna. Sami kraft- ur, léttleiki og elskulegheit og allt- af, mættu gestum er sóttu þau heim. Skammt var stórra högga á milli. í júlí sama ár lést Volli snögglega, aðeins fimmtugur að aldri, og var það henni mikið áfall. Aðeins viku síðar lést tengdafaðir hennar sem hún hafði sinnt af natni árum sam- an. „Nú hlýtur eitthvað að gefa sig hjá minni elskulegu vinkonu," hugs- aði ég. En viti menn, eftir smátíma var hún búin að ná sinni fyrri reisn og krafti í lífi og starfi. Dótla gekk í Lionessuklúbbinn Eir sem stofnfélagi 1984 og Iét þar ekki sitt eftir liggja. í nokkur ár störfuðum við saman í Eir okkur til mikillar ánægju og styrkti það enn vináttuböndin. En veturinn 88-89 lenti Dótla í bílslysi og afleiðingar þess kipptu henni út úr veraldarvafstrinu í heilt ár, en jafnvel á Grensásdeildinni vann hún fyrir klúbbinn. Ekki gaf hún sig hvað sem á gekk, heldur var öðrum huggun og styrkur. Vegna þessa slyss og keðjuverk- andi afleiðinga þess komst hún ekki aftur út á vinnumarkaðinn nema að litlu leyti, en nýtti sér í ríkum mæli þá listgáfu er enginn tími hafði verið til að sinna til þessa. Keramik og trémálun urðu fyrir valinu og hún sneri sér af sama áhuga og krafti að því og öllu öðru, hver hluturinn öðrum fallegri varð til í höndum hennar en áberandi t Móðir okkar og tengdamóðir, ÁSTA SÆRÓS ÞORVARÐARDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 20. desember. Guðrún Haraldsdóttir, Gunnlaugur Steindórsson, Nanna Haraldsdóttir, Einar Sigurðsson, -Þorvarður Haraldsson. t Séra JANJ4ABETS S.M.M. prestur við St. Fransiskusspitalann í Stykkishólmi, andaðist í Borgarspítalanum þriðjudaginn 20. desember. Útförin fer fram frá Landakotskirkju föstudaginn 30. desember kl. 13.30. Kaþólsku prestarnir. KRISTLAUG (DÓTLA) GUNNLA UGSDÓTTIR hafði hún mesta unun af að teikna blóm og mála þau í litadýrð. Dótla var mikið náttúrubam, hún elskaði landið sitt og dáði fegurð þess. Síðustu fjögur ár hafði hún hjólhýsið sitt í sumarbústaðalandi okkar við Gíslholtsvatn í Holtum. Þar er útsýni oft undurfagurt og undum við þar öllum stundum sem gáfust, alsæl í sveitinni. Oft var kátt í kotinu og slegið upp veislu þegar synina bar að garði með konur sínar og börn. Full af móðurstolti dáði hún mjög alla þessa stóru, glæsilegu syni sína, konur þeirra og í kærleika sínum til barnabarnanna var hún full fórnfysi og gæsku. Dótla var einlæg trúmanneskja og í sveitinni var engin máltíð full- komin nema bæn væri beðin áður. 23. Davíðssálmur var uppáhalds- ritningarstaður hennar. Nú er Dótla horfin 1 faðm Drott- ins síns og frelsara sem hún elsk- aði og treysti svo fullkomlega, kom- in heim. Éftir sitjum við, sem elsk- um hana, full þakklætis en sárs saknaðar. Við Kristján og börnin biðjum Guð að styrkja synina, tengdadæt- urnar og ungu bamabömin í sorg þeirra og söknuði. Guð blessi ykkur öll í Jesú nafni. Unnur. Þroskinn er fóiginn í því að maður lifi sól- skin, rep og storma ævi sinnar þannig að maður vaxi hið innra. (Albert Schweitzer.) Kristlaug Gunnlaugsdóttir mark- aði djúp spor með starfi sínu í Lion- essuklúbbnum Eir í Reykjavík. Hún var stofnfélagi vorið 1984 og fljót- lega vissum við allar að hér .var kona sem hægt var að treysta til allra verka. Ymislegt hafði hún reynt um ævina og bar höfuðið hátt og reisulega. Hún var áræðin og hörkudugleg og gafst aldrei upp, þótt á móti blési. Hún minnti á líf flugdrekans sem lærir smátt og smátt að nýta sér mótvindinn, og fljúga hærra og tignarlega en áður. Við vissum að hún var ekkja með fimm mannvænlega syni og hún hafði rekið fyrirtæki mannsins síns, svo hún var ýmsum hnútum kunnug. í fjáröflun klúbbsins stóð hún okkur öllum framar og fyrir hennar milligöngu fengum við einu sinni á ári sýningarrétt á kvikmynd í Háskólabíói. Og þegar Lions var með landssölu á Rauðu fjöðrinni, var hún með söluhæstu einstakling- unum. í klúbbnum okkar gegndi hún ýmsum ábyrgðarstörfum og var sæmd heiðursmerki Lions sem „kona ársins". Hún var mjög trúuð og fylgdist vel með hinum ýmsu kirkjunnar málum. Eitt sinn sagði hún okkur frá nunnunum í Hafnar- firði sem alltaf voru að gera öðrum gott, en áttu nú varla til hnífs og skeiðar. Dótla fékk þær til að hand- mála jólakort og svo fékk hún okk- ur til að selja þau og var ánægð þegar hún færði nunnunum hvern einasta eyri fyrir þeirra eigin lista- verk. Við vissum að hún hafði barist við krabbamein nokkrum sinnum en það var aldrei til umræðu. Eftir að hún lenti í bílslysi, hrakaði heils- unni enn á ný. Hún reyndi samt alltaf að sjá fyrir sér og var þekkt fyrir góð og nákvæm vinnubrögð. Þegar ég hitti hana í haust var hún sárþjáð og gat ekki unnið neina fasta vinnu, en var búin að breyta heimili sínu í vinnustofu, þar sem hún málaði lítil listaverk á hina ýmsu nytjahluti. „Ég verð að hafa eitthvað að gera,“ sagði hún og brosti. Réttri viku áður en hún dó var jólafundur hjá Lionsklúbbnum Eir, og á hvetjum diski var handmálað- ur jólasveinn sem hún hafði gert fyrir okkur. Jólakveðja frá Dótlu inn í framtíð okkar, til minningar um konu sem aldrei gafst upp og reyndi að nýta mótvindinn í flug á hærra stig. Blessuð sé minning Kristlaugar (Dótlu). F.h. Lionsklúbbsins Eirar, CamiIIa Th. Hallgrímsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.