Morgunblaðið - 22.12.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 49
______________FÓLK í FRÉTTUM
Rödd aldarinnar
l
„ÞÚ VERÐUR að fyrirgefa að ég
hef ekki haft tíma til að hafa mig
til,“ segir Hallbjörg Bjarnadóttir og
brosir innilega. „Hér er stöðugur
gestagangur." Við svo búið fer hún
afsíðis og birtist innan stundar uppá-
búin og allt til reiðu fyrir mynda-
töku. Listamenn vita hvernig á að
hafa sig til með skömmum fyrir-
vara. Fischer, eiginmaður hennar,
sest við hlið hennar og spyr hvort
hann eigi ekki að halda úm hönd
hennar, „... og hjartað," bætir hún
þá við og horfir til hans með glettnis-
svip.
Hún hefur verið gift Fischér í 55
ár og þau eru nýkomin frá Dan-
mörku þar sem þau héldu sýningar
á málverkum sínum. „Við málum
upp á gamla móðinn," segir Hall-
björg. „í nútímalist snýst allt um
tákn og svoleiðis lagað,“ bætir Fisc-
her við. ;,Þannig er það ekki hjá
okkur.“ A öllum veggjum má sjá
málverk í hefðbundnum stíl eftir þau
hjónin og verðskulda þau ítarlegri
umfjöllun en þessa stuttu grein.
Nýlega var Vorvísa í eftirminni-
legum flutning Hallbjargar flutt í
þýska sjónvarpinu og kviknar þá sú
spurning hvort hún ætli ekki að
gefa út lagasafn sitt á geislaplötu.
„Ég á upptökur af 22 lögum með
sjálfri mér,“ segir Hallbjörg. „Ég
hef enn ekki ákveðið hvað ég ætla
að gera við þau. Líklegast læt ég
þó verða af því í nánustu framtíð
að gefa þau út á safnplötu."
Það hlýtur að vera tilhlökkunar-
efni aðdáendum söngkonunnar, sem
hefur glatt svo marga með ein-
stæðri rödd sinni eða „Rödd aldar-
innar“ eins og hún var kölluð í aug-
lýsingu Theatre Royal í Ðublin, þar
sem Hallbjörg tróð upp á eftir Danny
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HJÓNIN Fischer og Hallbjörg
eru búin að vera saman í 55
ár og eru alltaf jafn ástfangin.
HALLBJÖRG með Nat King Cole í Osló. Eftir að hún hafði hermt
eftir honum uppi á sviði kom hann til hennar og sagði: „Ég vissi
ekki að ég hefði svona fallega rödd.“
Kaye og á undan Betty Hut-
ton.
Hvenær sem af útgáfunni
verður eru hjónin langt í frá
sest í helgan stein.
Hallbjörg er ákveðin
í því að troða upp
aftur. Það hef-
ur háð henni
að hún hef-
ur verið með
bronkítis sem
hefur lagst á
raddböndin og
því getur hún
ekki sungið sópr-
an. „Ég get bara
sungið tenór og
bassa,“ segir hún.
Sumir myndu nú
prísa sig sæla með
það, en Fischer
bætir við, „... og
krúnurödd." Hall-
björg kinkar kolli:
beiti ég við
gamaldags djasslög.
Helgi Hjörvar fékk mig
einu sinni til að syngja
„Hlíðin mín fríða“ við
undirleik _ Emils
Torfasonar. Ég söng
lagið með krúnu-
rödd, Emil til mikill-
ar skelfingar, sem
var vanur klassísk-
um undirleik. Þeg-
ar ég kom út úr
útvarpshúsinu á
eftir voru þar
fleiri hundruð
VÖNDUÐ JÓLAGJÖF
\
Chiruca
Þessir frábæru gönguskór
fást nú í verslun okkar á
sérstöku kynningarverði
kr. 11.900. M
SKOVERSLUN KOPAVOGS
HALLBJÖRG og
Fischer eins og þau
birtust lesendum
Morgunblaðsins
árið 1961.
manns sem
biðu eftir mér.
Þau höfðu aldrei
heyrt svona söng áður.
Hvað sem öðru líður eru
hjónin flutt til íslands og kom-
in til að vera. „Þegar ég var búinn
að finna út að ég gat beitt fimm
til sex orðum rétt sótti ég um
íslenskan ríkisborgararétt,“
segir Fischer og gamnast eins
og svo oft áður. Hallbjörg bros-
ir og segir svo með blik í augun-
um: „Við erum alveg sest að á
íslandi. Hér ætlum við að lifa og
deyja.“
HALLBJÖRG í hlutverki Joseph-
ine Baker. Þær skemmtu á sama
stað og voru ágætar vinkonur.
Nýjar vörur teknar upp í dag.
Dömu- og herrafatnaður á frábæru verði
Regatta sportvörur o.m.fl.
Opið:
Fimmtudag (í dag) frá kl. 9-20
Föstdag (Þorlák) frá kl. 9-23
Laugardag (aðfangadag)
frá kl. 10-12
JBHgjl
DALBREKKA
Toyota
Nýbýlavegi 4 (Dalbrekkumegin)
Kópavogi, sími 45800.
t
R
ih