Morgunblaðið - 22.12.1994, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KARATESTELPAN
Pat Morita
Hilary Swank
JDD/í
mm
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
STANSLAUSAR SÝNINQAR í STJÖRNUBÍÓI!
TVÆR MYNDIR Á VERÐI EINNAR!
Stjörnubíó býður upp á þægilega nýjung í
jólainnkaupunum. Foreldrar, sem gera innkaup á
Laugaveginum, geta keypt einn bíómiða fyrir barn sitt
og sá miði gildir á tvær sýningar frá kl. 16.35. til 19.30.
Fólk getur komið og farið að vild. í boði eru myndirnar:
Fleiri pottormar og Þrír ninjar snúa aftur. Tvær myndir á
verði einnar! Kr. 350. Góð jólagjöf!
Sýnd kl. 7.30.
Kr. 800 fyrir
fullorðna.
Kr. 500 fyrir börn
yngri en 12 ára.
HLÍÐABLÓM
MIKLUBRAUT 68.
á homi Lönguhliðar og
Miklubrautar lumar á aðgöngu-
miða fyrir tvo á forsýningu mynd
arinnar „Only you" ef þú aðeins
kemur og kaupir eina rós. Hjá
okkur kemur ýmislegt fleira á
óvart.Opið til kl. 22 alla daga.
FORSÝNING Á
ONLY YOU
Kl. 9.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun. Verðlaun: Boðsmiðar á
myndir í Stjörnubíói.
Verð kr. 39,90 min.
EINN
Ein stelpa, tveir strákar, þrír möguleikar
iiuusnn:HiiainnniaHi3H«iii
'lllfM'ifan.raciUmíS® cdi«<fIM99 < umxti IBAOi CIMAIISIQ iu:nH3WIRlW h iuviji.MtlAl.1Ull
— ww.ilUlJfflSKUBsBMIHináHÐHESIIIHQ una.incii'Mliííllllflt «
Sýnd kl. 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára.
JOLAMYND STJORNUBIOS „ONLY YOU" FRUMSYND 26. DESEMBER
Rokkari
í kjólfötum
Nýjar plötur
í dag kemur út plata Rúnars Þórs Péturssonar,
Beðið eftir vori, sem á eru píanólög. Með plötunni
segist hann vera að svara eindregnum óskum
aðdáenda sinna í gegnum árin.
Morgunblaðið/RAX
RUNAR
Þór Pét-
ursson
er að
gefa út
dýrustu
piötu
sína til
þessa.
RÚNAR Þór Pétursson hefur sent
frá sér fjölmargar plötur síðustu
ár þar sem hann hefur flutt lag-
visst rokk og mansöngva. Inn á
miili hafa svo verið píanólög, þ.e.
lög þar sem ekkert hefur verið
sungið, en píanó flutt laglínuna.
Rúnar segir að þau lög hafi alltaf
náð mikilli hylli og fólk sótt það
fast að fá þau saman á plötu.
Úrval eldri píanólaga og ný lög
Rúnar segist vera að svara ósk-
um aðdáenda sinn síðustu ár, sem
hafi sótt það fast að fá frá honum
plötu með píanólögunum, sem hann
hefur samið nokkur og gefið út í
bland við hefðbundnara rokk. „Fólk
hefur sífrað um þetta við hverja
einustu plötu; beðið um píanóplötu
og fleiri píanólög, og nú er hún loks
kominn," segir hann, en lögin á
plötunni eru úrval eldri píanólaga
og ný lög, en allt er endurunnið og
endurútsett og tekið upp á nýtt
með ýmsum tónlistarmönnum; Eið
Árnarson og Jón Ólafsson á bassa,
Jóhann Hjörleifsson og Ásgeir Ósk-
arsson á trommur og Birgi J. Birgis-
son á hljómborð, en Rúnar leikur á
gítara og píanó.
Rúnar segist hafa tekið þijú göm-
ul pianólög og unnið upp á nýtt,
aukinheldur sem eitt lag, Svefná-
lfar, sem áður kom út sungið, er á
plötunni sem píanólag, en það samdi
hann upphaflega sem píanólag. „Það
eru allmörg lög sem ég hef samið
sem píanólög, en svo stolist til að
syngja inn á plötu,“ segi hann, en
hann segist semja jöfnum höndum
á píanó og gítar. „Það hefur oft
komið fyrir að ég hef samið píanó-
laglínu, sem ekki ganga vel upp sem
sungin. Þannig er til að mynda
Svefnálfar syngja, sem var samið
sem píanólag og þegar ég flyt það
sem sönglag, þá frekar tala ég text-
ann og bæti það svo upp með milli-
röddum. Á þessari plötu heyrist hvað
það hljómar mikið réttara sem píanó-
lag,“ segir Rúnar. Hann segir það
afskaplega skemmtilega tilbreytingu
að gefa út plötu sem þessa; þetta
sé eins og að vera tveir tónlistar-
menn. „Ég spila mikið á böllum og
ég er jafn mikið beðinn um píanólög-
in á böllum eins og hin lögin og ég
hef stundum velt því fyrir mér að
koma fram í kjólfötum fyrir hlé og
leika þá bara píanólög og mæta svo
sem rokkari í leðuijakka eftir hlé,“
segir Rúnar og hlær.
Stemmningarstýring
Rúnar segist hafa notað þessi
píanólög til að stýra stemmningu á
böllum, því oft þegar hamagangur-
inn sé að keyra úr hófi bregði hann
sér á píanóið og rói alla eilítið nið-
ur. „Ég hef líka notað þau til að
hressa fólk við, því þegar ég er
búinn að vera að spila fjörug lög
samfellt á balli í dijúgan tíma,
þreytist fólk eðlilega og fer að tín-
ast af dansgólfinu. Þá hef ég tekið
nokkur píanólög og gólfið fyllist um
leið, það kemur nýtt andrúmsloft."
Rúnar segist hafa útsett lögin
að mestu einn, en Birgir hafí lagt
sitt af mörkum og stýrt upptök-
unni, en mikið er lagt í útsetningar
og upptökuna og Rúnar segir að
Beðið eftir vori sé dýrasta plata
hans til þessa, kosti líklega helm-
ingi meira en dýrasta platan hingað
til. Hann segir sér hafí líka þótt
rétt að leggja þetta mikið í plötuna,
því það sé meira í sjónmáli en að
gefa plötuna einungis út hér á landi,
því útgefendur ytra hafi sýnt henni
áhuga. Þannig hafi fyrirtæki i
Bandaríkjunum óskað eftir því að
kaupa útgáfuréttinn og boðið fyrir
nokkurt fé, en það hygðist gefa
plötuna út til notkunar í stórmörk-
uðum, á flugvöllum, í lyftum og
hvarvetna þar sem skapa þurfi af-
slappandi andrúmsloft, eins konar
„lyftutónlist" og Rúnar segir að
útvarpsstöð vestan hafs hafi einnig
tekið plötuna upp á sína arma.
Hann segir þó að hann og útgef-
andi plötunnar séu sammála um að
ekki sé vert að selja plötuna frá
sér, það liggi ekkert á og best að
gefa sér tíma til að skoða fleiri til-
boð, en meðal annars hefur fyrir-
tæki í Þýskalandi haft samband við
útgáfuna og óskað eftir að fá að
gefa plötuna út þar í landi.
Styrktarútgáfa
Beðið eftir vori er gefín út meðal
annars til styrktar Barnaspítala
Hringsins, en allur ágóði af plötunni
rennur til hans, og Rúnar segir að
svo skemmtilega viiji til að upplag
hennar sé uppselt frá útgefanda.
„Ég fór í viðtal á Rás 2 og rakti
þar viðskipti mín við útgefendur á
Islandi og að ég myndi dreifa plöt-
unni sjálfur og helst að selja hana
á bensínstöðvum, en daginn eftir
hringdi maður frá Skeljungi í mig
og óskaði eftir því að fá að kaupa
hluta af upplaginu. Það fór svo að
Skeljungur keypti allt upplagið,
meðal annars til að styrkja barna-
spítalann, og síðan verður hún ein-
ungis seld á bensínstöðvum Skelj-
ungs.“
Skemmtanir
HLJÓMSVEITIN Kolrassa krókríðandi kemur frarn á Hótel íslandi
annan í jólum ásamt. hljómsveitunum Unun, Spoon og Maus.
UJET BLACK JOE og OLYMPIA halda
tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum
fimmtudagskvöldið 22. desember en eins
og kunnugt er hafa báðar þessar sveitir
nýverið sent frá sér hljómplötur. Jet Black
Joe gaf út plötuna Fuzz og Olympia, sem
er hugarfóstur Sigurjóns Kjartanssonar,
fyrrum forsprakka hljómsveitarinnar Ham,
setti á markað skífu sem ber nafn sveitar-
innar. Báðar þessar plötur hafa hiotið lof
gagnrýnenda og efni af þeim verður uppi-
staðan í dagskrá kvöldins. Húsið opnar
kl. 22 og tónleikamir hefjast klukkustund
síðar. Miðaverð er 500 kr. Öllum þeim sem
náð hafa 18 ára aldri er heimill aðgangur.
WTWEETY\e[km á dansleik í félagsheim-
ilinu Stapa í Njarðvík mánudaginn 26.
desember nk., annan í jólum. Efni af nýjum
geisladisk hljómsveitarinnar, Bít, verður í
hávegum haft á dansleikunum ásamt
Todmobile-efni. Hljómsveitina skipa þau:
Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni,
Eiður Arnarsson, Máni Svavarsson og
Ólafur Hólm.
UFEITI DVERGURINN Vegna jóla-
hátíðarinnar verður helgin með stysta
móti á Feita dvergnum. Opið verður á
Þorláksmessu til kl. 3 og síðan ekki sög-
,upa meir fyrr en mánudaginn, annan í
jffium og verður þá opið til kl. 2. Það verð-
ur Guðni Bcrgur Einarsson, kallaður
kátasti kokkur landsins, sem sér um að
matreiða eymakonfekt fyrir gesti Feita
á Þoriáksmessu.
UBONG sendi frá sér sína fyrstu plötu
nú fyrir jólin og hefur gert víðreist um
landið af því tilefni. Á annan í jóluni verð-
ur sveitin á Inghóli, Selfossi þar sem
verður mikill dansfagnaður. Hijómsveitina
skipa: Móeiður Júníusdóttir, Jakob
Smári Magnússon, Eyþór Arnalds, Guð-
mundur Jónsson og Amar Ómarsson.
UBÍTALHLJÓMS VEITIN SIXTIES
heldur tónleika í Kántrýbæ á Skaga-
strönd annan í jólum og hefjast þeir kl.
24. Það er í samvinnu við Bítlavinafélag
íslands sem tónleikarnir á Skagaströnd
eru haldnir en fyrir skömmu var stofnað
Bítlavinafélag Reykjavíkur og vildu for-
kólfar á landsbyggðinni ekki láta sitt eftir
liggja. Hljómsveitina skipa: Rúnar Frið-
riksson, Guðmundur Gunniaugsson,
Andrés Gunnlaugsson og Þórarinn
Freysson.
UBUBBI MORTHENS leikur á Hafur-
birninum í Grindavík fimmtudagskvöld
en á Þorláksmessu verða hinir árlegu tón-
leika Bubba á Hótel Borg. Báðir tónleik-
arnir hefjast kl. 23. Þess má geta að yfir
9 þúsund eintök hafa þegar selst af nýju
plötu Bubba og var honum afhent gull-
plata frá Skífunni í Háskólabfói 11. desem-
ber sl. Platan mun á næstu dögum ná
platínuviðurkenningur eða þegar hún er
kominn yfir 10 þúsund eintök.
UDJASSTRÍÓ Ómars Einarsson leikur
fimmtudagskvöid í Djúpinu. Boðið verður
upp á djass í Djúpinu í kjallara veitinga-
staðarins Hornsins, Hafnarstræti 15.
Trtóið leikur fjölbreytta tónlist. Gestur
kvöldsins verður söngkonan Andrea
Gylfadóttir. Tríóið skipa: Ómar Einars-
son, gítar, Einar Sigurðsson, bassi, og
Jóhann Hjörleifsson, trommur. Þeir fé-
lagar hefja leikinn kl. 22. Aðgangur er
ókeypis.
UHÓTEL ÍSLAND Stórdansleikur verður
2. í jólum þar sem hijómsveitirnar Unun,
Maus, Kolrassa krókríðandi og Spoon
koma fram. Aldurstakmark er 16 ár. Hús-
ið opnar kl. 22 og er miðaverð 1.000 kr.
Frá kl. 16-18 er jólaball fyrir börnin og
er aðgangur ókeypis. Gos, nammi, Hurða-
skellir, Baldur Bijánsson, Jógi trúður,
Kertasníkir og hljómsveitin Gleðigjaf-
arnir ásamt Ellý Vilhjálms skemmta
börnunum. Miðar er afhentir á öllum bens-
ínstöðvum Essó.
UPLÁIINETAN og BUBBLEFLIES
leika á jóladansleik sunnlendinga á annan
dag jóla, 26. desember, í félagsheimilinu
Njálsbúð í V-Landeyjum. Sætaferðir
verða með Austurleið frá BSÍ (Umferðar-
miðstöðinni) og með SBS frá Selfossi. Plá-
hnetan leikur síðan í Firðinum í Hafnar-
firði á gamlárskvöld.
USSSÓL vika stendur nú yfir á Hard
Rock Café. I tilefni hennar mun hljóm-
sveitin halda tónleika á veitingastaðnum
fimmtudaginn 22. desember. Tónleikarnir
hefjast kl. 22.
LÁRA Margrét Pálsdóttir fær
bíllyklana afhenta frá Magri-
úsi Hreggviðssyni og í baksýn
brosir Helgi Rúnar í kampinn.
Jólahátíð
Fróða
JÓLAHÁTÍÐ Fróða hf. vai; haldin
á Eiðistorgi sunnudaginn 18. des-
ember. Þar skemmti Ómar Ragn-
arsson og Pálmi Gunnarsson söng
lög af nýrri jólaplötu. Þá afhenti
Magnús Hreggviðsson, stjórnarfor-
maður Fróða hf., Láru Margréti
Pálsdóttur aðalvinninginn í áskrift-
arleik Fróða hf., sem var ný Ren-
ault-bifreið.
Fyrir unga fólkið var haldin
körfuboltakeppni og rithöfundar
sem gefa út bækur um þessi jól
brugðu á leik með gestum á milli
þess sem þeir árituðu bpekur. Loks
gladdi Gáttaþefur hjörtu þeirra
yngstu með því að mæta á svæðið,
syngja og tralla og gefa gestum
sælgæti.