Morgunblaðið - 04.01.1995, Blaðsíða 11
—
MORGUNBLAÐIÐ_________________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995 11
FRÉTTIR
» Morgunblaðið/Árni Sæberg
SAMSTARFSNEFNDIN sem falið hefur verið að annast framkvæmdastjórn bændasamtakanna þar til stjórn þeirra hefur verið kosinn
á Búnaðarþingi í mars. Á myndinni eru talið frá vinstri: Guðmundur Stefánsson, Haukur Halldórsson, Jón Helgason, Gunnar Sæmunds-
son og Þórólfur Sveinsson. Á myndina vantar Hermann Sigurjónsson.
Sameining Búnaðarfélags og Stéttarsambands í heildarsamtök bænda
Eigna- o g rekstr-
arleg sameining
frá áramótum
100 geisla-
diskar með
sjókortum
í skip
FYRIRTÆKIÐ Radíómiðun hf.
hefur selt yfír 100 geisladiska um
borð í íslensk skip, en á þeim er
að fínna öll sjókort, sem gefín
hafa verið út hér á landi. Að sögn
Kristjáns Gíslasonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, varð
fyrirtækið fyrst til að framleiða
slíka diska eingöngu með gögnum.
í áramótaræðu sinni gerði for-
seti Islands að umtalsefni mögu-
leika á sviði þekkingarmiðlunar
og nefndi meðal annars að erlend-
is væri búið að gefa út mikið náms-
efni og fróðleiksefni á geisladisk-
um. Enn sem komið væri ættu
íslendingar engan íslenskan upp-
lýsingadisk og þar væri verk að
vinna.
Fagnar áhuga forsetans
Kristján Gíslason hafði af þessu
tilefni samband við blaðið og
kvaðst fagna áhuga forseta ís-
lands á margmiðlun, sem nú væri
að ryðja sér til rúms. „Við hjá
Radíómiðun erum stoltir af því að
geta bent á, að við vorum fyrstir
til að gefa út disk, sem eingöngu
er með gögnum af þessu tagi. Nú
eru sjókortadiskar okkar um borð
í rúmlega 100 íslenskum skipum
og þeir margfalda þær upplýs-
ingar, sem skipstjórum stendur til
boða. Með því að nota diskinn
geta þeir séð sjókortið á tölvuskjá,
staðsetningu skips síns og stað-
setningu annarra skipa á svæð-
inu.“
BÚNAÐARFÉLAG íslands og
Stéttarsamband bænda voru sam-
einuð í ein heildarsamtök bænda
1. janúar síðastliðinn, og taka hin
nýju samtök við réttindum og skyld-
um BÍ og SB samkvæmt lögum sem
samþykkt voru á Alþingi í síðasta
mánuði.
Formlegur stofnfundur nýju
bændasamtakanna, Búnaðarþing,
verður 13. mars næstkomandi og
verður þar gengið frá samþykktum
og kosin stjórn samtakanna, auk
þess sem þeim verður valið nafn.
Haukur Halldórsson sem verið hef-
ur formaður SB segist gefa kost á
sér sem formaður nýju samtakanna
fínni hann stuðning til þess, en Jón
Helgason sem verið hefur formaður
BÍ hefur hins vegar ekki látið uppi
hvort hann mun gefa kost á sér sem
formaður.
Skiptast á formennsku
Stjómir BÍ og SB fara frá og
með 1. janúar í sameiningu með
það hlutverk sem þeim hvorri um
sig er falið í einstökum lögum uns
fyrsta stjórn hinna nýju samtaka
hefur verið kjörin. Sérstakri sam-
starfsnefnd hefur verið falið að
annast framkvæmdastjórn þangað
til og verður Haukur Halldórsson
formaður hennar til 15. febrúar, en
þá tekur Jón Helgason við for-
mennsku og gegnir henni fram að
Búnaðarþingi.
Formaður samstarfsnefndarinn-
ar verður æðsti stjórnandi nýju
samtakanna fram að Búnaðarþingi,
en skrifstofustjóri þeirra fer með
daglegar fjárreiður ásamt starfs-
fólki sínu og heyrir hann beint und-
ir formann samstarfsnefndarinnar.
Þennan tíma verður dagleg stjórn
að öðru leyti í höndum búnaðar-
málastjóra og fyrrum fram-
kvæmdastjóra Stéttarsambandsins
í þeim málaflokkum sem hvor um
sig hefur annast.
Viðræður við búgreinafélög
Kosnir hafa verið 39 fulltrúar á
stofnfund nýju bændasamtakanna,
og eru 28 þeirra kosnir af búnaðar-
samböndunum en 11 fulltrúar eru
kosnir á fulltrúafundum búgreina-
sambandanna. Viðræður standa nú
yfir um verkaskiptingu nýju bænda-
samtakanna og einstakra búgreina-
félaga og er vonast til að samnings-
drög þar að lútandi liggi fyrir þeg-
ar Búnaðarþing hefst.
Búnaðarfélag íslands var stofnað
1837 og hefur það annast leiðbein-
ingarþjónustu fyrir bændur, en
Stéttarsamband bænda var stofnað
1945 til þess að fara með verðlags-
og kjaramál bændastéttarinnar.
Með sameiningu BÍ og SB í ein
heildarsamtök er þess vænst að
boðleiðir verði einfaldari og grund-
völlur skapist til samræmdari og
skjótari ákvarðanatöku en þegar
fjallað er um málin innan tvennra
samtaka.
Jafnframt skapast grundvöllur
fyrir skýrari verkaskiptingu milli
heildarsamtakanna og grunneininga
þeirra en verið hefur innan félag-
skerfís BÍ og SB. Þá er þess vænst
að aukin hagkvæmni náist með ein-
földun í yfírstjórn og með hagræð-
ingu í skrifstofuhaldi samtakanna.
LANDSBJÖRG stendur fyrir flugi með
lyf ogjólagjafir frá íslandi til barna í
Hvíta-Rússlandi núna í fyrstu vikunni
eftir nýár í samvinnu við írsku stofnun-
ina Tsjernobyl-börnin (T.B.) og friðar-
samtökin Peace-2000.
Landsbjörg, landssamband björgun-
arsveita, kom upp söfnunarkössum á
flugeldasölum Hjálparsveitanna í
Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ, þar
sem tekið var á móti litlum jólagjöfum
til barna i Hvíta-Rússlandi.
Gekk framar vonum
Áhersla var lögð á að fólk eyddi
ekki peningum í kaup á gjöfum, heldur
að börn gæfu lítinn pakka með ein-
hvetju sem þau eiga, fengu í jólagjöf
eða hafa ekki not fyrir lengur. Það er
ekki stærð pakkanna sem skipti máli
heldur hugurinn sem fylgdi.
Söfnunin þessa tvo síðustu daga árs-
ins fór fram úr björtustu vonum, bár-
ust um 17-18.000 jólapakkar á útsölu-
staðina. Þá er bara eftir að koma öllum
Söfnun á j ólagj öfum
til Hvíta-Rússlands
JÓN Gunnarsson (l.t.v.), Björn Hermannsson og Ólafur Proppé frá Landsbjörg,
Adi Roche, stofnandi T.B., Ástþór Magnússon, Peace 2000, Barbara Deasy,
starfsmaður T.B., og John Backhouse, eigandi og flugmaður vélarinnar sem
flutti hluta pakkanna til Irlands en myndin var tekin á Reykjavíkurflugvelli.
pökkunum til Hvíta-Rússlands, en jólin
þar eru 6. janúar.
Fyrir utan alla jólapakkana gaf
Lyljaverslun íslands hf. lyfjasendingu
og Islandsflug sér um að koma sending-
unum til Bretlandseyja með fraktflugi.
Þaðan mun flugvél Peace-2000 taka
sendinguna til Hvíta-Rússlands í sam-
vinnu við írsku stofnunina Tsjernobyl-
börnin. Kassagerð Reykjavíkur gaf
umbúðir og Merkjaland í Kópavogi ís-
lenskar merkingar.
Tvö veik börn sótt
í leiðinni verða sótt fjögur börn sem
nú liggja fyrir dauðanum í Hvíta-Rúss-
landi og þau flutt á sjúkrahús á ír-
landi. Það er stofnunin Tsjernobyl-
börnin sem tekur að sér að koma þeim
þangað. Með í ferðinni eru sjónvarps-
menn frá báðum íslensku sjónvarps-
stöðvunum, en reiknað er með að þess-
ari hjálparaðgerð verði sjónvarpað í
mörgum löndum til að vekja athygli á
málinu.
UTSALA UTSALA UTSALA
UTSALAN HEFST I DAG