Morgunblaðið - 04.01.1995, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Hagvexti
fórnað
MEXÍKÓSKA stjórnin lýsti því
yfír í gær að hún myndi grípa
tii þess að fórna hagvexti til
að ná tökum á verðbólgu. Er
þetta talin örvæntingarfull til-
raun til að koma á stöðugleika
í efnahagslífi. Margir óttast
að aðgerðirnar verði til þess
að ýta mjög undir óróa meðal
hinna lægst settu.
Sveitar-
félagið ber
kostnaðinn
TALIÐ er það muni kosta um
600 milljónir til 1.000 milljarð
að fjarlægja flak rússneska
beitiskipsins Múrmansk sem
strandaði um jólin við Sorvær
í Finnmörku. Komi ekki í ljós
hver eigandi skipsins er eða
trygging fýrir björguninni er
líklegast að sveitarfélagið í
Hasvik verði að bera kostnað-
inn.
Hermenn
í mál
UM 2.000 bandarískir her-
menn, sem börðust í Persaflóa-
stríðinu, hyggjast lögsækja
þýsk fyrirtæki sem þeir segja
hafa aðstoðað Saddam Hus-
sein íraksforseta við að koma
upp verksmiðju sem framleíðir
eiturgas. Krefjast hermennim-
ir 1 milljarðs dala í skaðabæt-
ur vegna „Flóa-heilkenna“
sem lýsa sér m.a. í síþreytu,
höfuðverk og útbrotum.
Kerti orsök
brunans
ORSÖK brunans á Switel-hót-
elinu í Antwerpen á nýársnótt,
sem kostaði sex manns lífið,
liggur nú ljós fyrir. Logi barst
frá kerti yfir í jólatré sem fuðr-
aði upp á svipstundu. Þetta
varð ljóst af myndbandi, sem
einn gestanna tók.
Snjóflóð
í St. Anton
EINN maður fórst og nokk-
urra er enn saknað eftir snjó-
flóð í St. Anton í Austurríki í
gær. Björgunaraðgerðum var
frestað í gær vegna hættu á
frekari flóðum. Maðurinn sem
fórst var á skíðasvæðinu í
Gampen Schoengraben.
West hengdi
si g*
LÖGREGLURANNSÓKN og
krufning hafa leitt í ljós að
breski fjöldamorðinginn Fred-
eric West hengdi sig. Sögu-
sagnir hafa verið um að sam-
fangar hans hafi drepið hann
á nýársdag.
Rak Fergie
ekki út
EINKARITARI Karls Breta-
prins vísaði í gær á bug sögu-
sögnum um að Karl hefði kraf-
ist þess að Sarah Ferguson,
hertogaynja af York og mág-
kona hans, viki úr hótelsvítu
í Klosters í Sviss, svo að hann
gæti gist þar.
ERLENT
Einbjörn, tvíbjörn...
ÍSBIRNIR í dýragarðinum í Berlín hafa það náðugt á köldum en sólríkum janúardegi.
Bretland
Lögregla
lokast
inni í lyftu
London. Reuter.
NÍU breskum lögregluþjón-
um, sem hugðust gera áhlaup
á bæli fíkniefnaneytenda,
mistókst ætlunarverk sitt
herfilega fýrir skömmu.
Tróð allur hópurinn sér inn
í lyftu sem ætluð er fyrir
hámark átta manns, með
þeim afleiðingum að hún
stöðvaðist.
Um 45 mínútur liðu áður
en fólk í húsinu heyrði hróp
og köll lögregluþjónanna.
„Við erum lögreglan"
í samtali við dagblaðið Sun
sagðist Eddie Laddie, einn
íbúa hússins, hafa boðist til
að hringja í lögregluna. „Við
erum andsk... lögreglan,
hringdu á slökkviliðið,“
hreyttu lögregluþjónarnir þá
í hann úr prísundinni.
Israelskir hermenn bana palestínskum lögreglumönnum á Gazasvæðinu
ísraelar segja misskiln-
ing orsök mannfallsins
Jerúsalem, Gaza, Kaíró. Reuter.
ÍSRAELAR og Palestínumenn
rannsökuðu í gær hvað varð til
þess að ísraelskir hermenn urðu
þremur palestínskum lögreglu-
mönnum að bana á Gaza-svæðinu
í fyrrakvöld. Shimon Peres, utanrík-
isráðherra ísraels, sagði mannfallið
til komið vegna misskilnings af
hálfu palestínsku lögreglumann-
anna og ekki væri við hermennina
að sakast.
ísraelar og Palestínumenn sögð-
ust ætla að vinna saman að rann-
sókn málsins, þótt það hefði valdið
spennu milli þeirra í samningvið-
ræðum í Kaíró um stækkun sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna.
„Það er erfitt að skýra þetta
mál,“ sagði ísraelskur herforingi á
svæðinu í útvarpsviðtali. „Við og
Palestínumenn höfum skipað sam-
eiginlega rannsóknamefnd."
Herinn segir að hermennirnir
hafi orðið fyrir skotárás þegar þeir
hafí verið á eftirlitsferð og elt mann
að húsi þar sem lögreglumennimir
vom. Palestínskir, embættismenn
neituðu því að lögreglumennirnir
hefðu skotið fyrstu skotunum og
fjölmiðlar í ísrael voru með vanga-
veltur um að einhveijir aðrir, ef til
vill múslimskir öfgamenn, hefðu
skotið á hermennina úr nálægum
aldingarði.
Reuter
YASSER Arafat, leidtogi PLO, huggar einn syrgjendanna við
útför lögreglumannanna þriggja. Þúsundir manna hrópuðu á
hefnd vegna dauða þeirra og Hamas-hreyfingin lýsir lögreglu-
mönnunum sem píslarvottum.
Ahmed Tibi, ráðgafi Yassers
Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka
Palestínumanna (PLO), sagði að
einn lögreglumannanna þriggja
sem biðu bana hefði verið sofandi
í rúmi sínu þegar hermennirnir
hefðu skotið hann.
„Misskilningur“
Hamas-hreyfíngin, sem er andvíg
sjálfstjórnarsamningi PLO og ísra-
ela, kvaðst ætla að hefna drápanna
og lýsti lögreglumönnunum sem
„píslarvottum Hamas“.
Peres sagði að hermennirnir
hefðu neyðst til að skjóta þegar
þeir hefðu orðið fyrir skotárás. For-
ingi hermannanna hefði beðið pal-
estínsku lögreglumennina á arab-
ísku um að hætta að skjóta. „Mér
þykir það mjög miður að þeir skyldu
ekki hlýða,“ sagði ráðherrann.
Peres viðurkenndi að einn Palest-
ínumannanna sem biðu bana hefði
gengið út úr húsinu með hendur
yfir höfðinu. „En hinir héldu samt
áfram að skjóta," bætti hann við.
„Eg harma misskilninginn sem olli
mannfallinu."
Palestínskur embættismaður
sagði að skotið hefði verið á lög-
reglumennina eftir að þeir hefðu
neitað að láta vopn sín af hendi.
Deilt á repúblikanann Newt Gingrich fyrir samning við Rupert Murdoch
Afþakkaði 4,5
milljónir dollara
NEWT Gingrich, væntanlegur for-
seti bandarísku fulltrúadeildarinn-
ar, ákvað fyrir nokkrum dögum að
afþakka 4,5 milljóna dollara fyrir-
framgreiðslu vegna bókar, sem út-
gáfufyrirtæki Ruperts Murdochs
ætlar að gefa út. Hefur þessi háa
upphæð vakið nokkurn kurr meðal
flokksbræðra hans, repúblikana, og
demókratar hafa gagnrýnt hann
harðlega og segja, að hann sé í
aðstöðu til að hafa áhrif á lagasetn-
ingu, sem skipt geti Murdoch miklu
máli.
Það voru ekki síst ummæli Bobs
Doles, væntanlegs forseta öldunga-
deildarinnar, sem ollu því, að
Gingrich ákvað að afþakka fyrir-
framgreiðsluna. Dole sagði, að
samningur þeirra Gingrich og
Murdochs „ylli mörgum áhyggjum"
og „væri ekki mjög vinsæll manna
á meðal“ en kvaðst þó ekki vilja
segja Gingrich fyrir verkum.
Gingrich ætlar nú aðeins að
þiggja einn dollara í fyrirfram-
greiðslu fyrir bókina, sem er meðal
annars um pólitískar skoðanir hans,
en hann mun hins vegar hafa tekj-
ur af henni í samræmi við söluna
þegar þar að kemur. Raunar segir
hann, að samningurinn við Murdoch
hafi verið hvorttveggja „löglegur
og siðlegur" en hann vilji ekki að-
hafast neitt, sem gert geti þing-
meirihluta repúblikana erfítt fyrir.
Þá segir hann, að fimm útgefendur
að minnsta kosti hafi boðið sér
„margar milljónir dollara" fyrir
bókina og þar með „fjárhagslegt
sjálfstæði í fyrsta sinn í lífi okkar
hjóna“.
Demókratar hafa nýtt sér þetta
mál út í ystu æsar og halda því
fram, að Gingrich gæti haft áhrif
á lagasetningu um fjarskiptamál,
sem varðaði Murdoch miklu. Hafa
þeir meðal annars lagt til, að utan-
þingsnefnd verði skipuð til að rann-
saka málið.