Morgunblaðið - 21.01.1995, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ ,
Fundað með Rússum
í Múrmansk
Samið verði
í Barents-
hafsdeilu
sem fyrst
EMBÆTTISMENN frá utanríkis-,
forsætis- og sjávarútvegsráðuneyti
áttu á fímmtudag fund í Múrmansk
í Rússlandi með fulltrúum rúss-
neska utanríkisráðuneytisins og
sjávarútvegsráðuneytisins. Rætt
var um sjávarútvegsmál og ákveðið
að stefna sem fyrst að samningum
um ágreiningsmál varðandi veiðar
í Barentshafi.
I tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu segir að aðalumræðuefni
fundarins hafi verið fiskveiðar í
Barentshafi og möguleikar á auk-
inni samvinnu íslenzkra og rúss-
neskra fyrirtækja á sviði sjávarút-
vegs. Ákveðið var að halda hið
fyrsta þríhliða fund ríkjanna, en um
hann var rætt á fundi Jóns Bald-
vins Hannibalssonar og Andrejs
Kozyrevs, utanríkisráðherra Rúss-
lands, fyrir skömmu.
Rætt við fulltrúa útgerða
íslenzka sendinefndin átti jafn-
framt fundi með fulltrúum allra
helztu útgerðarfyrirtækja í Norð-
vesturhéruðum Rússlands og mun
í dag ræða við fulltrúa stjómar
Múrmanskhéraðs.
Askrifendur
á Súðavík
MORGUNBLAÐIÐ býður
áskrifendum sínum á Súðavík
að fá blaðið sent þangað sem
þeir dvelja, á ísafirði. Súðvík-
ingum er bent á að koma upp-
lýsingum um dvalarstað sinn
til Auðar Yngvadóttur, um-
boðsmanns blaðsins á ísafírði,
í síma 5477 og verða blöðin
send um hæl.
Ný leigribílastöð
lægri taxti
NÝ leigubílastöð, Litli bíll, tekur
til starfa í dag og verða taxtar
nýju stöðvarinnar 10-25% lægri en
annarra leigubílastöðva, að sögn
Sigurðar Siguijónssonar hjá Litla
bíl. Alls verða sex leigubflar í
rekstri en auk þess fjórar límúsínur
og sameiginleg afgreiðsla verður
með Limousinþjónustu B.P. og
Litla bíls. tjónusta límúsínbflanna
verður á sama verði og leigubíl-
anna.
Leigubílastöðin fékk leyfí til
starfseminnar í október 1992 og
hefur stofnun stöðvarinnar verið í
undirbúningi síðan. Stöðin verður
til húsa í Malarhöfða 2, á sama
stað og Greiðabílar hf. eru til húsa.
Sigurður segir að Litli bíll geti
boðið 10-25% lægra verð en aðrir
þar sem stöðin tekur ekki þátt í
20-40% afsláttarkjörum annarra
leigubifreiðastöðva í Reykjavík til
opinberra aðila. Þess í stað er ætl-
unin að láta hinn ajmenna borgara
njóta lægri taxta. Á styttri leiðum,
t.a.m. frá miðbæ og austur í Breið-
holt, er afslátturinn um 10% en
allt að 25% afsláttur á utanbæjar-
ferðum. Sigurður segir að kíló-
metragjald Litla bíls utanbæjar
verði 80 krónur en sé 107 krónur
hjá öðrum leigubílastöðvum borgar-
innar. Startgjaid Litla bfls verði 230
krónur en sé 270 krónur hjá öðrum.
Allir bflar Litla bfls taka við
greiðslukortum VISA og Eurocard.
Morgunblaðið/RAX
r ^ I \
wm m
1 m IpSp p|f
p* r
Hættuástandi aflýst í Súðavík
SÚÐVÍKINGAR komu saman í gærkvöldi í
matsal Sjúkrahússins á ísafirði til að drekka
saman kaffi og ræða um framtíðina. Þeir
eru að byrja að skipuleggja nánustu fram-
tíð fjarri heimabyggðinni. Flest bendir til
að komið verði ugp eins konar samfélagi
íbúa frá Súðavík á Isafirði. Grunnskóli, leik-
skóli og Sparisjóður Súðavíkur munu verða
opnaðir á ísafirði eftir helgi.
Sérfræðingar í snjóflóðahættu skoðuðu
sivjóhengjur í hlíðinni fyrir ofan Súðavík í
gær. Að mati þeirra er ekki hætta á að fleiri
flóð fjalli úr fjallinu ef veður breytist ekki.
ÖUum er þó óheimilt að fara til Súðavíkur
nema með leyfi almannavamanefndar.
Súðvíkingar hafa þrýst fast á að fá að
fara til Súðavíkur til að vitja um eignir sín-
ar. Margir þeirra em ekki með neitt þar
sem þeir dvelja á ísafirði nema fötin sem
þeir era í. í gærkvöldi ákvað almannavarna-
nefnd að heimila SúðvQdngum að fara í dag
heim til sín í fylgd með björgunarsveitar-
mönnum.
Grunnskóli Súðavíkur mun hefja starf-
semi sína á ísafirði nk. mánudag. Sömu
kennarar munu kenna börnunum og kenndu
þeim í Súðavík.
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks í Hafnarfirði
Forsætisráðherra van-
hæfur í kærumálinu
BÆJARFULLTRÚAR Alþýðu-
flokksins í Hafnarfírði hafa sent
Davíð Oddssyni forsætisráðherra
bréf, þar sem þeir fara fram á að
hann vísi frá sér kærum vegna við-
skipta Hafnarfjarðarbæjar og Hag-
virkis-Kletts hf. Telja alþýðuflokks-
menn Davíð vanhæfan í málinu.
Efasemdir um hæfi
í bréfí bæjarfulltrúanna segir að
leiki vafi á hæfi Rannveigar Guð-
mundsdóttur félagsmálaráðherra,
sem alþýðuflokksmanns og væntan-
legs frambjóðanda í Reykjaneskjör-
dæmi, að höndla málið, hljóti hið
sama að gilda um hæfí sjálfstæðis-
manna í ríkisstjóm, sem kunni að
hafa pólitískra hagsmuna að gæta
varðandi lyktir þess.
Bæjarfulltrúamir segja einnig að
forsætisráðherra hafí tjáð sig efnis-
lega um málið á opinberum vett-
vangi og það eitt hljóti að gera
hann vanhæfan til að fjalla um eða
fara með málið fyrir hönd ríkis-
valdsins. Þá hljóti að vakna efa-
semdir um hæfí Davíðs til að fjalla
um kæm, sem undirbúin sé og flutt
af nánum samstarfsmanni hans,
Jóni Steinari Gunnlaugssyni lög-
manni. Þá segja þeir að efasemdir
vakni um hæfi ríkislögmanns, Jóns
G. Tómassonar, án þess þó að heið-
arleiki hans sé dreginn í efa, þar
sem hann hafi um árabil verið nán-
asti samverkamaður Davíðs í borg-
arstjóm og vinur.
Vísi málinu frá sér
„Það að þú skulir einnig hafa
haft bein afskipti af því að mynda
núverandi meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðubandalags og ekki
síður vegna afskipta þinna af mál-
efnum Hafnarfjarðar á síðustu dög-
um, sem þú hefur sjálfur skýrt frá
í plmiðlum, er með öllu ófor-
svaranlegt að þú hafir afskipti af
þessu máli og því krefjumst við
þess að þú vísir málinu frá þér og
þeir sem lúta þínu flokkslega for-
ræði komi þar hvergi nærri,“ segja
bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins.
Stormur
og él fyr-
ir vestan
SAMKVÆMT upplýsingum
frá Veðurstofu er gert ráð
fyrir stormi og éljum á
norðanverðum Vestfjörðum í
dag.
Er búist við 9-10 vindstig-
um þegar líða tekur á
morguninn og mun vindur
snúast í norðaustur og ganga
inn á landið norðanvert og
Vestfirði með deginum. Ann-
ars staðar verður hvöss norð-
an- og norðaustanátt með j
slydduéljum við ströndina en
éljum annars staðar.
Á Suður- og Vesturlandi
verður stinningskaldi í dag en
engin úrkoma, samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofu.
Flugleiðir íhuga áætlunarflug tíl Halifax í Kanacla sumarið 1996;
Kanadastjórn
lætur af and-
stöðu sinni
FORSÆTISRÁÐHERRA Kanada,
Jean Chrétien, hefur sent Davíð
Oddssyni bréf, þar sem hann bend-
ir á að Kanada hafí nú mótað nýja
og opnari loftferðastefnu og segist
vonast til að nú verði hægt að
koma á beinu áætlunarflugi milli
íslands og Kanada. Flugleiðir hf.
hafa látið í ljós áhuga á áætlunar-
ferðum til Halifax á Nova Scotia
og segir Einar Sigurðsson, blaða-
fulltrúi félagsins, að þær geti haf-
izt sumarið 1996 ef af verði.
Betri nýting flugvéla
Chrétien rifjar í bréfí sínu upp
fund sinn með Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra hér á landi síðastlið-
ið haust, en þar tók Davíð umleit-
anir Flugleiða upp við starfsbróður
sinn. Segist Chrétien í bréfinu viss
um að frumkvæði Kanadamanna
nú komi til móts við áhuga íslend-
inga.
Einar Sigurðsson segir að það
gæti reynzt hagkvæmt að fljúga
til Halifax með Boeing 737-þotum
Flugleiða og ná þannig betri nýt-
ingu á þeim, því að þær bíði yfír-
leitt á íslandi yfir nótt. Þannig
gæti Kanadaflugið fallið að Norð-
ur-Atlantshafsflugi félagsins og
mögulegt væri að bjóða upp á flug
frá Norður-Evrópulöndum um ís-
land til Kanada.
Fylkisstjórnvöld þrýstu á
Einar segir að nánari athugun
á þessum möguleikum hafí verið
nánast útilokuð, því að ekki hafi
verið til loftferðasamningur milli
íslands og Kanada. Kanadastjórn
hafí staðið gegn gerð slíks samn-
ings vegna andstöðu þarlendra
flugfélaga. í framhaldi af eftir-
grennslan Flugleiða og bandarísks i
flugfélags eftir heimild til áætlun-1
arflugs til Halifax hafí fylkisstjórn-:
völd hins vegar beitt sér fyrir því|
við sambandsstjórnina í Ottawaí
að breytt yrði um stefnu.
„Nú hafa kanadísk stjórnvöld 1
breytt afstöðu sinni og staðfesta!
það með þessu bréfí til forsætisráð- í
herra,“ sagði Einar. „Þetta erl
ánægjuefni fyrir Flugleiðir og nú 1
verður farið í að gera markaðs-
könnun og skoða þessa möguleika
nánar. Frumathugun hefur farið
fram, en engin ákvörðun tekin fyrr <
en búið er að gera ýtarlega könn- j
un.“
Loftferðasamningur
verði gerður
Einar sagði að í framhaldi af {
stefnubreytingu kanadísku stjórn- j
arinnar væri gert ráð fyrir að gerð- í
ur yrði loftferðasamningur íslands
og Kanada.
.