Morgunblaðið - 21.01.1995, Page 10
10 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FJÁRHAGSÁÆTLUIM REYKJAVÍKURBORGAR
Milljarður til æskulýðs-,
tómstunda- o g íþróttamála
Framlag vegna sérstakra úrræða í
atvinnumálum unglinga 47 milljónir
Borgarskrifstofur
Kostnað-
ur 354,2
milljónir
ÁÆTLAÐ er að kostnaður við rekst-
ur borgarskrifstofanna í Ráðhúsinu
verði um 354,2 milljónir. í tillögu
Sjálfstæðisflokksins er gert ráð fyrir
337 milljóna króna framlagi eða að
hver Reykvíkingur leggi 3.272 krón-
ur af skattfé til stjómkerfisins.
í máli borgarstjóra kom fram að
reiknað er með 700 þús. króna lækk-
un kostnaðar við rekstur Ráðhússins
frá í fyrra. Nettókostnaður við skrif-
stofu borgarverkfræðings, bygging-
arfulltrúa og borgarskipulags er
áætlaður 323,8 milljónir og er hækk-
unin 5,5% miðað við sl. ár.
Sagði borgarstjóri að þar munaði
mestu um fyrirhugaða samkeppni
um skipulag Hamrahlíðarlanda, sem
áætlað er að kosti tíu milljónir. Gert
er ráð fyrir 9,6 milljóna kostnaði af
ráðningu í sex stöðugildi í eitt ár hjá
byggingarfulltrúa vegna leiðréttinga
á skráningu fasteigna, sem talið er
að muni skila tekjum á móti.
FRAMLÖG til æskulýðs-, tóm-
stunda- og íþróttamála eru áætluð
rúmur 1,1 milljarður samkvæmt
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar. Er það 1,8% hækkun miðað við
áætlaða útkomu ársins 1994. Í til-
lögu Sjálfstæðisflokksins er gert
ráð fyrir rúmum milljarði til mála-
flokksins eða svipuðum útgjöldum
og árið 1994. Til framkvæmda
leggja sjálfstæðismenn til að varið
verði 114,5 milljónum fyrir utan
styrkveitingar til félagasamtaka
og er það samdráttur miðað við
uppbyggingu fyrri ára.
Borgarstjóri sagði að kostnaður
vegna reksturs málaflokksins væri
áætlaður 304,2 milljónir. Kostnað-
ur vegna félagsmiðstöðva er áætl-
aður um 105 milljónir og kostnað-
ur vegna sumamámskeiða á veg-
um íþrótta- og tómstundaráðs
(ÍTR) er áætlaður 29,3 milljónir.
Til félagsstarfs við grunnskóla er
áætlað að veija 32,8 milljónum á
vegum ÍTR en 16,5 milljónum á
vegum Skólaskrifstofu.
Atvinnumál ungs fólks
Sagði borgarstjóri að íþrótta-
og tómstundaráð hefði á undan-
förnum misserum látið til sín taka
í umræðum og aðgerðum í atvinnu-
málum með sérstöku tilliti til ungs
fólks. Á vegum stofnunarinnar
voru ráðnir 220 unglingar og aðrir
starfsmenn í sérstök sumarverk-
efni auk 289 í sérstök átaksverk-
efni fyrir atvinnulausa. í fjár-
hagsáætlun ársins 1995 er gert ráð
fyrir 47 milljónum til sérstakra
úrræða í atvinnumálum á vegum
íþrótta- og tómstundaráðs. Þá
verður efnt til starfsmenntun-
arnáms í samvinnu við Iðnskólann
í Reykjavík og er áætlað að veija
til jiess 20,6 milljónum.
I máli borgarstjóra kom fram
að kostnaður við sundstaði er áætl-
aður 297 milljónir en að frádregn-
um aðgangseyri og öðrum tekjum
er áætlaður rekstrarhalli 90 millj-
ónir króna. Kostnaður af rekstri
Laugardalshallar, Laugardalsvalla
og félagavalla er áætlaður 47,4
milljónir. Þar af er áætlaður kostn-
aður vegna valla félaganna 21,7
milljón. Kostnaður við rekstur
skíðasvæða innan borgarmark-
anna og við skautasvellið í Laug-
ardal er áætlaður 19,4 milljónir en
hlutur borgarsjóðs í rekstri skíða-
svæða í Bláfjöllum og Skálafelli
er áætlaður 23 milljónir króna.
Ekki nýir samningar
Borgarsjóri sagði að framlög til
fijálsrar félaga- og íþróttastarf-
semi væru samtals 449 milljónir,
þar af færu 259 milljónir til
Iþróttabandalags Reykjavíkur. Til
framkvæmda á vegum íþróttafé-
laganna er reiknað með styrkjum
að upphæð 190 milljónir króna
vegna samningsbundinna verkefna
við byggingu íþróttamannvirkja.
Sagði borgarstjóri að í frumvarp-
inu væri ekki gert ráð fyrir nýjum
samningum við félögin en borgar-
sjóður væri skuldbundinn til um
180-200 milljóna króna framlaga
á ári næstu þijú árin vegna samn-
inga sem þegar hafa verið gerðir.
gg l 1 — |
»nj:lBII!‘!5!l'!F*r:iii • ■ — j 11 f|1111 i & 1 ~ '
1 Ml i 1 1
ML *
EffiC i Jitik
Húsatryggingar Reykjavíkur
Tekjur lækka
um 50 milljónir
FJARHAGSAÆTLUN Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1995 gerir ráð fyr-
ir að kostnaður vegna brunavarna
og almannavarna verði 288,6 millj-
ónir árið 1995 og er hlutur borgar-
sjóðs þar af áætlaður 100,4 milljón-
ir. I ræðu borgarstjóra kom fram að
fyrirsjáanlegt væri að iðgjaldatekjur
Húsatrygginga Reykjavíkur myndu
lækka um 50 milljónir á árinu. Það
væri áhyggjuefni, þar sem Húsa-
tryggingar Reykjavíkur greiða fjórð-
ung rekstrarkostnaðar vegna bruna-
varna og almannavarna í borginni.
Borgarstjóri sagði að samstarfs-
samningur við þijú nágrannasveitar-
félög, endurgreiðsla vegna sjúkra-
flutninga frá ríkinu og greiðslur frá
Húsatryggingum Reykjavíkur,
leiddu til þess að kostnaður borgar-
sjóðs væri áætlaður 100,4 milljónir
af heildarkostnaði. Borgarstjóri benti
á að húsatryggingar hefðu verið
gefnar fijálsar 1. desember síðastlið-
inn. Ákveðið hefði verið að ráðast í
úttekt á rekstri slökkviliðsins, sem
leiða ætti í ljós, hvemig bregðast
mætti við minnkandi tekjum.
Ríkið endurgreiðir
99,8 milljónir
Borgarstjóri sagði að á síðasta ári
hefði verið gengið frá samningi um
sjúkraflutninga. Úrskurðað hefði
verið að ríkið endurgreiddi borginni
99,8 milljónir af 112 milljónum sem
borgin fór fram á.
Borgarstjóri minnti á að á næsta
ári verða breytingar á símsvörun og
að eitt neyðarnúmer verði fyrir allt
landið. Þá hafi Hafnarfjarðarbær
óskað eftir auknu samstarfi við
Reykjavíkurborg um brunavarnir.
Obreytt framlög
til menningar
FRAMLÖG til menningarmála eru áætluð 518
milljónir samkvæmt fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir árið 1995. Er það svipuð
upphæð og ætluð var á síðasta ári en þá fóra
útgjöld 43 milljónir fram úr áætlun. Tillaga
Sjálfstæðisflokksins gerir ráð fyrir 502,3 millj-
ónum til menningarmála eða 4.877 krónur á
hvern íbúa. Jafnframt að stærsti aðhaldsliður-
inn verði framlög til frágangs bygginga á
vegum Árbæjarsafns.
I ræðu borgarstjóra kom fram að kostnaður
af rekstri Borgarbókasafns væri áætlaður
150,3 milljónir. Safnið rekur fimm útibú og
tvo bókabíla og er stefnt að því að opna nýtt
útibú í kjallara Grafarvogskirkju á næsta ári.
Til Kjarvalsstaða, Ásmundarsafns og sýninga
erlendis er áætlað að veita 43,5 milljónum.
Kynningar erlendis
Á árinu er gert ráð fyrir umfangsmikilli
kynningu á íslenskri myndlist í Dússeldorf,
auk sýningar í Krefeid í Þýskalandi. Þá hefur
verið samþykkt að veita tveim milljónum króna
í undirbúning að umsókn Reykjavíkurborgar
um að verða menningarborg Evrópu árið 2000.
Fram kom að fyrirhugað er að halda sögu-
og menningarhátíð í „gamla Vesturbænum,"
næsta sumar og verður varið til þess 2,5 millj-
ónum.
Ljósmyndasafnið undir
menningarmálanefnd
Borgarstjóri sagði að kostnaður af rekstri
Ljósmyndasafns Réýkjavíkur hefði farið úr
böndunum á síðasta ári en hann varð um 18
milljónir í stað 10,5 milljóna. Safnið hefði
verið látið bera óeðlilega mikinn hluta kostn-
aðar af sýningarhaldi annarra borgarstofnana
undanfarin ár, en nú yrði því hætt. Framlag
til safnsins á árinu er áætlað tæpar 9,5 milljón-
ir og verða jafnframt gerðar ráðstafanir til
að draga úr rekstrarkostnaði. Þá hefur verið
tekin ákvörðun um að safnið heyri framvegis
beint undir menningarmálanefnd.
Rekstrarkostnaður Borgarskjalasafns er
áætlaður 18 milljónir og framlag til Árbæjar-
safns er áætlað 59,3 milljónir. Af þeirri fjár-
hæð rennur 21 milljón til að ljúka endursmíði
Lækjargötu 4. Framlag til Listahátíðar er
áætlað 5,5 milljónir og framlag til Leikfélags
Reykjavíkur helst óbreytt frá fyrra ári og er
rúmar 117,3 milljónir. Framlag til Sinfóníu-
hljómsveitar íslands var vanáætlað á síðasta
ári og er gert ráð fyrir að það verði hækkað
úr 32,5 milljónum í 37 milljónir á þessu ári.
Er það 18% af árlegum rekstrarkostnaði
hljómsveitarinnar, sem greiðist samkvæmt
lögum úr borgarsjóði.
1,6 milljarðar
í rekstur skóla
TIL SKÓLAMÁLA eru áætlaðir rúmir 1,8
milljarðar árið 1995 samkvæmt fjárhagsáætl-
un Reykjavíkurborgar. Að frádregnum tekjum
eru áætluð rekstrarútgjöld rúmir 1,6 milljarð-
ar. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að framlög
til skólastarfs verði rúmir 1,7 milljarðar eða
17.077 krónur á hvem íbúa og 124 þús. á
hvem nemanda. Er það 90 milljónum hærra
framlag en Reykjavíkurlistinn gerir ráð fyrir.
í máli borgarstjóra kom fram að þegar fjár-
hagsáætlunin nú væri borin saman við áætlun
síðasta árs yrði að hafa í huga að skóladag-
heimili væru í fyrsta sinn færð undir rekstrar-
lið Skólaskrifstofu en þau vora áður rekin af
Dagvist bama.
830 milljónir til skólabygginga
Borgarstjóri sagði að þrátt fyrir þrönga fjár-
hagsstöðu borgarsjóðs væri gert ráð fyrir að
veija 830 milljónum króna til skólabygginga.
Borgarráð hafi samþykkt að heimila útboð á
2. áfanga Rimaskóla og er áætlaður kostnaður
með öllum búnaði 270 milljónir og 4. áfanga
Húsaskóla og er áætlaður kostnaður við hann
135 milljónir. í framvarpinu er einnig gert ráð
fyrir 60 milljónum króna til að smíða og setja
tíu færanlegar kennslustofur á lóð Engjaskóla
og 35 milljónum verður varið til smíði færan-
legra kennslustofa við aðra grannskóla. Þá
verður varið 107 milljónum til nýrrar kennslu-
álmu við Breiðholtsskóla og 65 milljónum til
endurbóta á eldri skólum. Framlag Reykjavík-
urborgar til fyrsta áfanga framhaldsskólans í
Borgarholti er áætlað 144 milljónir á árinu.
Tillaga sjálfstæðismanna
Ámi Sigfússon sagði að í tillögum sjálfstæð-
ismanna væri lögð áhersla á öflugt skólastarf
með auknum rannsókna- og þróunarverkefn-
um, samskiptaverkefnum, tölvuvæðingu og
nettengingu innan lands sem utan. Þá væri
áhersla lögð á öflugt starf Vinnuskólans og
benti hann á að 74 milljóna niðurskurður gagn-
vart skólanum muni hafa alvarlegar afleiðing-
ar fyrir sumar fjölskyldur í borginni.
Fram kemur að sjálfstæðismenn hafi lagt
fram áætlanir sínar um einsetningu og upp-
byggingu skóla á síðasta ári. Um væri að
ræða kennsluálmu við Breiðholtsskóla,
Grandaskóla, Melaskóla og Rimaskóla og lok
framkvæmda við Húsaskóla. Þá væri gert ráð
fyrir byggingu eða kaupum á kennsluaðstöðu
fyrir Ölduselsskóla og að kennsla gæti hafist í
færanlegum stofum við Engjaskóla. Einnig
væri gert ráð fyrir aukinni aðstöðu fyrir Hamra-
skóla, Ártúnsskóla og Austurbæjarskóla á þessu
ári og lóðarframkvæmdum við Laugarlækjar-
skóla og Fossvogsskóla. Samtals væri gert ráð
fyrir 647 milljóna króna framlagi til þessara
framkvæmda eða 6.281 krónu á hvern íbúa.