Morgunblaðið - 21.01.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 19
Högg-
myndir
úrís
HÖGGMYNDIR úr ís eru íslend-
ingum framandi, þótt nægilegt
framboð sé á hráefninu. Hilmar
B. Jónsson, matreiðslumeistari,
hefur þó í mörg ár þróað sig í
listinni og sótt klaka í tjarnir víðs
vegar á höfuðborgarsvæðinu. í
tilefni þess að Eðalís hf. hefur
gert samning við þrjú fyrirtæki
í Bandaríkjunum um markaðs-
setningu á ismolum í neytend-
aumbúðum efndi fyrirtækið til
sýningar á 8 höggmyndum Hilm-
ars í Skútunni í Hafnarfirði.
Hilmar segir að höggmyndir
af þessu tagi séu gjarnan notaðar
til gagns og skreytingar á köldum
veisluborðum. I gamla daga hafi
klakaklumpar oft verið látnir
tróna efst á réttunum til að halda
matnum köldum. Smám saman
fóru matreiðslumeistarar að
höggva alls konar styttur úr klak-
anum til aukins prýðis á borðinu.
Jökulísinn í höggmyndum
Hilmars er úr Breiðamerkuijökli,
en frá árinu 1989 hefur verið
unnið að þróun vinnslu á ís úr
jöklinum. Samkvæmt upplýsing-
um Eðalíss hf. er ísinn óvenjulega
hrein náttúruafurð, sem jökullinn
hefur geymt í kjarna sínum sl.
800-1500 ár. Niðurstöður Iðn-
tæknistofnunar sýna að ísinn er
án þeirra jarðefna sem veiyulegt
neysluvatn tekur til sín úr jarð-
veginum og samkvæmt gerlataln-
ingu Hollustuverndar ríkisins er
jökullinn góð vörn gegn alls kon-
ar örverum.
Nýr bletta-
eyðir á
markaðinn
Á MARKAÐINN er komið nýtt efni,
sem eyða á blettum. Blettaeyðirinn
kemur í fimm mismunandi útgáfum
og er sagður leysa upp bletti og
óhreinindi í fötum og nota má hann
á öll lit- og þvottekta efni. Einnig
má nota blettaeyðinn á teppi og
bílaáklæði. Eftir að efnið er borið
á blett er það látið vinna í 1-2
mínútur og síðan er þvegið í þvotta-
vél eða höndum.
Það er fyrirtækið K.G. í Njarðvík
sem flytur efnið inn frá Þýska-
landi, en því er pakkað hérlendis í
140 millilítra plastumbúðir, sem
fengnar eru frá Bretlandi. Umbúð-
irnar eru merktar með tilliti til
þeirra bletta, sem myndast. Svo
dæmi sé tekið á blettaeyðir númer
1 að vinna á blóði, eggjahvítu,
matar- og sósublettum, mjólk,
rjóma, svita og þvagblettum. Aðrir
vinna t.d. á ryði, bleki, olíu, lakki,
fitu, kertavaxi, kaffi og víni. Ef um
viðkvæm efni er að ræða er ráðlegt
að prófa efnið á óáberandi stað.
Vara þessi var lengi vel aðeins
framleidd fyrir efnalaugar, en er
nú komin á almennan neytenda-
markað. Verð á hveijum brúsa mun
vera 250-400 kr., enda mismun-
andi álagning hjá einstökum versl-
unum, að sögn umboðsmannsins,
Ólafs Eggertssonar.
NEYTENDUR
Súrsað hval-
rengi og
reykt hrefnu-
kjöt
ÞAÐ er vandkvæðum bundið að fá
súrsað hvalrengi en hann Pálmi
Karlsson í Fiskbúðinni okkar í Kópa-
voginum á nóg af því. Hér á árum
áður var alltaf súrsað hvalrengi með
þorramatnum og það jafnvel borðað
allan ársins hring. Með hvalveiði-
banninu hefur rengið horfið af þorra-
bökkunum. En hvaðan fær Pálmi
sitt- hvalkjöt?
„Skepnurnar koma víða af land-
inu. Hvalur er af og til að slysast í
allskonar veiðarfæri og menn reyna
að nýta þetta hráefni. Eg vona síðan
að hvalveiðar verði leyfðar með vor-
inu,“ segir hann.
Tekur hálft ár að
súrsa rengið
Pálmi telur að það hafi tekið upp
undir hálft ár að súrsa hvalrengið.
Hann hreinsar það fyrst, sýður og
kælir og setur svo í súrsunarmysu,
súrsunaredik og rúgmjöl. Síðan tekur
það sinn tíma að súrsa rengið og oft
þarf að skipta um súrsunarmysu.
Súrsaðan hvalinn selur hann líka
í Kolaportinu um helgina og kílóið
er á 1.500 krónur. Pálmi segir að í
hundrað manna veislu kaupi fólk
gjarnan 6-8 kíló af súrsuðum hval.
Auk súrsaða hvalsins stendur við-
skiptavinum til boða að kaupa hjá
honum reykt hrefnukjöt. Það er soð-
ið eins og hangikjöt og borðað með
kartöflujafningi og tilheyrandi. Að
sögn hans gefur það hangikjötinu
ekkert eftir, það er fitulaust og selt
í netpylsum. Kílóið kostar 890 krón-
ur. Pálmi súrsar ekki bara rengið
og reykir hrefnukjötið, hann selur
það líka nýtt og frosið. Kílóið er selt
á 690 krónur.
Sýning á Honda árgerð 1995
Honda Civic fra kr. 1.140.000
Honda Accord fra kr. 1.856.000
Honda Quartet 1,51. frá kr. 1.480.000
Þú finnur örugglega bil við þitt hæfi
í Honda fjölskyldunni.
Kíktu til okkar í Vatnagarðana,
fádu þér kaffisopa og reynsluaktu
verðlaunabíl frá Honda.
Opið frá kl. 12-16
Vatnagörðum • Sími 689900
Útsalan
í fullum gangi
Monaco sófasett, leðurlíki, 3 + 2 sæti
49.970,- stgr.
Hársnyrtisett
3.990,- stgr.
Polaris De Luxe 90
8/10 glansandi ryðfrítt stál með
þykkum og straumsparandi botni
Að sjálfsögðu 10 ára ábyrgð.
Pottur 1,6 Itr. 3.1 OO,- stgr.
Pottur 2,2 Itr. 3.720,-stgr.
Pottur 3 Itr. 4.110,- stgr.
Pottur 5,4 Itr. 4.980,- stgr.
Pottur 7 Itr. 6.250,- stgr.
Panna 26 cm 4.890,- stgr.
Aðeins 16.990,- stgr.
Pottasett - 3 pottar með glerloki.
Verð frá 2.998,-
Halogen borðlampar
Tveir styrkleikar.
Verð áður 8.150,-
Nú 3.950,-
—* eldhus;
miðstoðin
Lágmúla 6, sími 684910, fax 684914.
Eldhús-, baðinnréttingar og
fataskápar á ótrúlega góðu verði.