Morgunblaðið - 21.01.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 21
ERLENT
Friður
veldur
vanda
FRIÐUR á Norður-írlandi gæti
valdið fómarlömbum ofbeldis
miklum sálarkvölum á ný sagði
írskur félagsráðgjafi á ráðstefnu
í gær. David Bolton sagði að
þeir sem ættu um sárt að binda
gætu átt erfitt með að aðlaga
sig því, að ofbeldi sem ollið hefði
missi þeirra, væri ekki lengur
til staðar. Sumum myndi takast
að laga sig að breyttum aðstæð-
um en aðrir leggjast í þung-
lyndi. Mun þetta vera reynsla
margra félagsráðgjafa sem
starfa á Norður-Irlandi.
Gatti í stað
Ashkenazys
ENDANLEGA hefur verið
gengið frá því að ítalinn Dani-
ele Gatti taki við stjórn Konung-
legu fílharmóníunnar í London
í september árið 1996 af Vlad-
imír Ashkenazy. „Daniele Gatti
er einn besti ungi stjómandinn
í heiminum nú og við erum him-
inlifandi yfir þvi að hann hafí
fallist á að starf með þessari
frábæm hljómsveit," sagði Alan
Hammond, stjómarformaður fíl-
harmóníunnar. Ashkenazy sagði
af sér í desember er hann frétti
af því að viðræður stæðu yfír við
Gatti.
Eldraun
Dinis nálgast
ÍTALSKA þingið greiðir í næstu
viku atkvæði um traustyfírlýs-
ingu á stjórn Lamberto Dinis
forsætisráðherra. Talið er að
mjög mjótt verði á munum og
reynir Dini nú að tryggja sér
stuðning Silvios Berlusconis,
fyrrum forsætisráðherra. Ekki
er víst að hann hljóti þann stuðn-
ing nema hann heiti því að halda
þingkosningar í júní. Umræð-
umar hefjast á mánudagsmorg-
un með ávarpi Dinis en búist
er við að atkvæðagreiðslan fari
fram á miðvikudag.
Bjerregaard
án biðlauna
RIT Bjerregaard fær ekki ráð-
herrabiðlaun líkt og hún hafði
farið fram á. Samþykkti danska
stjómin í
skyndingu að
gera laga-
breytingu til
að tryggja að
þeir dönsku
ráðherrar,
sem hefja
störfhjáfram-
kvæmda-
stjóminni í
Brussel, fengju ekki biðlaun.
Tók Poul Nymp Rasmussen for-
sætisráðherra þessa ákvörðun
eftir að Bjerregaard hafði í tvo
mánuði neitað að verða við kröfu
fjármálaráðuneytisins um að
hún afþakkaði biðlaun, líkt og
forverar hennar hjá fram-
kvæmdastjóminni.
Bjerregaard
Suu Kyi
áfram í haldi
HERSTJÓRNIN í Burma sagði
í gær að Aung San Suu Kyi,
handhafa friðarverðlauna Nó-
bels, yrði ekki sleppt úr haldi
fyrr en að ný stjómarskrá hefði
verið sett í landinu. Stjómlaga-
samkunda hefur verið að störf-
um frá árinu 1993 og er talið
að nokkur ár líði þar til að hún
lýkur störfum.
Stein-
Vatns-
/ hvaba merki ertu?
^ - jf
Hinn fyrri ^ ----
stjörnuhringur
geit beri Fiskar Hrútur Naut Tvíburar Krabbi Ljón
22.12-20.1 21.1-19.2 20.2 - 20.3 21.3-20.4 21.4-21.5 22.5 - 22.6 23.6-23.7 24.7 - 23.8
Vog
24.9-23.10
Sporb- Boqa-
dreki ma&ur
24.10-22.11 23.11-21.12
janúar Febrúar Mars
Apríl
Maí
Júní
júlí
Ágúst September Október Nóvember
Desember
Hinn nýji stjörnuhringur
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
Stein- Vatns- Fiskar Hrútur Naut Tvíburar Ljón Meyja
geit beri 12.3-18.4 19.4 -13.5 14.5 - 20.6 21.6 -19.7 10.8 -15.9 16.9-30.10
19.1 -15.2 1 * 16.2-11.3 * * * Krabbi 20.7 - 9.8 Vog 31.10 -2
Boga-
mabur
Nabur-
SporbN. valdi
dreki 30.11-
23.11 - 29.11 17.12
Stjömumerkin
13 enekki 12
Þess vegna eru langflestir í öðru
merki en þeir hafa verið flokkaðir í
London. The Daily Telegraph.
STJÖRNUSPÁMENN og
stjarnfræðingar hafa lengi
verið á öndverðum meiði en
nú eru deilur þeirra að breyt-
ast í hreint stjörnustríð. í
fyrradag tilkynnti Konung-
lega stjarnfræðifélagið í Bret-
landi, að stjörnumerkin væru
13 en ekki 12 eins og flestir
halda og það eitt sýndi, að
hinn blómlegi stjörnuspá-
dómaiðnaður væri rugl frá
upphafi til enda. Auk þess
væru spádómarnir út í hött
vegna þess, að Iangflestir
væru í raun í öðru merki en
þeir hefðu verið flokkaðir í.
Dr. Jacqueline Mitton, sem
er félagi í stjarnfræðifélag-
inu, sagði, að allir, sem fædd-
ir væru 30. nóvember til 17.
desember, væru í merki, sem
stjörnuspámenn hefðu hingað
til talið þægilegast að gleyma,
stjörnumerkinu Naðurvalda.
Heitir það á ensku Ophiuchus
en það er aftur latnesk útgáfa
af Asklepios, lækningaguði
Grikkja. Naðurvaldi er mað-
ur, sem naðra eða snákur
hringar sig um.
LítiII áhugi á blöðunum
Á morgun mun Mitton út-
skýra hinn vísindalega
stjörnuhring í BBC, breska
ríkissjónvarpinu, en það er
með þætti um stjarnfræði fyr-
ir almenning. Talsmaður BBC
sagði, að dagblöðin eða þau,
sem eru með stjörnuspádóma
daglega, hefðu verið látin vita
um þessa frétt en aldrei þessu
vant hefðu þau ekki haft á
henni neinn áhuga.
Sumir stjörnuspekingar
hafa brugðist ókvæða við
fréttinni um 13. stjörnumerk-
ið og einn þeirra, Robert Hyde
hjá Telegraph Magazine,
fylgiriti The Daily Telegraph
um helgar, sakaði stjarnfræð-
ingana um „óvísindaleg"
vinnubrögð. Sagði hann, að
stjörnuspekingar hefðu aldrei
haldið því fram, að stjörnu-
merkin væru aðeins 12, þau
væru líklega 88 og mörg
þeirra sköruðu hvert annað.
Tvíburar, ekki Krabbi
Mitton segir, að stjörnurnar
séu aðeins sýnilegar á nóttinni
og þess vegna verði flestir að
hafa stjörnuspámennina fyrir
því í hvaða merki þeir séu en
það ræðst af því hvenær sólina
ber í það. Þó komi fyrir, að
þetta megi sannreyna með
berum augum. „Sem dæmi
má nefna, að á afmælisdegi
mínum 11. júlí, 1991, var sól-
myrkvi og þá mátti sjá fyrir
framan hvaða stjörnumerki
sólin var. Það voru Tvíburarn-
ir, ekki Krabbinn,“ segir Mit-
ton.
Stjörnumerkin voru reikn-
uð út fyrir meira en tvö þús-
und árum og þá var himin-
hvelfingunni skipt bróðurlega
milli þeirra í 12 hluta. Þennan
útreikning nota stjörnuspá-
menn enn í dag. Talsmaður
Alþjóðasljarnfræðifélagsins
segir hins vegar, að stjörnum-
erkin séu misstór og sum
miklu stærri en önnur. Það
er þó verra, að möndulhalli
jarðar breytist smám saman
og þess vegna breytast árstíð-
irnar og þar með tímareikn-
ingurinn með tilliti til stöðu
stjarnanna.
Munar heilu stjörnumerki
Staða stjörnuhringsins hef-
ur breyst frá því hann var
reiknaður út um heilt stjör-
numerki og mun breytast um
annað á hveijum 2.000 árum.
Þannig gengur það í 26.000
ár en þá verður allt komið í
fyrra farið.
Sólina ber nú einnig í 13.
stjörnumerkið, Naðurvalda,
fyrra helming desember. Á
meðfylgjandi korti má sjá
stjörnumerki bresku stjarn-
fræðinganna og og einnig þær
dagsetningar, sem hingað til
hefur verið miðað við.
Stjórnarkreppu afstýrt í Suður-Afríku
Mandela og de
Klerk ná sáttum
Deilt um hvernig gera eigi upp við
fortíðina og aðskilnaðarstefnuna
Jóhannesarborg. Reuter.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, og F.W. de Klerk varafor-
seti náðu í gær sáttum á ný eftir
harðar deilur um hvernig gera
ætti upp við fortíðina og aðskiln-
aðarstefnuna. Mikill ágreiningur
hefur verið um þau mál en ríkis-
stjóm landsins, þar sem Afríska
þjóðarráðið er í meirihluta, ákvað
á miðvikudag að tveir fyrrum ráð-
herrar og 3.500 lögreglumenn
nytu ekki friðhelgi vegna glæpa,
sem þeir kynnu að hafa framið.
Þessu reiddist Þjóðarflokkur de
Klerks mjög og komst á kreik orð-
rómur um að flokkurinn segði sig
úr ríkisstjórninni og að de Klerk
léti af störfum sem varaforseti í
mótmælaskyni.
ANC hefur sakað Þjóðarflokk-
inn um að reyna að hylma yfir
mannréttindabrot með því að
krefjast þess að lögreglumennirnir
og ráðherrarnir fynverandi, Adr-
iaan Vlok og Magnus Malan, nytu
friðhelgi. Vlok, Malan og lögreglu-
mennirnir hafa margsinnis verið
sakaðir um að starfrækja leyni-
sveitir gegn ANC á síðasta áratug
og fyrri hluta þessa áratugar.
ANC sakað um
tvöfalt siðgæði
De Klerk hefur bent á að ákveð-
ið hafi verið að nokkur þúsund
stuðningsmenn ANC verði ekki
sóttir til saka og sakaði Mandela
og flokk hans um tvöfalt siðgæði.
Bætti hann því við að hann hefði
verið móðgaður á ríkisstjórnar-
fundinum í vikunni.
í ræðu á flokksþingi Þjóðar-
flokksins, sem nú er haldið í Jó-
hannesarborg, sagði de Klerk að
framkoma ANC-ráðherra hefði
verið svo ruddaleg að hann hefði
neyðst til að lýsa því yfir að hann
yrði að endurskoða stöðu sína inn-
an stjórnarinnar.
I sameiginlegri yfirlýsingu frá
Reuter.
F.W. de Klerk flytur ræðu á
flokksþingi Þjóðarflokksins í
Jóhannesarborg í gær.
Mandela og de Klerk í gær segir
að það séu hagsmunir þjóðarinnar
allrar að þeir reyni að vinna áfram
saman í sátt og samlyndi. Sögðu
þeir að viðkomandi ráðuneyti yrðu
beðin um að aflétta allri óvissu
vegna friðhelgi ráðherranna og
lögreglumannanna, en ANC segir
að ákvörðun hafi verið tekin um
hana nokkrum vikum áður en
fyrstu fijálsu kosningarnar voru
haldnar í Suður-Afríku.
Hitastýrð
blöndunartæki
%
Verð frá 8.800 stgr.
Hitastýritækin frá FMM i
MORA, Svíþjóð, eru mest
seldu kranarnir í Sviþjóð.
FMM er kranaframleiðandi
Faxafeni 9, s. 887332
Opiö: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. 10-14