Morgunblaðið - 21.01.1995, Page 22
22 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEINIT
Hörð gagnrýni á embættismenn í Japan vegna lélegs viðbúnaðar
Murayama heitir að endur-
skoða allar neyðaráætlanir
Kobe, Tokyo. Reuter.
Reuter
FJÖLSKYLDA í Kobe í rústum heimilis síns í gær. Þau sluppu öll án meiðsla en nær allar eigur
þeirra eru glataðar. Ríkisstjórnin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa brugðist ekki rétt við
og segir forsætisráðherrann að endurskoða verði áætíanir um neyðarhjálp.
ENN var leitað í húsarústum í
japönsku borginni Kobe í gær en
æ færri fómarlömb jarðskjálftans
á þriðjudag finnast nú á lífi. Hjálp-
argögn berast seint og illa til nauð-
staddra. Vörubílar flytja að vísu
nokkurt vatn á vettvang en skort-
ur er á mat, salernum, bleyjum,
bamamat og fleiri nauðsynjum.
Stjórnvöld em harðlega gagnrýnd
fyrir að bregðast ekki rétt við
hamförunum og forsætisráðherr-
ann segir að endurskoða verði
áætlanir um neyðarhjálp og allan
viðbúnað.
Veturinn er óvenju kaldur að
þessu sinni, hitastig er um frost-
mark á svæðinu. Nær 300.000
manns, sem hafast við í bráða-
birgðabúðum, hafa ekki haft vatn
til þvotta í þrjá. sólarhringa.
Ottast inflúensu
Læknar óttast að skæð inflú-
ensa og jafnvel enn hættulegri
farsóttir geti brotist út á hör-
mungasvæðinu, einkum er óttast
að böm hafí lítið mótstöðuafl
vegna vosbúðar og matarskorts.
Tveggja hæða íbúablokk í hverfi
efnafólks hrundi í gær og lokuðust
meira en 20 manns inni í rústun-
um.
Veðurstofa Japans skýrði frá því
í gær að styrkur skjálftans í Kobe
og á eyjunni Awajishima hefði
verið 7 stig á kvarða Japana, ekki
6 stig eins og fyrst var talið.
Matar- og vatnslausir
í 75 stundir
Að sögn stjómvalda í gær fór-
ust með vissu 4.393 í landskjálft-
anum og 656 er enn saknað,
22.590 manns slösuðust. Elsti
maðurinn sem fundist hefur á lífi
er 88 ára karl sem hafði verið fast-
ur undir húsarústum í Nis-
hinomiya, borg skammt austan við
Kobe, í 79 stundir. í einu af út-
hverfum Kobe fannst 75 ára göm-
ul kona á lífí 75 stundum eftir
hamfarimar og hafði hún verið
matar- og vatnslaus allan tímann.
Er hún var borin á brott hélt hún
dauðahaldi í teppi og muldraði:
„Mér líður vel, mér líður vel. Þakka
ykkur fyrir“.
Undrun og reiði
Tomiichi Murayama, forsætis-
ráðherra Japans, sætti harðri
gagnrýni á þingi í gær fyrir sein
viðbrögð og ráðleysi. Forsætisráð-
herrann hét því að þessi mál yrðu
öll tekin til gagngerrar endurskoð-
unar. „Ég hef ekki þurft að fást
við mál af þessu tagi fyrr, þetta
gerðist snemma að morgni svo að
það var nokkur ringulreið", sagði
hann.
Margt hefur vakið undran og
reiði þeirra sem gagnrýna viðbún-
að vegna jarðskjálfta í Japan.
• Reglur um traustleika húsa
vegna jarðskjálfta era strangari í
landinu en nokkurs staðar annars
staðar en um 22.000 hús hafa samt
hrunið eða stórskemmst.
• Vegabrýr eiga að þola mun
harðari skjálfta en ein þeirra valt
á hliðina á löngum köflum þegar
stöplar brotnuðu.
• Japanar eyða sem svarar um
6.800 milljónum króna árlega í
gríðarmikið kerfi viðvörunarbún-
aðar sem brást algerlega.
• Tveir dagar liðu áður en fjöl-
mennir herflokkar komu á slys-
staðinn og hófu leit að fólki í
rústunum. Sagt er að yfírmenn
hafi beðið eftir formlegri beiðni frá
yfirvöldum í Kobe um hjálp.
Gæludýr
sögð fjar-
skyggn
Lundúnum. The Daily Telegraph.
VÍSINDAMENN, sem hafa
rannsakað „fjarskyggnan“
hund, segjast hafa fundið
fyrstu vísbendinguna um að
gæludýr hafí „sjötta skilning-
arvitið“, sem geri þeim m.a.
kleift að sjá fyrir hvenær eig-
endur þeirra komi heim.
Skynja gerðir
eigenda sinna
Niðurstöður rannsóknar-
innar eru sagðar styðja ein-
dregið kenningar dr. Ruperts
Sheldrake, umdeilds líffræð-
ings, sem heldur því fram að
gæludýr og eigendur þelrra
tengist einhveijum dularfull-
um böndum. Kenningar hans
hafa vakið athygli víða um
heim og hundruð manna hafa
skýrt frá hundum, köttum og
öðram dýrum sem virðast
skynja gerðir eigenda sinna
í margra kílómetra fjarlægð.
Rannsóknin beindist eink-
um að Jaytee, fímm ára terrí-
erhundi. Myndbandsupptökur
af honum og eiganda hans
leiddu m.a. í ljós að hundurinn
stökk alltaf upp í glugga um
leið og eigandinn lagði af stað
heim til sín og beið hans þar.
Snjóflóð í Kasmír
60 fórust
Jammu. Reuter.
INDVERSKA stjórnin sagði í gær
að 60 manns hefðu farist í snjó-
flóðinu í Kasmír á laugardag, eða
mun færri en fyrstu fregnir
hermdu. Lögreglan hafði sagt að
110 manns hefðu beðið bana en
íbúar á svæðinu sögðu að meira
en 250 manns hefðu farist. Snjó-
flóðið féll á þjóðveg milli Srinagar
og Jammu.
Roger Clinton
til N-Kóreu?
Forsetabróðurnum boðið að skemmta
á menningarhátíð í Pyongyang
Seoul. Reuter.
STJÓRN kommúnista í Norð-
ur-Kóreu hefur boðið popptón-
listarmanninum Roger Clin-
ton, hálfbróður Bills Clintons
Bandaríkjaforseta, að koma
fram á íþrótta- og menningar-
hátíð I höfuðborginni Pyongy-
ang í april. Forsetabróðirinn
er í Suður-Kóreu og kom þar
fram á tónleikum til styrktar
fötluðum en hann sendi frá sér
diskinn „Nothing Good Comes
Easy“ í september sl.
Bréf með boðinu var undir-
ritað af miðstjórnarmanni í
kommúnistaflokknum, að sögn
s-kóresks þingmanns er Clin-
ton sýndi bréfið á fimmtudag.
Clinton sagðist myndu ráðgast
við bróður sinn í Hvíta húsinu
áður en hann gæfi svar. í bréf-
inu sagði að kæmi Clinton
fram á hátíðinni myndi það
verða til að auka skilning milli
þjóða Norður-Kóreu og Banda-
ríkjanna.
Clinton forseti, sem sjálfur
leikur á saxófón, aðstoðaði
hálfbróður sinn við að koma
sér á framfæri og var svara-
maður við brúökaup hans í
mars sl.
Stirð samskipti
Samskipti N-Kóreu og
Bandaríkjanna hafa verið afar
stirð frá því að Kóreustríðinu
lauk 1953. Fyrir skömmu náð-
ust samningar um deilur
þeirra vegna kjarnorkuáætl-
unar hinna fyrrnefndu sem
talin hefur verið ógna friði í
Norðaustur-Asíu.
N-Kórea er eitt lokaðasta
samfélag í heimi og ferðir út-
lendinga þangað eru háðar
ströngum takmörkunum;
ráðamenn segjast nú munu
fagna erlendum gestum sem
vilji sækja hátíðina umræddu.
CLINTON forseti með saxó-
fóninn; honum var ekki boð-
ið að spila í N-Kóreu.
A
Ovissa í Kína og á fjármálamörkuðum
Andláts Dengs
beðið með
vaxandi spennu
Peking, Hong Kong. Reuter.
VAXANDI spennu gætir í Kína og
á fjármálamörkuðum í Asíu vegna
áhyggna af yfirvofandi andláti
Dengs Xiaopings, leiðtoga landsins.
Opinberlega er því haldið fram, að
líðan hans sé eins og vænta megi
hjá níræðum manni en eftir öðrum
heimildum er haft, að hann sé þungt
haldinn og muni ekki lifa í margar
vikur enn. Kínverskur almenningur
segist sjá ýmis teikn um, að dauði
Dengs sé á næstu grösum, til dæm-
is jarðskjálftana í Japan.
Andstæðar yfirlýsingar
Lítið hefur heyrst frá stjórnvöldum
um líðan Dengs að öðru leyti en
því, að hún sé eftir atvikum, en
haft er eftir öðrum kínverskum
heimildum, að hann hafi tvisvar ver-
ið hætt kominn á síðustu vikum
Talsmaður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í fyrradag, að
heilsa Dengs væri góð miðað við ald-
ur hans en yngsta dóttir Dengs,
Deng Rong, sagði í viðtali við The
New York Times í síðustu viku, að
föður sínum hrakaði dag frá degi
eins og við væri að búast af háöldr-
uðum og sjúkum manni.
Margir Kínveijar segja, að dauði
Dengs sé nærri, fyrirboðarnir séu
jarðskjálftinn í Japan og þrír minni
skjálftar í Kína. Minna þeir á jarð-
skjálftann, sem lagði kínversku borg-
ina Tangshan í rúst 1976 og olli
dauða 240.000 manna, en sex vikum
síðar lést Maó Tsetung. Samkvæmt
kínverskum tímareikningi, sem mið-
ast við tunglútsprungur, er hlaupár
nú eins og 1976 og þá eins og nú
bættist við áttundi mánuðurinn.
vegna hjartaáfalla. Auk þess þjáist Gengi hlutabréfa á mörkuðum í
hann af Parkinsonsveiki. Asíuútgáfa Asíu féll nokkuð í gær vegna óvissu
Wall Street Journal segir, að hann um þróunina í Kína að Deng gengn-
hafí verið í dái síðan seint í desem- um og einnig vegna jarðskjálftans í
ber þegar hann hafi veikst alvarlega. Japan.