Morgunblaðið - 21.01.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 2í
Thomas
Clausen 1
Norræna
húsínu
DANSKI djasspíanóleikarinn
Thomas Clausen er nú stadd-
ur hér á landi við kennslu og
námskeiðshald í Tónlistar-
skóla FÍH. Hann kemur til
íslands á vegum norrænu
djasssamtakanna NORD-
Jazz og
djassdeildar
FÍH.
A sunnu-
dagskvöld
kl. 20 leikur
hann í Nor-
ræna húsinu
ásamt ís-
lenskum
djasstónlist-
armönnum.
Meðleikarar
Thomasar Clausens verða
Sigurður Flosason saxófón-
leikari, Tómas R. Einarsson
kontrabassaleikari og Einar
Scheving trommuleikari. Þeir
munu leika saman sem kvart-
ett, tríó og dúó, en einnig
mun Clausen leika einn.
í kynningu segir: „Thomas
Clausen hefur verið í hópi
fremstu djasspíanóleikara
Evrópu undanfarinn aldar-
fjórðung. Hann hefur leikið
með fjölda bandarískra djass-
tónlistarmanna sem sótt hafa
Danmörku heim. Þeirra á
meðal eru Dexter Gordon,
Johnny Griffin, Lee Konitz,
Jackie McLean, Miles Davis
og Gary Burton. Clausen hef-
ur einnig lengi verið með eig-
ið tríó ásamt trommuleikar-
anum Alex Riel og bassaleik-
aranum Mads Vinding. Þá
hefur hann hljóðritað mikið
bæði með erlendum gestum
og dönskum á borð við Jens
Winther, Lars Möller, Karst-
en Houmark, svo að þrír ís-
landsvinir séu nefndir. Thom-
as Clausen er einnig afkasta-
mikið tónskáld og hefur hann
auk djasstónlistar samið tón-
list fyrir klassíska tónlistar-
menn og kóra.“
Tónleikarnir í Norræna
húsinu á sunnudagskvöld
hefjast sem áður segir kl. 20.
Thomas
Clausen
„Ekki er allt gull...M
KVIKMYNPIR
Bí ó h ö11in
BANVÆNN FALL-
HRAÐI („TERMINAL
VELOCITY") ★ Vi
Leikstjóri Deran Sarafian. Handrit
David Twohy. Aðalleikendur Charlie
Sheen, Nastassja Kinski, James
Galdofini, Chris McDonald, Mario
Van Peebles. Bandarísk.
Hollywood Pictures 1994.
HANDRITSHÖFUNDURINN
er greinilega með gull á heilanum.
Kjarni sögunnar er stoiið Sovét-
gull uppá nokkurhundruð milljarða
og söguhetjan Ditch (Charlie She-
en) átti sér þann draum æðstan
að vinna til annarskonar rússa-
gulls - á Olympíuleikunum í
Moskvu. En var kyrrsettur heima
einsog aðrir landar hans. Þessi
fyrrum fimleikakappi er hinsvegar
orðinn kennari í fallhlífastökki er
á fund hans kemur nýliðinn Chris
(Nastassja Kinski), hinn fönguleg-
asti kvenmaður, sem virðist láta
lífið í fyrsta fallhlífarstökkinu. Það
reynist brella, konukindin er aftur
á móti fyrrum KGB njósnari og
er með sviðsetningu dauða síns
að ná tökum á ofurhuganum
Ditch. Reynist hann betri en eng-
inn í hinum íjölskrúðugustu mann-
raunum í leitinni að fjársjóðnum
og lífshættulegum útistöðum við
fyrrverandi félaga hennar í leyni-
þjónustunni.
Myndin er til helminga slarkfær
áhættuatriði og bjálfafyndni. Höf-
undunum hefur ekki tekist fylli-
lega að ákveða sig hvort þeir ættu
að gera spennu- eða gamanmynd
svo árangurinn verður gjörsam-
lega heilalaust samsull af gamni
og alvöru sem lyppast niður í erki-
vitleysu lengst af en á sæmilega
spretti í upphafi og enda. A undan-
förnum árum hefur ferill Sheen
farið hrakandi úr ágætum mynd-
um niður í ódýrar og einskisnýtar
annarsflokksmyndir og hér bætist
ein slík í hópinn. Það versta er að
hann heldur ekki einu sinni dampi
hér, er ósköp ólíklegur harður,
glaðbeittur nagli. Kinski stelur
senunni þó hún hafi lítið annað
með sér en útlitið. Sem fyrr segir
eru mörg spennuatriðin bærileg,
enda virðist myndin fyrst og
fremst gerð fyrir lítt vandfýsinn
en spennusjúkan myndbanda-
markaðinn. KGB ruddarnir eru
upplífgandi en annað er flest
gamlar klisjur og aulabrandarar í
stirðbusalegri leikstjórn B-mynda-
smiðsins Derans Sarafians.
Sæbjörn Valdimarsson
Aukasýnmg á
Kirsuberjagarðinum
LEIKHUSIÐ Frú Emilía efnir nú
um helgina til aukasýningar á
Kirsubeijagarðinum eftir Anton
Tsjekhov. Sýningin verður á morg-
un, sunnudag, og hefst klukkan 15.
Kirsubeijagarðurinn var frum-
sýndur í október og uppselt hefur
verið á nær allar sýningar. í frétt
frá leikhúsinu segir að því miður
neyðist það nú til að hætta sýning-
um um sinn sökum anna leikar-
anna. Vonast sé þó til að hægt
verði að taka þær upp aftur seinna
í vetur.
Leikendur í Kirsubeijagarðinum
eru Kristbjörg Kjeld, Jóna Guðrún
Jónsdóttir, Árni Tryggvason, Edda
Heiðrún Backman, Ingvar Sigurðs-
son, Steinn Ármann Magnússon,
Harpa Arnardóttir, Eggert Þor-
leifsson, Kjartan Bjargmundsson,
Valgeir Skagfjörð og Helga Braga
Jónsdóttir. Hljómsveitin Skárren
ekkert tekur þátt í sýningunni og
Guðjón Pedeersen leikstýrði.
EDDA Heiðrún, Árni, Ingvar
og Kristbjörg í Kirsuberja-
garðinum.
Rómantísk túlkun
TÓNLISI
Ljóöatónlcikar
TÓNLISTARFÉLAGSINS
í fSLENSKU ÓPERUNNI
Einsöngvari: Jard van Nes. Samleik-
ari: Roger Vignoles. Söngverk eftir
Berg, Schumann, Debussy og de
Falla. Miðvikudagur 18. janúar 1995.
JARD van Nes, mezzo-sópran
söngkona frá Hollandi, ásamt und-
irleikssnillingnum Roger Vignoles,
flutti söngverk sem tilheyra róman-
tik og þeim skilum sem leiddu til
nút.ímatónlistar, en þar í flokki eru
tónhöfundar eins og Alban Berg í
fyrstu verkum sínum, Claude Deb-
ussy og Manuel de Falla.
Álban Berg samdi nokkuð af
söngverkum er hann var nemandi
og af þeim valdi hann nokkur til
útgáfu. Fjórir söngvar, op. 2, voru
gefnir út 1910, en önnur eldri
söngverk endurvann tónskáldið síð-
ar og nokkur þeirra ekki fyrr en
1938. Fjórir söngvar eru fínlega
gerðir og söng van Nes þau af
nærgætni, við fágaðan undirleik
Vignoles.
Jard van Nes lætur vel að túlka
dekkri hlutann að því tilfinningalit-
rófi, sem einkennir t.d. rómantíska
tónlist, eins og finna má í Frauen-
lieb und leben, eftir meistara Schu-
mann, nánar tiltekið eins og í síð-
asta laginu í lagaflokknum, Nun
hast du mir den ersten Schmerz
getan, sem vat' mjög áhrifamikið í
utfærslu beggja listamannanna.
Fögnuðurinn í fyrri hluta söng-
verksins var hins vegar nokkuð um
of haminn, svo að það vantaði and-
stæður á milli gleði og sorgar, þó
lagaflokkurinn í heild væri mjög
fallega fluttur.
Debussy sönglögin voru snilldar-
vel flutt en þar leikur tónskáldið
sér með píanóið og Vignoles kunni
sig þar hið besta. Tvær „hrynhend-
ur“ eftir Karl frá Orléans fjalla um
veðrið og óhamingjuna og tók veð-
urgnýrinn, sem barði á þaki Gamla
bíós, þátt í samleiknum á viðeig-
andi máta. Áhrifamikill jólasöngur,
Noel des enfants, samdi Debussy
við undirleikinn af þórdunum fyrri
heimsstyijaldarinnar og á boðskap-
ur þessa jólasöngs barnanna, sem
eiga hvergi heima, enn hrópandi
erindi til okkar, þó liðin sé hálf öld
frá síðara heimsstríðinu. Áhrifa-
mikið tónverk sem var glæsilega
flutt. Chansons de Bilitis, þijú lög,
fyrst Flauta Pans, þá sérlega
áhrifmikið lag, sem nefnist Hár og
síðast Gröf vatnadísanna, er falleg
tónlist, sem var óaðfinnanlega flutt
en Hárið samt á þann hátt sem
meisturum einum er fært að gera.
Spönsku alþýðusöngvarnir, eftir
de Falla, voru síðastir á efnis-
skránni og mjög vel fluttir af söng-
konunni, sérstaklega Asturian og
tvö þau síðustu, Cancion og Polo,
þar sem söngkonan náði að nokkru
að eftirlíkja spánskan alþýðusöng,
án þess þó að ofgera þar nokkuð.
Vignoles lék mjög vel en þó hefði
mátt vera ögn meiri hiynskerpa í
leik hans í spönsku lögunum, sem
á köflum voru einum of mjúklega
mótuð. Hvað sem því líður, voru
þetta glæsilegir tónleikar, bornir
upp að listfengi og fágun en einnig
af tilfinningaþrunginni rómantískri
túlkun.
Jón Ásgeirsson
LEIKFÉLAG Menntaskól-
ans við Hamrahlíð frum-
sýnir Marat-Sade í Tjarn-
arbíói á laugar-
dag kl. 20.
Marat-Sade
eftir Peter
Weiss
LEIKFÉLAG Menntaskólans við
Hamrahlíð frumsýnir leikritið
„Ofsóknin og morðið á Jean-
Paul Marat flutt af vistmönnum
Charenton-geðveikrahælisins
undir stjórn markgreifa de
Sade“, laugardaginn 21. janúar
kl. 20 í Tjarnarbíói.
í kynningu segir: „Hvað ger-
ist þegar sjálfur maðurinn sem
sadisminn er kenndur við svið-
setur leikrit, sem fjallar um
morð á einum helsta foringja
frönsku stjórnarbyltingarinnar
1789, á geðveikrahæli árið 1808
með eintóma geðsjúklinga í hlut-
verkum?“
Rúnar Guðbrandsson stýrir
uppfærslu Leikfélags MH á
þessu leikriti eftir Peter Weiss,
Guðni Franzson stjórnar tónlist-
inni, Linda Björg Árnadóttir
hannar búningana, en Áróra
Skúladóttir sér um förðunina á
þeim 43 leikendum sem taka
þátt í leiknum.
Þetta er sögulegt verk sem
blandað er heimspekilegum
samræðum milli Marat og Sade,
miklum söng, sögu byltingarára
Frakklands, éálfræði, geðveiki,
gleði og sorg, morð og kímni.
Sýningar verða alls 8 en þeim
lýkur 2. febrúar. Miðaverð er
500 krónur fyrir skólafólk en
1.000 krónur fyrir aðra.
Kaffileikhúsið
Sápa í allra
síðasta sinn
LEIKÞÁTTURINN Sápa eftir
Auði Haralds verður sýndur í
dag, laugardag, í Kaffileikhúsinu
í Hlaðvarpanum í allra síðasta
sinn. Sápa var opnunarverk
Kaffileikhússins og hefur á ann-
að þúsund manns séð sýninguna.
Leikkonur Sápu eru þær Edda
Björgvinsdóttir, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, Margrét Ákadóttir, Mar-
grét Guðmundsdóttir og Sigrún
Gylfadóttir og leikstjóri er Sigríð-
ur Margrét Guðmundsdóttir.
Eins og sagt var frá í haust er
Sápa framhaldssápa þar sem
höfundum gefst kostur á að þróa
persónurnar sem fyrir eru og
skapa nýjar.
Sápa númer tvö fer brátt að
líta dagsins ljós og eru það þær
Ingibjörg Hjartardóttir og Sigrún
Óskarsdóttir sem skrifa. „Mikil
leynd hvílir yfir efni verksins en
þó hafa höfundarnir upplýst að
framhjáhald skýtur upp kollinum
og hinar dyggðum prýddu konur
úr Sápu eitt sýna á sér ný and-
lit,“ segir í kynningu.
Eftir sýninguna á Sápu á laug-
ardagskvöldið mun hljómsveitin
Kósý skemmta gestum Kaffileik-
hússins.
Grafísk verk,
bókakápur
og plaköt í
Gallerí Greip
JULIAN Waters, sem er breskur
grafískur hönnuður, opnaði í
gær, sýningu í Gallerí
Greip við Hverfisgötu,
þar sem hann sýnir gra-
físk verk, bókakápur,
plaköt og fleira.
Auk þess að vera
þekktur grafískur
hönnuður í Bandaríkj-
unum er hann talinn
meðal þeirra fremstu í
skrautritun í heiminum
í dag.
Julian vinnur fyrir fyrirtæki
eins og National Geographic og
bandarísku póstþjónustuna, auk
ýmissa hönnunar- og auglýs-
ingastofa og útgefenda.
Hann hefur einnig verið ráð-
gjafi í letri og leturhönnun fyrir
Adobe og vinnur nú að hönnun
á „Multiple Master“-leturfonti
fyrir þá.
Opið er alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14-18 og stendur
hún til 5. febrúar.
Tónleikar í
Keflavíkur-
kirkju í dag
FLAUTULEIKARARNIR Guð-
rún Birgisdóttir og Martial
Nardeau ásamt Pétri Jónassyni
gítarleikara flytja fjölbreytta
efnisskrá í dag, laugardag, í
Keflavíkurkirkju kl. 17.
Þessa vikuna hafa þau verið
að leika fyrir nemendur grunn-
skólanna og Pjölbrautaskólans
sem hluta af kynningarátaki í
skólunum undir nafninu „Tónlist
fyrir alla“. Tónleikarnir í dag eru
lokaliður kynningarinnar. Að-
göngumiðar verða seldir við inn-
ganginn en nemendur á grunn-
skólaaldri, félagar í Tónlistarfé-
lagi Keflavíkur og Félagi eldri
borgara fá ókeypis aðgang.
„Samhugur í verki“
í Borgarleikhúsinu
Minningar-
og styrktar-
tónleikar
HALDNIR verða minningar- og
styrktartónleikar í Borgarleik-
húsinu á mánudagskvöld, 23.
janúar og rennur allur ágóði af
tónleikunum til landssöfnunar-
innar „Samhugur í verki“.
Á tónleikunum kemur fram
fjöldi tónlistarmanna, sem allir
gefa vinnu sína. Leikfélag
Reykjavíkur leggur til borgar-
leikhúsið ásamt tækjum og
starfsfólki. Tónlistarmennirnir
eru m.a. Egill Ólafsson, Ellý Vil-
hjálms, Grafík, Hálft í hvoru,
Hörður Torfason, KK, Kór Lang-
holtskirkju, Magnús og Jóhann,
Rabbi, Ragnar Bjarnason, Rúnar
Þór, Skárr’en ekkert og Spoon.
Miðasala er hafin í Borgarleik-
húsinu. Miðaverð er 1.000 krón-
ur.
Tónleikar í Lista-
safni Kópavogs
SZYMON Kuran fiðluleikari,
Reynir Jónasson harmónikku-
leikari og Guðni Franzson klari-
nettuleikari tónleika í Listasafni
Kópavogs - Gerðarsafni, í dag,
laugardag, kl. 16.
Þessir tónleikar eru lokin á
tónlistarkynningu sem fram hef-
ur farið í öllum skólum bæjarins
í vikunni, þar sem nemendum
hefur verið boðið upp á tónlist
og kynningar á þeim hljóðfærum
sem notuð eru.