Morgunblaðið - 05.02.1995, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D
30. TBL. 83. ARG.
SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
ÞINGVALLAVATN Á FÖGRUM VETRARDEGI
Saka Rússa um morð
á óbreyttum borarurum
Moskvu. Reuter. ^ J
ráðsins taki við stjórn Tsjetsjníju eftir að Samtökin styðja sem fyrr íhlutun Rússa
rússneski herinn er búinn að bijóta uppreisn- en hvetja stjórnvöld til að grípa til „rót-
ina á bak aftur. tækra“ ráðstafana vegna framferðis hersins.
Skýrsla um norðurmiðin við Nýfundnaland
Þorskstofninn 2.700 tonn?
SAMTÖK pólitískra andstæðinga Dzhokars
Dúdajevs, forseta uppreisnarhéraðsins
Tsjetsjníju, birtu yfirlýsingu í gær þar sem
rússneska innrásarliðið er sakað um villi-
mannlegar loftárásir á óbreytta borgara í
Grosní. Fullyrt var að hermenn hefðu í mörg-
um tilvikum gerst sekir um þjófnað, rán og
morð á saklausum borgurum. Samtökin voru
stofnuð í fyrra með opinberum stuðningi
Moskvustjórnarinnar til að steypa Dúdajev
af stóli.
í yfírlýsingu Tsjetsjenanna er að sögn Itar-
Tass-fréttastofunnar rætt um „óskiljanlegar
og grimmdarlegar loft- og sprengjuárásir á
íbúðarhverfi í Grosní, byggð friðsömu fólki
sem ekki getur yfirgefíð borgina". Umrædd
samtök í Tsjetsjníju nefnast Bráðabirgðaráðið
og eru þar fulltrúar nokkurra hópa sem börð-
ust gegn Dúdajev. Hefur ríkisstjórn Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta ákveðið að leiðtogar
í SKÝRSLU, sem kanadískir fiskifræðingar
birtu nýlega um ástand þorskstofnsins á norð-
lægu miðunum við Nýfundnaland, er sagt að
hann sé í algeru lágmarki. Kemur fram að
stofninn sé nú aðeins um 2.700 tonn.
Er Morgunblaðið ræddi við Richard Cash-
in, formann sambands starfsfólks í físk- og
matvælaiðnaði í St. John’s, í gær kom fram
að honum fannst fískifræðingarnir fuilyrða
of mikið í niðurstöðunum.
„Enginn dregur í efa að ástandið sé slæmt,
þótt menn séu reyndar dálítið bjartsýnni um
ástandið á vestur- og suðurmiðunum núna.
En þeir toguðu 400 sinnum fyrir norðan og
hér vita allir að þetta var ekki nógu umfangs-
mikil rannsókn til að hægt sé að fullyrða
nokkuð um stofnstærð í tonnum. Ég hef það
á tilfinningunni að fiskifræðingar séu að
reyna að bæta álit sitt, þeir ofmátu stofnana
svo hrapallega hér áður fyrr,“ sagði Cashin.
Tóneyrað í
vinstra hveli
SUM okkar fæðast með næmt tóneyra
en sé sá hæfileiki ekki virkjaður á unga
aldri, kann hann að glatast. Þetta er niður-
staða vísindamanns í Bandaríkjunum sem
kannað hefur lögun og
stærð heila í þeim sem
búa yfír miklum tónlist-
arhæfíleikum.
Myndir af heilum 30
tónlistarmanna sem
leika sígilda tónlist, sýna
að hluti vinstra heila-
hvolfs þeirra, sem hafa
næmast tóneyrað og
geta þekkt einstakar
nótur, er óvenju stór. Munurinn var minni
hjá þeim tónlistarmönnum sem ekki hafa
eins næmt tóneyra og slíkar breytingar
voru ekki merkjanlegar á heila 30 manna
sem enga þjálfun hafa hlotið í tónlist.
Gottfried Schlaug við Beth Israel-
sjúkrahúsið í Boston, sem rannsakað hef-
ur tónlistarfólkið, segir í samtali við The
San Francisco Chronicle að þeir eigi það
sameiginlegt að tónlistariðkunin hafí haf-
ist fyrir 7 ára aldur. Hefjist hún ekki
fyrir 10 ára aldur, sé ólíkiegt að viðkom-
andi nái að þróa með sér næmt tóneyra.
Schlaug telur að tengja megi næmt
tóneyra stækkun í þeim hluta heilans sem
nefnist planum temporale. Hann er bæði
vinstra og hægra megin en stækkunin
verður vinstra megin hjá tónlistar-
mönnunum. Heilasérfræðingar hafa fagn-
að niðurstöðum Schlaugs sem þeir segja
þær fyrstu er tengi uppbyggingu heilans
við listræna hæfíleika. Þær veki reyndar
fleiri spurningar en þær svari og nú verði
að hefjast handa við að leita svaranna.
Sænska kerfið
fargar hestum
YFIRMAÐUR pakistanska hersins, Abdul
Waheed hershöfðingi, vildi fyrir skömmu
sýna Svíum nokkurn vináttuvott eftir að
hafa verið í opinberri heimsókn í Stokk-
hólmi og hrifíst af riddaraliðssýningu þar.
Hann sendi því Svíum þrjá arabíska gæð-
inga, þá Shor Dil, Sardar og Tex, að gjöf.
Flugvél var send eftir gjöfínni en vegna
strangra ákvæða í lögum Svía um inn-
flutning dýra frá Asíu var samið um að
hestarnir yrðu í sóttkví í Eistlandi í sex
mánuði. Er vélin var yfir Eistlandi snerist
þarlendum stjórnvöldum hugur, var því
flogið áfram til Svíþjóðar. Heryfirvöld
reyndu að fá undanþágu en ekkert gekk
og var hestunum þá slátrað að fyrirmæl-
um landbúnaðarráðuneytisins og hræin
brennd.
Svíar reyna ákaft að fínna kaupendur
að vopnum í Asíu, einkum Pakistan, og
er málið því mikið áfall fyrir þá enda erf-
itt að útskýra það fyrir gefandanum.
Samvinnavið
íslendinga
mjög mikilvæg
Yiðtal við Ivan Johannesen
sjávarútvegsráðherra Færeyja.
14
•*j Býðurrísunum B
i 5, birginn
PTI/flT\ Á SUNNUDEt p % W ’ %> %
£ W i 18 Á kdldum ktaka