Morgunblaðið - 05.02.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.02.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1995 31 BREF TIL BLAÐSINS Óskarsverðlaunin í beinni útsendingu á Stöð 2 Frá íslenska Útvarpsfélaginu hf.: KÆRI Þorsteinn og annað áhuga- fólk um Óskarsverðlaunin. Við viljum bytja á að þakka Þorsteini ágætt bréf sem birtist í Velvakanda þriðjudaginn 31. jan- úar. Það gleður okkur alltaf þegar fólk lætur óskir sínar í ljós við okkur. Það gleður okkur enn meira að geta sagt Þorsteini og öðrum áhugasömum að Óskarsverðlaun- unum verður gert mjög hátt undir höfði í dagskrá Stöðvar 2 í mars- mánuði. í fyrsta lagi verður þátturinn Óskarinn undirbúinn sýndur sunnudagskvöldið 26. mars en þar er fjallað um tilnefningar, helstu kvikmyndir og undirbúning fyrir sjálfa hátíðina. í öðru lagi verður bein útsending frá Óskarsverð- launaafhendingunni aðfaranótt þriðjudagsins 28. mars. Útsend- ingin hefst klukkan 02.00 um nótt- ina og mun standa yfir í um þijár klukkustundir. Loks er á dagskrá hjá okkur þýdd samantekt af því helsta sem fyrir augu bar við af- hendinguna. Þessi þáttur er á dag- skrá föstudagskvöldið 31. mars og er ætlaður þeim sem ekki áttu þess kost að vaka yfir beinu út- sendingunni. Að auki verða frum- sýndar fjórar sígildar Óskarsverð- launamyndir á föstudagskvöldum í mars og áhugamönnum um Ósk- arsverðlaunin ætti að vera mikill fengur í því. Með von um að allt áhugafólk um kvikmyndir fylgist vel með og njóti beinnar útsendingar frá Ósk- arsverðlaunaafhendingunni í mars. F.h. íslenska útvarpsfélagsins hf. GUÐRÚN ELÍN JÓNSDÓTTIR, kynningarstjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Starf fyrir syrgjendur í Seltjarnarneskirkju Frá Solveigu Láru Guðmundsdóttur: í ÁRSBYRJUN 1991 hófst á veg- um Seltjarnarneskirkju starf fýrir syrgjendur. Starfið er í því fólgið að ár hvert í byijun febrúar er boðið til opins umræðufundar um sorg og trú. í framhaldi af fundin- um gefst fólki tækifæri til að skrá sig í umræðuhóp, sem takmarkast af 10 manns og stendur starfíð yfir í 10 vikur. Stuðst er við bók sr. Karls Sigurbjömssonar, „Til þín, sem átt um sárt að binda“, en í henni eru tíu kafiar, sem lagðir eru til grundvallar umræðunum í hópnum, sem þó einkennast af persónulegri reynslu þeirra, sem í hópnum eru. Nú hafa fjórir hópar verið starf- ræktir, en fímmti hópurinn fer nú af stað. Því er boðað tH opins fund- ar um sorg og trú í Seltjamames- kirkju þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20.30. Stór hópur á um sárt að binda Þar ræðir sr. Birgir Ásgeirsson um efnið auk þess sem kona úr sorgarhópnum frá í fyrra segir frá reynslu sinni af starfinu. Að fund- inum loknum tekur sóknarprestur- inn, sr. Solveig Lára Guðmunds- dóttir, á móti þeim, sem hyggjast skrá sig í hópinn, sem verður á miðvikudagskvöldum í vetur og hefst þann 15. febrúar. Seltj^marneskirkja vill mæta þeim stóra hópi fólks, sem um sárt á að binda, með þessu starfí, sem er markvisst uppbyggingar- starf til að lifa við þann missi, sem syrgjendur hafa orðið fyrir í lífinu. SOLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR, sóknarpestur, Seltjarnamesi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt I Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi. if SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ORKA - UMHVERFI - ATVINNA Hve mikilvæg verður nýting orkulindanna til að tryggja hagvöxt, atvinnu og velmegun pjóðarinnar? Orkunefnd Sjálfstæðisflokksins boðar til ráðstefnu um þetta efni á Hótel Borg mánudaginn 6. febrúar nk. 17.00 Ávarp: Ge/r H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Virkjanaáætlanir til ársins 2015 Helgi Bjarnason, yfirverkfræðingur hjá Landsvirkjun. Umhverfi og atvinnustefna Össur Skarphéðinsson, umhverfisráðherra. Atvinnusköpun í fjármagnsfrekum iðnaði Edgar Guðmundsson, verkfræðingur. Zinkvinnsla á íslandi Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Tainakönnunar. Léttur kvöldverður. Umræðuhópar starfa. Pallborðsumræður: Ellert B. Schram, ritstjóri, stjórnar umræðum. Þátttakendur auk frummælenda: Jaap Sukkel, framkvæmdastjóri ICENET-sæstrengs- verkefnisins. Jón Sigurðsson, forstjóri íslenska járnblendifélagsins. Jónas Elíasson, prófessor. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. 21.30 Samantekt og niðurstöður. Ráðstefna þessi er öllum opin, en æskilegt er að þátttaka sé tilkynnt skrif- stofu Sjálfstæðisflokksins (s. 682900) f. kl. 12.00 mánudaginn 6. febrúar. Ráðstefnustjóri: Aðalsteinn Guðjohnsen, formaður orkunefndar 17.10 19.00 20.00 Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu -kjarni málsins! Frábærir HANKOOK vetrarhjóibarðar á einstöku veröi ! 145R12 -4:990' 2.990 stgr 185/60R14 7:490- 4.490 stgr 155R12 ~5^30~ 3.130 stgr 195/60R14 -8:200- 4.880 stgr 135R13 4.780 2.860 stgr 175/70R14 -6:660 3.990 stgr 145R13 •"cy. i \j xj 2.980 stgr 185/70R14 -6t940- 4.160 stgr 155R13 -5.“360 3.215 stgr 195/70R14 -7r830 4.690 stgr 165R13 •SrSTG- 3.340 stgr 205/75R14 9:080' 5.460 stgr 175/70R13 S.850' 3.480 stgr 165R15 -e^otr 3.780 stgr 185/70R13 -«^39- 3.850 stgr 185/65R15 -7r980 4.470 stgr 175R14 8-.48Ú- 3.850 stgr 195/65R15 8v840 5.300 stgr 185R14 ■r^m 4.280 stgr 205/60R15 9Æ20- 5.770 stgr Jeppadekk 25% afsl. 235 / 75 R 15 kr.4O20fr kr.7.650 stgr 30-9.50 R 15 kr.10.550 kr.7.912 stgr 31-10,50 R 15 kr.ThOSO kr.8.960stgr 33-12.50 R 15 kr l4.440 kr.10.830 stgr Vörubíladekk 25% afsl. 12 R 22,5 / 16PR kr.33.700 kr.25.275 stgr 315 / 80 R22,5 kr.38.980 kr.29.235 stgr iAkSMi HF. SKUTUVOGI2 SÍMI 68 30 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.