Morgunblaðið - 14.02.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 11
FRÉTTIR
Hart deilt á Alþingi um hvort leggja eigi siglingar Djúpbátsins Fagraness niður
Varanlegnr Djúpvegur
og Fagranesið skólaskip?
Þingmenn eru sammála um nauðsyn varan-
legs vegar um Djúp, en greinir á um tillögu
um að Djúpbáturinn Fagranes verði skóla-
skip. Telja sumir að öryggishlutverk skipsins
sé of mikið til að hægt sé að leggja sigling-
ar þess niður. Aðrir benda á, að skipið gæti
í öryggisskyni verið staðsett á ísafírði hörð-
ustu vetrarmánuðina.
UTANDAGSKRÁRUMRÆÐUR
voru á Alþingi í gær um þá tillögu
Vegagerðar ríkisins og samgöngu-
ráðuneytisins að Djúpbáturinn
Fagranes verði skip Slysavarna-
skóla sjómanna, en ráðist verði í
varanlega vegagerð um Djúp, sem
búist er við að kosti 1.250 milljónir
alls.
Málsheíjandi, Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir, þingmaður Kvenna-
lista á Vestijörðum, sagði að vega-
kerfið á Vestfjörðum væri víða
ófullkomið og snjóflóðahætta á veg-
um. Frá miðjum janúar hefði t.d.
verið erfitt að halda Djúpvegi opn-
um og samgöngur á sjó því nauð-
synlegar. Ákveðið hefði verið, þegar
notað ekjuskip var keypt til siglinga
um Djúp, að byggja bryggjur og
heimild hefði verið til þess á fjárlög-
um frá 1992. Útboð hefði verið til-
búið í september, en verkið ekki enn
verið boðið út.
Hún beindi þeirri spurningu til
samgönguráðherra, hvers vegna
það hefði ekki verið gert og minnti
á samþykkt samgöngunefndar
þingsins þar að lútandi. Þá spurði
hún einnig hvemig ætti að halda
uppi samgöngum um Djúp að vetr-
arlagi ef engin væri feijan og hvort
ráðherra teldi öryggissjónarmið í
heiðri höfð, væru samgöngur á sjó
lagðar niður.
Vegaframkvæmdum hraðað
Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra, sagði að samkvæmt tillög-
unni væri gert ráð fyrir að vega-
framkvæmdum um Djúp yrði hrað-
að og til þess ætlaðar alls 438 millj-
ónir á næstu Qórum árum, í stað
56 milljóna, sem gert væri ráð fyrir
í vegafé Vestfirðinga. Hann benti
á, að ekki væri hægt að byggja
fullkomna aðstöðu fyrir feiju, um
leið og ráðist yrði í jafn stórt verk-
efni og varanlegan Djúpveg.
Bryggja á Arngerðareyri myndi
kosta 53 milljónir og á Isafirði 24
milljónir. Halldór sagði, að gert
væri ráð fyrir að Slysavarnaskóli
sjómanna fengi Fagranesið sem
skólaskip, en jafnframt væri reikn-
að með að skipið yrði staðsett á
ísafirði frá hátíðum og fram í mars.
Einar Kr. Guðfinnsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks á Vestfjörðum,
sagði mikilvægt að hraða vega-
framkvæmdum um Djúp. Hins veg-
ar mætti ekki draga úr öryggis-
þættinum, en þingmaðurinn benti á
að Slysavarnaskóli sjómanna sæi
ekkert því til fyrirstöðu að skipið
nýttist sem öryggistæki.
Bæði byggjugerð og
varanlegur vegur
Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra, sté í pontu í fjarveru
Sighvatar Björgvinssonar, þing-
manns Alþýðuflokks á Vestfjörðum,
og minnti á samþykktir alþýðu-
flokksfélaga á norðanverðum Vest-
fjörðum, þar sem lýst er andstöðu
við þau áform að hætta við bryggju-
gerð.
í samþykktunum er bent á að
vegir liggi um snjóflóðasvæði,
Fagranes væri mikilvægt öryggis-
tæki og hefði gegnt lykilhlutverki
við uppbyggingu ferðaþjónustu á
svæðinu. Því ætti að standa við
áform um bryggjugerð, en um leið
leggja varanlegan veg um Djúp.
Steingrímur J. Sigfússon, Al-
þýðubándalagi, benti á að þegar
Fagranesið var endurnýjað hefði
fengist notað ekjuskip frá Noregi
og í framhaldi af því rætt um
bryggjugerð. Skipið hefði hins veg-
ar ekki verið keypt vegna þessara
eiginleika og það væri illt ef það
þyrfti að dragast inn í eðlilega bar-
áttu Vestfirðinga fyrir vegabótum.
Fagranesið, eða sambærilegt skip,
þyrfti að vera á svæðinu áfram.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Alþýðubandalags á Vest-
fjörðum, sagði ótímabært að ijúka
í fjölmiðla út af málinu, þegar þing-
menn Iqördæmisins hefðu ekki rætt
það í sinn hóp. Menn hefðu gengið
of langt í að rægja vegakerfið á
Vestfjörðum og góður vegur um
Djúp kostaði t.d. mun minna en
Vestmannaeyjafeijan Heijólfur.
Jóhann Ársælsson, flokksbróðir
Kristins, sagði að þótt rætt væri
um að Djúpvegur yrði stórverkefni
á vegaáætlun ætti ekki að setja þá
umræðu í samband við feijumál.
Langt væri í að Djúpvegur kæmist
í endanlega mynd og á meðan þyrfti
feijuna.
Anna Ólafsdóttir Bjömsson,
Kvennalista, sagði að fyrst og
fremst yrði að taka tillit til öryggis-
sjónarmiða og tók undir með Jó-
hanni að langt væri í fullbúinn
Djúpveg. Stefán Guðmundsson,
Framsóknarflokki, sagði mikilvæg-
ast að þingmenn Vestfirðinga kæm-
ust að sameiginlegri niðurstöðu, en
spurði samgönguráðherra um leið
hvort reikna mætti með að vinna
við Gilsfjarðarbrú yrði boðin út á
árinu. Halldór Blöndal sagði, að
brúin yrði boðin út á árinu ef hann
fengi að ráða.
Staðsett á ísafirði í
öryggisskyni
Matthías Bjarnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokks á Vestfjörðum,
sagði að sjálfur hefði hann aldrei
hlustað á hugmyndir um að leggja
Fagranesinu nema vegna þess
möguleika, að skipið yrði staðsett
á ísafirði í öryggisskyni yfir hörð-
ustu vetrarmánuði. Þá væri sér
sama hvort það héti skólaskip eða
eitthvað annað.
Jóna Valgerður ítrekaði að ekki
væri hægt að leggja feijunni vegna
vegar, sem endanlega væri kominn
í gagnið eftir 10-12 ár.
Halldór Blöndal átti síðasta orðið
í umræðunni. Hann sagði að sparn-
aður næðist fram með því að nýta
Fagranesið sem skólaskip, en hafa
það jafnframt á ísafirði þegar
þyrfti. Þá fjármuni, sem þannig
spöruðust, ætti að nýta til átaks í
samgöngumálum Vestfirðinga.
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-Landsýn seldi 155 sæti á 7.900 krónur
Ferðimar seldust upp
á 10-15 mínútum
FERÐIR sem Samvinnuferðir-
Landsýn auglýstu á 7.900 krón-
ur seldust upp á 10-15 mínútum
eftir að ferðaskrifstofan var
opnuð klukkan níu í gærmorg-
un, en margir höfðu þá beðið í
biðröð frá deginum áður fyrir
framan skrifstofurnar.
Samtals voru seld 155 sæti til
sex ákvörðunarstaða, Benid-
orm, Þrándheims, Kaupmanna-
hafnar, Berlínar, Dyflinnar og
Óslóar. Fimmtán sæti voru til
Benidorm, 50 til Óslóar, 25 til
Kaupmannahafnar, 25 til
Dyflinnar, 25 til Þrándheims og
15 til Berlínar.
Til viðbótar verða einnig seld
85 sæti til framangreindra
ákvörðunarstaða nema Benid-
orm og verður dregið um nöfn
þeirra sem geta keypt sætin.
Ferðirnar voru auglýstar undir
kjörorðinu „Fyrstir koma, fyrst-
ir fá“ og um miðjan dag á
sunnudag fóru að myndast bið-
raðir fyrir framan útsölustaði
ferðaskrifstofunnar, sem eru
fjórir, tveir í Reykjavík, einn á
Akureyri og einn í Keflavík.
Að auki gátu þeir sem búa á
landsbyggðinni hringt í sérstakt
símanúmer þegar sala ferðanna
hófst klukkan níu í gærmorgun.
Kristján Gunnarsson, fjár-
málastjóri Samvinnuferða,
sagði að mjög vel hefði tekist
til um þessa sölu. Aðspurður
sagðist hann ekki hafa ná-
kvæma skiptingu á sölu eftir
einstökum útsölustöðvum, en
um 100 sæti hefðu selst í
Reykjavík og 30 á Akureyri.
Hann sagði að skrifstofan í
Austurstræti væri stærst, þar
væru sex söluborð, tvö á skrif-
stofunni á hótel Sögu, tvö í
Keflavík og þijú söluborð á
skrifstofunni á Akureyri.
Morgunblaðið/Sverrir
FOLK kom vel útbúið í biðröðina fyrir utan skrifstofu Samvinnu-
ferða-Landsýnar í Austurstræti og bjó sig undir langa og kalda
nótt og örtröð var í afgreiðslunni fyrst eftir opnun.
Hnífsstunga í
Hafnarstræti
Langur
ferill árás-
armanns
SAUTJÁN ára piltur viður-
kenndi við yfirheyrslur hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins á
laugardag að hafa stungið 16
ára pilt með hnífi aðfaranótt
laugardagsins.
Piltamir voru inni á skyndi-
bitastað í Hafnarstræti þegar
kom til orðahnippinga milli
leirra. Eldri pilturinn tók upp
hníf og rak hann í yngri piltinn.
Sá var fluttur á slysadeild þar
sem gert var að áverkum hans,
sem ekki reyndust alvarlegir.
Eldri pilturinn var handtek-
inn á laugardagsmorgun og við-
urkenndi hann verknaðinn.
RLR fór fram á gæsluvarð-
haldsúrskurð yfir piltinum en
dómari sá ekki ástæðu til þess
þar sem pilturinn átti óafplán-
aðan dóm sem hann gat hafið
afplánun á sama dag.
Morgunsjónvarp
barnanna
Kvikmynd
um morð-
ingja auglýst
ÞAU mistök urðu við samsetn-
ingu á auglýsingatíma sem birt-
ist í morgunsjónvarpi barnanna
í Ríkissjónvarpinu sl. sunnudag,
að röng auglýsingamynd var
sýnd. Hringdu allmargir for-
eldrar í sjónvarpið í kjölfar aug-
lýsingatímans og kvörtuðu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Halldóri V. Kristjánssyni aug-
lýsingastjóra átti að birtast
auglýsing um kvikmyndina
Konung ljónanna, sem er
barnamynd og heitir Lion King
á frummálinu. í staðinn birtist
auglýsing um myndina Leon,
sem flallar um leigumorðingja
í New York og bönnuð er böm-
um yngri en 16 ára.
Halldór sagði að þama hefðu
mistök átt sér stað sem auglýs-
inadeildin bæðist velvirðingar á
og vonandi hentu ekki aftur.
Skólastj órnendur
Reynir á vilja
sljórnvalda
SKÓLAMEISTARAFÉLAG ís-
lands og Skólastjórafélag
Reykjavíkur hafa ályktað um
samningamál kennara og verk-
fallsboðun og hvetja samnings-
aðila til að leita sátta svo af-
stýra megi verkfalli.
Fundur í Skólameistarafélagi
íslands minnir á yfirlýsingar
stjómmálamanna um mikilvægi
þess að efla menntun þjóðarinn-
ar. „Sýna verður þann vilja í
verki. Kennarar gegna lykil-
hlutverki í menntakerfi þjóðar-
innar. Þess vegna verður að
ríkja sátt milli þeirra og ríkis-
valdsins en ekki fjandskapur,'
segir í áskorun félagsins.
! ályktun Skólastjórafélags
Reykjavíkur segir m.a.: „Löngu
er orðið tímabært að gera
samninga við kennara sem taka
mið af breyttu og auknu hlut-
verki skólans í þjóðfélaginu og
em slíkir samningar nauðsyn-
legur þáttur í því að færa skóla-
starfið í nútímalegra horf.
í yfirstandandi samningavið-
ræðum reynir á vilja stjórnvalda
til að auka fjármagn til skóla-
mála svo framfylgja megi yfir-
lýstri stefnumótun.