Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ TELEFUNKEN ÞÝSK HÁGÆÐASJÓNVARPSTÆKI MEÐ SURROUND STEREO Telefunken F-531 C STEREO NIC er 28" sjónvarpstæki: Black Matrix-flatur glampalaus skjár • Surround-umhverfishljóm- ur • PSI (Picture Signal Improve- ment) • ICE (Intelligent Contrast Eledronic) • Pal, Secam og NTSC- video • 59 stöðva minni • Sjálfvirk stöðvaleit og -innsetning • Mögu-leiki á 16:9 móttöku • Islenskt textavarp • Tímarofi • 40W magnari • A2-Stereo Nkxxn • 4 hátalarar • Tengi fyrir heymartól og sjónvarpsmyndavél • Aðskilinn styrkstillir fyrir heymartól • 2 Scart-tengi o.m.fl. Verð 98.900,- kr. eða 89.900,- stgr. * Meðdtal ásamt vöxtum, lántökukostnoSi og færslugjakli, miðað við raðgreiðslur Eurocard ÍE)im LíoMiTríl TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA JTBjjjT RAÐCRtlÐSLUR TIL ALLTAO 24 MÁNAÐA munIlán TIL ALLT AÐ 30 MÁNAÐA SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 | BHBBMEMjMBHHMSI Patrice Noli í Reykjavík dagana 16.-27. febrúar 1995 Hinn vinsæli vökumiöill og leiöbeinandi Patrice Noli er væntanleg. Þetta er í sjötta skipti sem Patrice heimsækir ísland. Fjöldi fólks þekkir til frábærra starfa hennar. Námskeið - einkatímar Sköpun allsnægta á öllum sviðum laugardaginn 18. febrúar frá kl. 9-16. Kenndar verða ieiðir til að staðfesta allnægtir á öllum sviðum iífsins með orkuvinnu á innri sviðum, sem síðan birtast á hinum ytri sviðum samkvæmt lögmáii aðdrátt- araflsins. Þetta námskeið hefur verið eitt vinsælasta námskeið Patrice. Verð kr. 3.900. Að verða eigiö sálarljós... sunnudaginn 19. febrúar frá kl. 10-17.30. Að verða eigið sálarljós... er allt sem lífið snýst um. Kenndar aðferðir til að við skínum okkar innsta Ijósi við allar kringumstæður í lífinu. Nauðsyn fyrir alla á breyting- artímum. Verð kr. 3.900. Konur, kynlíf og völd... Þriðjudagskvöldið 21. febrúar kl. 20-23. Fjallar um hverjar konur eru og hvað þær ætla að gera hér á jörðinni. Einungis konur. Verð kr. 1.800. Einkatímar alla virka daga í hverri íslandsheimsókn hefur aöalstarf Patice verið aö veita miðlaðar leiðbeiningar til fólks í gegnum fræðsluafl sitt, Ceydu. Ceyda er Ijósvera sem miðlar kærleiksríkum leiðbeiningum um betra mannlíf og hefur veitt fjölda fólks mikilvæga leiðsögn. Pantanir í einkatíma og á námskeið í versluninni Betra líf í síma 581-1380. Námskeiöin eru haidin í sal SVFR á 2. hæö í Austurveri v/Háaleitisbraut, nema Aö verða eigiö sálarljós, sem haldiö er á Sólbraut 3. -kjarnimálsins! I DAG SKAK Umsjón Margeir Pétursson GATA Kamsky (2.710) hefur mikla yfírburði gegn Valery Salov (2.715) í und- anúrslitum FIDE-heims- meistarakeppninnar sem nú standa yfir í Sanghi Nagar á Indlandi. Staðan er nú 4-1 Kamsky í vil og hann þarf 5'/2 vinn- ing til að tryggja sér sigur. Þessi staða kom upp í fimmtu skákinni á sunnudaginn. Kam- sky hafði hvítt og átti leik: Sjá stöðumynd 24. Bxg6! - fxg6 25. Dxg6+ - Dg7 26 Dh5 - He5 27. Dh4 - De7 (Svartur á ekk- ert betra en að reyna að komast út í endatafli, því hvítur hótaði 28. He3 og síðan Hg3) 28. Dg4+ - Dg7 29. Re6 - Dxg4 30. hxg4 - Hxe6 (Hvítur hótaði hvort eð var 31. f4) 31. dxe6 - He8 32. Hd7 og hvítur er með gjörunnið tafl. Hann hefur hrók og þijú peð gegn tveimur léttum mönnum og þar að auki mörg samstæð fripeð og afar virka hróka. Það kom því á óvart að Salov tókst að þvælast fyrir í 20 leiki til viðbótar, gafst ekki ' C d e I g h upp fyrr en í 53. leik. Hann hefur teflt alveg litlaust í þessu einvígi og er ekki lík- legur til að vinna skák. Með morgunkaffinu Ást er ... ... að fara yfir náms- efnið með henni fyrír próf. TM Reg. U.S. Pat Off. — aJI rights ramrved (c) 1995 Loa Angeles Timee Syndicate ÉG ætla að biðja þig að hugsa um nágranna þína þegar þú grillar næst í roki. betur ef þú vinnur í Lottói. ekki hafi verið nákvæm- lega tekið fram í auglýs- ingunni HVAÐ ætti að þrífa, en komdu þér nú að verki. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Getur einhver fyllt í eyðurnar? GUÐMUNDÍNA Vil- hjálmsdóttir, Hlíf, ísafirði, hafði samband við blaðið vegna gamals slagara sem hún sagðist hafa lært í æsku, en væri nú búin að gleyma að hluta, en langaði til að vita hvort einhveijir lesendur blaðsins gætu hjálpað henni að rifja upp það sem á vantar. Guðmundína telur að í einu erindinu komi fyr- ir Hafnarfiörður eða Þingeyri. Ef einhver getur að- stoðað Guðmundínu við þetta mál er hann vin- samlega beðinn að hafa samband við hana í síma 94-3984. Hún man nokkurn veginn þessi tvö erindi: Sú getur ritað oss ráðin fln, með reynsluna og gráleitu hárin sín. Hún hefur aldrei þá sælu séð, að sitja í faðmlögum dáta með. Olafía er að fara á svið og vinglast við piltana að dönskum sið. Og dregur á eftir sér dilka smá, þegar dálítill tími er liðinn frá. Viðlag: Gæti ég krækt í danskan dáta, sem dálítið borðalagður er, þá mundu þær Rúna og Ranka gráta og rauðeygðar stara á eftir mér. Saknar Jóns Múla AUÐUNN Bragi Sveins- son hringdi og sagðist sakna útvarpsþátta Jóns Múla Amasonar afskap- lega mikið en eitthvað ósætti olli því að hann hætti. Auðunn Bragi sagði að sumir menn „eigi“ vissa útvarpsþætti og hann vill að Jón Múli fái þáttinn sinn aftur út- varpshlustendum til ánægju og yndisauka. Er fólk alveg samviskulaust? ÞÓRUNN hringdi og sagði frá því að ekið hefði verið utan í Lödu- bifreið hennar, með númerinu 53041, að- faranótt 23. janúar sl., þar sem hún stóð fyrir utan Rekagranda 6. Við- komandi sá ekki ástæðu til að tilkynna henni um tjónið og nú situr hún eftir með tjón uppá tugi ef ekki hundruð þús- unda. Þetta hefði trygg- ingafélag viðkomandi greitt ef hann hefði séð sóma sinn í að tilkynna óhappið. Þórunn furðaði sig á því að fólk væri svo sam- viskulaust nú á dögum að það gæti látið öðrum eftir tjón sem þeir eru valdir að og höfðar nú til hins besta í viðkom- andi og biður hann að hafa samband við sig í síma 616888. Tapað/fundið Úrtapaðist GULLÚR tapaðist á Jazzbarnum eða Tungl- inu 27. janúar sl. á milli kl. 23 og 24. Úrsins er sárt saknað og hefur það mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigandann sem vonar að finnandi sýni sóma sinn í því að skila því aftur. Fundarlaun. Upplýsingar í síma 38628. Guðbjörg. Gæludýr Kettlingur TÍU vikna svört og hvít læða fæst gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 654403. Víkveiji IITjúkrunarforstjórar heilsugæzlustöðva hafa ákveðið að halda árlegan fund sinn í Danmörku í stað þess að finna honum stað á Islandi. I þessu skyni munu þeir fá styrk til fararinnar hjá viðkomandi heilsugæzlustöðv- um. Það er erfitt að skilja að brýna nauðsyn beri til að halda slíkan fund í öðru landi. Ef hjúkrunarfor- stjóramir greiddu þennan kostnað sjálfir kæmi það engum við. En þar sem hann er að hluta til greidd- ur úr opinberum sjóðum kemur það öðrum við. A sama tíma og víðtæk- ar ráðstafanir eru gerðar til þess að draga úr kostnaði við heil- brigðiskerfið eru fundarhöld utan lands af þessu tagi ekki traustvekj- andi, raunar fráleit. Það er erfítt fyrir almenning að taka mark á tali ráðamanna um spamað í opin- bera kerfinu, þegar þeir virðast lítið, sem ekkert hafa við að at- huga ráðstöfun sem þessa á al- mannafé. Sú röksemd hjúkrunarforstjór- anna, að það kosti litlu meira að halda fundinn í Danmörku en á skrifar... íslandi dugar skammt. Það er tími til kominn að yfirgengilegur kostn- aður skattgreiðenda við utanferðir starfsmanna hins opinbera verði skorinn rækilega niður. xxx SL. FÖSTUDAG skiluðu flestir landsmenn skattskýrslum sín- um til viðkomandi skattyfírvalda. Það er í raun og vem til fyrirmynd- ar hve mikla áherzlu skattayfirvöld hafa lagt á það undanfarin ár að einfalda skattskýrslur og auðvelda hinum almenna borgara þetta verk. Skattalöggjöfin hefur verið einfölduð og skattskýrslumar í samræmi við það. Skattayfirvöld hafa löngum ver- ið hálfgerð Grýla í augum fólks. Þetta þarf að breytast og er að breytast. Þegar skattskýrslurnar eru orðnar jafn einfaldar og raun ber vitni þarf hinn almenni skatt- borgari ekki að vera í miklum vandræðum með að ganga frá þessum skýrslum sjálfur. Sjálfsagt má á ýmsan hátt bæta ráðgjöf og upplýsingamiðlun en ekki fer á / milli mála, að á aðeins einum ára- tug hefur orðið róttæk breyting til hins betra í þessum efnum. xxx AÐ ER hins vegar Ijóst að til þess að eiga friðsamleg sam- skipti við skattayfirvöld þurfa margir skattgreiðendur að leggja meiri áherzlu en hér hefur tíðkazt á margs konar skýrslugjöf. Þeir, sem njóta bifreiðastyrkja geta t.d. ekki búizt við því að þeir verði viðurkenndir, sem frádráttarbærir nema þeir haldi akstursdagbækur samvizkusamlega. Þeir, sem eru mikið á ferðalög- um og fá greidda dagpeninga til þess að greiða ferðakostnað þurfa að halda saman upplýsingum um þau ferðalög o.s.frv. Þessi aukna krafa um slíka samantekt upplýs- inga er mjög í samræmi við það, sem lengi hefur tíðkazt í öðrum löndum og er í sjálfu sér ekkert við því að segja. Fólk þarf að að- laga sig þessum breytingum og um leið og það hefur verið gert verður slík skýrslugerð eðlilegur þáttur í daglegu starfi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.