Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 21 ___________URVERINU__________ Enn hefur ekki tekizt að mæla loðnustofninn „Erum búnir að hanga yfir þessu í einn og hálfan mánuð“ „ÞAÐ er svona að lifna yfir þessu. Við fundum töluvert af loðnu um helgina 40 mílur út af Hvalbak og torfublettur var suðvestur af Litla dýpi og einnig fyrir norðan það. Eftir það hefur loðnan svo fundizt víða uppi á grunninu og skipin eru öll að vinna þarna austur frá, grunnt út af Hvítingum," sagði Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangurs- stjóri á rannsóknaskipinu Arna Friðrikssyni, í samtali við Morgun- blaðið síðdegis í gær. Þeir voru þá staddir austur af Hrollaugseyjum við loðnuleit.. Rúmlega 21.000 tonn af loðnu hefur nú borizt á land frá áramótum. „Við getum ekki mælt stærð stofnsins eins og er. Bjarni Sæ- mundsson er enn í loðnu út af miðj- um Austfjörðum og sunnar. Þurfum að bíða í nokkra daga til að ná utan um þetta. Við verðum bara að bíða og sjá til og þú færð mig ekkert til að segja hvort kvótinn verði aukinn eða ekki. Höfum aldrei séð þessar aðstæður Hrognafylling var um helgina 11,8 til 13%, en hver hún er orðin í dag veit ég ekki. þetta er annars ágætis loðna. Töluvert af henni er fjögurra ára og stór og falleg. Þetta er allt farið að verða eðlilegra núna, en við höfum aldrei séð þessar að- stæður og heðgun eins og verið hefur í vetur. Við erum nú að leita með söndunum og erum komnir vestur undir Hrollaugseyjar. Engin loðna virðist komin vestur fyrir Stokksnesið enn,“ sagði Sveinn. Veiðin hefur yfirleitt staðið út marz og stundum fram í apríl. Það er sérstaklega ef ganga kemur að vestan að vertíðin gæti staðið leng- ur. „Við höfum hangið yfir þessari göngu í einn og hálfan mánuð og verðum hér enn í einhvern tíma. Því er ekkert farið að hugsa um loðnuna fyrir vestan, til dæmis á Kópanesgrunni, sem fregnir hafa borizt af. Allar rannsóknaráætlanir hjá Hafrannsóknastofnun eru komn'ar úr skorðum vegna þess hve langan tíma leiðangrarnir hafa tek- ið, svo framvindan er óljós,“ segir Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangurs- stjóri á Árna Firðrikssyni. 22 skip með afla 22 skip lönduðu afla frá fimmtu- degi til laugardags og voru reyndar flest með slatta. Alls bárust um 10.400 tonn á land þessa dagana, en frá áramótum er aflinn orðinn um 21.000 tonn. 210.000 tonn bár- ust á land á sumar- og haustvertíð- inni í fyrra og alls er aflinn á vertíð- inni því orðinn 232.000 tonn. Bráðabirgðakvótinn var 636.500 tonn og eru eftirstöðvar nú því um 405.000 tonn. Húsavík Fiskmark- aður tek- inn til starfa JON Olgeirsson framkvæmdastjóri Korra hf. hefur að ósk smábátaeig- enda á Húsavík sett á laggimar fiskmarkað á staðnum. Markaður- inn er kenndur við Húsavík en mun starfa í tengslum við Fiskmarkað Suðurnesja. Jón segir að markaður- inn sé öllum opinn en gerir ráð fyr- ir að krókaleyfisbátar á Húsavík muni einkum nýta sér hann í fýrstu. Hann leggur þó áherslu á að um tilraunastarfsemi sé að ræða og að staðan verði endurmetin eftir þrjá til sex mánuði. Jón lætur kylfu ráða kasti enda hefur hann ekki stýrt fiskmarkaði á öðrum tíma. Hann er þó enginn nýliði í sjávarútvegi en Korri hf. hefur útgerð og saltfiskvinnslu á sínum snærum. Jón vonar að mark- aðurinn muni í fyllingu tímans færa út kvíarnar og rennir meðal annars smábátaflotann á Kópaskeri hýru auga í því sambandi. Viya hærra verð Smábátaeigendur á Húsavík hafa lengi lagt upp hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur hf. „Þeir töldu sig ekki fá nógu hátt verð þar og hafa því verið óánægðir um tíma. Upplýs- ingar um verð á mörkuðum hafa náttúrulega kitlað þá og þeir binda óneitanlega vonir við að fá hærra verð á nýja markaðnum. Menn gera sér þó kannski of háar vonir um verð en hæsta verð sem fæst á mörkuðum er alltaf fyrir stóran fisk. Meðalverð á þorski hefur hins vegar verið gott í langan tíma,“ segir Jón. Fiskmarkaði Húsavíkur er ekkert að vanbúnaði og bíður Jón spenntur eftir að fyrsti fiskurinn berist á land. Bönn og bræla hafa hins veg- ar reynst krókaleyfisbátum óþægur ljár í þúfu það sem af er árinu og biðin hefur því dregist á langinn. Jón er þó vongóður um að senn muni úr rætast. ♦ ♦ ♦ Norðmenn fá styrki NORSK stjórnvöld hafa ákveðið að leggja fiskiðnaðinum til rúmlega 900 milljónir ísl. kr. í sérstaka styrki og verða þeir notaðir til að auka framleiðni í greininni. Fara styrk- irnir til sex afmarkaðra verkefna en þau eru aukið samstarf milli fyrirtækja; stjórnunarmál; fram- leiðsluþróun; markaðsmál; gæða- mál og rannsóknir. Auk þess hefur Stórþingið samþykkt að leggja fram 300 millj. þar fyrir utan til aukins samstarfs milli fyrirtækja á næsta ári og 1997. þegar þú ábyrgðartryggir bílinn hjá TM Q greiðslur á ábyrgðartryggingum skiptast niður á tvo gjalddaga á ári, 1. mars og 1. september. sjálfsábyrgð í ábyrgðartryggingum er engin, óháð því hver ekur eða hversu mikið er ekið. Sjálfsábyrgð foreldra er heldur engin ef ökumaður er barn þeirra. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF. þegar mest á reynir! Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466. YDDA/SlA F16.10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.