Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MYRKIR músíkdagar hófust með tónleikum CAPUT-hópsins í Lista- safni Islands á sunnudag og halda áfram að Kjarvalsstöðum í kvöld, þriðjudagskvöldið 14. febrúar, með tvennum einleikstónleikum. Rut Ingólfsdóttir, fíðluleikari, leikur þar sjaldheyrð íslensk verk fyrir einleiksfíðlu eftir Jón Leifs, sem tónskáldið samdi á Þ^ska- landsárum sínum, Praeludium og Fughettu op. 3; og Sónötu eftir Hallgrím Helgason, sem tónskáld- ið samdi á sjöunda áratugnum og tileiknaði kanadíska fíðluleikaran- um Howard Leyton-Brown. Hann flutti verkið margoft, en það hefur lítið sem ekkert heyrst hér á landi, þá verður frumflutt Dimension eftir Magnús Blöndal Jóhannsson, sem samið var árið 1961, en verk- ið þótti mikil framúrstefna á sínum tíma. Fiðluleikarar sem áður hafa komið að verkinu hafa ekki treyst sér til að standa undir þeim tækni- legu kröfum, sem gerðar eru til flytjandans, og því höfum við þurft að bíða á flórða áratug eftir frum- flutningi þess. Loks frumflytur Rut nýtt verk eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hann úefnir Lag með tilbrigðum. Það er spunnið Barna- leikritið Bangsímon frumsýnt á Selfossi Selfossi. LEIKFÉLAG Selfoss frum- sýnir á föstudagskvöld klukk- an 20 bamaleikritið Bangs- ímon í leikhúsi félagsins við Sigtún. Leikritið er eftir Peter Snickars og er gert eftir sögu A.A. Milne. Leikstjóri er Katrín Karlsdóttir. Sex leikarar koma fram í verkinu, en um 15 manns koma að uppsetningu verks- ins. Það var Sigríður Karls- dóttir sem þýddi verkið og Hanna Lára Gunnarsdóttir söngtexta þess. Miðaverði á sýninguna er stillt í hóf, krónur 700 fyrir böm og fullorðna. Innifalið í verðinu er barmmerki fyrir bömin. Leikskrá með föndur- blöðum verður seld á 50 krón- ur. Katrín Karlsdóttir leik- stjóri sagðist binda vonir við uppfærslu þessa bamaléik- rits og að það laðaði böm og foreldra þeirra í leikhúsið við Sigtún. „Þetta er falleg sýning sem höfðar ekki síst til yngri barna, þó svo öll börn hafí gaman af,“ sagði Katrín. Viðbót við gagnrýni um óperuna La Traviata í UMSÖGN um óperuna La Traviata, eftir Verdi, féllu niður fyrir slysni nöfn tveggja söngkvenna, er fóru með ein- söngshluverk, auk þátttöku í hópsöngsatriðum og með kórnum, nefnilega Signýar Sæmundsdóttur, sem fór með hlutverk Flóru Bervoix, og Hrannar Hafliðadóttur, sem fór með hlutverk Anninu, lagskonu Violettu. Þær áttu sinn þátt í góðri óperusýningu með ágætum söng og leik sínum og em beðnar afsökun- ar á þessari slysni. LISTIR Myrkir músíkdagar hafnir Tvennir tónleikar á Kjar- valsstöðum í kvöld upp úr kafla úr kammerverki, sem samið var í tilefni af vígslu Borgar- leikhússins. Tónskáldið segir: „Ég endursamdi lagið fyrir fiðluna eina, með ímynduðum undirleik sem aldrei heyrist, en er aðeins gefínn í skyn. Og svo spann ég áfram og nefndi spunann tilbrigði. Hér er ekki um hefðbundin til- brigði að ræða. stundum em þetta mörg fíðlulög, sem leikin em sam- tímis á eina fíðlu. Lagið og til- brigðin em tileinkuð Rut.“ Rut Ingólfsdóttir var fastráðin í Sinfóníuhljómsveit íslands og um tíma einn af konsertmeistumm hennar. Hún hefur verið kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1975, leiðari í Reykjavíkur- kvartettinum og komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit íslands og Kammersveit Reykja- víkur. Rut hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir störf sín að tónlistarmálum, t.d. DV verðlaun- in 1989, viðurkenningu STEFs fyrir kynningu og flutning á verk- um Jóns Leifs 1991 og hún var sæmd hinni íslensku fálkaorðu 1990. Á seinni tónleikum kvöldsins kemur fram Þorsteinn Gauti Sig- urðsson, píanóleikari. Á efnis- skránni verða þrjú íslensk einleiks- verk, hið elsta þeirra, þijár prelúd- íur eftir John Speight, var fmm- flutt á Myrkum músíkdögum árið 1983. Þorsteinn Gauti flytur einn- ig Farvegi eftir Láms H. Gríms- son, en það var samið sérstaklega fyrir Þorstein Gauta í tilefni tón- vakakeppni Ríkisútvarpsins 1993, þar sem hann bar sigur úr býtum. Þá verður framflutt Svítla eftir Ríkharð Öm Pálsson, en tónskáld- ið lýsir í efnisskrá undmn sinni á því að lenda á vettvangi framsæk- innar tónlistar eins og Myrkum músíkdögum, því væna megi verk- ið um allt annað en tónsmíðalega framsækni. „Þróun síðustu 130 ára er hunzuð með öllu. Látið er sem Tristan-hljómurinn hafí aldrei hljómað, ómstreitan sé enn í ánauð, og raðtækni, beiting tilvilj- ana, minimalismi og algórytmar skipti litlu máli. Möguleikar hljóð- færisins em ekki einu sinni gjör- nýttir. Er engu líkara en að metn- aður höfundar takmarki sig við að skemmta sjálfum sér, píanist- anum og og hlustendum." Þorsteinn Gauti Sigurðsson stundaði nám í New York og Róm. Hann hefur komið fram á tónleikum á Norðurlöndunum, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi, ítalíu og Rússlandi og leikið einleik með Útvarpshljómsveitinni í Helsinki, Krinkast hljómsveitinni í Ósló og Sinfóníuhljómsveit íslands. Jafn- framt hefur hann komið fram á Gala konsert í Hvíta húsinu í Washington og leikið einleik í norræna spumingaþættinum Kontrapunkti. Þorsteinn Gauti hefur m.a. sigrað í keppni einleik- ara og einsöngvara til að koma fram fyrir íslands hönd á hinum samnorræna Bienal, hátíð ungra einleikara, og hann hefur einnig komið fram sem einleikari fyrir íslands hönd á útvarpstónleikum á vegum norrænna útvarpsstöðva í Helsinki. Fyrri tónleikamir að Kjarvals- stöðum í kvöld heíjast kl. 20 og þeir seinni kl. 21.30 og standa yfír í u.þ.b. 45 mínútur. í hléinu á milli geta tónleikagestir fengið sér hressingu í kaffíteríu hússins. Sigurbjörn sýnir áfram í Regnbog- anum Áfrísk tónlist KLINGJANDI vinátta er heiti dagskrár sem afrískir listamenn flytja um þrjú þúsundum íslensk- um grunnskólanemum á næstu tveimur vikur. í kynningu segir: „Listamennimir ferðast um Is- land, koma fram á tónleikum í grunnskólum á Vestfjörðum, Akureyri og í Reykjavík og kynna afríska tónlist, hljómfall hennar, hljóðfæri og áhrif henn- ar og tengsl við tónlist Vestur- landa. Meðal skóla sem heimsótt- ir verða eru Oddeyrarskóli, Hafralækjarskóli, Laugarnes- skóli, grunnskóli B’olungarvíkur og grunnskóli ísafjarðar. Böm frá Súðavík munu einnig njóta dagskrárinnar á ísafirði eða á Súðavík, verði reglulegt skóla- starf haflð þar þegar gestina ber að garði. Slagverksleikararair Kossa Diomande, Fana Soro og Raym- ond Sereba, sem koma frá Fíla- beinsströndinni, hafa tekið þátt í að kynna afríska tónlist fyrir norskum skólanemendum undan- farin 5 ár á vegum Norsku ríkis- konsertanna sem stýrt hafa tón- listarkynningum í norskum skól- um í nærri aldarfjórðung. Heim- sóknin er hluti af norrænu menn- ingarhátíðarinnar Sólstafir og sérstakrar dagskrár fyrir böm og unglinga sem á hátíðinni er að finna. Jafnframt þvi að koma fram í skólum héldu afrisku lista- mennirnir almenna tónleika við Pollinn á Akureyri á sunnudag og þeir verða í Norræna húsinu næsta laugardag kl. 14 og á Sól- oni íslandus föstudagskvöldið 24. febrúar. Skólabörn á Húsavík heyra afrísku tónlistina í dag en á morgun verða nemendur Öldus- elsskóla svo heppnir. Síðan verð- ur Laugamesskóli heimsóttur á fimmtudag og Álftamýrarskóli á föstudag. Mánudaginn 20. febr- úar verða almennir tónleikar á Hótel ísafirði, Bolungarvik og Súðavík heimsótt á þriðjudaginn eftir viku. Afríska tónlistin hljómar loks i Gmnnskóla ísa- fjarðar 22. og 23. þessa mánaðar. Heimsókn afrísku listamann- anna er önnur í röðinni er teng- ist tónlistarkynningum í íslensk- um grunnskólum og fjármögnuð er af norsku þjóðargjöfinni til íslendinga í tilefni lýðveldisaf- mælisins. í nóvember síðastliðn- um héldu þrír djassleikarar tón- leika í grunnskólum á Austur- landi og í Reykjavík og lékur þá fyrir um tvö þúsund nemendur. Gert er ráð fyrir að hefja tón- Iistarkynningar sem nefnast Tón- list fyrir alla og byggja á braut- ryðjendastarfi Jónasar Ingimund- arsonar og Sinfóníuhljómsveitar íslands af fullum krafti frá og með næsta hausti. Þegar hefur verið auglýst eftir verkefnum frá listamönnum sem taka vilja þátt og er markmiðið að með tímanum njóti aliir íslenskir skólanemend- ur góðrar tónlistar innan veggja skólans í gegnum starf Tónlistar fyrir alla.“ KLINGJANDI vinátta er heiti dagskrár sem afrískir listamenn flytja um þijú þúsund íslenskum grunnskólanemum á næstu tveimur vikum. SIGURBJÖRN Jónsson hefur und- anfama tvo mán- uði sýnt stór mál- verk í kvikmynda- húsinu Regnbog- anum við Hverfís- götu. Ákveðið hef- ur verið að fram- lengja syninguna Sigurbjörn til 22. mars. Gallerí Regnbogans og Gallerí Borg tóku höndum saman í desem- berbyijun og hófu sýningar á verk- um Sigurbjöms. í Gallerí Borg vom sýnd minni verk heldur en í Regn- boganum. Þar verður síðan í lok mars opnuð sýning á verkum Tiyggva Ólafssonar. Sinfóníuhljómsveit íslands Rannveig Fríða syngnr Sjávarmyndir RANNVEIG Fríða Bragadóttir syngur einsöng á tónleikum Sinfó- níuhljómsveitar íslands í Háskóla- bíói fímmtudaginn 16. febrúar. í frétt Sinfóníunnar sem birtist í sunnudagsblaðinu sagði að tónleik- amir yrðu í dag, en sú villa leiðrétt- ist hér með. Þeir heijast klukkan 20 á fimmtudagskvöld. Á efnisskránni em §órar sjávar- myndir úr óperanni Peter Grimes eftir Benjamin Britten, ljóðaflokk- urinn Sjávarmyndir eftir Edward Elgar og sjötta sinfónía Tsja- kofskíjs, sem oft er kölluð „Pat- hetique". Rannveig Fríða heldur sér- staklega upp á Sjávarmyndir Elgars og fær nú langþráð tækifæri til að syngja þær. Þetta er í fjórða sinn sem hún kemur fram með Sinfó- níunni, en síðan hún lauk námi við Tónlistarháskólann í Vín 1989 hefur hún sungið við nokkur af þekktari ópemhúsum Evrópu undir stjóm frægra hljómsveitarstjóra. Breska tónskáldið Benjamin Britten flutti til Bandarílqanna 1939 og dvölin þar hafði góð áhrif. Hann samdi þá meðal annars óper- una um hinn veikgeðja sjómann Peter Grimes og byggði á ljóðinu „The Borough“ eftir Georg krabbe. Óperan var fmmsýnd í Sadler’s Wells árið 1945 og sjávarmyndimar íjórar em milliþættir sem Britten setti saman í eitt hljómsveitarverk. Sjórinn varð Edward Elgar líka yrkisefni í Sjávarmyndum, fyrir contraalto og hljómsveit, sem hann samdi við ljóð fímm skálda á árun- um 1897-99. Eitt þeirra var eigin- kona hans, Alice. Sinfónía „Pathetique" var samin 1893 og hinn þunglyndislegi tónn verksins auk óvenjulegs lokakafla kom af stað orðrómi um að tón- skáldið hafí hugsað sér verkið sem svanasöng og síðan bundið enda á ævi sína. Tsjakofskíj stjómaði sjálf- ur fmmflutningnum í Pétursborg við fremur dræmar undirtektir. Nokkmm vikum síðar var sinfónían flutt aftur, við fádæma hrifningu, en höfundinum entist ekki aldur til að njóta hennar. Hljómsveitarstjóri Sinfóníunnar á fimmtudaginn verður fyrmrn að- alstjómandi hennar, Petri Sakari. Rannveig Fríða Bragadóttir Petri Sakari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.