Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 UNGLIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ Það er spurning Hvernig líst þér á yfir- vofandi kennara- verkfall? Elín, 15 ára Illa, þá getum við ekkert lært fyrir samræmdu prófin. Sigurveig, 15 ára Illa, maður verður svo illa undirbúin fyrir samræmdu prófin. Guðbjörg, 15 ára Mér líst mjög illa á það, undirbúning- ur fyrir menntaskólann verður minni. Arndís, 15 ára Ágætlega, við eigum að vera búin að læra allt sem við erum að fara í. Það skiptir ekki máli þó við missum nokkra mánuði úr. Ætlaði að verða prestur þegar ég var lítill Á LEIKARI af yngri kyn- slóðinni sem hefur notið hve mestra vinsælda undanfar- ið er Ingvar Eggert Sigurðsson. Hann sló í gegn í Hárinu í sumar og leikur bæði á sviði í Kirsubeija- garðinum, Gauragangi og Kaba- rett og í kvikmyndum, nú síðast í stuttmyndinni I draumi sérhvers manns. Ég var ráðvilltur unglingur, var mjög lokaður upp úr fermingu, en gat verið frjálslegur innan þröngs hóps, ég átti frekar erfitt með mig. Ég held að það hafí verið partur af einhverri unglinga- veiki, þar sem maður rífur sig niður samanborið við aðra. Ég var reyndar í sveit á sumrin og ég held að ég hafi haft mjög gott af því. Ég er alinn upp í Reykja- vík, en eftir að ég fór að fara í sveit sótti ég töluvert út á land og þegar ég var 18 ára fluttu mamma og pabbi upp í Borgames og þá fór ég að vera þar. Þessi tími, unglingsárin, einkenndust af því að sjálfsálit mitt var ekkert sérstaklega sterkt. Ég fór að standa mig illa í skólan- um þegar ég byijaði í Réttó, mér hafði liðið vel í bamaskóla, var alltaf með sama kennarann og í sama bekknum, síðan fór allt nið- ur á við þegar ég fór í gagnfræða- skóla. Ég var í fjölmennasta ár- gangi frá upphafí Réttarholts- skóla að ég held, og allir kolvit- lausir. Bekkimir úr bamaskólun- um blönduðust, og við svona blöndun raskast ró unglinganna. Menn þurfa að fara að sanna sig fyrir öðrum og það verður svolítið happa og glappa hvemig fólk fer út úr því. *** Keppnisíþróttir hafa aldrei heillað mig, ég er alinn upp í Vík- ingshverfínu og hef alltaf haldið með Víking, ég lék mér mikið í handbolta og fótbolta en sótti aldrei æfíngar. Ég var meira bara einn heima að hlusta á plötur og svoleiðis. Ég valdi mér leikræna tjáningu í níunda bekk, hef sjálf- sagt verið kominn með taugar til leiklistarinn- ar, og mér leið mjög vel í þessum tím- um. Ég próf- aði að fara í skátana þeg- ar ég var bam en mér fannst það leiðinlegt. Ég var reyndar í félags- skap sem hét Ungtemplarafélagið Trölli og það var svolítið skemmti- legt, við héldum unglingaböll í ungtemplarafélaginu og ýmislegt. *** Ég lenti í alveg hrikalega pín- legu atviki þegar ég var í leiklist í skólanum. Þá var ég að leika á móti strák sem var með mér í þessari leikrænu tjáningu. Hann ákvað að hann þyrfti ekkert að læra textann, af því að hann lék löggu sem sat við borð og las blöð STJÖRNUR G STÓE FSKAR tugur að ég fer alvarlega að hugsa það hvort ég ætti að verða leikari. Ég tók - ákvörðunina og varð fullviss í flugvél á milli Keflavíkur og Lúx- emborgar, ég hitti vin minn í vél- inni og hann þurfti ekki annað en að segja stikkorðið fyrir mig. „Ingvar, þú ættir að verða leik- ari,“ og það var alveg nóg, þá ákvað ég það. Því það vom ekki svo margir að benda manni á þennan möguleika, þegar svo ég var að segja fólki frá því þá dró fólk frekar úr því að maður færi í leiklist. Sérstaklega fullorðnir, reyndar ekki foreldrar mínir, þau hafa oftast látið mig í friði, sem betur fer. ég var oft og einatt með þriggja arma kertastjakann hennar mömmu og var að leika prest heima. Síðan fer maður í burtu frá þessu, mér fannst Jesús toppnáungi sem maður en mér fannst ekki allt ganga upp sem stendur í Biblíunni, ég hafði efa- semdir um Guð þó ég efaðist ekki um Jesú, mamma ól mig upp í trú á Guð en pabbi var efasemdamað- ur, og ég trúði þeim báðum. Það er svo ekki fyrr en þegar ég er orðinn tví- og hann ætlaði bara að lesa textann af blöðunum. Ég þurfti hins vegar- að læra textann af því ég lék gamlan mann sem hafði týnt hjólinu sínu. Svo gerist það að gamli maðurinn reiðist við lögguna af því hon- um fínnst hún ekki nógu fús til að hjálpa sér. í reiði sinni slær hann í borðið og blöðin fara út um allt og lögreglu- maðurinn situr bara og veit ekki neitt hvað hann á að segja. Þama stóðum við og bulluðum eitthvað í smá tíma, en endalokin voru þau að ég þurfti að kalla „dragið þið fyrir, dragið þið fyr- ir“, mér fannst þetta hræðilega pínlegt en liðið hló að þessu. *** Ég ætlaði að verða prestur þeg- ar ég var lítill. Það var samt aðal- lega þannig að ég ætlaði að leika prest, mér fannst þetta svo flott fyrirbæri, skrúðinn og serimon- íumar. Messumar og þessar at- hafnir í kirkjunni höfðuðu eitthvað til mín, og þess vegna var það að Hrafnhildur Gréta Móðir náttúra Móðir náttúra fékk æðiskast í janúar, kastaði snjóbolta á íslandi sem lenti á smábænum Súðavík. Móðir náttúra hefur eflaust séð eitthvað sorglegt, því mörg þúsund tárum hellti hún yfir Þýskaland. Móðir náttúra varð allt í einu skjálfhent hristist þá Japan svo mikið að hæstu háhýsi féllu. (Höf. Sólrún Ásta Sveinsdóttir)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.