Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 45
ið hefði verið. Það var reyndar svo
mikið fjör að við gátum ekki horft
á það! Þegar Hóffa var að skemmta
sér ljómaði hún af kátínu og hún
brosti þessu skemmtilega brosi sem
náði yfir allt andlitið. Við hittumst
líka einu sinni fyrir tilviljun í Þórs-
mörk, ég man ekki hvað við sögðum
en ég man við hlógum alveg ógur-
lega!
Elsku íjölskylda, missir ykkar er
mikill og ekkert getur bætt ykkur
hann. Hver tilgangur þessa er vitum
við ekki og munum líklega aldrei
vita, en sorg og gleði eru systur sem
við kynnumst í lífinu og hljóta þær
að vera ætlaðar til þess að þroska
okkur. Þannig verðum við að leitast
við að verða góðar og heilsteyptar
manneskjur sem geta gefið öðru
fólki eitthvað af sér sjálfum. Elsku
Hóffa, þú gafst mörgum af sjálfri
þér á þinni ævi og ég vona að þér
líði vel þar sem þú ert núna. Ég bið
góðan Guð að styrkja foreldra þína
og systkini því þeirra missir er mik-
ill en eftir standa minningamar um
þig og þannig muntu lifa áfram í
hugum foreldra þinna, systkina,
vina og vinnufélaga. Ég sendi ykkur
öllum mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Halla Bjarna.
+
Bróðir okkar,
GUÐBJÖRN ÓLAFSSON,
Skólastig 5,
Akureyrí,
er lést í Fjórðungssjúkrahúsinu þann 7. febrúar sl., verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 16. febrúar kl. 13.30.
Sigtryggur Ólafsson,
Brynjólfur Ólafsson,
Tómas Ólafsson,
Gísli Ólafsson
og fjölskyldur.
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
HALLMANN LÁRUSSON
sjómaður
frá Kálfshamarsvík,
sem lést í Garðvangi 12. febrúar, verð-
ur jarðsettur frá Hvalsneskirkju laugar-
daginn 18. febrúar kl. 14.00.
Fyrir hönd systkina hins látna, annarra
ættingja og vina.
Petrea Lára Hallmannsdóttir, Egill Þórólfsson,
Sigurður Hallmann, Ásta Laufey, Þórólfur Jón.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför litla
drengsins okkar,
ALEXANDERS WILLIAM
S. ERWIN.
Ragnhildur Pálsdóttir Erwin, Austin A.S. Erwin,
Adrian Óskar og Kristine Heiða,
Sjöfn Óskarsdóttir, Páll Ól. Pálsson,
Jean S. Erwin.
+
Þökkum vinsemd og auðsýnda samúð
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRUNNAR KARLSDÓTTUR,
sem lést í Hulduhlíð, Eskifirði, 3. febrúar.
Kveöja.
't"
Fyrir ári kynntumst við Hólm-
fríði á DC-námskeiði, þessari in-
dælu stúlku, sem margoft bauð
okkur heim til sín til skrafs og ráða-
gerða um þau viðfangsefni sem við
vorum að vinna að.
Þar var einnig rætt um lífíð og
tilveruna, skipst á reynslu og því
sem hvert okkar var að gera á þeim
tíma.
Þetta voru ánægulegar og gef-
andi stundir. Hólmfríður var mikil-
vægur hlekkur í okkar hópi og
minnumst við hennar með söknuði.
Þó að kali heitur hver;
hylji dali jökull ber,
steinar tali og alit, hvað er,
aldrei skal eg gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Guðrún, Heimir og Hjördís.
Hún Hólmfríður er látin. Fregnin
barst okkur á mánudagsmorgni og
varð það óvænt áfall. Hólmfríður
Jónsdóttir kom til starfa fyrir SÍF
í upphafí árs 1988, fyrst sem ritari
þáverandi framkvæmdastjóra, en
árið 1991 hélt hún til starfa í Frakk-
landi. Þar starfaði Hólmfríður hjá
Nord Morue sa., sem er dótturfyrir-
tæki SÍF, og starfaði við sölumál.
Sölumálin voru henni einkar hug-
leikin og fékkst hún við ýmsa af
nýjum mörkuðum fyrirtækisins og
sinnti þeim af mikilli ræktarsemi.
Árangurinn af starfi hennar var
góður og hlutdeild fyrirtækisins á
mörkuðun hennar óx verulega í tíð
hennar. Framleiðendur og stjómar-
menn heimsóttu oft Nord Morue,
og taldi Hólmfríður það vera starf
sitt að sinna gestunum og leiðbeina
á ókunnum stað og gerði það af
mikilli alúð. Hún var alltaf reiðubú-
in til aðstoðar. Ef hún var beðin
um eitthvað var svarið ávallt á sömu
lund: „Ekkert mál.“
Seinni hluta árs 1993 ákvað
Hólmfríður að flytjast til íslands á
ný og var lagt kapp á að fá hana
aftur til starfa hjá SIF hf. Hólmfríð-
ur fékkst þá áfram við sölumál á
ýmsa markaði fyrirtækisins, en hún
starfaði hjá SÍF hf. til dauðadags.
Hún var einnig ritari stjómar SIF
hf. eftir heimkomuna til íslands og
fórst henni það vel úr hendi eins
og allt annað sem hún tók sér fyrir
hendur.
Við kveðjum einstakan starfs-
mann sem Hólmfríður var. Dugnað-
ur, samviskusemi, traust og heiðar-
leiki var það sem einkenndi störf
hennar. Störfum sínum fyrir félagið
sinnti hún af mikilli alúð og sam-
viskusemi og fyrir það viljum við
þakka henni.
Megi góður Guð styrkja foreldra
hennar, systkini, ættingja og vini í
sorg sinni og blessa minningu
Hólmfríðar Jónsdóttur.
Fyrir hönd SÍF hf.
Sighvatur Bjarnason.
+
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður
og sonar okkar,
JÓNS STEINSEN,
Furugrund 76,
Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudag-
inn 16. febrúar kl. 10.30.
Brynja Sigurðardóttir,
Rakel Steinsen,
Steinunn Jónsdóttir Steinsen, Eggert Steinsen.
+
Minningarathöfn um ástkæra vinkonu
mína, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÖNNU HJARTARDÓTTUR,
Aðalstræti 19,
ísafirði,
verður í Dómkirkjunni í dag, þriðjudag-
inn 14. febrúar, kl. 13.30.
Gunnar J. Guðbjörnsson,
Hjörtur A. Sigurðsson,
Pétur S. Sigurðsson, Kristin Böðvarsdóttir,
Gunnar Þ. Sigurðsson,
Sigurður og Sveinbjörn Péturssynir.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN EINARSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
Hraunbæ 128,
Reykjavík,
sem lést í Landspítalanum 7. febrúar,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.30.
Bjarni Bjarnason,
Jónina Bjarnadóttir,
Erna Bjarnadóttir, Magnús Karlsson,
Helga Bjarnadóttir, Hjalti Jóhannsson,
Einar Bjarnason, Ester Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkkur samúð og vinarhug
við andlát og útför
ÞÓRUNNAR VALDIMARSDÓTTUR
fyrrverandi formanns
Verkakvennafélagsins Framsóknar,
Hjallabraut 33,
, Hafnarfirði.
Hjúkrunarfólki St. Jósefspítala í Hafnarfriði þökkum við einstaka
umönnun og hlýju.
r
Kristin Bjarnadóttir, Sigurður B. Stefánsson,
Stefán Bjarni Sigurðsson,
Sveinn Birgir Sigurðsson.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNS SIGURÐSSONAR,
Hóli,
Hauganesi.
Jónína Helgadóttir,
Magnús Jóhannsson,
Svava Jóhannsdóttir, Björn Kjartansson,
Aðalheiður Jóhannsdóttir, Rúnar Sigvaldason,
Sæunn Jóhannsdóttir, Rúnar Steingrímsson,
Bergþóra Jóhannsdóttir, Jón Sverrisson,
Kristín Jóhannsdóttir, Kristinn Snæbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu, sem veittu stuðning og sýndu
samúð og hlýhug við fráfall minnar ástkæru dóttur,
JÚLÍÖNNU BERGSTEINSDÓTTUR,
og sambýlismanns,
HAFSTEINS BJÖRNSSONAR.
Guð veri með ykkur öllum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Björk Þórðardóttir.
Lokað
Vegna jarðarfarar HÓLMFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
verða skrifstofur SÍF, Aðalstræti 6, svo og birgða-
stöðin, Keilugranda 1, og kæligeymsla SÍF í Sunda-
höfn lokuð þriðjudaginn 14. febrúar 1995 frá
kl. 12.00 á hádegi.
Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda hf.
m.
Lokað
Vegna jarðarfarar HÓLMFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
verður skrifstofa Saltkaupa hf. lokuð þriðjudaginn
14. febrúar 1995 frá kl. 12.00 á hádegi.
Saltkaup hf.