Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR mér hvað var að gerast og af hveiju þurfti blómið litla að bresta, þegar svo stutt virtist vera upp síðast og erfiðasta hjallinn. Þegar honum væri náð þá var reyndar erfið ferð framundan en hún var undan fæti, jú kannski erfið en fær. Því miður skiljum við oft ekki hvílíkur hel- kuldi getur níst um vini okkar, þeir bera sig því miður oft á tíðum mun betur en efni standa til. Við reynum öll að liðsinna en oft getum við ekki hjálpað, eða við vitum ekki hvað við eigum að gera. Leiðir okkar Hólmfríðar lágu fyrst saman fyrir rétt fímm mánuð- um í sumarferð yfír Fimmvörðu- háls. Eftir þá góðu ferð varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að kynnast henni nánar. Góðar stundir gengu í garð, drungi og kuldi var eitthvað sem ekki var til. Kostum hennar og góðum stundum er ekki hægt að gleyma. Hún var einstak- lega trygglynd, samviskusöm og prýdd öllum þeim góðu kostum sem hægt er að óska hjá góðum vin. Eins og sumarið getur verið ánægjulegt þá kemur vetur að loknu sumri. Því miður varð vetur- inn mun harðari en við mátti bú- ast. Ferðin var erfíð og kuldin níst- andi. Óveðursskýin hrönnuðust svo hratt upp á himininn að ekki var hægt að veija þann viðkvæma gróð- ur sem fyrir storminum varð. Við sem horfðum á gátum ekki tekið þátt í þessari hörðu baráttu, og skildum kannski ekki til fulln- ustu hvað þetta var erfítt. Þegar kuldinn svarf aftur og aftur að urðu skjólin fá. Núna þegar við kveðjum Hólm- fríði hefur það oft komið upp í huga minn hvert förum við eftir að vist okkar lýkur hér á jörðu. Förum við í ferðalag til einhvers staðar, eða komumst við þangað strax? Eða gufum við bara upp eftir jarðvist okkar? Ég hef ekki svörin við þess- um spumingum en ég vona að vin- ur minn hvar sem hann er staddur hafí öðlast kyrrð og frið í hjarta sínu. Ég vil votta foreldrum, systkin- um og aðstandenum hennar mínar innilegustu samúðarkveðjur og vona að góð minning um hana megi lifa með okkur. Hermann Valsson. Ekki grunaði mig að það væri í síðasta sinn sem ég ætti eftir að sjá þig i afmæli bróður þíns. Mikið á ég nú eftir að sakna þín. Alltaf mun mig vanta þig sem ég leit upp til og var svo stolt af. Ég man þeg- ar þú varst lítil og ég fékk að baða þig. Þá var mamma þín í vinnunni og amma að passa þig. Nú eruð þið nöfnurnar saman á ný. Guð styrki fjölskylduna í Deildar- ási í sorg sinni. Brynja Guðmundsdóttir. „Hún Hoffa er dáin.“ Fréttin kom eins og reiðarslag er hún barst okk- ur. Hugurinn reikaði, minningarnar komu fram í hugann. Ósjálfrátt fer maður að hugsa um tilganginn með jarðvist okkar. Ég kynntist Hólmfríði, eða Hoffu eins og við kölluðum hana, þegar hún hóf störf hjá Sölusambandi ís- lenskra fískframleiðenda um ára- mótin 1987 og 1988. Fljótlega skynjuðum við samstarfsfólkið hvaða manneksju hún hafði að geyma. Allt var í röð og reglu hjá Hoffu. Hún var ávallt reiðubúin til aðstoðar ef eitthvað vantaði. Dugn- aður, heiðarleiki og traust voru hennar aðalsmerki. Haustið 1990 fluttumst við fjöl- skyldan til Frakklands til starfa í fyrirtæki sem samtökin höfðu ný- lega fjárfest í þar í landi, Nord Morue sa. Verkefnið var einfalt, að efla fyrirtækið eins skjótt og auðið yrði, og þá sérstaklega að byggja upp útflutning fyrirtækisins. Frönsku starfsmennimir voru ekki alveg með á nótunum þegar kom að útflutningi, og fljótlega varð ljóst að þörf var á að fá Islending til starfa í fyrirtækinu og þá kom Hoffa upp í huga minn. Hún féllst á hugmyndina, og fluttist til Frakk- lands í júní 1991. Aðdáunarvert var hverstu dugleg hún var að bjarga sér. í upphafí bjó hún í Jonzac, sem er lítið þorp sem var í 60 km fjar- lægð frá heimili okkar. Hún flutti síðan í bæinn okkar þar sem hún fann bjarta litla íbúð og bjó sér þar fallegt heimili. Tengsl hennar við fjölskyldu okk- ar styrktust á þessum tíma og sterk vinabönd mynduðust, ekki síst við börnin okkar, en Hoffa varð þeim góður vinur. Þau voru þá fjögurra, sjö og tólf ára. Þegar við hjónin þurftum að ferðast flutti Hoffa heim til okkar og var með börnun- um. Þau elskuðu Hoffu sína og geta ekki skilið að þau muni ekki sjá hana aftur. Söknuður þeirra er mikill og minningin lifir. Allar minningar fjölskyldunnar frá Frakklandi tengjast Hoffu á einn eða annan hátt. Samveru- stundimar vom margar og ánægju- legar. Minnisstætt er ávallt þorra- blótið sem hún stóð fyrir hjá íslensk- um starfsmönnum Nord Morue. Vandamálin við framkvæmdina vom mörg, en þau voru auðleyst af henni. Hoffa var mikill íslending- ur og þekkti landið sitt vel og var í góðum tengslum við náttúm lands- ins. Hún skynjaði fegurð þess og gat rætt um það tímunum saman, og kynnti það fyrir mörgum af frönskum samstarfsmönnum sínum sem hafa síðan heimsótt landið. Við fluttum heim um mitt ár 1992 en Hoffa flutti til íslands seinni hluta árs 1993. Tvisvar sinn- um auðnaðist henni að heimsækja okkur til Eyja. Undanfarið var hún alltaf á leið í heimsókn en tíminn var henni naumt skammtaður í þessu jarðlífi og gafst henni því ekki tækifæri til fleiri heimsókna. Það er dásamlegt að hafa fengið að kynnast Hoffu, minningin um hana mun lifa á meðal fjölskyldunn- ar sem og allra annarra sem kynnt- ust henni. Við kveðjum öll trausta og góða vinkonu. Okkur langar til að votta foreldr- um hennar, systkinum sem og öðr- um ættingjum okkar dýpstu samúð. Missir ykkar er mikill, en minningin um einstaka stúlku lifir á meðal okkar og hana skulum við varð- veita. Megj Guð blessa minninguna um Hólmfríði Jónsdóttur. Sighvatur, Hilda og börn. Kveðja tii Hoffu Hún Hoffa var besta vinkona okkar frá því við áttum heima í Frakklandi. Hún var alltaf að passa okkur þegar pabbi og mamma voru ekki heima, og hún vann með pabba. Guð viltu passa hana Hoffu. Þínir vinir, Dóra Dúna og Bjarni. Mig langar í fáum orðum að minnast vinkonu minnar Hólmfríð- ar Jónsdóttur. Hóffu kynntist ég þegar ég fiyt suður haustið 1985. Þá bjó hún með mági mínum. Við áttum margar skemmtilegar stund- ir saman bæði í gönguferðum og i notalegheitum heimavið. Þegar leiðir þeirra skildu héldum við alltaf sambandi þó það liði lengra á milli að við hittumst. Hóffa flutti til Frakklands og bjó þar um tíma, og alltaf hringdi hún reglu- lega til að heyra í okkur hljóðið. Eftir að hún flutti heim hittumst við nokkrum sinnum, þ. á m. í þrí- tugsafmæli hennar og var hún hress og glöð. Þannig lifír hún í minningu okkar. Elsku Hóffa mín, ég þakka þér allar þær stundir sem við áttum saman. Fræ í frosti sefur, Drottins vald á vori fónnin ei grandar því. Elska hans gefur öllu líf og skjól. Guðs míns kærleiks kraftur kom þú og ver mín sól. (Þýð. S. Egilsson) Fjölskyldu Hólmfríðar vottum við okkar dýpstu samúð. Megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í sorg- inni. Sólveig Guðjónsdóttir og fjölskylda. Það er erfítt að trúá því að mín kæra vinkona Hóffa sé fallin frá. Það hefur verið höggvið stórt skarð í vinahóp okkar stelpnanna, sem erum búnar að þekkjast síðan við vorum smápíur í Hraunbænum. Það er erfitt að sætta sig við að maður eigi aldrei eftir að sjá hennar bjarta bros aftur, en það mun alltaf lifa í minningunni. Það eru margar minningar sem hrannast upp, en erfítt að koma þeim á blað. Við áttum svo margar góðar stundir saman á unglingsár- unum. Það var alltaf gaman að skemmta sér með Hóffu, því hún var oftast hrókur alls fagnaðar. Hin seinni ár var hún oft frum- kvöðull að því að við hittumst vin- konumar, þá aðallega þegar hún bjó í Frakklandi. Hún sendi okkur t.d. bréf hingað heim og þá var kallað saman í saumaklúbb til þess að svara bréfínu. Það var alltaf gaman að fá bréf frá Hóffu, því hún sagði svo skemmtilega frá. Þegar ég sá þessa sálma, fannst mér þeir segja allt um mínar tilfínn- ingar til Hóffu. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Kæra Madda, Jón og fjölskylda. Ég sendi ykkur innilegustu samúð- arkveðjur. Megi algóður Guð styrkja ykkur og leiða á þessum erfiðu tímum. Elísabet. Kynni okkar Hólmfríðar voru stutt en góð. Við kynntumst á nám- skeiði hjá Dale Camegie fyrir tæpu ári. Þótt ekki sé lengri tími liðinn er þetta í annað sinn á þessu tæpa ári sem dauðinn heggur í þann hóp, enn og aftur er það allt of ung manneskja sem þarf að kveðja. Við hittumst tvisvar í viku á námskeiðum. Annar fundurinn var með öllum hópnum, hinn var sex manna hópur sem hittist til undir- búnings fyrir fund. Þessir millifund- ir voru haldnir í heimahúsi og oftar en ekki heima hjá Hólmfríði þar sem hún bjó ein í íbúð sinni. Þetta var góður hópur og okkur fannst gott að koma til Hólmfríðar. Hólmfríður var hæglát og þægi- leg í viðkynningu. Það lagði frá henni styrk og hún ávann sér auð- veldlega traust og virðingu í hópn- um. Þessir eiginleikar ásamt góðum gáfum komu henni áfram í starfi. Hún gegndi ábyrgðarstöðu í fyrir- tæki þar sem konur áttu erfitt fram- dráttar. Hólmfríður starfaði í Frakklandi um tíma á vegum fyrir- tækisins og ferðaðist eriendis á vegum þess eftir að hún fluttist heim. Hólmfríður var íslenskufræðing- ur að mennt og var vel að sér á mörgum sviðum. Hún hafði ríkan áhuga á franskri menningu, bók- menntum og ferðalögum. Hún hafði ferðast töluvert og sagði okkur frá ýmsu sem hún hafði séð og heyrt í útlöndum. Hólmfríður sagði skemmtilega frá og átti auðvelt með að hrífa fólk með frásögn sinni. Við hittumst síðast fyrir jólin og töluðum þá um að við sexmenning- arnir yrðum að fara að hittast. En það verður því miður ekkert úr því, ekki í bráð. Með þessum fátæklegu skrifum kveð ég Hólmfríði Jónsdóttur og þakka henni viðkynninguna. Fjöl- skyldu hennar og ástvinum öllum votta ég mína dýpstu samúð og bið góðan guð að vera þeim stoð í sorg- inni. Guðný Sigurðardóttir. Það var fyrir rúmri viku sem mér bárust þau hörmulegu tíðindi að Hóffa væri dáin, ég sat eftir dofín og skilningsvana. Maður veltir fyrir sér hver tilgangur þessa alls er, hvers vegna deyr svo ung mann- eskja í blóma lífsins og framtíðin virðist blasa við. En maður fínnur engin svör enda ekki okkar mann- anna að finna þau. Því hver væri tilgangur Tiessa alls ef við hefðum svör við öllum hlutum. Ég kynntist fjölskyldunni í Deildarásnum í gegn- um hestaferðir fyrir nærri fimmtán árum. Við Gulla urðum fljótt perlu- vinkonur og smám saman urðu allir í fjölskyldunni bestu vinir mínir. Það er gott og gaman að vera alltaf velkominn á þetta stóra heimili þar sem gestir eru ætíð velkomnir og heimagangar eins og ég fá það ein- hvem veginn á tilfinninguna að þeir séu orðnir hluti af fjölskyldunni. Ég kynntist Hóffu seinna en systkinum hennar því hún var farin að búa þegar ég varð heimagangur á heimilinu. Þegar ég kynntist henni síðar skildi ég hvers vegna systkini hennar og foreldrar voru svo stoltir af henni. Hún var heilsteypt mann- eskja sem lagði sig fram um að gera alla hluti vel og virtist famast allt vel sem hún tók sér fyrir hend- ur. Hún keypti íbúðina sína í Rofa- bænum tilbúna undir tréverk eða hvað það er nú kallað. Þar kom hún sér vel fyrir og naut þá m.a. aðstoð- ar ijjölskyldu sinnar. Síðar var henni boðin vinna á vegum SÍF i Frakk- landi og því lagði hún land undir fót. í Frakklandi nutu fjölskylda hennar og vinir gestrisni hennar þegar þau heimsóttu hana þangað. Ég minnist þess hversu ánægð þau voru þegar þau komu þaðan Jón, Madda og Þorbergur. Það er gott að eiga minningar frá þessum tíma. Hóffa kom mér alltaf fyrir sjónir eins og sú manneskja sem tekur hlutina alvarlega og slær ekki slöku við fyrr en hún er ánægð með verk sitt, stúlka sem vill hafa allt á hreinu og enga óreiðu á hlutunum. En Hóffa kunni svo sannarlega líka að skemmta sér og gerði það með sama sómanum og flest annað sem hún tók sér fyrir hendur. Ég held ég geti aldrei gleymt einum af mörgum áramótum sem ég hélt upp á í Deildarásnum. Þá var svo sann- arlega mikið fjör og Hóffa lét sko ekki sitt eftir liggja, reyndar skildi hún ekki seinna hvers vegna við vissum ekki hvemig áramótaskaup- Islenskur efnivlður íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. Leitið upplýsinga. BjS. HELGASON HF ISTEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677 + Hjartkær móðir okkar, ELÍSABET KRISTINSDÓTTIR frá Skúmsstöðum, Eyrarbakka, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 10. febrúar. Börnin. + Ástkær faðir okkar, tengdafafiir, afi og langafi, ÁGÚST FILIPPUSSON, Hábæ 40, lést þann 11. febrúar. Jarðarförin tilkynnt síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar og mágkona, HELGA GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR, Sólheimum 25, andaðist í Landspítalanum 13. febrúar. Torfi Þ. Ólafsson, Guðrún Kristinsdóttir, Elfsabet Dinsmore, Reed Dinsmore, Axel Ingólfsson. + KONRÁÐ JÚLÍUSSON frá Patreksfirði, áöurtil heimilis á Öldugötu 27, Hafnarfiröi, verður jarðsunginn frá kapellunni við kirkjugarðinn í Hafnarfirði fimmtudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.