Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
U.
LAIMDIÐ
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa hef-
ur verið opnuð í Njarðvík
Spennandi verk-
efni sem gaman
verður að móta
Keflavík - „Þetta er
ákaflega spennandi
verkefni sem gaman er
að fá að móta frá byrj-
un,“ sagði Friðjón Ein-
arsson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri markaðs-
og atvinnumálaskrif-
stofu Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna.
Friðjón er 38 ára ís-
firðingur sem starfaði
áður hjá Grænlandsflugi
og tók hann við stöðunni
um áramót, en skrifstof-
an var formlega opnuð
nó í byqun febrúar.
Friðjón sagði að
markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofan, sem staðsett er i
gömlu bæjarstjómarskrifstofunum
við Fitjar í Njarðvík, væri nýjung á
þessu sviði og að hugmyndir væm
uppi með að flytja ferðamálaskrif-
stofu og atvinnuþróunarskrifstofu að
Fitjum til að hafa þessa starfsemi
alla undir sama hatti.
Auk þess yrði vinnu-
miðlun þar sem skrán-
ing atvinnulausra færi
fram og þjónusta við
atvinnulausa flutt í
skrifstofuna við Fitjar.
40 verkefni borist
í ræðu Guðmundar
Péturssonar, formanns
markaðs- og atvinnu-
málanefndar Keflavík-
ur, Njarðvikur og
Hafna, sem flutt var
við formlega opnun
skrifstofunnar, kom
fram að nú væra at-
vinnu- og markaðsmál
undir einni yfirstjóm sem gerði allt
kerfið skilvirkara auk þess sem boð-
leiðir væru styttri en áður. Nú þegar
hefðu um 40 verkefni borist skrif-
stofunni sem sýndi best þörfma fyr-
ir einn stað þar sem aðilar gætu
fengið ráðgjöf og /eða aðra þjónustu.
Friðjón Einarsson
Selfoss
Samið um heilsugæslustöð
Selfossi - bygging nýrrar heilsu-
gæslustöðvar í Laugarási verður boð-
in út í mars eða apríl. Samningar
um byggingu stöðvarinnar vora und-
irritaðir 8. febrúar af heilbrigðisráð-
herra, fjármálaráðherra og oddvitum
sex hreppa í uppsveitum Amessýslu.
Hreppamir Iána ríkinu 10 milljónir
króna til að flýta framkvæmdum.
Gert er ráð fyrir að stöðin verði
tekin í notkun 1997 og kostnaður
við hana er talinn verða um 74 millj.
króna. Stöðin verður 512 m2 að
stærð en núverandi aðstaða er 120
m 2. Alls starfa 11 manns við stöðina
í 7,5 stöðugildum.
Morgunblaöið/Jónas Erlendsson
ANNAR af rússnesku herbílunum. Sést hvar yfirbyggingu af gamalli rútu hefur verið komið fyrir.
Breytir rússneskum hertrukk
í fólksflutningabíl
Fagradal - Unnið er að því í Mýr-
dal að breyta tveimur rússnesk-
um hertrukkum til notkunar fyr-
ir fólk í fjallaferðum. Trukkar
þessir voru m.a. notaðir áður sem
hluti af neyðarsjúkrahúsi í A-
Þýskalandi.
Það er Gísli Daníel Reynisson,
sem farið hefur með ferðamenn
á hjólabátum frá Vík í Mýrdal
út að Dyrhólaey og Reynisdröng-
um nokkur undanfarin ár, sem
stendur i þessu. Hann keypti nú
í haust í Austur-Þýskalandi tvo
rússneska herbíla af gerðinni
URAL árg. ’84 og ’85. Rússneski
herinn notaði þessa bíla sem
hluta af neyðarsjúkrahúsi, þ.e. í
þeim var allur búnaður til sótt-
hreinsunar.
Að sögn Gísla Daníels ætlar
hann að nota bílana til fjallaferða
með ferðamenn. Öðrum þeirra
ætlar hann að breyta í 25 manna
rútu og tekur af honum uppruna-
legu yfirbygginguna og festir í
stað yfirbyggingu af gamalli
rútu á grindina.
Hinn bílinn ætlar hann að hafa
óbreyttan en yfirbyggingin af
honum er stækkanleg úr 10 fer-
metrum í u.þ.b. 25 fermetra. Það
tekur í kringum 10 mínútur fyrir
tvo menn að taka yfirbygginguna
af og stækka hana. Hugmyndin
er að leigja þennan trukk út til
lengri eða skemmri tíma t.d. sem
mötuneyti eða aðra aðstöðu fyrir
hópa.
Trukkarnir eru með drif á
þrem hásingum, dekkjum eins
og á veghefli og getá þeir farið
í tveggja metra djúpt vatn án
þess að bleyta sig, eru með gír-
spil og búnað til að hleypa lofti
úr dekkjum og dæla í þau aftur
inni í bíl á ferð.
Næsta sumar ætlar Gísli að
kanna hvort hann geti keyrt með
ferðamenn upp á Mýrdalsjökul,
jafnvel alla leið upp að Kötlugjá
og segir hann að þegar séu farn-
ar að berast fyrirspurnir um
þessar ferðir.
Beitir NK endurbættur í Póllandi
Pólska tilboðið 30
millj. hagstæðara
Neskaupstað - Beitir NK heldur til
Póllands í endaðan mars þar sem
veralegar endurbætur munu verða
gerðar á þessari 25 ára gömlu
happafleytu.
Tilboð Pólverjanna er upp á um
80 milljónir króna og þar með um
30 milljónum kr. lægra en lægsta
íslenska tilboðið sem kom frá Slipp-
stöðinni Odda á Akureyri.
Endurbætumar sem gerðar
verða á Beiti í Póllandi felast meðal
annars í því að skipt verður um brú
og settur verður hvalbakur á skip-
ið. Þá verða lestar skipsins einangr-
aðar betur en nú er. Vinnslulína
verður sett fram á skipið til að
stytta þann tíma sem fer í að skipta
á milli veiðarfæra og einnig verður
bætt við rými fyrir olíu.
Gert er ráð fyrir að þessar endur-
bætur taki um tvo mánuði.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
BEITIR NK gerður klár fyrir loðnuveiðar en hann hefur verið
við togveiðar að undanförnu og fryst aflann um borð.
Nýr ferða-
málafulltrúi
Þingeyinga
Húsavík - Ferðamálafulltrúi Þing-
eyinga hefur verið ráðinn Þórður
Höskuldsson, en hér er um nýtt starf
að ræða. Þórður er starfsmaður At-
vinnuþróunarfélags Þingeyinga hf.
og sinnir uppbyggingu og þróun
ferðaþjónustu með aðsetri á Húsavík.
Þórður lauk prófi frá Tækniskóla
íslands í markaðsfræðum með
áherslu á útflutning. Hann hefur
fengist við sölu- og markaðsstörf og
var m.a. í markaðsstarfi hjá alþjóða-
fyrirtæki í Sviss. Á síðasta ári rak
hann fyrirtækið Týnda hlekkinn sf.
í Reykjavík og hefur reynslu af ferða-
skipulagningu og fararstjóm.
OKKAR
8andsgiekkta
á raftækjum, heimilistækjum, pottum og fleiru stendur þessa viku. Svimandi afsláttur.
Kælir og frystir
Eldavélasett m/helluboröi Brauðbökunarvél. örfáar sýningarvélar
Þetta er adeins brot af úrvals vörum
með svimandi afslætti. Hafðu hraðar hendur.
Aðeins fáir hlutir af sumum gerðum.
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28 ‘S símar 562 2901 og 562 2900.
Borðvifta
Jolly Chef rifjárn
Kaffivél
Vaskar frá kr. 2.500