Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Miklar tekjur af sjónvarpsrekstri hjá fjölmiðlarisanum News Corp Ltd
Sydney. Reuter.
AUKNAR sjónvarpstekjur hafa
stuðlað að auknum hagnaði fjölm-
iðlafyrirtækis Ruperts Murdochs,
News Corp Ltd, en árangnrinn
vekur ekki hrifningu fjárfesta og
hlutabréf fyrirtækisins hafa lækk-
að í verði.
Hagnaður jókst um 6,7%
Nettóhagnaður jókst um 6.7%
í 821 milljón Ástralíudala síðari
hluta árs 1994 að sögn fyrirtækis-
ins. Auk þess nam hagnaður af
tilboðum í gervihnattasjónvarpið
British Sky Broadcasting Group í
desember 148 milljónum Ástral-
íudala. Hlutur News-fyrirtækisins
í Sky minnkaði í 40% úr 50% og
því tókst að minnka útistandandi
skuldir í 7.5 milljarða Ástralíudala
úr 9.2 milljörðum.
Sérfræðingar voru þó ekki
Aukinn hagnað-
ur hjá Murdoch
hrifnir af niðurstöðunni og sögðu
að afskriftir upp á 350 milljónir
Bandaríkjadala í sjónvarpsfyrir-
tæki News Corp, Fox Broadcast-
ing, fælu mikið tap á sendingum
frá bandarískum ruðningsleikjum
á síðustu þremur mánuðunum í
fyrra.
Sérfræðingarnir segja að sé til-
lit tekið til hagnaðarins af hluta-
bréfasölunni og áætluðu 70 millj-
óna (bandarískra) dollara tapi á
fjögurra ára samningi við Föx um
útsendingar frá bandarískum
ruðningsleikjum hafi sex mánaða
hagnaðurinn verið lægri í raun en
hagnaðurinn fyrri hluta ársins.
Hlutabréf lækkuðu
Ástralskir sérfræðingar og
fjárfestar voru þessu sammála og
verð hlutabréfa í News Corp lækk-
aði um 12 áströlsk sent í 5.40
Ástralíudali.
Sérfræðingarnar sögðu að tekj-
ur af British Sky Broadcasting
virtust öruggar og blaðasalan
væri að glæðast. Afkoma sjón-
varpsstöðvanna væri góð, en tíma-
rita og auglýsingafyrirtækja ekk-
ert sérstök. Bókaútgáfa stæði illa.
Rupert Murdoch á 32.4% hlut í
News Corp, en asíska gervihnatta-
sjónvarpsstöðin STAR-TV 64%.
Aætlað er að STAR TV nái til
53.7 milljóna heimila í Asíu, Ind-
landi og Miðausturlöndum og
áhorfendum hafi fjölgað um 30%
síðan í janúar 1994.
Tekjur News Corp af dagblöð--
um minnkuðu í 242 milljónir Ástr-
alíudala úr 266 milljónum á sama
tíma á fyrra ári.
Kvikmyndir voru veikur hlekk-
ur, aðallega vegna kostnaðars-
amra og slakra mynda eins og The
Pagemaster, Trapped in Paradise
og Miracle on 34th Street.
RUPERT Murdoch er glaður
í bragði yfir góðri útkomu
fyrirtækis hans.
Hádegisverðarfundur IMARK
Internet
og tækifæri til
markaðssetningar
íslenski markaðsklúbburinn boðar til hádegisverðarfundar um
tækifæri til markaðssetningar á Interneti. Þessi þáttur hefur verið
lítið í umræðunni um Internetið, hvaða möguleikar eru fyrir hendi,
hver er kostnaðurinn o.s.frv? Fundurinn verður haldinn á Hótel
Loftleiðum, Víkingasal, fimmtudaginn 16. febrúar kl. 12:00-13:30.
t Fyrri hluta fundarins veröur rætt um hvaöa
möguleika fyrirtæki hafa til markaössetningar á
Interneti, öflun viðskiptasambanda og kostnaö
samfara því, sem í mörgum tilvikum er minni en
ætla má.
• Síöan veröur fjallaö um þaö hvernig fyrirtæki
standa aö slíkri markaðssetningu meö gerö
heímasíöna og sýnd veröa fjölmörg dæmi.
Frummælandi:
Stefán Hrafnkelsson, framkv.stjóri Margmiólunar hf.
Fundarstjóri: Marteinn Jónsson, framkvæmdastjóri
Framtíöarsýnar hf.
Aögangseyrir: Kr. 1.500 fyrir ÍMARK-félaga, kr. 2.000 fyriraöra.
Innifalið í veröi er léttur hádegisverður og kaffi.
MU N I 0 A B G R E I B A FELAGSGJÖLDIN!
Delta hf. eykur umsvifin með framleiðslu á
hjartalyfinu Katopril fyrir Þýskalandsmarkað
5-600 milljóna
sala á þessu ári
DELTA hf. hefur samið um sölu
á hjartalyfinu Katopril til Þýska-
lands í kjölfar þess að einkaleyfi
framleiðenda þar í landi til tutt-
ugu ára er runnið út. Annars stað-
ar í Evrópu rennur einkaleyfi
frumframleiðenda, eða þeirra sem
fyrstir koma með lyfið á markað,
út árið 1997.
„Einkaleyfi á lyfjaframleiðslu í
ákveðnu landi þýðir að aðrir mega
ekki framleiða viðkomandi lyf í
því landi,“ sagði Ottó B. Ólafsson,
framkvæmdastjóri Delta hf. í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Oft þykir mönnum ekki taka
því að sækja um slíkt einkaleyfi
hér á landi sökum smæðar mark-
aðsins. Sú var raunin með hjarta-
lyfið Capoten og við hjá Delta
höfum því framleitt lyfið undir
nafninu Katopril undanfarin 3-4
Einkaleyfi renn-
ur fyrr út hér
en erlendis
ár. Annars staðar í Evrópu hafa
menn ekki haft leyfi til þess að
vinna með þetta efni fyrr en nú
að einkaleyfið rann út í 'Þýska-
landi. Árið 1997 rennur einka-
leyfi á lyfinu út í öðrum Evrópu-
löndum.“
Veltan tvöfaldast
Ottó sagði að samningaviðræð-
ur við aðila í Þýskalandi hefðu
staðið yfir síðusfu mánuði.
„Niðurstaðan er sú að næstu árin
munum við framleiða þetta lyf
fyrir Þýskalandsmarkað,“ sagði
STOK-
Frábærir HANKOOK vetrarhjólbarðar á einstöku verði!
145R12 4.990 2.990 stgr 185/60R14 7:490 4.490 stgr
155R12 -&r230” 3.130 stgr 195/60R14 -Q:20Ö 4.880 stgr
135R13 -47780 2.860 stgr 175/70R14 -6:6oö 3.990 stgr
145R13 5,100 2.980 stgr 185/70R14 -&040- 4.160 stgr
155R13 3.215 stgr 195/70R14 -7r830 4.690 stgr
165R13 -5t570- 3.340 stgr' 205/75R14 OtOSO 5.460 stgr
175/70R13 &.850 3.480 stgr 165R15 6t800" 3.780 stgr
185/70R13 -6:400- 3.850 stgr 185/65R15 7:060 4.470 stgr
175R14 -6460- 3.850 stgr 195/65R15 6r840 5.300 stgr
185R14 7:200 4.280 stgr 205/60R15 &G2& 5.770 stgr
1
Jeppadekk 25% afsl.
235 / 75 R 15 krAOÆOfr kr.7.650 stgr 30-9.50 R 15 kr.10.550 kr.7.912stgr
31-10,50 R 15 kr.WOSO kr.8.960 stgr 33-12.50 R 15 kr.T4.440 kr.10.830 stgr
Vörubíladekk 25% afsl.
12 R 22,5 /16PR kr.33.700 kr 25.275 stgr 315 / 80 R22,5 kr.38O80 kr.29.235 stgr
mmvmm:
SKÚTUVOGI 2
SÍMI 68 30 80
Ottó, en samningarnir við þýsku
kaupendurna ná til 2-5 ára.
Að sögn Ottós er gert ráð fyrir
að velta vegna sölu Katopril til
Þýskalands verði á bilinu 5-600
milljónir króna á þessu ári. Næstu
árin er reiknað með 400 milljóna
veltu árlega. „Velta Delta á innan-
landsmarkaði hefur verið 400-420
milljónir og við gerum ráð fyrir
henni óbreyttri á þessu ári. Með
þessum samningum í Þýskalandi
ríflega tvöfaldast velta fyrirtækis-
ins,“ sagði Ottó.
Unnið á vöktum
Undanfarið hefur verið unnið á
vöktum hjá Delta á meðan fram-
leitt hefur verið upp í fyrstu pant-
anir. Ottó sagðist gera ráð fyrir
því að áfram yrði þörf á vakta-
vinnu hjá fyrirtækinu, en til þessa
hefur nær eingöngu verið unnið
þar á dagvöktum.
malwíill
/7 meátd tufMa nétío:
Jíumcuij/uuii(kj. netfkÍMA, óiL
meá ifínaUoja
í Iwetukonju,
Qljóáitokkönd meí
HuAJumiáUt,
Mítnónuj/iauí,, knútée. “
meí oobyú ImjoAóiu,
SMldbrú
Roníapauicum l
6úna 62UU55