Morgunblaðið - 14.02.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 19
ERLEIMT
Ungbarni
rænt
LOGREGLAN í Norður-Wales
sagði á sunnudag að kona hefði
verið ákærð um að hafa rænt fjög-
urra daga gömlu stúlkubarni úr
fæðingardeild. Barninu var rænt
á föstudagskvöld og það fór heim
með foreldrum sínum á sunnudag.
Þetta er í fjórða sinn á fimm árum
sem ungbarni er rænt í Bretlandi
og yfirvöld hafa verið hvött til
þess að auka öryggisgæsluna á
sjúkrahúsum.
Eftir að móðirin grátbændi
barnsræningjann í sjónvarpi að
skila barninu, hringdu fjölmargir
í lögregluna með upplýsingar.
A myndinni afhendir Ijósmóðir
(t.v.) foreldrunum barnið.
Reuter
Kviðdómur í máli O.J. Simpsons í vettvangsferð
Gleyma seint
ríkidæminu
Los Angeles. Reuter. The Daily Telegraph.
KVIÐDÓMENDUR í máli O.J. Simp-
son, sem ákærður er fyrir morð á
fyrrverandi eiginkonu sinni og vini
hennar, Ron Goldman, fóru um helg-
ina í vettvangsferð í Brentwood-
auðkýfmgahverfið. Farið var að húsi
Nicole Brown Simpson, þar sem
morðin voru framin, að heimili Simp-
son og á veitingastaðinn sem Nicole
var á skömmu fyrir morðin en Gold-
man var þjónn þar. Að lokinni vett-
vangsferðinni lýstu bæði sækjendur
og veijendur því yfir að kviðdómur
væri hliðhollari sér en áður.
Geysilegar öryggisráðstafanir
voru gerðar vegna komu kviðdóm-
enda. Yfir 250 lögregluþjónar voru
á verði í hverfinu, götur voru lokað-
ar og ferðafrelsi íbúa hverfisins tak-
markað.
Meirihluti kviðdómenda er
blökkumenn og hafa fæstir kynnst
öðru eins ríkidæmi og sjá má í
Brentwood. Hefur vettvangsferðinni
verið líkt við sjónvarpsþáttinn „Lífst-
íll hinna ríku og frægu“. Laurie
Levenson, prófessor við Loyola laga-
skólann segir heimsóknina afar mik-
ilvæga. „Kviðdómendur munu
gleyma sumum spurningum og
myndum en þeir munu aldrei gleyma
því sem þeir sáu í þessari ferð.“
Simpson á heimaslóðum
O.J. Simpson fékk leyfi til að vera
viðstaddur er kviðdómendur fóru um
Brentwood-hverfið en vegna þrýst-
ings frá fjölskyldu Nicole Simpson
ákvað hann að fara ekki á morðstað-
inn. Hélt hann heim til sín og fylgd-
ist með kviðdómendum skoða sig
um.
Sækjandinn, Marcia Clark, sagði
að vettvangsferðin skipti miklu þar
sem hún myndi sannfæra kviðdóm-
endur um að vel hefði mátt komast
frá morðstaðnum og að húsi Simp-
sons í tíma til að panta glæsivagn
sem flutti Simpson út á flugvöll.
Verjendur hans hafa haldið því fram
að svo langt sé á milli húsanna að
það hefði verið ógerlegt.
Veijendur fullyrtu hins vegar að
heimsókn á morðstaðinn styddi þá
kenningu þeirra að fleiri en einn
árásarmann hefði þurft til.
Reuter
O.J. SIMPSON fékk leyfi til
fara heim til sín um helgina,
er kviðdómendur skoðuðu
heimili hans og morðstaðinn.
Komið var fyrir búnaði á
Simpson svo að lögregla gæti
lamað hann með raflosti,
reyndi hann að flýja.
Sænski sjóherinn í minkaleit
Kaupmannahofn. Morgunblaðið.
AF SEX kafbátaleitum í sænska skeijagarðinum
á árunum 1992-1993 er aðeins talið að í eitt
skipti hafi heyrst í kafbáti. í hin skiptin voru
það minkar á sundferð, sem ollu leitinni. Þetta
kom fram í ársskýrslu sænska hersins, sem birt
var fyrir helgi. Grunur um kafbátaferðir eru þó
ekki með öllu úr lausi lofti gripinn, því einu sinni
strandaði rússneskur kafbátur þegar hann var
óboðinn á ferð í sænska skeijagarðinum.
í árlegri skýrslu sænska hersins segir að fyr-
ir tæpu ári hafi verið ákveðið að rannsaka nán-
ar allar hljóðupptökur, sem taldar voru stafa frá
rússneskum kafbátum. Athugunin var ákveðin,
eftir að eftirlitsmenn duflanna námu hljóð, sem
hingað til hafa verið álitin kafbátahljóð, um leið
og þeir sáu mink á sundi skammt frá duflinu.
í skýrslunni segir að af öllum hljóðum, sem
numin hafi verið frá því í byijun síðasta áratug-
ar bendi nýjar rannsóknir til að þriðjungur þeirra
komi örugglega frá mink, meðan afgangurinn
geti hugsanlega komið frá dýrinu.
Kvörtunarbréf til Rússa
Síðasta örugga vitneskjan um kafbátaferðir
er frá lok september 1992. Þá var flogið með
Carl Bildt, þáverandi forsætisráðherra, á svæðið
og eftir ferðina sagðist hann vera sannfærður
um að um kafbát væri að ræða og ýjaði að því
að hann væri rússneskur.
í maí síðastliðnum skrifaði Bildt svo bréf í
nafni sænsku stjórnarinnar til Borís Jeltsíns, þar
sem hann kvartar undan kafbátaumferðinni og
segir vitneskju um hána vera sannfærandi. Bildt
segist ekki iðrast þess að hafa skrifað bréfið.
Frá 1980 hefur um þijátíu milljörðum ís-
lenskra króna verið varið til að efla kafbátaleit-
ina og viðvörunarkerfið. Thage G. Peterson,
varnarmálaráðherra Svía, segir engan vafa leika
á að nú verði sparað það fé, sem áður hafi farið
til kafbátaleitar. Ráðherrann segir niðurstöðu
skýrslunnar vandræðalega, en hún rýri ekki
traust til hersins.
Það eru þó ekki allir sammála ráðherranum
um að traustið til hersins sé hið sama eftir sem
áður. Auk þess er bent á að Rússar geti nú
neitað harðlega öllum ásökunum og aldrei verði
hægt að ganga úr skugga um að ásakanir á
hendur þeim hafi átt við rök að styðjast.
Þér eru allir vegir færir með Macintosh Performa 475
Macintosh Performa 475 er öflug einkatölva, sem
hentar sérlega vel hvort heldur er fyrir heimili,
skóla eða fyrirtæki. Hægt er að nota hana fyrir nánast
allt sem viðkemur námi, starfi eða leik.
Svo er hún með íslensku stýrikerfi og fjölmörgum
forritum á íslensku.
Macintosh Performa 475 er með
15" Apple-litaskjá, stóru hnappaborði, mús,
4 Mb vinnsluminni og 250 Mb harðdiski.
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA
RAOGREIÐSLUR
VtSA
\mUmm______________
TIL ALLT AO 24 MÁNAOA
* Upphæðin er meðaltalsgreiðsla með vöxtum, lántökukostnaði og færslugjaldi
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00