Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 49
FRÉTTIR
DAGBOK LOGREGLUNNAR
Rafmagnið tekið af
háværu samkvæmi
Sérfræðingafélag íslenskra lækna
Ekki verið sýnt
fram á sparnað
af tilvísunum
STJÓRN Sérfræðingafélags ís-
lenskra lækna gagnrýnir harðlega
tilvísanaskyldu til sérfræðilækna á
íslandi. Telur stjómin málið illa
undirbúið og að rök ráðuneytisins
um ávinning kerfisins standist ekki.
í ályktun sem stjómin sendi frá
sér um síðustu mánaðamót, segir
að ekki hafi tekist að sýna fram á
spamað af völdum tilvísanakerfisins.
Þvert á móti hnígi ýmis rök að því
að „sú tvöföldun og skriffínnska sem
kerfíð hefur í för með sér leiði, auk
óhagræðis, til aukins kostnaðar.
Núverandi kerfí læknisþjónustu er
skilvirkt, aðgengilegt og vel aðlagað
íslenskum staðháttum."
Reist á veikum grunni
Stjóm SÍL vísar jafnframt „al-
gjörlega á bug þeirri röksemda-
færslu að eitt meginmarkmið hinn-
ar nýju tilvísanaskyldu sé að bæta
boðskipti milli lækna á íslandi."
Virðist heilbrigðisráðuneytið ganga
út frá að sérfræðingar sendi engar
skýrslur til heimilislækna í yfir 70%
tilvika.
„Byggir ráðuneytið þar á laus-
legri könnun sem var gerð á einni
heilsugæslustöð fyrir 5 árum og tók
til tveggja mánaða." Niðurstöður
hafí hvergi verið birtar skriflega
og margir ágallar verið á fram-
kvæmd. Stjórnin lýsir furðu sinni á
að „ráðuneytið áformi svo róttækar
breytingar á íslensku heilbrigðis-
kerfi á svo veikum grunni. Lausleg-
ar kannanir gerðar á tveimur sér-
fræðilæknisstöðvum benda til þess
að heimilislæknum séu sendar
skýrslur í 70-90% tilvika."
Stjóm SÍL segir að tilvísana-
skylda feli í sér „skerðingu á lækn-
ingaleyfi sérfræðilækna, sem þurfa
að eiga það undir hópi kollega í
læknastétt, sem sjálfir eiga ríkra
hagsmuna að gæta og heiður að
verja, hvort veikt fólk á íslandi nær
að njóta sérfræðilæknisþjónustu
innan almannatryggingakerfisins,
sem það er skyldugt að greiða ið-
gjöld til. Stjómin harmar að ekkert
samráð skuli hafa verið haft við
læknafélögin eða samtök sjúklinga
í svo viðkvæmu og flóknu máli og
skorar á ráðherra að hætta við fyr-
irhugaða tilvísanaskyldu."
10.-13. febrúar
í DAGBÓKINNI eru skráð 326 tilvik
á tímabilinu. Af þeim er t.d. 41 vegna
ölvunar, 24 vegna umferðaróhappa,
19 vegna hávaða og ónæðis, 3 vegna
heimilisófriðar og ágreinings, 16
vegna innbrota og þjófnaða, 8 vegna
líkamsmeiðinga og 18 vegna rúðu-
brota og skemmdarverka.
Tíu ökumenn, sem afskipti voru
höfð af, era granaðir um ölvunar-
akstur. Enginn þeirra hafði lent í
umferðaróhappi. Auk þess voru 33
ökumenn kærðir eða áminntir fyrir
ýmis umferðarlagabrot. Um 700
manns vora í miðborginni aðfaranótt
laugardags og um 1.000 manns að-
faranótt sunnudags. Fremur illa viðr-
aði til útiveru. Vista þurfti á fjórða
tug manna í fangageymslunum af
ýmsum ástæðum.
Varð fyrir bíl
með barn í fanginu
Á föstudag varð harður árekstur
með tveimur bifreiðum á gatnamót-
um Höfðabakka og Bíldshöfða. Flytja
þurfti farþega úr annarri bifreiðinni
á slysadeild. Um minniháttar meiðsli
var að ræða. Um svipað leyti varð
kona fyrir bifreið þar sem hún var
á leið yfír Laugaveg við Barónsstíg
með barn í fanginu. Hún var flutt á
slysadeild en meiðsli virtust minni-
háttar.
Aðfaranótt laugardags var maður
fluttur á slysadeild eftir að hafa ver-
ið barinn í Hafnarstræti við Naustin.
Sparkað hafði verið í manninn all-
nokkram sinnum eftir að hann hafði
verið barinn og fallið í götuna. Um
töluverða höfuðáverka virtist vera
að ræða, en þó var ekki talið að
þeir hefðu verið alvarlegs eðlis.
Skömmu eftir kl. 4 aðfaranótt
laugardags var ungur maður stung-
inn með hnífi í Hafnarstræti utan
við einn skyndibitastaðinn. Hnífs-
blaðið kom í síðuna og var í fyrstu
talið að um alvarlega áverka væri
að ræða. Pilturinn var fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið. Þar kom í
ljós að áverkinn var minni en ætlað
var í fyrstu. Sá, sem stakk, var hand-
tekinn undir morgun. Óraunhæft er
að alhæfa um of um almennt
„ástand" mála í miðborginni út frá
tilvikum sem þessu.
Kona nefbrotin á veitingastað
Auk þeirra tveggja líkamsmeið-
inga, sem að framan er getið, var
maður sleginn á veitingastað í mið-
borginni, kona var nefbrotin á veit-
ingastað í austurborginni, maður var
meiddur eftir slagsmál í húsi í vestur-
borginni, veist var að ungri stúlku í
Vonarstræti, skrokkskjóður hlutust
af slagsmálum fólks í húsi í Vestur-
bænum og flytja þurfti tvo menn í
fangageymslu eftir slagsmál í húsi
við Hringbraut. í allflestum tilvikum
hafði áfengi verið haft um hönd.
Snemma á laugardagsmorgun
sást til þriggja pilta í Hafnárstræti
vera að hvolfa úr rasladöllum á göt-
una. Þeim var gert að tína raslið upp
aftur.
Flest mál tengjast
áfengisneyslu
Stórt hlutfall mála, sem lögreglan
þarf að hafa afskipti af um helgar-
nætur, tengist áfengisneyslu þeirra
er hlut eiga að máli með einum eða
öðrum hætti. Aðfaranótt laugardags
er t.d. sagt frá því í dagbókinni að
tilkynnt hafí verið um háværa tónlist
og mikinn hávaða í ölvuðu fólki í
fjölbýlishúsi nálægt miðborginni.
Þegar fólkið neitaði að sinna beiðni
lögreglumanna um að lækka var
rafmagnið tekið af íbúðinni. Lögregl-
an sinnti fjölmörgum fleiri kvörtun-
um vegna ölvaðs fólks þessa nótt. í
flestum tilvikum var um fullorðið
fólk að ræða.
Lýst eftir vitnum
LÝST er eftir vitnum að árekstri
tveggja bíla á Reykjanesbraut við
Stekkjarbakka, sem tilkynntur var
til lögreglu föstudaginn 3. febrúar
kl. 17.30. Suzuki Swift, ZS 570,
var ekið suður Reykjanesbraut.
Toyota Touring skutbíl, UZ 996,
var ekið vestur Stekkjarbakka og
beygt suður Reykjanesbraut. Öku-
mennina greinir á um stöðu ljósa
þegar óhappið varð.
Þeir sem kynnu að hafa orðið
vitni að þessum árekstri eru vin-
samlegast beðnir um að gefa sig
fram við rannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Karpov jafnaði, Kamsky öruggur
SKAK
Sanghi Nagar
á I n d i a n d i
UNDANÚRSLIT FIDE-HM
Bandaríkjamaðurinn Gata Kamsky
er orðinn næsta öruggur með að
tefla einvígið um heimsmeistaratitil
FIDE. Hann hefur hlotið fjóra vinn-
inga en Valery Salov, andstæðingnr
hans í undanúrslitum, aðeins einn.
Staðan hjá Anatóli Karpov og Boris
Gelfand er jöfn, Karpov vann fimmtu
skákina og jafnaði.
YFIRBURÐIR Kamskys gegn
Salov hafa verið miklir. Það hefur
komið á daginn að Salov hefur ekki
roð við Kamsky í flókn-
um stöðum og virðist
gersamlega missa átt-
irnar í erfiðum útreikn-
ingum. Salov hefur
löngum treyst á yfir-
burðatækni sína, en
hún hefur ekkert bitið
á Kamsky sem er ekki
síður sterkur í vörn en
sókn. Hann vann
fyrstu, þriðju og
fimmtu skákirnar á
hvítt, en hélt jafntefli
með svörtu í annarri
og fjórðu.
í hinu einvíginu lítur
út fyrir meiri spennu
því Anatólí Karpov,
FIDE-heimsmeistari,
teflir ekki nærri þvi
eins sannfærandi og oft áður.
Fyrstu tveimur skákunum lauk með
jafntefli, en Gelfand vann þá þriðju.
Karpov tókst strax að jafna og
fimmta skákin varð stutt jafntefli.
Karpov hefur hvítt í sjöttu skákinni.
Alls verða tefldar tíu skákir.
Kamsky dugar því einn og hálfur
vinningur til viðbótar til að tryggja
sér sigurinn. Hann sigraði Nigel
Short með yfirburðum, 5 V2-U/2, í
undanúrslitum PCA-áskorendaein-
vígjanna í haust. Hann gæti náð
sama árangri gegn Salov.
I könnun sem undirritaður
gekkst fyrir á meðal íslenskra
skákáhugamanna í vetur kom í ljós
að þeir hafa langmest álit á Kamsky
og telja hann líklegastan til að taka
við af bæði Kasparov og Karpov.
Hins vegar áleit enginn að Gelfand
ætti neina möguleika gegn Karpov.
En við skulum líta á þriðju skák
þeirra:
Hvítt: Boris Gelfand
Svart: Anatólí Karpov
Caro-Kann vörn
I. e4 - c6 2. d4 -
d5 3. e5 - Bf5 4. Rf3
- e6 5. Be2 - c5 6.
Be3 - cxd4 7. Rxd4
- Re7 8. c4! - Rbc6
9. Da4 - dxc4 10. Ra3
- Da5+
Byijun Gelfands
hefur heppnast vel og
hann er talsvert á und-
an í liðsskipan. Það er
því skiljanlegt að
Karpov skuli skipta
upp á drottningum.
Vandrægi hans eru þó
ekki úr sögunni:
II. Dxa5 - Rxa5 12.
Rab5! - Rd5 13. Rxf5
- exf5 14. Bd2 — a6
15. Rd4
Hér kom 15. Rd6+ - Bxd6 16.
exd6 - c3 17. bxc3 vel til greina
og tefla síðan með biskupapar gegn
riddarapari.
15. - Bb4 16. Rxf5 - 0-0 17.
Bxb4 - Rxb4 18. 0-0 - b5 19. f4
- Hfd8 20. Hadl - Kf8 21. Rd6
- Hab8 22. a3 - Rbc6 23. Bf3 -
Hd7 24. Hfel - Hc7 25. f5 - Hd8
26. Bg4 - h5?
Karpov hlýtur að hafa talið sig
geta unnið þetta peð til baka, en
vanmetið 28. leik hvíts. Rétt var
26. - Rb7! sem heldur í horfinu.
27. Bxh5 - Hcd7
• b C d t 1 0 h
28. Bxf7! - Hxd6 29. Hxd6 -
Hxd6 30. exd6 - Kxf7 31. d7 -
Rb7 32. He8 - Rbd8
Hrókur hvíts og frípeðið á d7
rígbinda nú svarta riddaraparið.
Peðameirihluti hvíts á kóngsvæng
ræður síðan úrslitum.
33. Kf2 - a5 34. Ke3 - Kf6 35.
g4 - Kg5 36. h3 - b4 37. axb4
- axb4 38. Kd2 - Kf6 39. h4 -
g6 40. fxg6 - Kxg6 41. h5+ -
Kh6 42. Kcl - Kg5 43. Hh8 -
Kf6 44. Hg8 - Kf7 45. He8 og
Karpov gafst upp. Eftir 45. - Kf6
46. h6 - Kg6 47. g5 - Kh7 48.
Hf8 er hann alveg leiklaus.
Arnar Norðurlandameistari
Arnar E. Gunnarsson sigraði í
flokki 16-17 ára á Norðurlandamót-
inu í skólaskák, einstaklingskeppni,
sem fram fór á Laugarvatni um
helgina. Góður árangur Arnars
kemur ekki á óvart eftir að hann
varð í öðra sæti á Skákþingi
Reykjavíkur um daginn. Davíð
Kjartansson varð í öðra sæti í flokki
12-13 ára, en fleiri íslendingar
komust ekki í verðlaunasæti.
Frammistaða okkar keppenda veld-
ur óneitanlega vonbrigðum eftir
góðan árangur undanfarinna ára.
Island hafnaði í þriðja sæti á sam-
anlögðum vinningum þjóðanna, á
eftir Svíum og Finnum.
Úrslit í einstökum flokkum:
18-20 ára:
1. ErikHedman.Svíþjóð 5'á v.
-2. JacobSylvan.Danmörku 4'ú v.
3. JanneMertanen.Finnlandi 4 v.
Magnús Örn Úlfarsson varð í
fimmta sæti með þijá vinninga og
Páll Agnar Þórarinsson í sjöunda
sæti með sömu vinningatölu.
16-17 ára:
1. AmarE.Gunnarsson 4‘/2 v.
2. Olle Salmesuii, Finnlandi 4 'h v.
3. Torstein Bae, Noregi 4V2 v.
Matthías Kjeld varð í tólfta sæti
með hálfan vinning.
14-15 ára:
1. Emanuel Berg, Svíþjóð 5 v.
2. Christoffer Persen, Svíþjóð 4 v.
3. Heikki Lehtinen, Finnlandi 4 v.
4. JónViktorGunnarsson 3'/2 v.
5. Bragi Þorfinnsson 3'/2 v.
12-13 ára:
1. Henrik El-Kher, Danmörk 5 v.
2. Davíð Kjartansson 4'/2 v.
3. Jonas Eriksson, Svíþjóð • 4 v.
Sigurður Páll Steindórsson varð
í sjötta sæti með 3 v.
11 ára og yngri
1. Espen Lie, Noregi 4 v.
2. Hans Tikkanen, Sviþjóð 4 v.
3. SimenSaitoNielsen.Danmörk 4 v.
Guðjón Heiðar Valgarðsson varð
í fimmta sæti með 3 'h v. og Hlynur
Hafliðason varð tíundi með hálfan
vinning.
GATA Kamsky er
að bursta Salov.
6. leikvika, ll.fcb. 1995
Nr. Leikur: Röðin:
1. Newcastle - Notth For. 1 - -
2. Man. City - Man. IJtd. - - 2
3. Chclsea - Tottenham - X -
4. Livcrpool - QPR - X -
5. Arscnal - Lcicester - X -
6. Norwich - Southamptn - X -
7. Leeds - Ipswich - X -
8. Aston V. - Wimblcdon 1 - -
9. C. Palace - Covcntry - - 2
10. Oldham - Middlesbro - X -
11. Barnsley-Tranmere - X-
12. Reading - Derby 1 - 13. Portsmouth - Millwall 1 -
Heildarvinningsupphæðin:
114 milljón krónur
13 réttir: | 15.315.100 | kr.
12 réttir: j 183.670 | kr.
11 réttir: | 11.250 | kr.
10 réttir: 2.330 kr.
ÍTALSKI BOLTINN
Nr. Leikur: Röðin:
Nr. Leikur:________________Röðin:
1. Bari - Juventus - - 2
2. Torino - Lazio 1 - -
3. Roma - Inter 1 - -
4. Fiorentina - Genoa 1 - -
5. Milan - Cagliari - X -
6. Sampdoria - Reggiana 1 - -
7. Brescia - Foggia 1 - -
8. Parma - Padova 1 - -
9. Perugia - Lucchese - X -
10. Palcrmo - Verona 1 - -
11. Ascoli - Atalanta - - 2
12. Cosenza - Piacenza - X -
13. Chievo - lldinese - - 2
Heildarvinningsupphæðin:
1S milljón krónur
13 réttir: | 172.930 kr.
12 réttir: j™ 4.720 kr.
11 réttir: j 480 kr.
10 réttir: | 0 | kr.
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN * VINNINGSHAFA
1.5 af 5 0 2.042.970
2Æ5d W* 164.600
3. 4af 5 98 5.790
4. 3alS 2.841 460
Heildarvinningsupphæð:
4.246.450
; BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
-kjarni málsins!
Margeir Pétursson