Morgunblaðið - 18.02.1995, Side 2
2 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Teknir með 12,5 millj.
virði af fíkniefnum
FÍKNIEFNALÖGREGLAN hefur lagt hald á
4 kg af hassi, 500 grömm af amfetamíni og
50 grömm af kókaíni sem fundust í fórum
þriggja 22 ára gamalla manna sem handtekn-
ir voru á mfðvikudag. Söluverðmæti efnanna
gæti numið allt að 12,5 milljónum króna á
götunni hér á landi.
Tveir mannanna voru handteknir í húsi í
Garðabæ og sá þriðji í Hafnarfirði eftir að
lögreglan hafði elt þá frá því að þeir vitjuðu
fíkniefnanna í vöruskemmu í Hafnarfírði en
þangað voru efnin flutt í vörusendingu, sem
kom til landsins með flutningaskipi frá Evr-
ópu.
Upphaflega var það hasshundur Tollgæslu
íslands sem fann efnin í vöruskemmunni og
lét tollgæslan fíkniefnalögregluna vita af
málinu og fylgdist lögreglan með skemmunni
og beið þess að efnin yrðu sótt.
Eltir þegar þeir sóttu efnin
Þegar mennirnir vitjuðu efnanna var þeim
fylgt eftir og handteknir og lagt hald á efnin
eftir að þau voru komin á endastöð.
Mennirnir voru í gær allir úrskurðaðir í
gæsluvarðhald í 14 daga vegna rannsóknar
málsins.
Rannsóknin er á frumstigi samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins en grunur leikur á
að mál þetta kunni að vinda upp á sig og
verða umfangsmeira áður en öll kurl koma
til grafar.
Meðal annars er verið að kanna hvernig
mennirnir stóðu að dreifingu efnanna og fjár-
mögnun en aðeins einn þeirra hefur áður kom-
ið við sögu fíkniefnamála.
Samkvæmt upp'lýsingum Morgunblaðsins er
gangverð af grammi á hassi á götunni nú um
2.000 krónur og samkvæmt því gæti söluverð-
mæti 4 kg af hassi numið 8 milíjónum króna.
Gramm af amfetamíni er sagt selt fyrir
4-7.000 krónur eftir gæðum efnisins og er
söluandvirði 500 gramma af efninu því 2-3,5
milljónir króna. Gramm af kókaíni getur selst
á 12-20 þúsund krónur hér á landi og er því
verðmæti 50 gramma af því efni 600 þúsund
krónur til 1 milljón, eftir því um hve hreint
' efni er að ræða.
Saintals gæti því söluandvirði þeirra fíkni-
efna sem mennirnir höfðu í fórum sínum við
handtöku numið allt að 12,5 milljónum króna.
ÁHRIF VERKFALLS „FLÓABANDALAGSINS“
Ef til boðaðs verkfalls félaga í
svonefndu Flóbandalagi kemur,
verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, Verkalýðs-
og sjómannafélags
Keflavíkur og Hlífar
{Hafnarfirði, yrðu
áhrifin mjög víðtæk:
Bensín- og olíuafgreiðsla
stöðvast og einnig flutn-
ingar með bensín og olíu
Ekki afgreitt bensín til flugvalla
og flugvélar ekki fermdar né
affermdar á Reykjavíkurflugvelli
Verkamenn hjá nki og Reykjavíkurborg a
og viðkomandi bæjarfélögunum leggja •
niðurvinnu. Þará meðal verkamenn hjá
rafmagnsveitum, hitaveitu og vatnsveitu,
Byggingaverkamenn ieggja niður
vinnu og verkamenn í
fiskvinnslu einnig.
Vinna í Mjólkursamsölunni í
Reykjavík stöðvast. Engin
mjólkurdreifing
Stefnt að sameiningu
fjárfestingarlánasjóða
Sjóðunum
breyttí
tvö hluta-
félög
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær
stefnumótun um framtíðarskipan
íjárfestingarlánasjóða atvinnuveg-
anna. Fiskveiðasjóði annars vegar
og Iðnlánasjóði og Iðnþróunarsjóði
hins vegar verður breytt í tvö hluta-
félög. Settur verður á fót nýsköpun-
arsjóður, sem fjármagna á verkefni
í öllum atvinnugreinum.
Að sögn Ólafs Davíðssonar, ráðu-
neytisstjóra, á samtímis stofnun
hlutafélaganna að stofna nefnd fulj-
trúa ríkis og atvinnuveganna. Nefnd-
in á að undirbúa samruna sjóðanna
tveggja, eða gera tillögur um fram-
tíðarskipan fjárfestingarlánasjóða.
Stefnt verður að því að framtíðar-
skipan verði komin á í ársbyijun
1998. „Það er lögð áherzla á samein-
ingu, en þó haldið opnu að einhver
önnur skipan verði ákveðin."
Sinni nýsköpun
Nýsköpunarsjóðurinn á að taka til
starfa um leið og hlutafélögin tvö.
Tekjur hans eiga að hluta til að koma
af þeim arði, sem verður til í hlutafé-
lögunum. Jafnframt verður tryggt
framlag af eigin fé Iðnþróunarsjóðs.
Samningur um Iðnþróunarsjóð
fellur úr gildi í marz og er stefnt að
þvl að breyta lögum um hann, þann-
ig að hann geti starfað til 1. júlí
1996 og sinni á því tímabili nýsköp-
unarverkefnum í auknum mæli.
Að sögn Ólafs er í stefnumótun
ríkisstjómar tekið fram að fulltrúar
atvinnulífs hafi haft áhrif á stefnu
og starfsemi fjárfestingarlánasjóð-
anna með setu í stjómum og nýskip-
an verði einungis hrint í framkvæmd
í samráði við þá.
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
segir að upptaka kerfís tilvísana á
sérfræðilæknisþjónustu sé innan
ramma ályktana síðasta landsfundar
Sjálfstæðisflokksins, þar sem sýnt
hafí verið fram á að með henni megi
spara í ríkisrekstrinum.
í landsfundarályktun Sjálfstæðis-
flokksins 1993 segir: „Hafnað er
hugmyndum um að endurvekja tilvis-
unarkerfi vegna sérfræðiþjónustu
lækna utan sjúkrahúsa, enda hefur
ekki verið sýnt fram á að slíkt kerfí
leiði til lækkunar á útgjöldum vegna
heilbrigðismála."
„Tilvísanakerfmu var hafnað á
þeim forsendum að það leiddi ekki
til sparnaðar," sagði Davíð við Morg-
unblaðið. „Forsendan fyrir því að
STJÓRNJR og trúnaðarmanna-
ráð verkamannafélagsins
Dagsbrúnar í Reykjavík og
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur samþykktu í gær
að boða til verkfalls frá þriðju-
deginum 28. febrúar hafi samn-
ingar þá ekki tekist. Verka-
mannafélagið Hlíf í Hafnarfirði
fjallaði einnig um verkfallsboð-
un í gærkvöldi.
Ekki verkfall í Leifsstöð
Dagsbrún boðar allsherjar-
verkfall sem tekur til allra við-
semjenda en í verkfallsboðun
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur eru Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og Keflavíkurflug-
völlur undanskilin verkfalls-
boðun.
Krislján Gunnarsson, for-
maður félagsins, segir ástæð-
una þá að auk félaga í VSFK
starfi á Keflavíkurflugvelli fé-
lagar í þremur öðrum verka-
fallizt var á sjónarmið Sighvats
Björgvinssonar heilbrigðisráðherra á
sínum tíma var að hann telur að
þetta spari um 100 millj. kr., en
landsfundur hafnaði tilvísanakerfi ef
það sparaði ekki neitt. Ég tel því að
við séum innan þess ramma.“
Heilbrigðisnefnd Sjálfstæðis-
flokksins hefur sagt tilvísanakerfíð
ganga gegn stefnu flokksins. For-
sætisráðherra segir þetta skiljanlegt,
en tilvísanakerfi geti, ef það heppn-
Verkfall
hefði víð-
tæk áhrif
lýðfélögum á svæðinu, það er
að segja verkalýðsfélaga í
Garðinum, Grindavík og Sand-
gerði. Það hafi ekkert upp á
sig að einungis hluti verka-
manna leggi niður vinnu.
Félagssvæði þessara félaga
nær frá Botnsá í Hvalfirði og
tekur til alls höfuðborgarsvæð-
isins og Suðurnesja, ef Grinda-
vík, Sandgerði og Garðurinn
eru undaskilin.
Verkfall myndi hafa mikil
áhrif. Allur inn- og útflutning-
ur um hafnir í Reykjavík, Hafn-
arfirði og Keflavík mun stöðv-
ast, ieitt til skilvirkari heilbrigðis-
þjónustu.
„Ég man af gamalli reynslu að
gamla tilvísanakerfíð var komið í
ógöngur og ég held að menn ætli
að reyna að varast þau slys. Heil-
brigðisráðherra hefur tekið mið af
athugasemdum, sem fram hafa kom-
ið, og mildað tillögur sínar verulega.
Hann hefur jafnframt gefíð til kynna
að þær séu til endurskoðunar fallnar
og hann sé opinn fyrir viðræðum um
ast. Bensín- og olíuafgreiðsla
og flutningar með bensín og
olíu, þar á meðal til Keflavíkur-
flugvallar, stöðvast.
Mjólk ekki pakkað
Vinna í Mjólkursamsölunni í
Reykjavík stöðvast og því verð-
ur mjólkurvörum hvorki pakk-
að né dreift í búðir. Verkamenn
hjá ríki og Reykjavíkurborg og
viðkomandi bæjarfélögum
leggja niður vinnu, þ.ar á með-
al hjá rafmagnsveitum, hita-
veitu og vatnsveitu. Bygginga-
verkamenn ieggja einnig niður
vinnu og verkamenn í fisk-
vinnslu.
Verkfall mun ekki ná til
starfsemi ríkisverksmiðjanna
eða álversins í Straumsvík eftir
því sem næst verður komist,
þar sem að kjarasamningum
þar standa mörg stéttarfélög,
auk þeirra félaga sem boðað
hafa átök.
breytingar allt fram undir 1. maí
þegar reglugerðin á að taka gildi.“
Davíð sagði rétt að heilmikil and-
staða væri við tilvísanakerfíð innan
Sjálfstæðisflokksins.
„En í þessari spamaðarviðleitni
voru 100 milljónir tengdar þessari
aðgerð. Innan Sjálfstæðisflokksins
eru líka margir, sem telja að þessi
tilhögun sé í samræmi við það, sem
annars staðar gerist, og í samræmi
við skilvirkt heilbrigðiskerfi, þ.e. að
menn fái grunnþjónustu þar sem hún
er ódýrari og líka leiðbeiningar fag-
manna um það hvar sérfræðiþjón-
ustu sé að finna. Það er ekki víst
að hver maður sé fær um að álykta
um það sjálfur. Ég myndi sjálfur
fara fyrst til míns heimilislæicnis,“
sagði forsætisráðherra.
Ránin
bæði
upplýst
SJOPPURÁNIN tvö sem
framin voru í Kópavogi og
Breiðholti í vikunni eru bæði
upplýst. 18 ára piltur var í gær
úrskurðaður í 14 daga gæslu-
varðhald vegna rannsóknar á
ráninu í Breiðholti. Játning
liggur fyrir, að sögn lögreglu.
Piltamir tveir sem þar ógn-
uðu 16 og 17 ára unglingum
með hnífí á miðvikudag og
komust undan með um 60
þús. kr. í peningum voru hand-
teknir, annar í gær og hinn í
fyrradag. Þeir em báðir 18
ára. Annar var úrskurðaður í
14 daga varðhald vegna rann-
sóknarinnar í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Pilturinn sem komst undan
með 10-15 þúsund krónur úr
ráni í Kópavogi á þriðjudags-
kvöld var handtekinn í fyrra-
dag og telst það mál einnig
upplýst. Starfsfólk þess sölu-
tums handtók félaga hans á
staðnum.
Lægra trygg-
ingagjald á
kvikmyndir
KVIKMYNDAIÐNAÐUR fer í
lægra þrep tryggingagjalds,
samkvæmt tillögu efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis.
Jafnframt verður gjaldhlutfall
í lægra þrepi hækkað um
0,05%.
Nefndin leggur til að gisti-
þjónusta falli undir lægra
þrep, en skattstjórar "hafa
metið það svo að með hótel-
gistingu, sem nú er í lægra
þrepi, sé aðeins átt við gistingu
á hótelum en ekki bændagist-
ingu, gistingu í orlofshúsum
eða á tjaldstæðum.
Efra þrep tryggingagjalds
er nú 6,35% en lægra þrepið
3%. Við það að kvikmyndaiðn-
aður fari í lægra þrepið verður
ríkissjóður af 20-25 milljónum
króna á ári og víkkun á skil-
greiningu á gistiþjónustu kost-
ar ríkissjóð 10-15 milljónir á
ári. Hækkun lægra þrepsins í
3,05% á að skila um 35 milljón-
um króna árlega og því á af-
koma ríkissjóðs ekki að breyt-
ast.
Handtekinn
eftir innbrot
MAÐUR var handtekinn 1
fyrrinótt í Austurstræti 6 þar
sem hann hafði brotist inn.
I húsnæðinu er verið að inn-
rétta veitingastað en starfsemi
hefur ekki verið hafin. Maður-
inn komst inn um glugga Vall-
arstrætismegin og inn í
geymslu í kjallara þar sem
hann fannst á bak við hurð.
Hald var lagt á fjóra sígar-
ettupakka, fjóra kveikjara,
sundgleraugu, penna, rak-
spíraglös, reiknivél, skæri, og
fleira sem maðurinn var með
í plastpoka innan klæða.
Þegar kynna átti manninum
réttarfarsákvæði sagðist hann
ekki þurfa slíkar upplýsingar,
hann vissi vel hver staða hans
væri í þessu máli, enda hefur
hann oft komið við sögu sams
konar mála hjá lögreglu. Hann
var færður í fangageymslu.
Davíð Oddsson forsætisráðherra um samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokks
Tilvísanakerfi
innan rammans