Morgunblaðið - 18.02.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 7
FRETTIR
Ráðherraskipti
650 þúsund krón-
ur í biðlaun
RÁÐHERRASKIPTI hafa kostað
ríkissjóð tæpar 650 þúsund krónur
á kjörtímabilinu, en tveir fyrrver-
andi ráðherrar hafa fengið greidd
biðlaun.
Þetta kemur fram í svari fjár-
málaráðherra á Alþingi við fyrir-
spurn Jóhanns Ársælssonar þing-
manns Alþýðubandalagsins, en Jó-
hann óskaði eftir því að biðlaun
yrðu sundurliðuð á einstaka ráð-
herra.
Samkvæmt lögum á að greiða
fyrrverandi ráðherrum biðlaun í sex
mánuði eftir að þeir láta af emb-
ætti og eru biðlaunin 70% af launum
ráðherra. Ef sá sem nýtur biðlauna
tekur stöðu í þjónustu ríkisins falla
biðlaunin niður ef nýju launin eru
jafnhá eða hærri, en ella greiðist
launamismunurinn.
Fjórir hættu
Fjórir ráðherrar létu af störfum
á valdatíma rikisstjórnar Davíðs
Oddssonar. Eiður Guðnason lét af
starfi umhverfisráðherra 1. júlí
1993 og þáði biðlaun til 31. ágúst
sama ár en þá tók hann við starfí
sendiherra í Noregi. Biðlaun til
hans námu samtals 162 þúsund
krónum.
Jón Sigurðsson lét af störfum
sem ráðherra 30. júní 1993 en afsal-
♦ » ♦
Blómastofa
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
BLÓMVÖNDURINN
TILBÚINN FYRIR
KONUDAGINN.
V A !l
- kjarni málsins!
aði sér rétti til biðlauna: Jóhanna
Sigurðardóttir lét af ráðherrastörf-
um 24. júní 1994 og fékk greidd
biðlaun frá 1. júlí til 31. desember
1994, samtals 486 þúsund krónur.
Guðmundur Ámi Stefánsson lét af
störfum sem ráðherra 12. nóvember
á síðasta ári en hafði ekki áunnið
sér rétt til biðlauna þar sem ráð-
herrar þurfa að hafa gegnt stöð-
unni í a.m.k. tvö ár.
Morgunblaðið/Birgir Valsson
Gæzlumenn
ávallt
viðbúnir
TAKMARK starfsmanna Land-
helgisgæzlunnar er að vera
ávallt viðbúnir þvi óvænta, sem
að höndum ber. Því eru gjarnan
æfingar í hverri ferð og nýlega
kom varðskipið Ægir úr eftir-
litsferð. I ferðinni voru haldin
tvö námskeið fyrir áhöfnina til
þess að fríska upp á kunnátt-
una. Bæði var æfð reykköfun
og eins lífgun úr dauðadái.
Myndin sýnir einn skipveijann
á Ægi æfa réttu handtökin við
lífgunartilraunir.
Stungið á
bíldekk
LÖGREGLUNNI í Reykjavík var
í gærmorgun tilkynnt um að
stungið hefði verið á dekk sex bíla
á Sunnuvegi og Holtavegi.
Aðfaranótt 7. febrúar sl. voru
samskonar skemmdir unnar á átta
bílum við þessar sömu götur, auk
Langholtsvegar.
Ekki er vitað hver eða hverjir
þama hafa verið að verki. Ef ein-
hveijir hafa orðið varir gmnsam-
legra mannaferða við þessar götur
á áðumefndum tímum em þeir
vinsamlegast beðnir að gefa sig
fram við rannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Öruggari fjölskyldubil
færbu ekki fyrir
kr. 999.000.-
Meb skráningu og íslenskri rybvörn
• Tvöfaldir styrktarbitar í huröum
• Bílbeltastrekkjarar undir framsætum
• Stillanleg hæb öryggisbelta fyrir farþega í fram- og aftursætum
• Útvarp og segulband meb þjófavörn og 6 hátölurum
• Heilir hjólkoppar
Bílasýning
laugardag
&
sunnudag
kl.14 - 17
Komib og
reynsluakib
öruggasta
bílnum í
þessum
verbflokki.
Vib klcebskerasaumum Corsa ab þínum óskum.
• Tvær vélastærðir, 1200cc og 1400cc
• Sjálfskipting sem er fjögurra gíra með
sportstillingu, sparnaðarstillingu og spólvörn.
Alfelgur, vökvastýri, samlæsingar með
þjófavörn, höfuðpúðar fyrir aftursæti og
margt, margt fleira getum við boðið þér með
"öruggasta bílnum í þessum verðflokki"
Fossháls 1 110 Reykjavík Sími 634000