Morgunblaðið - 18.02.1995, Side 10
10 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
HJÚKRUNARHEIMILI í MJODD
ASTÆÐUR þess að núver-
andi meirihluti borgar-
stjómar slítur samstarfi
við stjóm hjúkmnarheim-
ilisins Eirar um byggingu nýs hjúkr-
unarheimilis við Arskóga í Suður-
Mjódd og tekur upp samstarf við
Reykjavíkurdeild Rauða kross ís-
lands eru bæði fjárhagslegar og hug-
myndafræðilegar, að sögn Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra.
Nýja stefnan er að byggja minni
stofnanir og taka þær fyrr í notkun
ásamt því að draga úr framlagi borg-
arinnar. Sjálfstæðismenn í minni-
hluta borgarstjórnar gagnrýna
vinnubrögð borgarstjóra harðlega,
segja hana vera að svíkja samkomu-
lag við Eir. Forráðamenn Eirar segj-
ast hafa unnið að málinu í samvinnu
við borgina og telja sig hafa munn-
legan samning um verkefnið. Þeim
líst síður á áform borgarstjóra um
minna og sjálfstætt heimili, telja sín-
ar hugmyndir betri. Komið hefur til
tals hjá stjómarmönnum í Eir að
heíja framkvæmdir í Mjódd þó borg-
in hætti þátttöku og hafa þeir leitað
hófanna hjá nágrannasveitarfélög-
unum.
Reykjavíkurborg hefur á undan-
fömum ámm verið í samstarfí við
ýmis verkalýðsfélög og félagasamtök
um uppbyggingu hjúkrunarheimila
fyrir aldraða, fýrst um byggingu
Skjóls við Kleppsveg og síðan Eirar
í Grafarvogi. Að hluta til standa
sömu aðilar að þessum heimilum og
þau hafa verið rekin í náinni sam-
vinnu þó sitt hvort félagið standi að
þeim. Borgin hefur lagt fram 40%
byggingarkostnaðar á móti sömu
fjárhæð Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Ymsir aðrir aðilar hafa greitt 20%.
Við byggingu Eirar lögðu Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur og Seltjam-
ameskaupstaður fram stærsta fram-
lagið af 20% hlutanum en einnig
reiddu Félag blindra og blindravina,
Félag aðstandenda alzheimersjúkl-
inga, Sjómannadagurinn í Reykjavík
og Hafnarfirði og sjálfseignar-
stofnunin Skjói fram hluta af kostn-
aði. Reksturinn er greiddur með
framlögum á fjárlögum ríkisins.
Undirbúningur staðið frá 1991
Páll Gíslason, fyrrverandi formað-
ur byggingamefndar aldraðra í
Reykjavík, sem jafnframt er fulltrúi
borgarinnar í stjóm Eirar og stjórn-
ararformaður, segir að brýn þörf sé
á fjölgun hjúkmnarheimila fyrir aldr-
aða í borginni. Á annað hundrað
manns sé á biðlista og 20 bætist við
á hveiju ári.
Séra Sigurður H. Guðmundsson,
forstjóri Skjóls og Eirar, segir að í
byijun árs 1991, þegar framkvæmd-
ir við Eir stóðu yfír, hafí farið fram
viðræður milli borgaryfirvalda og
stjómar Eirar um hvað ætti að taka
við þegar Eir yrði lokið. í framhaldi
af því hafí borgin úthlutað Eir lóð
fyrir hjúkmnarheimili í Suður-Mjódd.
Undirbúningur fyrir bygginguna hafí
síðan verið í höndum Eirar en borgin
greitt útlagðan kostnað í gegn um
embætti borgarverkfræðings. Rætt
hafi verið um að kostnaður borgar-
innar yrði hluti af væntanlegu fram-
lagi hennar. Sigurður segir að unnið
hafi verið að hönnun heimilisins og
sú vinna sé komin vel áleiðis. Fram-
kvæmdir hefðu þess vegna getað
hafíst í vor og að því verið stefnt
þar til fréttist af viðhorfsbreytingu
hjá borgaryfirvöldum.
Að sögn Sigurðar var gert ráð
fyrir því að borgin greiddi 40% kostn-
aðar eða 350 milljónir kr.
af þeim 880 sem bygging-
in átti að kosta, Fram-
kvæmdasjóður aldraðra
40% og Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur, Ör-
yrkjabandalagið, Sam- "
band íslenskra berklasjúklinga,
Verkakvennafélagið Framsókn og
Starfsmannafélagið Sókn legðu sam-
eiginlega fram 20%. Fjögur síðast-
nefndu samtökin vom ekki þátttak-
endur í Eir í Grafarvogi en gengu í
samtökin í sumar í þeim tilgangi að
taka þátt í nýju uppbyggingunni.
„Menn treystu orðum“
Sigurður segist líta svo á að gerð-
ur hafí verið munnlegur samningur
við borgaryfirvöld um byggingu
hjúkrunarheimilisins og unnið hafi
verið að undirbúningi í náinni sam-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Þór Magnússon, formaður Reykjavíkurdeildar Rauða
kross íslands, takast í hendur að lokinni undirritun viljayfirlýsingar um byggingu í Suður-Mjódd.
Hver á að byggja
og hvað stórt?
Forráðamenn Eirar segja borgaryfirvöld
bijóta munnlega samninga með því að slíta
samstarfí við sjálfseignarstofnunina um
byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í
Suður-Mjódd. Borgarstjóri segir fram-
kvæmdina of stóran bita fyrir borgina og
telur heppilegra að byggja minni hjúkrunar-
heimili en Eir hefur staðið að. Helgi Bjarna-
son kynnti sér viðhorf deiluaðila.
„Hagræði að
hafa öll helm-
ilin undir
sama hatti“
vinnu við byggingamefnd aldraðra á
sama hátt og við Eir í Grafarvogi.
Ætlunin hafi verið að ganga form-
lega frá samningi þegar málið væri
komið lengra, eins og við fyrri bygg-
inguna. Menn hefðu treyst orðum.
Hann segir að stjóm Eirar hafí ekki
verið látin vita um breytingar á
áformum en heyrt það úti í bæ þeg-
ar leið á árið. Eins og staðan er orð-
in segist hann harma að ekki hafí
verið gengið frá skriflegum samningi
og segist mikið vilja gefa fyrir að
það hefði verið gert.
Páll Gíslason segir að vissulega
hafí verið eftir að ganga endanlega
frá samningum en það hafí dregist
vegna þess að menn hefðu verið að
leita nýrra aðila til að taka þátt í
uppbyggingunni og ekki hefði tekist
að ganga frá þeim enda fyrr en í
-------- sumar. Hann segist sjá
það nú að þó málið hafí
virst traust, sérstaklega
með tilliti til þess að Eir
hafí fengið lóðina, að rétt
hefði verið að treysta
——— grundvöll samstarfsins
betur með því að gera um það form-
legan samning.
Páll bendir á að við fjárhagsáætlun
fyrir árið 1994 hafí borgarstjóm
samþykkt að fara út í þetta verk-
efni. Umrædd samþykkt er svohljóð-
andi: „Borgarstjóm Reykjavíkur
samþykkir að byggja í samvinnu við
ýmis samtök hjúkrunarheimili fyrir
aldraða, staðsett í Suður-Mjódd. Þar
verði veitt fullkomin þjónusta fyrir
sjúk gamalmenni, sem ekki er lengur
hægt að veita fullnægjandi aðstoð
heima. Leitað verði samstarfs við
aðila sem vilja vinna að þessu máli
á svipuðum grunni og haft var við
byggingu og rekstur hjúkrunarheim-
ilanna Skjóls og Eirar.“
Sjálfseignarstofnunin Eir ætlaði að
byggja Eir í Mjódd og auk þess voru
uppi áform um að sameina félagið
sem byggði Skjól. Telur Sigurður að
mikið hagræði felist í því að hafa
nýja heimilið undir sama hatti. Nefn-
ir hann sameiginlegar bakvaktir
lækna, bókhald og innkaup, auk þess
sem ætlunin hafi verið að nýta eldhús-
ið í Eir í Grafarvogi fyrir nýja heimilið.
„Of stór biti“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir að ýmsar ástæður hafí
valdið því að núverandi borgarstjórn-
armeirihluti hafi breytt um. Áform
hefðu verið um ansi stórt heimili og
kostnaðarhluti borgarinnar væri of
stór biti. „Fjárhagsstaða borgarinnar
er með þeim hætti að okkur fannst
ástæða til að skoða hvort við gætum
ekki minnkað heimilið og með því
móti slegið tvær flugur í einu höggi:
Lækkað kostnaðarhlut borgarinnar
og komið heimilinu fyrr í notkun.“
Borgarstjóri segir að við val á
samstarfsaðilum hafi bæði verið
hugsað um að þeir hefðu peninga
og svipaðar hugmyndir um öldrun-
arþjónustu. Leitað hafí verið til
Reykjavíkurdeildar Rauða kross ís-
lands þar sem þetta tvennt hafi farið
saman.
Borgin og Reykjavíkurdeildin und-
irrituðu í gær viljayfirlýsingu um
byggingu hjúkrunarheimilis í Mjódd
með allt að 80 rýmum sem kosta á
480 milljónir. Gert er ráð fyrir að
hægt verði að skipta framkvæmdum
í tvo áfanga þar sem í þeim fyrri
yrðu um 50 rými og þau tekin í notk-
un eftir tvö ár. Reykjavíkurborg mun
greiða 30% kostnaðar eða 190 milij-
ónir og RKÍ 18,75% eða 90 milljónir
kr. Öðrum hefur verið boðin þátttaka
með 11,25% hluta.
Þór Halldórsson, formaður
Reykjavíkurdeildar RKÍ og yfirlækn-
ir Óldrunarlækningadeildar Landsp-
ítalans, segir að Reykjavíkurdeildin
hafí lengi unnið að öldrunarmálum,
reki dagvistun og stoðbýli fyrir heila-
bilað fólk og dagvistun fyrir aldraða.
Því hafí verið tekið vel í ósk borgar-
innar um frekara samstarf. Endanleg
ákvörðun yrði þó ekki tekin fyrr en
á aðalfundi í apríl.
Þór telur að það tæplega 130
sjúklinga heimili sem Eir ætlaði að
byggja sé of stór stofnun. „Við viljum
frékar sjá smærri heimili dreifð um
borgina. Það er í samræmi við þróun-
ina í nágrannalöndunum," segir Þór.
„Hagræði af samrekstri“
Páll Gíslason segir aðalatriðið að
byggja yfír gamla fólkið, ekki hver
geri það, og segist vonast til að
málið tefjist sem minnst. Hann telur
þó að nýju valdhafarnir séu ekki
nógu stórtækir. Stjóm Eirar lagði
nýlega til við borgina að áfram yrði
haldið með fyrri hugmyndir en fleiri
fengnir til samstarfs þannig að hlut-
ur borgarinnar gæti lækkað í 25%.
Sigurður H. Guðmundsson telur að
Eir hafí verið að gera góða hluti í
þessu máli. Það sé nú í biðstöðu en
hann vonast til að það leysist farsæl-
lega. Deilur bitni einungis á gömlu
sjúku fóiki.
Ingibjörg Sólrún telur rétt að hafa
nýja heimilið sjálfstætt.
„Skjól og Eir er orðin
nokkuð stór stofnun, með
um 220 rúm undir. Þá
fínnst mér rétt að fá aðra
valkosti í öldrunarþjón-
ustu og Rauði krossinn —
fær tækifæri til að setja sitt svipmót
á nýja heimilið," segir hún.
Varðandi hagræðingu af sam-
rekstri með Skjóli og Eir í Grafar-
vogi segir borgarstjóri að hægt sé
að ná hagræðingu með ýmsu móti.
Ekki sé gert ráð fyrir framleiðslueld-
húsi í Mjódd og mögulegt verði að
bjóða matinn út eða kaupa hann af
Eir eða framleiðslueldhúsi sem borg-
in verði með við Skúlagötu. Þá eigi
borgin þjónustumiðstöðina í Mjódd
sem húsið verður byggt við og þar
skapist ýmsir möguleikar til hagræð-
ingar með samnýtingu húsnæðis.
„Samningar brotnir“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagn-
rýnir vinnubrögð borgarstjóra harka-
lega og á fundi félagsmálaráðs fyrir
skömmu lét hann færa mótmæli sín
til bókar. Vilhjálmur segir að for-
ráðamenn Eirar hafí unnið að þessu
verkefni undanfarin ár í einlægu
samstarfí við borgina enda einhugur
ríkt meðal fulltrúa bæði meirihluta
og minnihluta um málið. Nú frétti
þessir menn á skotspónum af öðrum
áformum. Segir hann að borgarstjóri
virðist ætla að brjóta munnlegan
samning sem gerður hafi verið um
málið. Þá hafí félagsmálaráði, sem
tekið hafí við verkefnum byggingar-
nefndar aldraðra, verið algerlega
haldið utan við málið.
„Við viljum halda áfram samstarfí
við Eir sem borgarfulltrúar allra
flokka stóðu að og mótmælum óheil-
indum i verklagi borgarstjóra sem
er að læðupokast með þetta mál.
Hún hefur ekki gert hreint fyrir sín-
um dyrum,“ segir Vilhjálmur.
Ingibjörg Sólrún neitar því að
borgin sé að bijóta samninga, Það
sé hins vegar ámælisvert af hálfu
fyrrverandi borgaryfirvalda að fara
út í þetta samstarf og greiða 18
milljónir fyrir hönnun án þess að
ganga frá samningi eða samþykkt í
borgarstjóm. Telur hún að samþykkt
borgarstjómar frá febrúar í fyrra,
sem birt er fyrr í þessari grein, sýni
að borgarstjórn hafí þá ekki verið
búin að gera það upp við sig hvort
Eir ætti að hafa forystu um málið.
Hún viðurkennir að viss stefnumörk-
un hafi falist í því að úthluta Eir
byggingarrétti en bendir á að hægt
sé að úthluta lóðum án þess að lofa
þar með þátttöku í framkvæmdum.
Lóðarúthlutun afturkölluð?
Borgarstjóri svarar því ekki beint
þegar spurt er hvort lóðin verði tek-
in af Eir, segir að leitað verði eftir
samkomulagi um það. Ljóst sé að
ekki verði byggt upp þama nema
með samkomulagi við borgaryfirvöld,
t.d. sé þjónustumiðstöðin í eigu borg-
arinnar. Þá segist hún líta svo á að
hönnunarvinnan sé eign borgarinnar
sem hafi greitt kostnaðinn. „Eðlilegt
er að nýr meirihluti borgarstjómar
marki stefnuna í öldrunarmálum og
ég skil ekki að samtök eins og Eir,
sem borgin er aðili að, vilji standa í
vegi þess að aðrir fái að spreyta sig,“
segir Ingibjörg.
Séra Sigurður og Páll Gíslason
segjast engu geta svarað um afstöðu
stjómar sjálfseignarstofnunarinnar til
væntanlegrar beiðni borgarinnar um
að hún afsali sér byggingarréttinum.
Rætt við Kópavog og Garðabæ
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur sú hugmynd verið
rædd meðal Eirarbænda að halda
áformum sínum til streitu, þrátt fyr-
ir að Reykjavíkurborg hætti sam-
starfí við þá. Leitað hefur verið til
bæjaryfírvalda í Kópavogi og
Garðabæ í þessu sambandi. Ingi-
mundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, staðfestir að málið hafí
verið rætt óformlega við sig oftar
en einu sinni. Sér hafi skilist að það
yrði með Reykjavík og Kópavogi.
Segir hann að bæjarstjórnin eigi óaf-
greidda umsókn um byggingu hjúkr-
unarheimilis í bænum en það breyti
því ekki að bæjarstjómarmenn séu
alltaf tilbúnir að ræða góðar hug-
myndir. Telur hann það litlu breyta
---------- þó Reykjavík verði ekki
með, nægilegt sé að Eirar-
menn standi þar á bak við.
Umsókn Eirar um fram-
lag úr Framkvæmdasjóði
aldraðra til framkvæmda
í Mjódd barst heilbrigðis-
ráðuneytinu í lok nóvember eða byij-
un desember 1993. Hrafn Pálsson,
deildarstjóri öldrunarmála, segir að
hún sé óafgreidd. Borgaryfírvöld
hafi látið vita um nýjar hugmyndir
og ekki yrði tekin afstaða til málsins
fyrr en málin hefðu verið gerð upp
innan borgarinnar. Má skilja á Hrafni
að afstaða sveitarfélagsins ráði
nokkru um afgreiðslu sjóðsstjórnar,
það beri ábyrgð á öldrunarþjónustu
auk þess sem hann bendir á að
Reykjavíkurborg hafi ætlað að eiga
stóran hlut að því verkefni sem sótt
var um framlag fyrir.
„Viljum frekar
smærrl heim-
III dreif A um
borgina“