Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR BENEDIKT Torfason selur öll brauð á hundrað kall. Yfir helgi er hann með 10-12 mismunandi brauðteg- undir. Brauðið er nýbakað í Húsinu á sléttunni í Hvera- gerði og um síðustu helgi bauð hann upp á nokkrar rúgbrauðstegundir, kúmenbrauð, kanilbrauð, álfa- brauð og brauð með lambahakki og kryddi, svo eitt- hvað sé tint til. HÖSKULDUR Sæmundsson selur Eyrartúns kartöflur fyrir tengdaföður sinn sem er bóndi í Þykkvabænum. Reyndar er eiginkonan og dóttir bóndans Pálína Guð- laugsdóttir ekki víðs fjarri og þau koma allar helgar til að selja föstu viðskiptavinunum sínum kartöflur. Kílóið kostar 60 kall og það eru gullauga og Ólafs rauðar kartöflur sem fást á þeim bás. VIÐ komum að básnum þar sem verið var að selja hákarl frá Bjarnarhöfn á 600 - 1.200 kílóið. Maður sem var að kaupa hákarlsbita tjáði okkur að hákarl- inn væri ómissandi með morgunmatnum. Hann full- yrti að hákarlinn kæmi magastarfseminni af stað og væri allra meina bót. Islenskur húðmýkir úr hákarla- lýsi fékkst á staðnum. P8 Morgunblaðið/Sverrir BRÆÐURNIR Haukur og Örn Clausen létu sannfærast og keyptu „töfrasmyrslið" hennar Gerðar Benediktsdóttur sjúkranuddara, sem hefur í þrjátiu ár unnið með íslenskar jurtir og lengi búið til eigin smyrsl úr þeim. Haukur og Örn koma reglulega í Kola- portið tíl að kaupa m.a. Ólafs rauðu kartöflurnar, „stórkostlega“ Íifrarkæfu, síldina hjá Bergi, Gerðaharðfísk og regnbogasilung frá Geiteyjarströnd við Mývatn. MAGNEA Sigurbergsdóttir hefur selt í Kolaportinu í nokkur ár, t.d rófur, gulrætur, mandarínur, lauk, kaffí, bygg, brodd, kjúkl- inga og fleira. Hálfan lítra af broddi selur hún á 200 krónur. Matvörudeildin í Kolaportinu Persónuleg þjónusta og vinalegt andrúmsloft ÞAÐ sem skapar þetta sérstaka andrúmsloft sem ríkir í „matvöru- deild** Kolaportsins er að hitta grænmetis- bóndann og geta rætt við hann um kartöflum- ar, smakka hákarlinn hjá verkandanum og spyrja bóndann um broddinn sem hann er að selja. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir kíkti í Kolaportið. AÐ kann að vera að vinsæld- ir „matvörumarkaðarins" í Kolaportinu séu að hluta til vegna stórmarkaðanna, þar sem viðskiptavinimir ná litlu persónu- legu sambandi við afgreiðslufólkið. „Ilmurinn" er sérstakur, sam- bland af hákarli, brauði og þessari lykt sem fylgir dótinu í Kolaport- inu. Ég hef komið við í „matvöru- deildinni" undanfarnar helgar, keypt saltfísk, nýbakað brauð og fundið þar frábærar kartöflur. Nærri undantekningarlaust hefur verið nóg að gera. Viðskiptavinirnir staldra við og spjalla Það er áberandi hversu lengi margir viðskiptavinanna staldra við til að spjalla og ég er ekki frá því að hjá sumum sem kaupa í matinn þama sé það ekki síður mikilvægt að labba á milli manna í þessu vin- gjamlega umhverfi og rabba um daginn og veginn. Andrúmsloftið milli seljenda er líka sérstakt og auðfundið að á milli þeirra hefur myndast samstaða og þeir passa hver upp á annan. Matvaran hefur verið stúkuð af í Kolaportinu og úrvalið er ótrúlega mikið í ekki stærra húsnæði. Þar er hægt að festa kaup á kjúklingum, kútmaga, hrefnukjöti, fiskibollum, hangikjöti, saltfiski, kartöflum, rófum, nýbök- uðu brauði, reyktum laxi, harðfiski, kökum, síld, ávöxtum og svo mætti lengi telja. Þurfa tilskilin leyfi Allir sem selja matvöm þurfa leyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur til að tryggja að farið sé að settum reglum og að varan sé frá viðurkenndum framleiðanda. Kæli- og frystivara þarf að vera geymd á réttan hátt og umbúða- merkingar eiga að vera eftir settum reglum. Yfirleitt er það innpökkuð matvara en þó á það ekki alltaf við. raftækjum og eldhusaholdum AFSLÁTTUR ALLT AÐ 70%!! ^e^iaisti tJagurí s,ðaopíð ‘» «■14 Ei inar Farestveit & Co hf. Borgartúni 28 - ® 562 2901 og 562 2900 • • Oðruvísi skóli í verkfalli kennara SKÓLI Johns Casablanca á Grensásvegi 7 í Reykjavík hyggst halda námskeið frá kl. 8 til 12 og frá kl. 13 til 17 í verkfalli kennara. Hvert námskeið stendur yfir í viku og segir Kolbrún Aðalsteins- dóttir að námskeiðin séu annnars vegar ætluð bömum 6-8 ára og hins vegar eldri en níu ára. Skólinn hefur starfað í tæp þrjú ár og boðið námskeið af ýmsu tagi, meðal annars í dansi, söng, leikrænni tján- ingu, framsögn, slökun, kurt- eisi og feimni auk kennslu í tengslum við auglýsingar og tískusýningar. Námskeið í kennaraverkfalli verða á svip- uðum nótum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.