Morgunblaðið - 18.02.1995, Page 17

Morgunblaðið - 18.02.1995, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 17 VIÐSKIPTI Keppinautar Microsoft hrósa sigri Seattle. Reuter. KEPPINAUTAR hugbúnaðarfyrir- tækisins Microsoft hafa fagnað því að dómari hafnaði óvænt samkomu- lagi, sem fyrirtækið hafði gert við bandarísk stjórnvöld í sambandi við hringamyndanir, og segja að sam- kvæmt því hefði Microsoft fengið of mikil völd. „Úrskurðurinn gefur tilefni til jafhvel enn strangari ráðstafana til þess að tryggja fijálsan markað," sagði Joseph Guglielmi, forstjóri Taligent, sameignarfyrirtæki Apple og IBM. Umdæmissaksóknarinn Stanley Sporkin kom Microsoft óþægilega á óvart á þriðjudaginn þegar hann hafnaði samkomulagi á þá leið að Microsoft breytti fyrirkomulagi á veitingu leyfa fyrir hugbúnað frá fyrirtækinu gegn því að dómsmála- ráðuneytið í Washington félli frá ákæru um hringamyndun. Hlutabréf í Microsoft lækkuðu um 1.125 dollara í 60.75 dollara vegna óvissu um hvað gerast muni næst í rannsókn er hófst fyrir fimm árum á viðskiptaháttum fyrirtækis- ins, sem keppinautar hafa lengi talið óheiðarlega. Áhrif á Intuit Úrskurðurinn gæti haft áhrif á fyrirhuguð kaup Microsoft á Intuit, sem framleiðir hugbúnað fyrir heimilisbókhald, á 1.5 milljarða dollara. Hlutabréf í Intuit lækkuðu um 3 dollara í 65.50 vegna vaxanda efasemda sérfræðinga um að kaup- in verði að veruleika. Sporkin sagði í úrskurði sínum að í samkomulagi er hefði náðst í fyrrasumar hefði ekki verið gengið nógu langt í þá átt að bæta úr „ein- okunaraðferðum" Microsofts.“ Tom Lemberg, ráðunautur Lotus Development Corp., kvað nauðsyn- legt að ræða frekar áhrif Micros- ofts á markaðnum og yfirburða- stöðu fyrirtækisins í hugbúnaðar- iðnaðinum vegna úrskurðar Spork- ins dómara. Breytingar á Windows 95? Sérfræðingar segja að úrskurð- urinn geti leitt til breytinga á Windows 95 hugbúnaðinum og haft áhrif á fyrirhugaða beintengingar þjónustu Microsofts, sem hefur vak- ið ugg um að fyrirtækið nái yfir- burðum á nýjum sviðum „Ég tel að lítil hugbúnaðarfyrir- tæki verði ánægð með niðurstöð- una,“ sagði Russell Glitman, rit- stjóri PC World Magazine. „Hún bendir til þess að betur verður fylgzt Símafélög slíta samningi New York. Reuter. BELL Atlantic-símafélagið hyggst slíta margra milljarða dollara samn- ingi við AT&T um lagningu gagn- virks myndbandsnets til átta millj- óna heimila að sögn New York Tim- es. Ákvörðunin fylgir í kjölfar tveggja mánaða deilna AT&T við svæðasímafélög um verðákvarðanir og eftirlit og er mikið áfall fyrir AT&T að sögn blaðsins. Bell Atlantic rekur símaþjónustu á svæðinu frá Virginíu til New Jers- ey á austurströndinni og hefur lagt meira kapp á að kóma á mynd- bandsþjónustu en önnur Bell- svæðafélög. Félagið hyggst veija um 5 milljörðum dollara á næstu fimm árum til gagnvirka mynd- bandsnetsins. með því hvemig 'Microsoft hefur ráðið markaðnum. Óljóst er hvað gerist næst eftir úrskurð Sprokins, sem sérfræðing- ar telja einstæðan. Microsoft kveðst kanna möguleikana í stöðunni og segir að fyrirtækið muni að svo stöddu halda áfram að hlíta ákvæð- um samkomulagsins frá því í fyrra- sumar. INÝU MlDNÆTliRMATSr.DILL Opið til kL ol virka daga og til kl o3 um belgar Borðapantanir sími 561 31 31 Frá fimmtudegi til fimmtudags Opið virka daga 9 - 20 laugardag 10-17 sunnudag 13-17 Xcr-t’: [-• • V v,; , V. w M ■ ■k Æ ■ fl kCÍil^ rwl ■ I húsi Ingvars Helgasonar hf. að Sœvarhöfða 2. Þar fœrð þú á frábœru 'i' f 11 rk 1 m§t Bliöll og jafnvel fyrstu 6-8 mánuðina. Visa eða Euro greiðslukjör. fyrsta hálfa árið fylgir bílnum og fl m \ wm 1 ' 'm iflsin T M miðað við meðalakstur á meðalbil. Ingvar Helgason hf. Sœvarhöfða 2 Sími 674848

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.