Morgunblaðið - 18.02.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 19
____FRÉTTIR; EVRÓPA_
Finnar andvíg-
ir sambandsríki
Helsinki. Morgnnblaðið.
ESKO Aho, forsætisráðherra
Finna, sagði í stefnuræðu á þriðju-
daginn að Evrópusambandið (ESB)
yrði áfram samstarfsgrundvöllur
sjálfstæðra þjóðríkja. Með þessu
útilokaði Aho að Finnar tækju þátt
í þróun ESB í átt að sambandsríki.
Að mati Ahos er hagur Finna
fólginn í því að fleiri mál verði af-
greidd með ákvörðun meirihluta
aðildarríkja. Núverandi reglur
krefjast þess að öll ríki samþykki
ákvarðanir sambandsins. Aho er
þeirrar skoðunar að mikilvægt sé
að mál varðandi til dæmis umhverf-
isvernd verði afgreidd þrátt fyr-
ir andstöðu einstakra ríkja.
Aho skýrði frá ESB-stefnu ríkis-
stjómarinnar í allsheijarumræðu
þingsins sem á að móta stefnu
Finna í Evrópumálum á næstunni.
Athyglisvert þykir að Aho vísaði
alfarið á bug hugmyndum um þátt-
töku Finna í vamarsamstarfí vest-
rænna ríkja. Samt hafa skoðana-
kannanir sýnt að mikilvægasti þátt-
urinn í ákvörðun Finna að greiða
atkvæði með ESB-aðild hafí verið
von um vaxandi hemaðarlegt ör-
yggi í skjóli Vesturveldanna.
JUPPE og Hurd í þungum þönkum í
Sartýevo í fyrra. Samkomulagið er
ekki sem bezt núna.
Juppe
ræðst á
Hurd
• ALAIN Juppe, utan-
ríkisráðherra Frakk-
lands, gagnrýndi Dou-
glas Hurd, brezkan
starfsbróður sinn, harð-
lega í gær fyrir ummæli
um þróunarstarf Evr-
ópusambandsins. Hurd
vill skera framlag Breta
til þróunarstarfs í ACP-
löndunum svokölluðu
verulega niður. Juppe
sagði að það væri
„hvorki pólitískt né siðferði-
lega veijandi" að skera niður
framlögin. Hann benti á að
framlag Breta til þróunarað-
stoðar hefði minnkað úr 0,38%
af landsframleiðslu í byrjun
seinasta áratugar í 0,31% nú. Á
sama tíma hefði framlag
Frakka vaxið úr 0,54% af lands-
framleiðslu í 0,61%. Juppe gaf
lítið fyrir þá röksemd Hurds
að Bretar myndu auka tvíhliða
aðstoð sína við þróunarríkin á
kostnað sameiginlegrar aðstoð-
ar ESB. „Hvar á þetta allt að
enda? Á að hætta öllum sameig-
inlegum verkefnum Evrópu-
sambandsins?" spurði Juppe.
• FJÁRMÁLAJÓFURINN
George Soros segir að sameig-
inlegur gjaldmiðill sé eina vitið
fyrir Evrópuríkin. Frakkland
og Þýzkaland eigi að halda sínu
striki í því efni, jafnvel þótt
Bretar vilji ekki vera með. Sor-
os græddi milljarða króna á
hruni evrópska gengissam-
starfsins árið 1992 og brott-
hvarfi sterlingspundsins úr
samstarfinu.
• SIR Leon Brittan, fram-
kvæmdastjórnarmaður í ESB
og fyrrverandi ráðherra
brezka íhaldsflokksins, segir
að vextir muni hækka í Bret-
landi, verði ríkið ekki aðili að
sameiginlegri mynt Evrópu-
sambandsins. í ræðu í Cam-
bridge-háskóla lagði Brittan
áherzlu á að störfum myndi
fjölga, jafnframt því sem vextir
lækkuðu með sameiginlegri
mynt. Þessir kostir myntbanda-
lags væru hins vegar lítið í
umræðunni í Bretlandi.
• Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI
á fimmtudag skipaði John Maj-
or forsætisráðherra Bretlands
ráðherrum sínum að ræða ekki
opinberlega stjórnskipuleg
áhrif sameiginlegs gjaldmiðils.
Daginn áður hafði Kenneth
Clarke, fjármálaráðherra, sagt
í blaðaviðtali að myntbandalag
ógnaði ekki tilveru Bretlands
sem þjóðríkis.
Frakkar undir í
kvótamálinu
Bordeaux. Reuter.
FRAKKAR hlutu ekki stuðnings
eins einasta Evrópusambandsríkis
við áform sín um kvóta á sjón-
varpsefni frá löndum utan Evrópu
á fundi menningarmálaráðherra
ESB fyrr í vikunni.
Þrátt fyrir góðan viðurgjöming
í köstulum og vínkjöllurum Borde-
aux lýsti enginn menningarmála-
ráðherra yfír stuðningi við frönsku
stjómina í baráttu hennar gegn
Hollywood-kvikmyndum og amer-
ískum sápuóperam.
Von bráðar kemur tillaga fram-
kvæmdastjómar ESB um kvóta á
erlent sjónvarpsefni fyrir ráð-
herraráð sambandsins. í tillögunni
segir að helmingur sjónvarpsefnis
skuli vera evrópskur „þar sem því
verður við komið.“ Frakkar leggj-
ast gegn þessari setningu og telja
hana munu. verða lagalegt skjól
sjónvarpsstöðva, sem einkum vilja
sýna amerískt efni.
Falla núverandi takmarkanir
úr gildi?
Ósamkomulagið um sjónvarps-
kvótana gæti leitt til þess að ekki
takist að afgreiða nýjar reglur
fyrir marzlok. Fari svo, gætu nú-
verandi takmarkanir fallið úr gildi.
Evrópskir framleiðendur kvik-
mynda og sjónvarpsefnis óttast
nú mjög að svo fari. Marcelino
Oreja, sem fer með menningarmál
í framkvæmdastjórn ESB, lagði
til á fimmtudag að nýir kvótar
yrðu tímabundnir.
Menningarmálaráðherrarnir
ræddu ýmsar aðrar leiðir til að
styðja við bakið á evrópskum kvik-
myndaiðnaði, en ekki hefur heldur
náðst nein formleg niðurstaða um
þau mál.
Hversu stór verður 'ann?
Tvöfaldur fyrsti vinningur á laugardag!
Landsleikurinn okkar!
MERKISMENN