Morgunblaðið - 18.02.1995, Page 20
20 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Vindur fór
úr seglum
skútanna
Deilur Dana og Færeyinga um bankarannsókn
Færeyingar áJíla Dani
STÖÐVA varð keppni í Amer-
íkubikarnum í siglingum undan
San Diego í Bandaríkjunum í
fyrrakvöld er skyndilega féll á
stafalogn. Skúturnar komust
ekki milli bauja á tilskildum
tíma. Á myndinni hefur skip-
veiji á áströlsku skútunni Sydn-
ey 95 klifið hátt upp í sigluna
til þess að spyrna böttungi á
sinn stað.
Sérfræðingur af-
hjúpar tölvuþrjót
hlaupa frá loforðum
Reuter
Raleigh, Norður-Karolínu. Reuter.
TÖLVUÞRJÓTUR einn á yfir
höfði sér 500.000 dollara sekt og
35 ára vist innan fangelsismúra,
verði hann fundinn sekur um stór-
felld svik og þjófnað.
Dlvirkinn, sem er 31 árs, var
handtekinn á miðvikudag en hans
hafði verið ákaft leitað, raunar svo
að einsdæmi mun vera. í tvö ár
stundaði þijóturinn, Kevin nokkur
Mitnick, iðju sína sem einkum fólst
í því að stela upplýsingum frá fyr-
irtækjum með þvi að bijótast inn
í gagnabanka þeirra auk þess sem
hann mun hafa komist yfir 20.000
krítarkortanúmer.
Síðast braust Mitnick inn í tölvu
sérfræðings eins, Tsutomu Shimo-
mura, sem starfar í San Diego.
Shimomura tókst hins vegar að
rekja slóð hans með því að nota
ótilgreindan, háþróaðan tölvubún-
að. Alls tók sú leit um tvær vikur
og tók fjöldi manns þátt í henni.
Dagblaðið The New York Times
sagði á fimmtudag að aldrei áður
hefði verið gerð svo víðtæk leit
að tölvuþijóti.
Ekki liggur fullljóst fyrir hvort
og þá hvaða upplýsingar Mitnick
seldi. Þá er heldur ekki fullkannað
hvort hann átti sér vitorðsmenn.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
JÓGVAN Sundstein, fyrrum fjármálaráðherra Færeyja, segir að bæði Poul
Schlúter, fyrrum forsætisráðherra Dana, og Poul Nyrup Rasmussen hafí lof-
að færeysku landstjóminni að Den Danske Bank myndi forða Færeyjabanka
frá gjaldþroti. Meðal færeyskra stjómmálamanna er það útbreidd skoðun
að hvorki Jafnaðarmannaflokkurinn né íhaldsflokkurinn vilji dómsrannsókn
í gjaldþrotamáli Færeyjabanka vegna
þess að hún'leiði í ljós svikin loforð.
Þetta kemur fram í viðtali við
Sundstein í Politiken. Af hálfu
íhaldsflokksins hefur verið bent á
að Færeyingar geti aðeins dregið
dönsku stjórnina og Den Danske
Bank fyrir dóm, ef þeir áliti sig
hafa verið hlunnfarna. Uffe Elle-
mann-Jensen, formaður Vinstri-
flokksins, styður kröfu Færeyinga
um dómsrannsókn og segir tillögu
íhaldsflokksins einkennast af
ósæmilegum hroka. Teikn eru á lofti
um að einhveijir þingmenn stjórnar-
flokkanna muni snúast á sveif með
Færeyingum og þar með gætu
stuðningsmenn dómsrannsóknar
orðið í meirihluta á þingi.
Sundstein segist tvisvar hafa
fengið loforð frá dönsku forsætisráð-
herrunum um að Den Danske Bank
myndi sjá Færeyjabanka fyrir nægi-
legu fjármagni. Síðan hafi bankinn
hlaupist frá skuldbindingum sínum,
samkvæmt Sundstein, og þá með
samþykki dönsku stjómarinnar. Eft-
ir samningaviðræður danskra aðila,
án þátttöku Færeyinga, buðu Danir
Færeyingum að yfirtaka hlutabréf
bankans, án þess að Færeyingar
þyrftu að leggja fram fé vorið 1993.
Áður en árið var á enda þurfti land-
stjórnin að leggja bankanum til sem
svarar þrettán milljörum króna.
Sundstein segir landstjórnina hafa
tekið við hlutabréfunum í góðri trú,
en að dönsku stjórninni hafi hins
vegar veri vel ljóst að mikið tap blasti
við bankanum.
Nyrup hafnar dómsrannsókn
Það eru þessar aðstæður, sem
færeyska landstjómin vill nú fá á
hreint og álítur að ekki sé hægt að>
rannsaka til hlítar, nema með dóms-
rannsókn. Öðmvísi sé ekki tryggt
að viðkomandi aðilar leggi fram öll
skjöl í málinu og án dómsrannsóknar
sé ekki hægt að yfirheyra eiðsvarin
vitni. Nymp Rasmussen hafnar
dómsrannsókn og vitnar í bréf for-
seta Hæstaréttar, sem hefur farið
fram á að dómsrannsókn eins og í
Tamílamálinu verði ekki gerð aftur,
meðal annars vegna þess að niður-
staða slíkrar rannsóknar hafí ekki
dómsgildi.
París. Thc Daily Telegraph.
DANIELLE, eiginkona Francois Mitterrands,
forseta Frakklands, segir í nýju viðtali að hún
sé stolt af ferli eiginmannsins og kveðst þess
fullviss að hann myndi sigra væri hann í fram-
boði í kosningunum í vor. Frú Mitterrand veit-
ir afar sjaldan viðtöl og athygli vekur að hún
féllst á að ræða um dóttur Mitterrand, sem
forsetinn eignaðist með ástkonu sinni.
Frú Mitterrand segir í viðtali sem tímaritið
VSD birti á fimmtudag að hún sé stolt af því
að hafa verið eiginkona Francois Mitterrand í
hálfa öld og lætur þess getið að hann sé sér-
lega aðlaðandi maður.
Danielle Mitterrand, sem er sjötug að aldri,
hefur átt við heilsubrest að stríða og þurfti
tvívegis að gangast undir hjartauppskurð í
fyrra.
Fullkunnugt um Mazarine
Forsetafrúin féllst á að ræða um dóttur
Mitterrands, Mazarine, sem er tvítug en hana
eignaðist forsetinn með ástkonu sinni, Anne
Pingeot. Það vakti mikla athygli utan Frakk-
lands er mynd af forsetanum og dóttur hans
birtist í frönsku tímariti í fyrra. Blaða- og
stjórnmálamönnum var kunnugt um að forset-
inn ætti laundóttur en frá því hafði ekki verið
skýrt á opinberum vettvangi. Frökkum fannst
hins vegar flestum freklega vegið að einkalífí
forsetans er myndin var birt.
„Langar þig að tala um Mazarine? Það er
nokkuð sem er okkar tveggja á milli og kemur
þér ekkert við,“ segir eiginkonan og bætir við
að henni hafi verið fullkunnugt um að maður
hennar ætti dóttur er fréttin birtist í Frakk-
landi. „Það vissu þetta allir og því velti ég því
Lífið, dauð-
inn o g laun-
dóttir Mitt-
errands
DANIELLE og Francois Mitterrand.
fyrir mér hvers vegna blöðin voru svo lengi
að komast að þessu. Við biðum hin rólegustu
eftir því að frá þessu yrði skýrt.“
Danielle Mitterrand getur þess að eiginmað-
ur hennar hafi haft áhyggjur af því að upplýs-
ingar þessar myndu koma illa við hana þar sem
hún hafi verið alvarlega sjúk er þær voru opin-
beraðar.
„Ég hughreysti hann og tjáði honum að
þetta myndi aðeins verða til þess að dýpka
samband okkar vegna þess að við yrðum að
styðja hvort annað. Sannaðu til, eftir nokkra
mánuði verður nafnið Mazarine orðið mjög
vinsælt - enda er þetta fallegt nafn.“
Gleði og sorg
Frúin segir 10. maí 1981 mesta gleðidaginn
í lífi hennar en þá sór Francois Mitterrand
embættiseið forseta Frakklands. „Ég minnist
þess hve alþýðan gladdist. Fólk tárast enn
þegar það rifjar dag þennan upp.“
Iiún kveður sjálfsmorð Pierre Beregovoy,
fyrrum forsætisráðherra, einn átakanlegasta
atburð sein hún hafi upplifað.
Frú Mitterrand ræðir veikindi sín í viðtalinu
við franska tímaritið og kveðst hafa farið þess
á leit við lækna sína að þeir leyfðu henni að
deyja í svæfingu á meðan ein aðgerðin fór
fram. „Blessunarlega fóru þeir ekki að vilja
mínum.“
Hún segir eiginmanninn oftar fitja upp á
dauðanum í samtölum þeirra en forsetinn er
sagður helsjúkur af krabbameini. „Þá segi ég.
Við lifum nú. Við sjáum hvað gerist þegar
dauðann ber að garði.“
Dóttir Del-
ors stofnar
hreyfingu
SÓSÍALISTINN Martine
Aubry, dóttir Jacques Delors,
fyrrum forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins,
hefur stofnað nýja stjórnmála-
hreyfingu tii að hressa upp á
vinstrivæng franskra stjóm-
mála. Aubry, sem er 44 ára,
var áður atvinnumálaráðherra.
Hún sagði að nýju samtökin
„Agir“ (Framtak) myndu leita
nýrra lausna á efnahagsvand-
anum og atvinnuleysinu. Hún
segist ekki munu segja sig úr
Sósíalistaflokknum og að hún
styðji Lionel Jospin, frambjóð-
anda flokksins í forsetakosn-
ingunum í apríl.
Yfir 60 fórust
í eldinum
SEXTÍU og fjórir menn létust
í eldsvoðanum, sem kom upp í
veitingahúsi í borginni Taic-
hung á Tævan á miðvikudags-
kvöld. Eldsvoðinn er hinn
mannskæðasti í nútímasögu
eyjunnar en flestir létu lífið
vegna þess að þeir önduðu að
sér eiturgufum sem mynduðust
þegar innanstokksmunir
brunnu. Yfírvöld sögðu að 12
að auki hefðu slasast, þar af
fjórir alvarlega. Engir opnan-
legir gluggar voru á húsinu,
engir neyðarútgangar og að-
eins einar dyr á jarðhæð.
Myrtur við
gröf móður
sinnar
ALSÍRSKUR blaðamaður, Dja-
mel Ziater, var myrtur í gær
við gröf móður sinnar í bænum
Gdiel í Austur-Alsír. Víst þyk-
ir, að íslamskir bókstafstrúar-
menn hafi verið að verki en
Ziater er 32. blaðamaðurinn,
sem týnt hefur lífi í óöldinni í
landinu frá því í júní 1993.
Bókstafstrúarmenn beina
spjótum sínum sérstaklega að
menntuðu fólki og útlending-
um.
Astarsögun-
um úthýst
YFIRVÖLD í Singapore hafa
skipað fjölmiðlum í landinu og
einkum tímaritum að birta
minna af efni um ástir og kyn-
ferðismál. Segja þau, að slíkar
sögur hafi slæm áhrif á al-
mennt siðferði og komi oft alls
konar grillum inn í hausinn á
ungu fólki.
Gefur á bát-
inn hjá Major
BRESKI
íhaldsflokk-
urinn beið
auðmýkjandi
ósigur í kjör-
dæmi Neil
Kinnocks,
fyrrverandi
formanns
Verkamannaflokksins, í fyrra-
dag en til aukakosninga var
efnt þegar Kinnock tók sæti í
framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins. Fékk hann að-
eins 3,9% atkvæða en var með
14,8% i síðustu kosningum.
Síðasta skoðanakönnun í Bret-
landi bendir til, að Verka-
mannaflokkurinn fengi 49%
atkvæða í almennum kosning-
um en íhaldsflokkurinn 31%.