Morgunblaðið - 18.02.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 21
Meint fjármálaspilling í Frakklandi
Gæti valdið
Chirac og
Balladur vanda
París. Reuter.
RANNSÓKN á meintri fjármála-
spillingu í húsnæðiskerfí Parísar og
útborga og aðild stærsta stjórn-
málaflokksins, Lýðveldisflokksins
(RPR), að henni kann að valda for-
setaframbjóðendunum Edouard
Balladur forsætisráðherra og
Jacques Chirac, borgarstjóra París-
ar, talsverðum vanda.
Málið snýst um það hvort hluti
af illa fengnum hagnaði af bygg-
ingastarfsemi á vegum húsnæðis-
nefndar Parísar og útborgarinnar
Hauts-de-Seine hafi runnið í sjóði
gaullistaflokksins RPR, flokks
Balladurs og Chiracs. Um er að
ræða meint kerfísbundið misferli.
Chirac hefur verið borgarstjóri í
17 ár ög Hauts-de-Seine er vígi
Charles Pasqua innanríkisráðherra,
sem er öflugasti bandamaður
Balladurs í kosningabaráttunni
vegna forsetakjörsins í vor.
Rannsókn hefur staðið yfir frá
því í fyrra og leiddi hún í nóvember
til afsagnar ráðherrans Michels
Roussins, sem var á sínum tíma
helsti aðstoðarmaður Chiracs í ráð-
húsi Parísar. Hann er sakaður um
að hafa tekið við illa fengnu fé fyr-
ir hönd RPR.
Titringur í stjórninni
Rannsóknin beinist nú að fleiri
nánum samverkamönnum Chiracs
og Pasqua. Hún hefur valdið titr-
ingi innan ríkisstjórnarinnar að
undanfömu þar sem Pasqua hefur
veist að dómsmálayfírvöldum fyrir
málsmeðferðina og Jacques Toubon
menningarmálaráðherra, valda-
mesti stuðningsmaður Chiracs,
krafíð Balladur skýringa.
Eric Halphen dómari, sem stjórn-
ar rannsókninni, lét framkvæma
húsleit hjá Georges Perol, nánum
samverkamanni Chiracs, í kjör-
dæmi borgarstjórans í Correze í
fyrradag. Tilgangurinn var að kom-
ast yfír gögn sem talin vom geta
sannað ólögmæta fjármálastarf-
semi Lýðveldisflokksins. Perol er
fyrrverandi formaður húsnæðis-
nefndar Parísar.
Þá fékk málið nýja pólitíska vídd
er dómstóll úrskurðaði í síðustu viku
að lögreglan hefði beitt ólögmætum
símhlerunum er hún hjálpaði stjóm-
málamanni, sem er bandamaður
Pasqua, til þess að leiða tengdaföð-
ur Halphens dómara í gildru. Til-
gangurinn með því var að skemma
fyrir rannsókninni á fjármálaspill-
ingu RPR.
Pasqua lét niðurstöðuna ekki
afskiptalausa og sakaði dómstólinn
um að binda hendur lögreglunnar
við rannsókn málins. Þessu reiddist
Pierre Mehaignerie. Pasqua fékk
það óþvegið úr ýmsum áttum og
var m.a. sakaður af forsetaefni
sósíalista, Lionel Jospin, um til-
raunir til að hafa áhrif á gang
réttvísinnar.
Reuter
EDOUARD Balladur, forsætisráðherra Frakklands og frambjóð-
andi í forsetakosningunum í april (fyrir miðju), ásamt Simone
Veil, heilbrigðisráðherra (t.v.) og Charles Pasqua innanríkisráð-
herra á fyrsta kosningafundi Balladurs í gær.
Ný gögn um mafíu-
tengsl Andreottis
Skýrslurnar orðnar 80.000 síður
Róm. Reuter.
ÁKVÖRÐUN um formlega ákæru
á hendur Giulio Andreotti, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ítalíu, vegna
samstarfs við mafíuna var frestað
í gær um eina viku. Var ástæðan
sú, að saksóknarar höfðu fengið
ný gögn í hendur, sem veijendurnir
áttu eftir að kynna sér.
Dómarar í Palermo á Sikiley hafa
lagt fyrir dómarann nýja skýrslu upp
á 1.300 blaðsíður um tengsl Andre-
ottis og mafíunnar en veijendur
hans töldu sig þurfa viku til að kynna
sér þau. Er þetta í þriðja sinn sem
ákvörðun um réttarhöld er frestað
vegna nýrra gagna í málinu.
Andreotti var forsætisráðherra
sjö sinnum og eins konar persónu-
gervingur Ítalíu eftir stríð. Er hann
sakaður um að hafa verið pólitískur
guðfaðir mafíunnar í 14 ár að
minnsta kosti eða til ársins 1992.
Sjálfur vísar hann þessum ásökun-
um á bug sem ósönnum.
Nýtt vitni gegn Andreotti
Rannsókn á máli Andreottis hef-
ur staðið í tvö ár og eru rannsóknar-
skýrslurnar samtals 80.000 síður.
Nýju gögnin eru byggð á vitnis-
burði Gioacchinos Penninos, fyrr-
verandi borgarfulltrúa Kristilega
demókrataflokksins í Palermo.
Samstarf hans við lögregluna hefur
leitt til handtöku tveggja manna,
Calogeros Manninos, fyrrverandi
ráðherra, og Vincenzos Inzerillos,
fyrrverandi öldungadeildarmanns,
og eru báðir sakaðir um að hafa
starfað fyrir mafíuna.
Félags íslenskra bókaútgef
Framtíðarhúsinu, Faxafeni 10
raC
S O),
rö <D s
3-CÖ
E i
raC ■
nýtt
Félag íslenskra
bókaútgefenda
Eymundsson
Framtíðarhús[ð.Faxafeni
'ODÍð
10-21
vlrka daga:
sunnudaga:
12-18
laugardaga:
10-18