Morgunblaðið - 18.02.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 25
LISTIR
Málþing um menning-
armál í Reykjavík
Gráttregi óham
ingjunnar
LAUGARDAGINN 18. febrúarboðar
borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, til málþings um
menningarmál, sem hefur yfirskrift-
ina list- og menningarmiðlun í borg-
inni. Er þetta málþing í beinu fram-
haldi af því málþingi sem borgar-
stjóri boðaði til 14. janúar og fjallaði
um hagsmuni og afstöðu listamanna
í Reykjavík.
Á þessu málþingi á að draga fram
hlutverk menningarinnar hjá Reykja-
víkurborg og hvernig henni er miðlað
til almennings. Tilgangurinn er að
skoða það sem hefur verið gert og
kalla eftir nýjum hugmyndum varð-
andi menningarmál.
Forstöðumenn menningarstofn-
ana borgarinnar gera grein fyrir
starfí viðkomandi stofnana, skil-
greina eðli þeirra og skýra framtíðar-
sýn. Margrét Hallgrímsdóttir, borg-
arminjavörður, fjallar um Árbæjar-
safn og minjavernd í Reykjavík, Þór-
dís Þorvaldsdóttir, borgarbókavörð-
ur, um Borgarbókasafnið, Sigurður
Hróarsson, leikhússtjóri, um Borgar-
leikhúsið, Elísabet B. Þórisdóttir,
forstöðumaður Gerðubergs, um
Menningarmiðstöðina Gerðuberg,
Gunnar B. Kvaran forstöðumaður
Kjarvalsstaða, um listasöfn borgar-
innar og Guðrún Jónsdóttir, formað-
ur menningarmálanefndar, almennt
um menningarstefnu borgarinnar.
Þá verða ennfremur erindi þar sem
Þórunn Sigurðardóttir mun fjalla um
Listahátíð í Reykjavík, Ragnhildur
Vigfúsdóttir um söfn og miðlun
menningar og Jón Ásgeir Sigurðs-
son, fréttamaður, um hlutverk fjöl-
miðla varðandi menningarmiðlun.
Að því loknu verða pallborðsumræð-
ur þar sem þátttakendur fá tækifæri
til að leggja fram fyrirspumir og
lýsa skoðunum sínum á menningar-
stofnunum og menningarstefnu
Reykjavíkurborgar. Málþingið hefst
kl. 10 og ráðgert er að það standi
fram til kl. 15. Fundarstjóri verður
Halldór Guðmundsson. Þátttöku þarf
að tilkynna til Ráðhússins.
West Side
Story
NÚ STYTTIST í frumsýningu
Þjóðleikhússins á söngleiknum
West Side Story, Sögur úr vest-
urbænum, og eru æfingar í fullum
gangi.
I kynningu segir: „Þessi heims-
frægi söngleikur er nú í fyrsta
sinn sýndur á íslensku leiksviði,
en West Side Story þótti á sínum
tíma marka tímamót í vestrænni
söngleikjahefð, ekki síst fyrir frá-
bær dansatriði og hrífandi tónlist
Leonards Bernsteins.
Efnið þótti um margt óvenju-
legt, sögusviðið er götur amerísk-
rar stórborgar þar sem götuklíkur
takast á og innflytjendur reyna
að finna sér fótfestu i nýju um-
hverfi.
Mitt í blóðugum átökum og kyn-
þáttahatri fella ung stúlka og ung-
ur maður hugi saman og harmsag-
an um Rómeó og Júlíu endurtekur
sig.“
Saga úr vesturbænum verður
frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins 3. mars.
TONUST
II áskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Leikin verk eftir Britten, Elgar og
Tsjajkofskíj. Einsöngvari: Rannveig
Bragadóttir. Stjómandi Petri Sak-
ari. Fimmtudagur 16. febrúar, 1995.
TÓNLEIKARNIR hófust á fjór-
um sjávarmyndum eftir Benjamin
Britten, sem eru milliþáttar tónlist
úr óperunni Peter Grimes. Sjávar-
stemmningarnar eru þekkileg tón-
list en heldur svona léttar í sér sem
konserttónlist, þó að þær falli mjög
vel inn í framvindu óperunnar. Af
fyrri kynnum við þessa þætti, var
ýmisleg í flutningi og mótun blæ-
brigða, sem ekki féll saman við
flutninginn að þessu sinni og þrátt
fyrir ágætan leik hljómsveitarinnar
var verkið helst til of blátt áfram
í flutningi, leikið beint af augum,
svo notað sé gamalt orðatiltæki.
Aðrar sjávarmyndir, en eftir
Edward Elgar, voru næst á efnis-
skránni og það er svo með þessa
söngtónlist Elgars, að hún er eins
og fyrra verkið, svo sér ensk , svo
einstaklega kurteis og fáguð, að
hvergi er stuggað við hlustendum
og því lítið saltbragð af tónlist-
inni, sem og reyndar ljóðunum.
Rannveig Bragadóttir söng lögin
mjög vel en hefur ekki þann styrk
á djúpa sviðinu, til að halda í við
hljómsveitina, jafnvel þó að sveitin
gætti mjög vel að sér í styrk.
Lokaverkefnið á tónleikunum
var sú sjötta eftir Tsjajkovskíj,
„Pathetique“-sinfónían, og var
leikur Sinfóníuhljómsveitar Islands
hreint frábær og Petri Sakari náði
að magna upp stórkostlega
stemmningu, bæði í marsinum og
síðasta kaflanum, sem var þrung-
inn af trega og sásrsauka. Fyrsti
kaflinn var syngjandi fagur en
dapur og annar þátturinn, sem er
í fimm-skiptum takti og er eins
og sorglegur „vals“, var mjög vel
leikin. Bestur var sá þriðji, sem
er tryllingslegur mars, og einnig
lokaþátturinn, sorgaróðurinn
frægi.
Mars-hugmyndin birtist eins og
ógnvænleg ætlun, athöfn, sem tón-
skáldið reynir að bægja frá sér
með glaðlegum stefjum, en hug-
myndin skýtur aftur upp kollinum
og gellur þá við dómsdagslúðraþyt-
ur. Eftir sviftihraða tónstiga, sem
eru lýsandi fyrir trylltan tilfinn-
ingaofsa, brýst fram hin ógnvæn-
lega hugmynd í þrumandi marsin-
um. Sinfóníunni lýkur með sárs-
aukafullum gráttrega óhamingj-
unnar og niðurlagið er dauða-
myrkt.
Hvað sem segja má um þessa
sinfóníu og hversu mönnum stend-
ur stuggur að tilfinningasemi höf-
undar er ljóst, að engu tónskáldi
hefur tekist að tjá tilfinningar sín-
ar jafn afdráttarlaust og Tsjajkov-
skíj í þessu meistaraverki. Petri
Sakari tókst að magna upp hljóm-
sveitina, svo að flutningur sinfó-
níunnar var í einu orði sagt, stór-
kostlegur.
Jón Ásgeirsson.
Verðbréfasjóðir Landsbréfa
&
lí
/2
!
Vaxtarsjóðir
Eignarskattsfrjálsir
vaxtarsjóðir
Skammtímasjóðir
Langtímasjóðir
Mikið og fj ölb reytt ur
ídra verðbréfasjóða 1991-1994 1991 1992 1993 1994 Raunávöxtun á árserundvelli sl. 4 ár* Röð
KÞ Einingabréf 1 6,90% 6,90% 5,10% 3,30% 5,54% 3
Lbr íslandsbréf 7,90% 7,30% 7,80% 5.70% 7,17% ■m
víb Sjóður 1 6,70% 6,80% 5,40% 5,30% 6,05% 2
LBU Fjórðungsbréf 8,00% 7,90% 8,30% 8,60% 8,20% 2
LBR Launabréf - 8,40% 13,60% 5,80% 9,22% 1
VÍB Sjóður 2 7,00% 7,70% 8,30% 8,10% 7,77% 3
KÞ Einingabréf 2 5,10% 8,00% 10,90% 2,90% 6,68% 3
I.BR öndvegisbréf 7,10% 8,60% 14,60% 5,60% 8,92% MMR
VÍB Sjóður 5 5,50% 8,80% 8,70% 9,30% 8,06% 2
KÞ Skammtímabréf 6,20% 6,50% 9,40% 3,70% 6,43% 1
LBR Reiðubréf 6,50% 6,70% 7,60% 3,50% 6,06% 2
KÞ Einingabréf 3 6,90% 6,40% 5,70% 0,70% 4,90% 3
LBR Þingbréf 7,70% 8,10% 21,70% 8,10% 11,25% 1
LBR Sýslubréf 8,90% 1,40% -2,00% 20,40% 6,84% 2
VlB Sjóður 6 -7,00% -51,10% 59,40% 21,60% -3,10% 4
úrval við hœfi allra
ársgrundvelli
KÞ= Kaupþing hf., LBR - Landsbróf hf., VÍB « Vcrðbréfamarkaður íslandsbanka hf. Ekki fengusi upplýsingar frá Fjirfcstingarfélaginu Skandia
’Ávöxtun Launabréfa miðast við 3 ár. Hcimild: Peningasíða Morgunblaðsins, Kaupþing hf„ VÍB hf.
Ábending frá Landsbrófum: Yfirlitinu cr cinungis ætlað að sýna samanburð á sögulcgri ávöxtun verðbréfasjóða og á
ckki að skoða scm vlsbcndingu um ávöxtun I framtlðinni. Munið, að gcngi vcrðbréfa getur jafnt Lvkkað scm hakkað.
Raunávöxtun verðbréfasjóða á.
1991-1994
Allir innlendir sjóðir
Nr.
1.
lilll
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
Sjóður
Þingbréf
Launabréf*
í)ndvegisbréf
Fjórðungsbréf
Sjóður 5
Sjóður 2
íslandsbrcf
Sýslubréf
Einingabréf 2
Skammtímabréf
Reiðubréf
Sjóður 1
Einingabréf 1
Einingabréf 3
Sjóður 6
Fyrirtæki
Landsbréf
Landsbréf
Landsbréf
Landsbréf
VÍB
VÍB
Landsbréf
Landsbréf
Kaupþing
Kaupþing
Landsbréf
VÍB
Kaupþing
Kaupþing
VÍB
Raunávöxtun
á ársgrundvelli
1991-1994
1 1.25%BB
9,22%
8,92%
8,20%
8,06%
7,77%
7,17%
6,84%
6,68%
6,43%
6,06%
6,05%
5,54%
.4,90%
-3,10%
LANDSBRÉF HF.
LANDSBANKINN STENDUR MEÐ 0KKUR
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 2
108 REYKJAVÍK
SÍMI 588 9200, BRÉFASÍMI 588 8598