Morgunblaðið - 18.02.1995, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 18.02.1995, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ BREF TEL BLAÐSINS Tommi og Jenni Ferdinand Smáfólk i'm sorry I U)0KE YOU UP IAST NI6HT, CHARLIE BROWN WHEN I WEARPTHOSE COYOTE5 H0L)LIN6,THEV 50UNPEP 50 LONELY, I.. 7/ LINUS,THERE AREN'T ANY COYOTE5 LUHERE WE LIVE.. V l': I HEARP 7MAYBEIT Mér þykir leitt að ég skyldi vekja þig í nótt sem leið, Kalli Bjarna. Þegar ég heyrði þessa sléttuúlfa góla, virtust þeir vera svo einmana, ég ... C0Y0TE5 HOWLING, CHARLIE BROWN WA5 YOUR 5I5TER PIP ^ 50ME80PY 5AY "5I5TER"? Lárus, það eru engir sléttu- úlfar þar sem við búum ... Eg heyrði sléttuúlfa góla, Kalli Bjarna ... Kannski var það systir þín að hrjóta. Sagði eiijhver „systir“? Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Ruglið í Omari Ragnarssyni Frá Gíslínu Vilhjálmsdóttur: í ÞÆTTI Hemma Gunn. 8. febrúar sl. kom Ómar fram og þóttist rifja upp gamlar minningar. Þar talar Ómar um Vilhjálm sem vann á sorphaugunum ásamt föður Óm- ars, en hann reyndist Vilhjálmi mjög vel þann stutta tíma sem þeir unnu saman. Minningar Óm- ars eru aðeins hugarórar lítils drengs og þvílíkt rugl að ekki má kyrrt liggja. Ómar var aðeins smá strákur á þessum tíma og nánari kynni þeirra á milli voru engin þar sem Vilhjálmur hætti störfum 1947. í þættinum býr Ómar til einstak- ling sem ekkert er líkur Vilhjálmi, en notar sér fötlun hans til að upphefja sjálfan sig. Rúmlega tví- tugur varð Vilhjálmur fyrir slysi sem varð þess valdandi að hann missti heyrnina. Vilhjálmur þótti hafa afburðagreind eins og margir af hans ætt. Hann las mikið og fylgdist vel með stjórnmálum og verkalýðsmálum. Sonur hans sem var blaðamaður sá til þess að hann fengi öll þau blöð sem út komu. Bókum og blöðum um gróður og dýralíf hafði hann gaman af enda alinn upp í sveitum Ámessýslu. Vilhjálmur bjó ekki í gömlu húsi en keypti nýja þriggja herbergja íbúð í fýrstu verkamannabústöðum sem byggðir voru. Kona Vilhjálms var ekki stór og mikil né dóttirin, heldur voru þær báðar frekar lág- vaxnar og grannar. Vilhjálmur tal- aði aldrei við sjálfan sig, en við vorum á sama heimili þar til sein- ustu átta ár ævi hans. Honum þótti gaman að syngja og átti til að raula við vinnu sína eins og margir gera. Allt sem Ómar spinnur upp í sambandi við persónu þessa látna manns er rugl og virðist hann slá saman mörgum persónum og ekki gera sér grein fyrir því. Þetta er Ömari til háborinnar skammar og ætti hann að vera maður til að koma með skýringar og biðjast afsökunar á framkomu sinni. Það er engum til framdráttar að gera grín að fötlun annarra. Sjónvarpið er sterkur fjölmiðill sem ber að hafa strangar siðferðis- reglur og stöðva snarlega viðtöl þar sem þessar reglur eru brotnar. GÍSLÍNA VILHJÁLMSDÓTTIR, Hringbraut 90, Reykjavík. Upplýsingar um Intemettengingu við Morgunblaðið VEGNA fjölda fyrirspurna varðandi Internet-tengingu við Morgunblaðið, skal eftirfar- andi áréttað: Tenglng við helmasíðu Morgunblaðsins Til þess að tengjast heima- síðu Morgunblaðsins, sláið inn slóðina http://www.centrum.is/mbl/ Hér liggja ýmsar almennar upplýsingar um blaðið, s.s net- föng starfsmanna, upplýsingar um hvernig skila á greinum til blaðsins og helstu símanúmer. Morgunblaðlð á Internetinu Hægt er að nálgast Morgun- blaðið á Internetinu á tvo vegu. Annars vegar með því að tengj- ast heimasíðu Strengs hf. beint með því að slá inn slóðina http://www.strengur.is eða með því að tengjast heimasíðu blaðsins og ve\ja Morgunblaðið þaðan. Strengur hf. annast áskrift- arsölu Morgunblaðsins á Inter- netinu og kostar hún 1.000 krónur. Sending efnls Þeir sem óska eftir að senda efni til blaðsins um Internetið noti netfangið mbl@ centrum.is Mikilvægt er að lesa vandlega upplýsingar um frágang sem má finna á heimasíðu blaðsins. Það tryggir öruggar sendingar og einnig að efnið rati rétta leið í blaðið. Senda má grein- ar, fréttir, auglýsingar og myndir eins og fram kemur á heimasíðu blaðsins. Mlsmunandl tengingar vlA Internet Þeir sem hafa Netscape/ Mosaic-tengingu eiga hægt um vik að tengjast blaðinu. Ein- ungis þarf að slá inn þá slóð sem gefin er upp hér að fram- an. Þeir sem ekki hafa Netscape/Mosaic-tengingu geta nálgast þessar upplýs- ingar með Gopher-forritinu. Slóðin er einfaldlega slegin inn eftir að forritið hefur verið ræst. Mótöld Heppilegast er að nota a.m.k. 14.400 baud-mótald fyr- ir Netscape/Mosaic tengingar. Hægt er að nota afkastaminni mótöld með Gopher-forritinu. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.