Morgunblaðið - 18.02.1995, Side 47

Morgunblaðið - 18.02.1995, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 47 I DAG Arnað heilla fyr\ÁRA afmæli. Á ( \/morgun, 19. febrúar, verður sjötugur Magnús Sigurðsson, Fannafold 89, Reykjavik. Eiginkona hans er Ágústa Oskars- dóttir. Þau taka á móti gestum í „Mánabergi", 3. hæð, Lágmúla 4 milli kl. 15 og 18 á afmælisdaginn. /?/\ÁRA afmæli. Á 0\/morgun, 19. febrúar, verður sextug Þuríður Ól- afsdóttir, Hæðarbyggð 28, Garðabæ. Eiginmaður hennar er Jón Svan Sig- urðsson, forstjóri. Þau taka á móti frændum og vinum á heimili sínu eftir kl. 15 á afmælisdaginn. K/\ÁRA afmæli. í dag, 01/18. febrúar, er fimm- tugur Þjóðbjörn Hannes- son, kennari, Akranesi. Kona hans er Kristrún Líndal Gisladóttir, skrif- stofumaður. Þau hjónin taka á móti gestum á heim- ili sínu frá kl. 15 á afmælis- daginn. LEIÐRÉTT Rangt nafn í frétt í Morgunblaðinu í gær var sagt frá danskeppni í Blackpool. Þar var farið rangt með nafn eins kepp- andans en hann heitir Gunn- ar Hrafn Gunnarsson. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. Rangt nafn I frétt á flmmtudag um ára- mótafélagsvist Varðar var rangt farið með nafn Rögnu Bjömsson í myndatexta. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Rangt föðurnafn í frétt Morgunblaðsins um tónlistarkvöld í Kaffíleikhús- inu Hlaðvarpanum var Markús Þór Andrésson skrif- aður Einarsson í mynda- texta. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. rr /\ÁRA afmæli. Mánu- | l/daginn 20. febrúar nk. verður sjötugur Þórður Þorkelsson, Hörgshlíð 6, Reykjavík. Eiginkona hans er Svanhildur Guðnadótt- ir. í tilefni dagsins taka þau hjón á móti gestum í íþróttamiðstöð íþróttasam- bands íslands í Laugardal, á morgun sunnudaginn 19. febrúar kl. 17. /»/\ÁRA afmæli. Mið- Ol/vikudaginn 15. febr- úar sl., varð sextug Vigdís Danielsdóttir, Ásbraut 19, Kópavogi. Böm henn- ar ætla að halda henni hóf í Stjörnuheimilinu, Garða- bæ í dag, laugardag eftir kl. 20. HOGNIHREKKVISI COSPER VIÐ hittum þig þá á Lækjartorgi og verðum með rauða nclliku í hnappagatinu til að þú þekkir okkur. Farsi '/ ácj lagbi, {,'iL oc& hann fxri efíit c/rtxumum sínum.* STJÖRNUSPA eftir Franecs Drakc * VATNSBERI Afmælisbam dagsins: Heimili ogfjölskylda eru þér mikils virði ogþú átt velgengni að fagna. Hrútur (21.mars- 19. apríl) Einhver átök hafa komið upp í vinnunni vegna óhóflegrar afskiptasemi vinnufélaga. Með iagni tekst þér að leysa vandann. Naut (20. apríl - 20. mai) Þú átt góðar samverustundir með vinum og ættingjum í dag, og hugmyndir þínar fá góðar undirtektir. Helgin verður ánægjuleg. Tvíburar (21. maí - 20. júni) Þú ert eitthvað miður þín í dag, en þínir nánustu veita þér góðan stuðning. í kvöld ættir þú að reyna að slappa af. Krabbi (21. júní — 22. júlí) Þú kynnist einhveijum í dag sem á eftir að reynast þér vel sem vinur. Þér berast óvænt gleðitíðindi varðandi fjármálin. Ljón (23. júlí — 22. ágúst) Þú nýtur vaxandi vinsælda og dagurinn hefur upp á margt að bjóða þér til afþrey- ingar. Ástin er á næsta leiti. Meyja (23. ágúst - 22. september) H Þú ert samvinnufús i dag og tekur virkan þátt i störfum fjölskyldunnar. í kvöld fara ástvinir út að skemmta sér. Vog (23. sept. - 22. október) í dag gefst þér tækifæri til hvíldar og til að sinna einka- málunum. Fjölskyldan er samhent og skemmtir sér vel í kvöld. Sþorddreki (23.okt. - 21. nóvember) Hlustaðu vel á góð ráð sem þér eru gefin í dag og geta fært þér velgengni i framtíð- inni. Þú átt góðar stundir í vinahópi í kvöld. Bogmaöur (22. nóv. -21. desember) Láttu ekki freistast af gylli- boði sem þér berst í dag. fhugaðu málið vandlega áður en þú tekur endanlega ákvörðun. Steingeit (22. des. - 19.janúar) Óvænt þróun mála getur fært þér tækifæri til aukins frama í starfí, og þú þarft að afla þér þekkingar til að uppfylla kröfurnar. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) í Þú getur orðið fyrir vonbri: um ef þú gerir of miklar kr ur til þinna nánustu í d Hlustaðu á hollráð gam vinar. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Það getur verið hagstætt að fara troðnar slóðir á leið að settu marki í stað nýrra, því ekki eru allar breytingar til batnaðar. Stjömuspúna ú aó lesa sem dœgradvól. Sþdr af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. Grand Cherokee Laredo '93 til sölu, upphækkaður, blásanseraður, ný dekk, dráttarkúla. Bíll í toppstandi. Skipti möguleg á ódýrari. Góð greiðslukjör í boði. Staðgreiðsluverð 3,2 millj. Upplýsingar í símum 91-20160 og 91-39373, Karl, í dag og næstu daga. Reiki- og sjálfstyrkingarnámskeið og einkatímar • Hefur þú áhuga á andlegum málefnum? • Þarftu á sjálfstyrkingu að halda? • Viltu ná betri tökum á lífi þínu og líðan? • Ertu tilbúin að gera eitthvað í málinu? Námskeið í Reykjavík 25.-26. febrúar 1. stig helgarnámskeið. 3.-4. mars 2. stig. 7., 8. og 10. mars 1. stig kvöldnámskeið. Upplýsingar og skráning i síma 871334. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. Orðsending til forráðamanna um 10.000 hlutafélaga Á nýársdag öðluðust gildi breytingar á gildandi lögum um hlutafélög, sem síðan hafa verið endurútgefin sem lög nr. 2/1995 um hlutafélög, og ný lög um einkahlutafélög, nr. 138/1994. Flestar breytingamar leiðir af aðild íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Af þessum sökum þurfa forstöðumenn um 10.000 hlutafélaga, sem skráð hafa verið fyrir áramót, á árinu 1995 og helst sem fyrst að, taka ákvörðun um það, hvort skrá skuli félögin sem hlutafélög samkvæmt nýjum reglum eða einkahlutafélög. Þurfa þeir einnig að huga að breytingum á samþykktum félaga á næsta aðalfundi eða sérstökum hluthafafundi og jafnvel hækka hlutafé ef félag verður skráð hlutafélag í framtíðinni (lágmark fjórar milljónir króna). Verði skráð hlutafélag hins vegar umskráð sem einkahlutafélag, þarf ekki að hækka hlutaféð frá því sem er. Skráning eða umskráning eldri hlutafélaga á þessu ári samkvæmt nýjum lagaákvæðum, verður án endurgjalds. Gert er ráð fyrir að í framtíðinni henti hlutafélög, einkum þar sem hluthafar eru margir, hlutafé hátt og sóst er eftir hlutafé frá almenningi, t.d. með útboðum eða skráningu hlutabréfa á verðbréfaþingi. Einkahlutafélög eru hins vegar talin henta betur fáum hluthöfum, þar sem ekki er leitað til almennings eftir fé, enda sé hlutafé lágt, minnst 500 þúsund krónur í nýjum einkahlutafélögum (jafnvel lægra í eldri hlutafélögum sem umskráð verða sem einkahlutafélög). Búast má við að langflest eldri hlutafélög verði umskráð sem einkahlutafélög. Nánari upplýsingar um helstu breytingar á hlutafélagalög- gjöfinni og mun á hlutáfélögum og einkahlutafélögum er að finna í sérprentunum laga um hlutafélög og laga um einkahlutafélög, sem eru til sölu í Bókabúð Lárusar Blöndal og eru sendar þaðan í póstkröfu um land allt. Þar er einnig að finna sýnishorn sam- þykkta viðkomandi félaga o.fl. með upplýsingum um nauðsyn- legar breytingar, en sýnishornin má einnig fá á tölvudisklingi. Búast má við að almennt þurfi menn á sérprentun laga um hlutafélög að halda þar til viðkomandi eldri hlutafélög verða umskráð sem einkahlutafélög síðar á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.