Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 56
MICROSOFT. einar j.
WlNDOWS. SKULASONHF
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBI/ÐCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
SH selur karfa fyrir Færeyinga
Um Island til Jap-
ans frá Færejrjum
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna og Föroya Fiskasöla hafa gert
með sér samkomulag þess efnis að
SH annist sölu úthafskarfa í Japan
fyrir Fiskasöluna. Föroya Fiskasöla
er sölusamband færeyskra frysti-
húsa innan Föroya Fiskavirkning,
en innan þeirra eru nær öll starf-
andi frystihús í Færeyjum.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH,
segist ánægður með þetta sam-
komulag. Það styrki sölukerfí SH,
en félagið hafí í fyrra náð betri
tökum á markaðnum með vaxandi
magni af úthafskarfa.
SH og Föroya Fiskasöla hafa
lengi starfað saman, einkum í
Bandaríkjunum, en FF rekur físk-
réttaverksmiðju í Bretlandi og er
með söluskrifstofur í Danmörku og
Frakklandi. Því nær samkomulagið
aðeins til sölu á úthafskarfa á Jap-
ansmarkaði, að minnsta kosti fyrst
um sinn. Tvö færeysk skip eru þeg-
ar tilbúin til veiða á úthafskarfa á
Reykjaneshrygg, en veiðarnar hefj-
ast strax í marzmánuði. Verið er
að búa fleiri skip til þeirra veiða.
Samkomulagið við Færeyingana
er með svipuðum hætti og samning-
ar SH við aðra erlenda frystitog-
ara, en Sölumiðstöðin hefur verið
að auka slík viðskipti undanfarin
misseri.
Morgunblaðið/Kristinn
Skólakrakkar á skautum
ÞÓTT nemendur grunn- og fram- gerðalaus I góða veðrinu. Margir
haldsskóla hafi ekki getað stund- krakkar voru á skautasvellinu í
að skólann í gær vegna kennara- Laugardal á skólatíma í gær og
verkfalls sátu fæst þeirra að- skemmtu sér vel.
„Datt ekki í
hug að mað-
urinn væri
lifandi“
UNGUR maður virðist, að sögn lög-
reglu, hafa sloppið ótrúlega vel frá
því að aka bíl á ljósastaur á Sæ-
braut við Laugamesveg á tólfta tím-
anum í gærkvöldi. „Mér datt ekki í
hug að maðurinn væri lifandi inni í
flakinu," sagði Sigurður Pálsson,
reyndasti rannsóknarlögreglumaður
borgarinnar í rannsóknum umferð-
arslysa, um aðkomuna á slysstað í
gærkvöldi.
Maðurinn, sem er 27 ára og grun-
aður um ölvun við aksturinn, ók
norður Sæbraut en missti bílinn upp
á miðeyju og á ljósastaur. Ljósa-
staurinn brotnaði og flatti bílinn
saman.
Þegar maðurinn hafði verið
klipptur úr flakinu reyndist hann
með meðvitund og málhress en blóð-
ugur og greinilega talsvert slasaður.
Hann var fluttur á Borgarspítalann.
Morgunblaðið/Júlíus
Snj óflóðafrumvarp
endurskoðað
Skýrari
kaup- og
flutnings-
heimildir
ÁLIT starfshóps sex ráðuneyta um
nauðsynlegar breytingar á stjómar-
frumvarpi um snjóflóðavamir var lagt
fyrir ríkisstjóm í gær. Hópurinn hefur
endurskoðað frumvarpið með tilliti til
snjóflóðanna í Súðavík. Meðal niður-
staðna hans er að draga þurfí skýrar
fram heimildir í frumvarpinu til að
kaupa hús á hættusvæðum og greiða
fyrir flutning húsa úr Ofanflóðasjóði.
Fmmvarpið, sem Rannveig Guð-
mundsdóttir félagsmálaráðherra hef-
ur mælt fyrir á Alþingi, var samið
áður en snjóflóðin féllu á Súðavík.
Ráðherra lýsti því hins vegar yfír er
hún lágði frumvarpið fram á þingi
að endurskoða þyrfti það í ljósi þess-
arar nýlegu reynslu.
Að sögn Berglindar Ásgeirsdóttur,
ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneyt-
isins, eru breytingartillögur starfs-
hópsins ekki stórvægilegar og voru
menn sammála um að frumvarpið
gengi í þá átt, sem rætt hefur verið
um eftir snjóflóðin, að efla skipulegar
snjóaathuganir, forvamir og rann-
sóknir og auka þann hluta, sem Ofan-
flóðasjóður greiddi í þvi starfí.
Greitt fyrir flutning húsa
Berglind sagði að þær breytingar
væru lagðar til að starfsmenn fengju
þjálfun hjá Veðurstofunni, skilyrði
fyrir greiðslum úr Ofanflóðasjóði
yrðu einfölduð og loks yrði sá mögu-
leiki núverandi laga að kaupa fast-
eignir dreginn betur fram. Jafnframt
væri lagt til að unnt yrði að greiða
fyrír flutning húsa, þar sem því yrði
við komið, en slíkt ákvæði hefur
ekki verið í lögum.
Tillögur fulltrúa ráðuneytanna
verða sendar félagsmálanefnd Al-
þingis. Berglind sagðist vonast til
að tækist að afgreiða frumvarpið
fyrir þinglok.
Sj 6 vá-Almennar
Afsláttur
og endur-
greiðslur
SJÓVÁ-Almennar hafa ákveðið
að lækka tryggingaiðgjöld ein-
staklinga og fjölskyldna næsta
mánudag. Einar Sveinsson,
framkvæmdastjóri, segir lækk-
unina nema 100 millj.
Sú nýjung hefur jafnframt
verið tekin upp hjá Sjóvá-
Almennum að þeir viðskiptavin-
ir sem eru með a.m.k. ijórar
vátryggingar frá félaginu fá
afslátt af viðskiptum sínum og
allt að 10% endurgreiðslu af
iðgjöldum fyrra árs hafí þeir
verið tjónlausir og staðið í skil-
um með iðgjöld.
Einar Sveinsson segir að með
þessum nýjungum sé verið að
veita viðskiptavinum hlutdeild
í batnandi afkomu félagsins.
Að sögn Einars má búast við
að hagnaður síðasta árs hafí
verið um 200 millj. kr.
■ Tjónlausir/16
Búist víð miklum fundahöldum ASÍ, VSÍ og VMS og í keimaradeilunni um helgina
Akveðið að hefja viðræð-
ur um launamálin í dag
Dagsbrún og Yerkalýðs- og sjómannafé-
lag Keflavíkur boða verkfall 28. febrúar
TALSVERÐUR gangur var í sér
kjaraviðræðum landssambanda og
félaga innan ASÍ og vinnuveitenda
í húsnæði ríkissáttasemjara í gær.
Endanleg niðurstaða liggur ekki fyr-
ir en samningsaðilar stefna nú
ákveðið að því að viðræður um
launaliði kjarasamninga geti hafíst
eftir hádegi í dag og lögð er áhersla
á að niðurstaða fáist um helgina svo
hægt verði að heíja viðræður við
ríkisvaldið um kröfur landssamband-
anna ASÍ og Flóabandalagsfélag-
anna þriggja á hendur stjórnvöldum.
Stjómir og trúnaðarmannaráð
Dagsbrúnar og Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur samþykktu
í gær boðun verkfalls sem hefst á
miðnætti aðfaranótt 28. febrúar
hafi ekki samist fyrir þann tíma. í
verkfallsboðun VSFK eru Flugstöð
Leifs Eiríkssonar og Keflavíkurflug-
völlur undanskilin verkfalli. Stjórn
og trúnaðarráð Hlífar koma einnig
til fundar í gær til að ákveða hvort
boðað verður til verkfalls en Sigurð-
ur T. Sigurðsson, formaður félags-
ins, sagði að niðurstaðan yrði ekki
gerð opinber fyrr en á mánudag.
Lítil hreyf ing á
samningamálum kennara
Samninganefndir kennarafélag-
anna og ríkisins komu saman eftir
hádegi í gær og fóru yfir mál hvor
i sínu lagi fram eftir degi. Um kl.
17 komu samninganefndirnar sam-
an til fundar. Fundi var slitið eftir
rúmlega klukkutímalangan fund.
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ seg-
ir að meðan menn ræðist við sé ekki
útilokað að samningar takist í kenn-
aradeilunni um helginni, en varar
jafnframt við of mikilli bjartsýni. Á
fundi sem hefst í dag er ætlunin að
ræða um vinnutímamál, en um það
atriði hafa samningsaðilar lítið nálg-
ast hvor annan.
Fyrir hádegi í dag funda vinnu-
veitendur með hafnarverkamönnum
í Dagsbrún og verslunarmönnum.
Kl. 13 ætla vinnuveitendur og for-
menn landssambanda og stóru
verkalýðsfélaganna að fara yfír stöð-
una. „Það er ákveðið að menn renni
í stóru málin eftir hádegið á morgun
og láti hringla í baukunum," sagði
Björn Grétar Sveinsson, formaður
VMSÍ, í gærkvöldi og Magnús Gunn-
arsson, formaður VSÍ, sagðist von-
ast til að menn sæju fyrir endann á
stórum hluta sérkjaraviðræðnanna
svo unnt yrði að heija viðræður um
launaramma.
Guðmundur J Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, sagði að menn
væru að komast í tímaþröng vegna
krafna sem félögin gera á hendur
stjórnvöldum. Hann lagði áherslu á
að sérmál félaganna yrðu leidd til
lykta í nótt eða fyrir hádegi í dag
og að aðilar gætu komið með sam-
ræmdar tillögur til ríkisstjórnar
■ KennaraverkfalI/4
■ Verkfall hefði/2