Morgunblaðið - 21.02.1995, Side 9

Morgunblaðið - 21.02.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 9 FRÉTTIR Framhlaup Tungnaár- jökuls orðið 850 metrar Morgunblaðið/Epá HRIKALEGIR sprungukollar skjótast upp úr jöklinum þegar hann skríður yfir hóla eða hæðir í framskriðinu. Tungnáijökull vestan í Vatnajökli hleypur nú fram af miklum krafti og er sporður hans kominn um 860 m frá því hann tók á rás í haust. Sígur jökulmassinn nú fram í Tungnaárbotnum og er allt ákomu- svæði jökulsins kolsprungið, svo að ekki verður hin hefðbundna leið rannsóknaleiðangra í Grímsvötn frá Jökulheimum fær á næstu árum.. Síðastliðið sumar varð vart við mikl- ar breytingar á sporðinum. Kollar ýttust upp ofan við fell og mælingar á skriðhraða inni á jöklinum sýndu sífellt aukinn hraða. Úr flugvélum sást að talsverður hluti ákomusvæðis jökulsins, sem er ofan við 1100 m hæð, var sprunginn í september og í október hófst framskrið á einum stað, um 1 km norðan Nýjafellslínu. Síðan hafa starfsmenn Landsvirkjun- ar og Raunvísindastofnunar mælt framskriðið á þremur stikulínum í Tungnaárbotnum með 2-3 vikna millibili, segir í fréttabréfi Jöklarann- sóknafélagsins. Framskrið á Nýjafellslínunni hófst um mánaðamótin október-nóvember og um miðjan nóvember voru tvö fell við sporðinn, sitt hvoru mergin við Nýjafellslínu, komin á kaf og miklir sprungukollar yfír þeim. Skriðhraðinn var að jafnaði um 10 m á dag undir lok síðasta árs, en var orðinn 6 m á dag í janúar og hefur verið 5 m á dag í byrjun febr- úar. Nokkuð var misjafnt hvenær hinir ýmsu hlutar sporðsins fóru af stað og um 1 km langur kafli við vaðið á Tungnaá við jökul var ekki farinn að skríða fram um miðjan desember. Syðri hlutinn verður stöð- ugt brattari og sprungukollar teknir að skjótast upp úr tungunni. Ofan við Langasjó er jökullinn kyrr en sunnan við hann hefur Skaftáijökull hins vegar ruðst fram. Varla er þess langt að bíða að allur jökullinn hlaupi fram á þessu svæði, allt að Síðujökli sem hljóp á síðasta ári, segja þeir Hannes H. Haraldsson, Helgi Björns- son, Finnur Pálsson, Magnús Tumi Guðmundsson og Theodór Theodórs- son í fréttabréfinu. Athyglisvert er að Tungnaáijökull sígur mun hægar fram en Síðujök- ull, sem náði hámarkshraða við sporð um 100 metra á dag. Vatn hefur seytlað frá jöklinum allt frá því fram- skrið hófst, mjög gruggugt. Sylgju- jökull er hins vegar kyrr, en efst í honum eru töluverðar sprungur. «a LAURA ASHLEY Vorfatnaðurinn er kominn. Verð aldrei lœgra. á® \ YlStan Laugaveg J---------------------- i 99, sími 1 6646. Js ^aSsl « fg m ' Jf J * m é. w jií & % I 1 c% Nýtt útbob ríkissjóbs mibvikudaginn 22. febrúar ^IL. ....íp .1? %svt^ ECU-tengd spariskírteini ríkissjóbs l.fl.D Útgáfudagur: Lánstími: Gjalddagi: Grunngengi ECU: Nafnvextir: Einingar bréfa Skráning: Viðskiptavaki 1995, 5 ár. 1. febrúar 1995 5 ár 10. febrúar 2000 : Kr. 83,56 : 8,00% fastir 5.000, 10.000, 50.000, 100.000, 1.000.000, 10.000.000 kr. Skráö á Verðbréfa- þingi íslands : Seðlabanki íslands Verötryggö spariskírteini ríkissjóös 1. fl. D 1995, 5 og 10 ár. Útgáfudagur: 1. febrúar 1995 Lánstími: 5 ár og 10 ár Gjalddagi: 5 ár: 10. febrúar 2000 10 ár: 10. apríl 2005 Grunnvísitala: 3396 Nafnvextir: 4,50% fastir Einingar bréfa: 5.000, 10.000, 50.000, 100.000, 1.000.000, 10.000.000 kr. ■ Skráning: Skráö á Verðbréfa- • þlngi íslands Viðskiptavaki: Seðlabanki íslands Sölufyrirkomulag: Spariskírteinin veröa seld með tilboösfyrirkomulagi. Aðilum að Verðbréfaþingi íslands, sem eru veröbréfafyrirtæki, bankar, sparisjóöir og Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa, gefst einum kostur á að gera tilboð í skírteinin samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu. Aðrir sem óska eftir ab gera tilbob í ofangreind spariskírteini eru hvattir til ab hafa samband vib framangreinda abila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Öll tilbob í spariskírteini þurfa ab hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14.00 á morgun, mibvikudaginn 22. febrúar. Tilboösgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070. LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 562 4070. Franskar hördragtir- Verð kr. 18.200.- TESS V neðst viö __________________Dunhaga, L. . , ~ A sími 622230 Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14. Uppboðsþjónustan í uppboðssal Tollhússins — Kolaportinu — v/Geirsgötu Endurnýtum gamla muni! Nú er tækifærið til að koma gömlum munum í verð, taka til í geymslum og á háaloftum og láta Uppboðsþjónustuna um að selja fyrir þig munina. Óskað er eftir alls kyns notuðum munum til uppboðs, svo sem húsgögnum, heimilistækjum, reiðhjólum, bókum, verkfærum, ferðavörum. íþróttavörum, barnavögnum, leikföngum, hjólbörðum o.fl. Tekið er við uppboðsmunum fimmtudaginn 23. febrúar kl. 14.00-21.00 f uppboðssalnum í Tollhúsinu (Kolaportinu) við Geirsgötu. Uppboðsmunir verða til sýnis frá kl. 11.00 laugardaginn 25. febrúar, en uppboðið hefst kl. 13.00 sama dag. Uppboðsþj ónustan, sími 552-4130, fax 587-0667. Great Lengths - Great Lengths Hórlengingar - hórþykkingar Ragnheiður Þóra er mjög ónægS með sína hórlengingu Sérfræðingur í hárlengingu verður við störf í Hárprýði helgina 24.-28. febrúar. Eigum örfá pláss laus. Upplýsingar i síma. 32347 eða í búðinni ó milli kl. 14-16.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.