Morgunblaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 6JL I I I > > I I ÍÞRÓTTIR UNGLINGA/KEILA Morgunblaðið/Frosti íslandsmeistarar ungllnga í kellu en úrslltalelknir fóru fram í Keilusalnum í Öskjuhlíð ð sunnudag. Aftari röð frá vlnstri: Edda Lira Lárusdóttir KGB, Heiðrún Ragnarsdóttir KFR, Arnar Halldórsson KFR, Sigríður Rut Hilmarsdóttlr KR og Hjðrvar Haraldsson KFR. í fremrl röð frá vlnstrl: Andrl Þór Halldórsson KFR, Inglbjörg Þórlsdóttlr KFR, ÍHs Bjarnadóttlr KFS og Stelnþór Geirdal KFS. Keilufélag Reykjavíkur með sigurvegara í fimm flokkum Er ákveðin í að gefast ekki upp Karen Hilmarsdóttir lenti í alvarlegu slysi en er í unglingalandsliðinu í keilu „Eg er ákveðin í að gefast ekki upp og halda áfram í keilunni þrátt fyrir að eiga erfitt með að beita líkamanum rétt,“ segir Karen Hilmarsdóttir, átján ára gömul r keilufélagi Suðurnesja. Karen lenti í alvarlegu bílslysi fyrir rúmu einu og hálfu ári á Grindavíkurveginum. Hún var far- þegi í bíl sem lenti utan vegar og fór nokkrar veltur. „Ég tognaði illa í baki og hálsi og læknamir héldu fyrst að ég væri hálsbrotin. Ég kjálkabrotnaði, nefbrotnaði og skaddaðist á mjöðm og var nær dauða en lífi en er nú búin að ná mér að nokkru leyti þó ég komi sjálf- sagt aldrei til með að ná fullum bata,“ sagði Karen. Karen lenti í slysinu 9. ágúst 1993 og þurfti að gangast undir margar aðgerðir í kjölfarið. Þrátt fyrir að henni hafi farið mikið fram hefur henni enn ekki tekist að ná jafngóð- Karen Hllmarsdóttir um árangri og fyrir slysið. „Ég var komin upp í 165 í meðalskori í hveij- um leik en er núna með 159. Besta skorið í leik er hins vegar 257 og besta serían 582,“ sagði Karen. „Það vom ekki margir krakkar þegar ég byijaði að stunda keilu. Ég mætti strax þegar keilusalurinn opnaði í Keflavík 1989 og hefur verið að stunda þessa íþrótt síðan. Áhuginn hefur aukist mjög mikið og við höfum aldrei verið eins mörg frá Keflavík eins og á þessu móti,“ sagði Karen. Aðeins tveir keppendur vora r hennar flokki, elsta flokki stúlkna á íslandsmóti unglinga en leikur Kar- enar við Sigríði Rut Hilmarsdóttur úr KR bauð upp á allt sem prýtt getur keiluleik. Báðar spiluðu vel og úrslitaviðureignin var hörkuspenn- andi. Karen var lengst af í forystu en Sigríður sótti á þegar leið leikinn og sigraði með þriggja stiga mun. Islandsmóti unglinga íkeilu -a KEPPENDUR hafa aidrei verið fleiri á íslandsmóti unglinga í keilu og greinilegt er að þessi íþrótt á vaxandi fylgi að fagna hérlendis. Mótið var haldið um síðustu helgi í Keilusalnum í Öskjuhlíð og voru þátttakendur um áttatíu talsins. Spilarar frá Keilufélagi Reykja- víkur vora sigursælir en félag- ið eignaðist fímm meistara úr flokk- unum tíu. Fyrirkomulag mótsins var þannig að í fjölmennari flokkunum vann stigahæsti maður forkeppninn- ar sér sæti í úrslitaleik en þeir sem lentu í öðra og þriðja sætinu í for- keppninni kepptu um hitt sætið í úrslitaleiknum. Misjafn árangur Morgunblaðið tók nokkra kepp- endur tali á mótinu og sá fyrsti sem sat fyrir svörum var Dagný Edda Þórisdóttir úr KFR. „Árangurinn hjá mér hefur verið mjög misjafn, stund- um fæ ég 99 í leik, stundum fer ég yfir 150 stigin og reyndar hef ég best náð 189 í einum leik í móti,“ sagði Dagný Edda „Ég er búin að vera í keilu í þijú ár og æfum þrisv- ar í viku. Við æfum oftast í Mjódd- inni og þar kann ég best við mig.“ Ágætur í úrslitunum „Mér gekk illa í fyrstu þremur leikjunum en lék ágætlega í úrslit- unum,“ sagði Steinþór Jóhannsson úr Keilufélagi Suðurnesja sem varð meistari í þriðja flokki drengja. „Úr- slitaleikurinn var jafn og ég var hálfhræddur um að ég mundi tapa honum um tíma en þjálfarinn sagði mér til og það skilaði árangri,“ sagði Steinþór. Fyrst og fremst tækniíþrótt Arnar Halldórsson var í þriðja sætinu í fyrsta flokki eftir forkeppn- ina en stóð uppi sem sigurvegari. „Ég fékk góð ráð hjá landsliðsþjálfaran- um, Halldóri Sigurðssyni. Hann benti mér á að miða á annan stað á braut- inni,“ sagði Amar en þess má geta að landsliðsþjálfarinn er faðir hans. „Ég byijaði aftur í haust eftir tveggja ára hlé. Ég fór í æflngabúð- Alex Carl Brand úr ÍR sigraði í 4. flokki drengja. ir til Danmerkur um verslunar- mannahelgina og byrjaði að æfa uppfrá því. Áhuginn á þessari íþrótt er alltaf að aukast, ekki síst með tölvuskorinu. Sumir tala um þetta sem letiíþrótt en staðreyndin er sú að til að ná árangri í þessi þarf tæknin að vera í lagi, ekki ósvipað og í snóker." Amar er í unglingalandsliðinu sem heldur til Finnlands í næsta mánuði og segir að mótið leggist vel í hann. „Norðurlandaþjóðirnar era hins vegar með sterkar sveitir. Við eigum möguleika á verðlaunasæti en búast má við því að Finnar og Svíar verði í tveimur efstu sætunum, þessar þjóðir era alltaf með sterkar sveitir," sagði Arnar. KNATTSPYRNA Úrslitaleikjum lokið á innanhússmótinu Úrslitaleikir yngri flokka í innanhússknattspymu vora háðir um síðustu helgi. Leikið var í íþróttasölum á stór-Reykjavíkur- svæðinu, Breiðablik, Víkingur og Leiknir skiptu með sér dren- gjaflokkunum en Stjarnan hélt úrslitakeppnina í kvennaflokkun- um. Breiðablik varð sigurvegari í 2. flokki karla en liðið sigraði KR í úrslitaleik 9:2 en lið KA varð í þriðja sæti. I þriðja flokki karla varð Keflavík sigurvegari, liðið sigraði Víking 5:3 í úrslitaleik en KA varð í þriðja sæti. Fylkisstrákarnir sigraðu í fjórða flokki með sigri á Val í úr- slitaleik 2:1 en ÍR hreppti þriðja sætið. í fimmta flokki karla sigraði Víkingur Leikni 5:0 í úrslitaleik en IA og Fjölnir skipta með sér þriðja sætinu. Keppt var í þremur kvennaflokkum. í öðrum flokki sigraði Afturelding Stjörnuna 2:1 í úrslitaleik en Valsstúlkurnar fengu bronsverðlaun. KR sigraði Val í úrslitaleikjum 3. flokks 1:0 og lið Sindra varð í þriðja sæti. Stjarnan sigraði í fjórða flokki kvenna, liðið sigr- aði Hauka 3:2 og BÍ varð í þriðja sæti. Víklngsllðið sem slgraði í fimmta flokkl karla. Aftari röð frá vinstri: Finn- ur Eiríksson, Arnar Geir Guðmundsson, Gunnlaugur Garðarsson, Borgþór Þórhalls- son, Sölvi Jónsson og Ómar Rafnsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Pálmar Sigur- jónsson, Ingvar Þór Kale, Viktor B. Arnarson, Ragnar Hjaltested og Einar Guðnason. Það sem réði kannski úrslitum var að Karen missti kúluna í síðasta skotinu, náði aðeins einni keilu og þar með var draumur hennar um unglingameistaratitil úti. Karen hefur leikið í fyrstu deild- inni með liði Léttsveitarinnar en er nú hætt því og segíst ætla að ein- beita sér að einstaklingsmótunum. Næst á dagskrá er keppni á Norðuf: landamóti unglinga sem haldin verð- ur í Turku í Finnlandi í mars og segist hún hlakka mikið til að taka þátt í því móti. ÚRSLIT Verðlaunahafar á Islandsmótinu í keilu sem haldið var í Keilusalnum í Öskjuhlíð. 1. flokkur drengja Sigurður Borgar Bjamason Már Grétar Amarson .KFR .KFS 1. flokkur stúlkna Sigríður Rut Hilmarsdóttir Karen Hilmarsdóttir ...KR .KFS 2. flokkur drengja Hjörvar Haraldsson Andri Ólafsson .KFÍ? .KFR .KFR 2. flokkur stúlkna ,.KFR Vilhelmína Amardóttir ..KFS Alda Harðardóttir ,.KFR 3. flokkur drengja Steinþór Geirdal „KFS ÍR Ásgeir Öm Loftsson ,...KR 3. flokkur stúlkna .KGB Dagný Þórisdóttir „KFR ..KFS 4. flokkur drengja ÍR Orri Frevr Jóhannsson KR _ ..KFil 4. flokkur stúlkna íris Bjarndóttir ■íris var eini keppandinn I þessum flokki. 5. flokkur drengja Andri Þór Halldórsson................KFR Gunnar Öm Jóhannsson.................KFR Halldór Ragnar Halldórsson............ÍR 5. flokkur stúlkna Ingibjörg Þórisdóttir................KFR Erla Iind Gunnarsdóttir..............KF3 Erla Jóhannsdóttir...................KFS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.