Morgunblaðið - 21.02.1995, Síða 13

Morgunblaðið - 21.02.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 13 LANDIÐ Stöðug f.iölgun íbúa á Selfossi Bygg'ing um 7 0 íbúða undirbúin Aðfluttir 34 fleiri en brottfluttir Morgunblaðið/Ágúst Blöndal LÁRA og Magnús, eigendur líkamsræktarstöðvarinnar, að leið- beina einum ungum líkamsræktarmanni. Selfossi - Unnið er að því að gera byggingarhæfar lóðir undir 30 einbýlishús og 48 íbúðir í par- og raðhúsum. Mikil eftirspurn er eft- ir lóðum og eru fyrirliggjandi umsóknir um nær allar lóðirnar. Fyrstu lóðirnar verða byggingar- hæfar upp úr miðjum næsta mán- uði og úthlutanir á þeim hefjast á næstu vikum. Nýjar lóðir í Grundarhverfi Nýju lóðirnar eru við Birki- grund og Grenigrund sem eru tvær af þremur götum í nýju hverfi, Grundarhverfi. Við þriðju götuna, Furugrund, er áformað að byggja þrettán einbýlishús og fjögur fjölbýlishús. Gatnagerð við þá götu hefur ekki verið boð- in út. íbúum á Selfossi fjölgaði um 85 á síðastliðnu ári. Fjölgunin heldur áfram því frá 10. desem- ber til 13. febrúar eru þeir 34 fleiri sem fluttu til Selfoss en fóru þaðan. Líkams- ræktarstöð í gömlu frystihúsi Neskaupstað - Nýlegatóktil starfa að Egilsbraut 4 í Nes- kaupstað ný líkamsræktarstöð, raunar sú fyrsta sinnar teg- undar hér í plássinu. í stöð- inni, sem er búin ágætis tækj- um, er einnig sólbaðsstofa. Húsnæði líkamsræktar- stöðvarinnar var áður gamalt kaupfélagsfrystihús og má segja að húsið hafi heldur bet- ur skipt um hlutverk frá því að vera fiskvinnsluhús, því að auk líkamsræktarstöðvarinnar eru þar starfrækt tvö bifreiða- verkstæði og skoðunarstöð Bifreiðaskoðunar Islands. Nýja líkamsræktarstöðin er í eigu hjónanna Láru Garðars- dóttur og Magnúsar Sigurðs- sonar. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Blönduósi - Þak fauk í heilu lagi af tvílyftu einbýlishúsi, Garðabyggð 2 á Blönduósi í fyrrakvöld og barst um 50 metra leið og lenti inni í húsa- garði að Garðabyggð 4. í hús- inu bjó kærustupar þau Guð- mundur Karl Ellertsson og Helga Andrésdóttir og náðu þau að forða sér af efri hæð- inni nokkrum sekúndum áður en þakið rifnaði af. í samtali við Morgunblaðið sögðu þau Helga og Guðmund- ur Karl að þegar fór að hvessa verulega um kvöldið þá hefðu Þakið fauk af í heilu lagi þau fundið fyrir þrýstings- breytingum inni í íbúðinni og rétt fyrir kl 21 í fyrrakvöld heyrðu þau mikinn hvell og forðuðu þau sér niður á jarða- hæðina. Mátti ekki tæpara standa því þegar þau voru hálfnuð niður stigann rifnaði þakið af og þyrlaðist yfir þau heymoð sem notað hafði verið í einangun í þakinu. Sem dæmi um ógnarafl vindsins þá flaug þakið yfir fánastöng sem stóð hlémegin við húsið án þess að skemma hana. Þakið lenti fyrst á þakbrún húss við Garðabyggð 2 en endaði að lokum á lóð Garðabyggðar 4. Mikil mildi þykir að ekki fór verr en brak úr þakinu lenti á kanínuhúsi og drapst ein kanínan. Unga fólkinu barst fljótt aðstoð og eru þau Guðmundur Karl og Helga þjálparfólki afar þakk- lát. * Fundur um ferðamál á Selfossi Ahersla á samstarf á hverjum stað Selfossi - „Menn verða að gera þetta sjálfir, það kemur enginn að sunnan og reddar okkur,“ sagði Þórdís G. Arthúrsdóttir, ferða- málafulltrúi á Akranesi, meðal annars á fundi um framtíðarstefnu í íslenskri ferðaþjónustu. Þórdís ræddi um starfssvið ferðamálafull- trúa, hvernig Akurnesingar ynnu að ferðamálum og um árangur af átaki í ferðaþjónustu. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að aðilar á hveijum stað ynnu saman. Þann- ig næðist mestur og bestur árang- ur sem kæmi öllum til góða. Fundurinn var sá þriðji í funda- röð um ferðamál á vegum atvinnu- og ferðamálanefndar Selfoss. Næsti fundur verður 3. mars og mun marka upphaf á þróunarátaki í ferðamálum á Selfossi. Þórdís G. Arthúrsdóttir hefur starfað sem ferðamálafulltrúi á Akranesi um nokkurra ára skeið. Verksvið ferðamálafulltrúa felst í stuðningi við uppbyggingu og skipulag ferðaþjónustunnar, ráð- gjöf, samræmingu upplýsinga og útgáfumála og þróunarvinnu. Upplýsingamiðstöð er starfrækt á Akranesi sem Þórdís sagði hafa mikla þýðingu. Auk þess að veita upplýsingar til ferðamanna sæktu þeir sem væru að byija í rekstri þangað kraft og þor. Þórdís sagði ferðaþjónustuna ekki einkamál neins, hún kæmi öllum íbúum bæjarins við því veltan sem skap- aðist kæmi öllum til góða. Besta kynning á hveijum stað væru íbú- arnir sjálfír og til þess að kynning- in væri góð þyrftu þeir að vera sáttir við bæinn sinn. Þórdís sagði frá óformlegum samtökum á Akranesi um ferða- þjónustu, Átak Akranes. Þessi samtök hefðu eflt samstöðu meðal fyrirtækja á staðnum og komið því til leiðar að allar upplýsingar kæmust betur til skila og skipulag væri betra, dagsetning ýmissa at- burða rækist til dæmis ekki á. Hún sagði að Akurnesingar beindu sjónum sínum helst að íslending- um og hefðu sem markhópa, á íþróttasviðinu, sumarbústaðafólk, námskeið og ráðstefnur og erlenda ferðamenn. Þórdís sagði mikilvægt að bregðast fljótt við aðsteðjandi breytingum og nefndi sem dæmi að nú væri þegar farið að huga að breyttum áherslum vegna ganga undir Hvalijörð til þess að skapa nýja sérstöðu sem höfðaði til fólks á þeirri leið. í þeim efnum væri rík áhersla lögð á samvinnu aðila á Akranesi. Flutningur hafinn á húsum til Súðavíkur Selfossi - Átta ný heilsárshús voru flutt frá Selfossi á sunnudag áleið- is til Súðavíkur. Frá Flúðum voru flutt fímm notuð gestahús sem voru í eigu aðila frá' Selfossi. Húsin voru öll flutt til Hafnarfjarðar, en þaðan fara þau síðan með skipi til Súða- víkur. Alls er fyrirhugað að flytja 19 sumarhús til Súðavíkur. Um helgina var lagt af stað með fímm húsanna landveginn til Súðavíkur og í þeirri för er 50 tonna krani. Fjórtán hús- anna fara með skipum frá Hafnar- fjarðarhöfn. Morgunblaðið/Sig. Jóns LAGT AF stað með hús frá Selfossi áleiðis til Súðavíkur. Morgunblaðið/Kristinn HÚSUM skipað um borð í Hofsjökul í Hafnarfjarðarhöfn í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.