Morgunblaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 25
STEINÁLFAHJÓNIN Steinn og Steina Vala gægjast í húfu Guðs
til að athuga hvort ekki leynist þar tilvonandi steinálfabarn.
Af tröllaskorti
í Sögulandi
LEIKLIST
Sögusvuntan á
Fríkirkjuvegi 11.
i HÚFU GUÐS
Höfundur, leikmynd, brúður og
leikur: Hallveig Thorlacius. Leik-
stjóri: Ása Hlín Svavarsdóttir. Lýs-
ing: Sigurður Guðmundsson.
í HÚFU Guðs eru öll litlu börnin
sem eiga eftir að fæðast; Guð geym-
ir þau þar þangað til kominn er tími
til að láta þau í magann á mömmun-
um. Og þar hefur tilvonandi trölla-
strákurinn Pínupons beðið þess að
komast í bolluna á Skellinefiu - en,
því miður, hefur hann á einhvern
óskiljanlegan hátt dottið út úr húf-
unni og liggur grátandi oní vasa á
Sögusvuntunni; svo lítill, nánast
ósýnilegur. Og hann þarf mikla
hjálp til að komast aftur í húfuna
og enn meiri hjálp til að komast í
bolluna á Skellinefju, þar sem tilvon-
andi faðir hans er farinn til Græn-
lands ásamt öllum hinum tröllakörl-
unum í Sögulandi. Það er að verða
ófremdarástand í landinu; karlarnir
farnir og engin ný tröllabörn, né
álfabörn, eru á leiðinni. Aðeins eitt
álfabarn er í landinu. Það er hann
Hnullungur, sonur steinálfahjón-
anna, Steins og Steinu Völu. Og þau
eru alltaf að kíkja í húfu Guðs til
að athuga hvort ekki sé annað barn
á leiðinni. Það sem er enn verra,
er að það þarf að fela öll trölla- og
álfabörn í Sögulandi, vegna þess að
svartálfurinn Skuggabaldur rænir
þeim. Hann leggur sig allan fram
um að spoma gegn offjölgun í Sögu-
landi.
En það þarf með einhveijum ráð-
um að koma Pínupons í bolluna á
Skellinefju og þar kemur að til þess
fínnst leið - sem er mjög ólík því
sem gerist í mannheimum. Áhorf-
endur þurfa að aðstoða við ýmislegt
því tröll og álfar eru ekki alveg ein-
fær um að kljást við Skuggabaldur;
hann er alltaf að þvælast fyrir. Og
viti menn, þrettán mánuðum seinna
fæðist lítill tröllastrákur.
I húfu Guðs er vel skrifuð saga.
Textinn er hnyttinn og skemmtileg-
ur og spennan hæfilega mikil fyrir
börn á forskólaaldri. Þótt Skugga-
baldur sé ógnandi, verður hann ekki
beint hættulegur - miklu fremur
ógeðslegur, eins og bömunum er
strax bent á. Þau verða því aldrei
hrædd, þótt þau verði spennt. Þau
bregðast miklu fremur þannig við
að þau vilja leggja sitt af mörkum
til að allt geti farið vel.
Eins og í fyrri sýningum Sögu-
svuntunnar nær Hallveig mjög vel
til barnanna; dregur þau að því er
virðist áreynslulaust inn í heim
ævintýrisins - svo algerlega að þau
týna hvað eftir annað mörkunum
milli mannheima og Sögulands.
Brúðumar eru skemmtilega
hannaðar handbrúður. Þær hafa
táknrænt útlit fremur en raunsæis-
legt. Leikmyndin er einn heljarinnar
kjóll og það er hátt í björgin þar
sem búa álfar og tröll og hátt upp
í húfu Guðs, þar sem tilvonandi
börnin bíða. Þetta er óhemju
skemmtileg og vel útfærð hugmynd
og möguleikar hennar eru vel nýtt-
ir. Samræmið í leikmynd og brúðum
er mjög gott og iýsingin er vel hönn-
uð í kringum, og inn í, myndina.
Það er skýr og góð framvinda í
sýningunni; hún er áhugaverð fyrir
augu og eyru; efniviðurinn er
óvenjulegur og skemmtilegur og var
ekki annað að sjá en að litlir áhorf-
endur hefðu gaman af henni.
Súsanna Svavarsdóttir
60 klst tölvunám
Almenn tölvufræði, Windows, stýrikerfi,
Word 6.0 ritvinnsla, Exel 5.0 töflureiknir og
tölvufjarskipti, m.a. kynning á „lnterneti“.
i Tölvuskoli Reykiavikur
555555 ■ Borsartúni 28, sími 5561 6699
Söngvarar
færa barna-
spítala
prentara
KÓR ÍSLENSKU óperunnar og
nemendur og starfsfólk Söngskól-
ans í Reykjavík afhentu Grunnskóla
barnadeildar Landspítalans lit-
bleksprautuprentara í gær. Prent-
arinn er gefinn í minningu Evu
Marý Gunnarsdóttur, f. 26. apríl
1982, sem lést af völdum krabba-
meins á Bamadeild Landspítalans
19. janúar síðastliðinn.
Móðir Evu Marý, Gréta Jónsdótt-
ir, er nemandi í Söngskólanum í
Reykjavík og hefur sungið með
Óperukórnum. Með þessu móti vildi
samstarfsfólk hennar þar votta fjöl-
skyldunni samúð sína og færa sjúk-
um börnum á Landspítalanum að
gjöf prentarann, sem er af gerðinni
Hewlett Packard 560C og keyptur
með stuðningi Tæknivals í Skeif-
unni.
FLutningaþjónusta
í Evrópu
í Rotterdam í Hollandi rekur Eimskip öfluga flutningaþjónustu á alþjóðlegum flutn-
ingamarkaði. Hjá Eimskip í Rotterdam starfa um 30 manns - sérfræðingar í flutninga-
málum á ákveðnum svæðum Evrópu, t.d. Hollandi, Ítalíu, Spáni, Portúgal, írlandi,
Suður - Frakklandi og hluta af Þýskalandi. Pannig tryggir Eimskip farmflytjendum
faglega flutningaráðgjöf.
„Vanti þig ráðgjöt og vandaða
flutningaþjónustu skaltu hafa
samband við Eimskip."
Höskuldur H. Ólafsson,
forstöðumaður í Rotterdam
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í flutninga-
þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands-
flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis.
EIMSKIP
Sími 569 71 00 • Fax 569 71 79
Netfang: mottaka@eimskip.is